Dagur - 03.10.1997, Page 4

Dagur - 03.10.1997, Page 4
4- FÖSTUDAGUR 3.0KTÓBER 1997 FRÉTTIR L. Prentskil á Amtsbókasafni Bæjarráð Akureyrar hefur mælt með því að vistunarstaður prent- skilasafns verði áfram á Amtsbókasafninu. Hugmyndum um hús- næðismál og aðra uppbyggingu safnsins vísar bæjarráð til gerðar fjár- hagsáætlunar fyrir næsta ár og 3ja ára áætlunar um rekstur og fram- kvæmdir bæjarsjóðs. Stofnbúnaður fyrir Sigurhæðir Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað tilfærslu á 500 þúsund króna fjárveitingu til stofnkostnaðar Amtsbókasafns til kaupa á stofnbúnaði fyrir Hús skáldsins á Sigurhæðum. Erlingur Sigurðarson forstöðu- maður hefur gert grein fyrir áætluðum kostnaði við kaup á skrif- stofubúnaði og öðrum stofnbúnaði fyrir leigjendur og gesti er heim- sækja staðinn. Mengandi kjötreyking Oddur Haíldórsson bæjarráðsmaður (B) vakti nýlega athygli á meng- un í Akureyrarbæ og hverra úrbóta sé að vænta. Sérstaklega var rætt um lyktármengun frá Krossanesverksmiðjunni, kjötreykingu Kjarna- fæðis við Fjölnisgötu og malbikunarstöð bæjarins. Vinna er hafin við endurnýjun tækja í Krossanesi, heilbrigðisnefnd hefur veitt Kjarna- fæði frest til úrbóta til 15. nóvember og samþykkt hefur verið að koma upp rykhreinsibúnaði við malbikunarstöðina áður en starfsem- in hefst vorið 1998. Laug fyrir fatlaða að Kristnesi Á fundi bæjarráðs Akureyrar nýverið var lögð fram greinar- gerð frá sviðsstjórum félags- og heilsugæslusviðs og fræðslu- og frístundasviðs um sundlaug- armál fatlaðra. Niðurstaða þeirra er að raunhæfast sé að horfa til Iaugarinnar við Krist- nesspítala sem framtíðarúrræð- is fyrir þá sem mest eru fatlað- ir. Þangað til hún kemst í notk- un sé æskilegt að reynt sé að sinna þörfum hópsins í sund- laug Glerárskóla í sambúð við þá starfsemi sem þar er fyrir. Æskilegt er einnig að Akureyr- arbær leiti leiða til að stuðla að því að byggingu þjálfunarsund- laugar við Kristnesspítala ljúki sem fyrst. Bæjarráð bendir á að vegna breyttrar notkunar á húsnæði Sólborgar (Háskólinn á Akureyri) hafi verið lögð niður þjálfunarlaug fyrir fatlaða sem þar hafi verið komið upp fyrir söfnunarfé í bænum. Jakobi Bjömssyni bæjarstjóra var falið að taka upp viðræður við rík- isvaldið vegna málsins. Ófaglærðir mála ketilhús Meistararélag byggingarmanna á Norðurlandi og Félag byggingar- manna í Eyjafirði telja að Akureyrarbær standi að lögbroti á iðnlög- gjöfinni þar sem ófaglærðir menn á vegum Gilfélagsins stundi máln- ingarvinnu í „ketilhúsinu" sem er í eigu bæjarins. Bæjarráð Akureyr- ar beinir þeim tilmælum til Gilfélagins að þannig verði staðið að framkvæmdum við hús bæjarins að iðnlöggjöfin verði virt. Engir vöruflutningar um Kaupvangsstræti Bæjarráðsmaður Siigurður J. Sigurðsson (D) lagði fram eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar á bæjarráðsfundi: „Bæjarstjórn samþykkir að takmarka akstur stórra bifreiða um Kaupvangsstræti annarra en strætisvagna og bifreiða til vörulosunar í götunni, þegar gatan verður opnuð fyrir umferð á ný. Skipulagsnefnd verði falin nánari útfærsla málsins." Næsti fundur bæjarstiórnar er þriðjudaginn 7. október nk. klukkan 16.00. Rétt er að geta þess að fundir bæjarstjórnar eru öll- um opnir til áheyrnar. Stefnumarkandi byggðamál Stjórn Eyþings, samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýsl- um, hefur óskað eftir því \áð sveitarstjórnir á Norðurlandi að þær taki til umfjöllunar ákveðnar spurningar um byggðamál og skili af- stöðu sinni til þeirra til skrifstofu Eyþings fyrir 8. desember nk. Til- gangurinn er að fá fram viðhorf sveitarstjórna til nokkurra meginat- riða er varða byggðamál til þess að nota sem innlegg í stefnumótandi byggðaáætlun, sem lögð verður fyrir Alþingi næsta vor. Framtlð unglingavúmu Félagsmálastjóri Akureyrarbæja^valgerður Magnúsdóttir, hefur lagt til við bæjarráð Akureyrar að skipaður verði starfshópur sem móti til- lögur um framtíðarskipan unglingavinnu á Akureyri og leggi þær fyr- ir hæjarráð. Bæjarráð hefur samþykkt skipan starfshópsins, en auk bæjarráðs munu skólanefnd, íþrótta- og tómstundaráð óg umhverfis- nefnd tilnefna fulltrúa í hópinn. GG íslendingar vilja ekkiað forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu bitni á reykingamönnum eða offeitu fólki. Afstaða ræðst hvorki af aldri eða stoðu Afstaða til forgangs- röðimar ræðst lítið af kyni, aldri, tekjum eða stöðu. Fimmtuug- ur kvenua frestað læknisheimsókn vegna fátæktar. Eru íslendingar hlynntir eða andvígir; einkasjúkrahúsum, kransæðaaðgerðum á gamal- mennum, að offeitt og reykinga- fólk sé sett aftar á biðlista og reglum um læknisaðgerðir á ólæknandi fólki? Skoðanakönn- un um viðhorf fólks til slíkrar forgangsröðunar í heilbrigðis- kerfinu virðist leiða í ljós að það er eitthvað annað en kyn, aldur, menntun, hjúskaparstaða eða barnafjöldi sem ræður mismun- andi skoðunum rnanna í þessum efnum. Kannski helst að mis- munandi stjórnmálaskoðanir skiptu máli. Spurningu hvort þeir hafi þurft að fresta eða hætta við læknisheimsókn á undanförnum 12 mánuðum svaraði nær 5. hver kona og yngri en þrítugir játandi, en helmingi færri karlar. Munur eftir tekjum var samt minni en ætla mætti; 21% þeirra launalægstu og 13% hinna hæstlaunuðu. Möguleika til að nota sér heilbrigðisþjónustuna, með tilliti til kostnaðar, telur samt meirihlutinn hafa versnað síðustu 4-5 árin. Aðeins 5% sáu breytingar til hins betra. Einkasjukrahús óháð tekjiun Rúmur helmingur svarenda er hlynntur og tæp 40% andvíg rekstri einkasjúkrahúsa sem val- kosti lyrir fólk sem vill borga sjálft. Fylgi við einkaspítala var tölu- vert meira í yngsta hópnum og minna í þeim elsta, en athygli vekur að mismunandi tekjur, prófgráður og barnaljöldi skiptu t.d. litlu máli. Aldur réði engu um það að 2/3 þjóðarinnar vill að háaldrað- ir fái kransæðaaðgerðir ekki síð- ur en aðrir. Aðeins sjötti hver er þessu andvígur. LítiII sem eng- inn munur kom fram eftir tekj- um, menntun, starfi eða öðru. Og enn fleiri í öllum hópum voru andvígir því að reykingafólk og offituþjáðir verði settir aftar á biðlista eftir hjartaaðgerðum en aðrir. Skiptir í tvö hom Alíka margir (40%) voru hlynntir því og andvígir að reglur verði settar um læknisaðgerðir sem lengi líf sjúklings sem ekki hefur von um bata. Tæpur fimmtung- ur var hlutlaus. Þessi hlutföll breyttust ekki einu sinni eftir stjórnmálaskoðunum svarenda. Könnunin var unnin af Fél- agsvísindastofnun fyrir Samtök heilbrigðisstétta sem kynntu niðurstöður hennar á málþingi. - HEI Davíð talar um góðæri Forsætisráðherra boð- aði fátt nýtt í stefnu- ræðu siuui í gær- kvöld, eu lagði áherslu á að bjart væri framuudau í ísl- ensku efnahagslífi. Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, boðaði Iitlar breytingar í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöld. Hann ræddi um góð- an árangur í efnahagsmálum, hallalausan ríkisbúskap, stöðug- leika, skattalækkanir og aukinn kaupmátt fólks, en sagði jafn- framt að þótt margt hefði áunn- ist væri dagsverkinu hvergi lok- ið. Lítið mætti útaf bera til þess að verðbólga færi á kreik. Davíð ræddi nokkuð um skólamál, en minntist þó ekkert á yfirvofandi kennaraverkfall, nema ef vera skyldi að kennur- um hafí verið ætluð sneiðin „til- raunir einstakra hópa nú í Iok kjarasamningsferils til að knýja fram miklu meira í sinn hlut en aðrir samningsaðilar hafa fengið er mikið áhyggjuefni,“ eins og hann orðaði það. Vaxandi misskipting Sighvatur Björgvinsson, formað- ur Alþýðuflokksins, dró ekki upp jafn bjarta mynd. Hann sagði bilið milli ríkra og fátækra hér á landi fara vaxandi og fátæku fólki fjölgaði í góðærinu. Allt væri í uppnámi í heilbrigðismál- um, stjórnarflokkarnir hyggðust færa peningavíxlurum ráðstöf- unarrétt yfir lífeyrissparnaði landsmanna, verið væri að festa í sessi séreign fárra á auðlindum hafsins og til stæði að fela örfá- um stjórnsýsluna á hálendinu. Helmingaskiptastjórn Fram- sóknar- og Sjálfstæðisllokks fórnaði almannahag ævinlega fyrir sérhagsmuni fárra. Sighvatur sagði að aðeins sameinaðir jafnaðarmenn gætu snúið þessari þróun við. I sama streng tók Margrét Frí- mannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins. Það hefði sjaldan verið jafn brýnt og nú að allt fé- lagshyggjufólk stæði saman gegn stefnu stjórnarflokkanna. Ríkis- stjórnin hefði svikið loforð um að láglaunafólk fengi að njóta þess þegar betur áraði, en arður- inn af góðærinu hefði safnast á fárra manna hendur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.