Dagur - 03.10.1997, Side 6

Dagur - 03.10.1997, Side 6
6 - FÖSTVDAGUR 3.0KTÓBER 19 97 ro^fu ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Símbréf auglýsingadeildar: Simbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUEMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖRU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.680 KR. Á MÁNIH 150 KR. OG 200 KR. HELGARBL/Ð 800 7080 460 6161 460 6171 Við bjóðiun góðan Dag! ífyrstalagi Framtíð þriðja aflsins á íslenska blaðamarkaðnum heitir Dagur og felst í sókn sem nú heldur áfram af auknum krafti. Dagur-Tíminn þakkar fyrir sig og gengur í endurnyjun lífdaga með sameinaða krafta og tiltrú lesenda, eigenda og starfsmanna. Ahersla okkar og sjónarhorn er á fólkið og hagsmuni þess. Al- mannaheill. Aðferð okkar er lifandi frásögn: ábyrg, upplýsandi og skemmtileg. Við viljum að hver dagur sé nýr dagur - og betri dagur. í öðru lagi Eitt þeirra mála sem nú varðar almannaheill er þetta ríki í ríkinu - nei, KEISARADÆMI í ríkinu sem nefnist Seðlabanki. Þar hegða menn sér eins og nautnaseggir frá tímum Nerós: minnsti siðvæðing- arvottur sem kemst inn fyrir dyr er fótum troðinn í taumlausri græðgi. Makadagpeningar bankastjóra eru ekki mannréttindi. Þetta sukk var afnumið, en endurreist stjórunum til dýrðar útaf smá- mannlegu sífri um að aðrir stjórar í öðrum bönkum fengju. Og nú tekið aftur þegar upp kemst. Skilja æðstu menn ekki að öllum al- menningi býður við þessum vellystingaverkjum þeirra? íþriðjalagi Úr því að nú er verið að velta Steingrími Hermannssyni upp úr því að hann og Þröstur Olafsson bankaráðsformaður tali ekki sama tungumál er hér viðbótartillaga: upp á yfirborðið með allt heila draslið! Makadagpeningar (hverjir, hve mikið?), listaverkakaup (hverjir, hve mikið, hvers vegna?) menningarsjóður Seðlabankans (hver ræður, hvers vegna, hvenær auglýst, hver fær?), gufuböðin, koníaksstofan, æfingasalurinn, yfirmannamessinn (Kjarvalar á veggjum, leður, silfur), sumarhús í einkadal fyrir austan, bækur, styrkir, gjafir. Ætli komi ekki í ljós að Seðlabankinn hafi mörg járn í sínum eldi og ekki öll skílgreind í lögum? Þröstur, þú sagðir A, nú segir þú B, og tekur til! STEFÁN JÓN HAFSTEIN. Ekki folk í Iðnd! Þórhildur Þorleifsdóttir lætur eklú deigan síga í andstöð- unni við sína gömlu flokks- systur, Ingibjörgu Sólrúnu borgarstjóra. Ingibjörg hefur sem kunnugt er lagt til að veitingahúsið við Tjörnina fái inni í Iðnó ásamt Leikfélagi Islands og í sameiningu á þetta að tryggja lifandi starf og menningarlegt í húsinu. I spurningu dagsins í Degi- Tímanum í gær Iýsir Þórhild- ur botnlausu frati á þessa til- Iögu borgarstjór- ans. „Ég skil ekki hugmynd- ina,“ segir Þór- hildur. „Allir sem hafa unnið í þessu húsi vita að þar er ekki hægt að fást við menningarstarf á meðan verið er að matbúa og annað sem því fylgir," segir hún ennfremur. Matargerð og menningarstarf fer því ekki sam- an að dómi Þór- hildar, og allra síst í Iðnó. Fleira fólk - minni menning Þetta er auðvitað rétt hjá leik- hússtjóranum. Matsölustað fylgir mikil traffík, fólk er að koma í húsið og skoða sig um og jafnvel fá sér mat. Nær- vera alls þessa fólks truílar bara Ieikhússtarfið og það verður erfitt fyrir Ieikara að einbeita sér og muna línurnar sínar. Með öðrum orðum þá virkar fólk truflandi á menn- ingarstarfsemina. Skilaboðin V eru þvf skýr: Því færra fólk þvf meiri menning. Borgarleikhús menningarlegf Þetta skilur borgarstjórinn auðvitað ekki (og raunar ekki heldur hinir þrír menningar- v'itarnir sem spurðir voru í spurningu Dags-Tímans í gær). Þórhildur hefur nú staðið í því að stýra Borgar- Ieikhúsinu um skeið og þar hefur menning- in fengið að vera í fyrirrúmi. Þórhildur hefur getað haldið þar uppi menning- arlegu leikhúsi vegna þess að þar fá menn frið til að vinna, þar er ekki eitthvað ókunnugt fólk að þvælast fyrir. Og ef menning- arstigið stendur í réttu hlutfalli við aðsóknina í húsið þá er Borgarleikhúsið afar menningar- legt. Borgaryfirvöld með borgar- stjórann í broddi fylkingar hafa raunar ekki fyllilega skil- ið þetta samhengi hlutanna. Það er einfaldlega ekki hægt að hafa bæði fullt af fólki í leikhúsi og menningu - það er bara hægt að hafa annað hvort. Þess vegna hefur Ingi- björgu Sólrúnu gengið svo illa sem raun ber vitni að skilja kröfur Borgarleikhússins um meira fé - það kostar að halda uppi menningu. GARRI. ODDUR ÓLAFSSON Ekkert má maður nú. Seðla- bankinn er orðinn svo tíkarlegur við stjórnendur sína að þeir fá ekki einu sinni að stjórna al- þjóðlegum samtökum, sem fjalla um miklu göfugri málefni en peningamál, á kostnað bankans. Að bankaráðið skuli vera að fetta fingur út í að Steingrímur skreppi annað slagið út fyrir Iandsteinana til að vinna gegn alheimsmenguninni, er náttúr- lega hneisa. Mengunarvarnir eru ekkert ómerkilegri en að passa upp á að þjóðin fari sér ekki að voða í Ijármálaumsvifum sínum og ætti Seðlabankanum að vera kærkomið að fá að leggja slíku málefni lið. Enda telur bankastjórinn að ekkert sé eðli- Iegra, en að umhverfismál séu sjálfsagður þáttur í starfsemi Seðlabanka. Fjölþætt hlutverk Vel væri nú við hæfi að setja á Ferðahvetj andi tnnhverlismál stofn umhverfisdeild við Seðla- banka Islands. Það er greinilega vilji innan bankastjórnarinnar að stofnunin láti slík málefni til sín taka og því eðlilegt að það sé gert með formlegum hætti. Eng- inn velkjst í vafa um hver verður hæfastur sem umhverfisbanka- stjóri. Þá væri ekki úr vegi að stofnuð verði ferðadeild Seðla- banka Islands. Hún verður ábyrg fyrir öllum ferðakostnaði og mun svara aðdróttunum um ferðalög og dagpeninga starfs- fólksins. Þá þurfa blöð og bankaráð ekki að ómaka hátt- setta starfsmenn með leiðinleg- um athugasemdum um í hvað aurum Seðlabankans er spand- erað. Þörf óráðsía Þegar Seðlabankinn spratt eins og vel limað rótarskot út úr skrifborði í Landsbankanum var reist utan um hann musteri, Timabært að stofna nýja deild vð Seðiabank- ann. sem grafið er djúpt í jörðu og nær hátt til hæða. Undruðust margir hvaðan allur sá auður kom, sem þurfti til slíkra fram- kvæmda. Bankastjórinn þáver- andi átti auðvelt með svör: Pen- ingarnir urðu til í bankanum. Þetta skildu allir, nema það eitt með hvaða hætti auður skapast í seðlabanka. En engum datt í hug að bera brigður á svo augljóst svar. Þá hefur verið spurt hvernig vönduð og dýrmæt söfn bankans voru fjármögnuð. Svörin voru svipuð; alltaf nóg af peningum í Seðlabanka til þarf- Iegra hluta. En svo þegar bankinn fer að sinna brýnum umhverfismálum á alþjóðavettvangi telur banka- ráðið það óráðsíu hina mestu og segist aldrei hafa heyrt neitt um bankamengun og önnur óþrif koma Seðlabankanum eliki við. Maður segir bara, ef engin um- hverfisdeild er til við Seðlabanka Islands er tímabært að stofna hana til að ekki hljótist frekari vandræði af. Til jafnvægis gæti umhverfisráðuneytið tekið að sér eftirlit með einhverjum þeim sjóðum sem óþekkilegan fnyk leggur af. Á Steingrímur Her- mannsson að endur- greiðaferðir, sem hann hefurfarið á hostnað Seðlábanhans á fundi og ráðstefnurum um- hverfismál? ísólfur Gylfi Pálmason, þingmadurFramsóknarflokks og í um- hverfisn. Alþittgis. „Það er eng- in ástæða til þess. Stein- grími hafa verið falin stjórnarstörf hjá Mil- Iennium Institute vegna víðtækrar reynslu og þekkingar. Hinsvegar þurfa að vera skýrar reglur um kostnaðar- hlutdeild fyrirtækja og stofnana hvað ferðakostnaðar- og dagpen- ingagreiðslur varðar, þannig að ekki komi upp misskilningur." Friðbert Traustason, formaður Samb. ísl. bankatnanna. „Ef Stein- grímur hef- ur haft leyfi frá banka- ráði Seðla- bankans til að sinna umhverfis- málum í vinnutíma þá finnst mér hann ekki þurfa að endurgreiða það sem bankinn hefur lagt fram. En ég er sammála því að um- hverfis- og efnahagsmál eru óað- skiljanleg þegar talað er um um hagsæld þjóða.“ Jón Magnússon, lögmaður. „Eiga þeir sem verða uppvísir að skattsvikum að endur- greiða það sem þeir hafa skotið undan? Er ekki hluturinn jafn alvarlegur hvort heldur hann felst í að greiða ekki lögboðin gjöld eða taka peninga skattborgara til hluta sem eru þeim óviðkom- andi. Eg átta mig þó ekki á hvort Steingrímur er brotlegri en margir aðrir sem gegna opin- berum trúnaðarstörfum." Pétur Sigurðsson, fonnaður Verkalýðsfélagsins Baldtirs á ísafirði. „Ekki ef seðlabanka- stjórnin hef- ur leyft hon- um að taka þátt í þess- um alþjóða- störfum. Þá er eðlilegt að hann hafi tekið þetta svo að bankinn ætlaði að greiða kostn- aðinn. Það er óvenjulegt að ein- hver taki svona störf að sér og ætli að greiða kostnað úr eigin vasa.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.