Dagur - 03.10.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 3.OKTÓBER 1997 - 3
FRÉTTIR
í.
Spillt og rotið kerfi
fyrir atviimulausa
Þórður Ólafsson st/órnarformaður, Atvinnuleysistryggingasjóds: Það þarfað endurbyggja allt kerf-
ið frá grunni.
Mikiö iLiii misnotkim
á sjóðnum. Hags-
munagæsla í stað úr-
bóta. Viunumiðlun
borgarinnar alverst.
„Það er mikið meira um það að
atvinnuleysistryggingasjóður sé
misnotaður en fólk gerir sér
grein fyrir. Það er mín reynsla í
stjórn sjóðsins," segir Þórður
Olafsson, stjórnarformaður
sjóðsins og formaður Verkalýðs-
félagsins Boðans í Hveragerði.
Sem dæmi um misnotkunina
nefnir hann dæmi frá ónefndu
sveitarfélagi. Þar hefði hann tek-
ið félagsmálastjóra fyrir vegna
þess að hann lét skrá mann at-
vinnulausan sem var ekki á
vinnumarkaði á þeim tíma. Þess í
stað var viðkomandi í áfengis-
meðferð á Staðarfelli. Þórður
segir þetta ekki vera neitt eins-
dæmi. Þar fyrir utan séu sveitar-
félög einatt að varpa hinum fjár-
hagslega bolta vegna atvinnu-
lausra yfir á at\’in n u Ieys i st rygg-
ingasjóðinn í stað þess að taka
sjálf á vandamálinu.
Engin félagsmálastofnun
Hann segir að atvinnuleysis-
tryggingasjóðurinn sé fyrir þá at-
vinnulausu en ekki einhver fé-
lagsmálastofnun. Hann telur
brýnt að stokka upp spilin í þess-
um efnum til að hægt verði að
efla aðstoð við þá sem eru án
vinnu. I því sambandi er atvinnu-
leysistryggingasjóðurinn ekki
undanskilinn. Ef eitthvað er þá
þyrfti að endurbyggja allt kerfið
frá grunni, ráða til starfa ungt
fólk sem vinnur af faglegum
metnaði og er ekki gegnsýrt af
hagsmunagæslu sveitarfélaga og
verkalýðsfélaga.
Hann gagnrýnir vinnumiðlanir
sveitarfélaga fyrir að gera lítið
sem ekkert til að hjálpa atvinnu-
Iausum í þeirra baráttu. Af ein-
stökum vinnumiðlunum telur
hann að vinnumiðlun borgarinn-
ar sé alverst. Þar sé einungis ver-
ið að skrá þá sem eru án atvinnu
og nánast ekkert annað. Þess í
stað ættu stéttarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu og borgin að
vinna að því að hjálpa atvinnu-
lausum út úr ógöngum sfnum því
það sé nóg af vinnu að hafa.
Þórður segist hafa þykkan
skráp og láta sér það sem vind
um eyru þjóta þótt pólitískir and-
stæðingar hans innan verkalýðs-
hreyfingar telji hann vera fremur
framsóknarmann en verkalýðs-
sinna vegna fækkunar úthlutun-
arnefnda atvinnuleysisbóta úr 34
í 8. I því sambandi minnir hann
á að í stjórnartíð Péturs Sigurðs-
sonar, formanns Alþýðusam-
bands Vestijarða, hafi nefndun-
um verið fækkað úr 140 í 34. Þá
hefði náðst að lækka kostnað
vegna úthlutnarnefnda úr 110
milljónum króna í 55 milljónir
króna. -GRH
Aljingi
maekKi
vita
Samgönguráðherra er óheimilt
að gefa Alþingi upplýsingar um
launakjör eða aðrar greiðslur til
einstakra starfsmanna Pósts og
síma h/f, samkvæmt lögfræðiá-
liti, sem lagt var fram á þingi í
gær. A síðasta þingi var rætt ut-
andagskrár um rétt alþingis-
manna til aðgangs að upplýsing-
um um stofnanir og hlutafélög í
eigu rfkisins og í framhaldi af
því var Stefáni M. Stefánssyni
lögfræðingi falið að gera úttekt á
málinu. Hann telur að ráðherra,
eða öðrum þeim sem fer með
eignarhlut ríkisins í hlutafélagi,
sé ekki skylt að gefa þinginu aðr-
ar upplýsingar en þær sem telj-
ast opinberar og t.d. koma fram
í ársreikningum og sé beinlínis
óheimilt að gefa upplýsingar um
launkjör einstakra starfsmanna.
Steingrimur Hermannsson, Seðlabankastjóri er stjórnarmaður í Millenium Institute, en samkvæmt bankalögum er slíkt adeins heimilt ef um tóm-
stundagaman er að ræða.
Ferðakostnaður
stenst ekM lög
Lög iiin Seðlabanka
íslands banna banka-
stjdnun setu í sjóm
stofnana og fyrir-
tækja. Seta Stein-
gríms í stjóm Milleiii
iiin Institute frí-
stundagaman að mati
bankaráðsins.
Lög um Seðlabanka Islands
kveða á um að bankastjórar megi
ekld sitja í stjórn stofnana og at-
vinnufyrirtækja utan bankans
eða taka þátt í atvinnurekstri að
öðru leyti nema slíkt sé boðið í
lögum eða um sé að ræða stofn-
un eða atvinnufyrirtæki sem
bankinn á aðild að.
Þetta atriði er fortakslaust að
mati lögfræðinga sem blaðið tal-
aði við. Menn telja þó ekki að
þetta hindri bankastjórana í að
sitja í stjórnum vegna áhugamála
sinna, eins og í stjórn tónlistarfé-
lags eða annars sem ekki snertir
hagsmuni bankans á nokkurn
hátt.
Samkvæmt þessu er útilokað
að formaður bankaráðs Seðla-
bankans hafi heimild til að leyfa
Steingrími Hermannssyni setu í
stjórn Millenium Institute, nema
hann hafi talið að um áhugamál
Steingríms sé að ræða sem bank-
anum komi ekki við.
Olafur B. Thors, varaformaður
hankaráðs Seðlabanka Islands,
staðfesti þessa túlkun og sagði
það skilning bankaráðsins að
reglurnar ættu ekki við um sak-
laust tómstundagaman banka-
stjóranna. Olafur segir að eftir
því hvernig málið var Iagt fram í
bankaráði, þá hafi skilningur
manna verið sá að verið væri að
taka afstöðu til þess hvort seta
Steingríms í stjórn Millenium
Institute tefði hann frá störfum í
bankanum. Þið gerið ráð fyrir því
að bankastjórar ykkar þekki lögin
um Seðlabanka Islands? „Ég ef-
ast ekki um það.“ HH
Ósaimar ásakanir, segir Landsbergis
„Þessar ásakanir eru með öllu ósannar. Þetta er
ógeðfelld aðferð, ætluð til að koma höggi á mig í
væntanlegri kosningabaráttu vegna forsetakosn-
inga í Litháen. Svipaðar ásakanir komu frá and-
stæðingum mínum í þingkosningunum árið 1992.
Það er ekki sannleikskorn í þessum ásökunum og
engin gögn hafa verið lögð fram sem styðja þær.
Þetta er bragð sem ætlað er svipta mig trausti með-
al almennings. Eg hef starfað af heilindum fyrir
þjóð mína og menn geta dæmt um það af verkum
mínum, hverjum er betur treystandi, Landsbergis eða KGB,“ sagði
Landsbergis, núverandi forseti litháíska þingsins, í samtali við Dag.
Landsbergis hefur verið ásakaður um tengsl við KGB.
Skýrsla uiii samstarf
„Við verðum með flokksstjórnarfund í dag klukkan 17.00 þar sem ég
mun gefa skýrslu um stöðuna í viðræðum vinstri flokkanna um sam-
starf í komandi sveitastjórnarkosningum. Einnig munum við ræða
um útgáfu flokksfréttablaðs,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins, í gær. Hann sagði að skýrsla sín um viðræður vinstri
flokkanna væri góð því eins og allir gætu séð væri mikið líf í þeim við-
ræðum útum allt land. Sumstaðar væru þær meira segja komnar á
lokastig. -S.dór
Slegist iim Akureyringa
Mikil samkeppni er um ferðalanga frá Akureyri í beint flug til Evrópu
næsta sumar. Þannig hafa þrjú fiugfélög lýst áhuga á að bjóða upp á
beint leiguflug til borga í Evrópu og er ástæðan öðrum fremur Lands-
mót hestamanna sem fer fram á Melgerðismelum næsta sumar. Bú-
ist er við mörgum þúsundum erlendra gesta á mótið og verður ekki
bara hart barist um flugfarþegana, heldur einnig gistirýmið. Búast má
við að hluti Akureyringa leigi út íbúðir sínar fyrir erlendu gestina. BÞ
Allt vitlaust hjá Reiknistofmm
Tölvukerfi reiknistofu bankanna hrundi í gær með þeim afleiðingum
að um 5 milljarða vantaði til Visa Island eftir gærdaginn. Athygli vek-
ur að um hver mánaðamót hefur kerfið bilað til Iengri eða skemmri
tíma upp á síðkastið og veldur það viðskiptalífinu margvíslegum erf-
iðleikum. Formaður Kaupmannasamtakanna sagði í fréttatíma hjá
Stöð 2 í gærkvöld að ástandið væri algjörlega óviðunandi.