Dagur - 03.10.1997, Qupperneq 11

Dagur - 03.10.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 3.0KTÓBER 1997 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR I svælu ogreyk Baksvið DAGIJR ÞORLEIFSSON SKRIFAR Eitraður reykjarmökkur, sem hylur Suðaustur-Asíu að tals- verðu leyti, svo að víða sér ekki til himins eða jafnvel ekki til sól- ar, hefur orðið til þess að tug- milljónir manna óttast um heils- una ogjafnvel lífið. Þegar þessi herfilega svæla bætist ofan á óstöðugleika þar í fjármálum, sem a.m.k. í Taílandi er orðinn að alvarlegri kreppu, leiðir það til þess að menn fara að líta með vaxandi gagnrýni á efnahagsundur sín. Mökkuriim mikli Mengunarmökkurinn mikli, sem liggur yfir Indónesíu, Malasíu, Singapúr og Brunei og nær til Taílands, Filippseyja o.fl. landa, hefur vakið athygli á að margra mati gegndarlausri rányrkju á náttúruauðlindum, sem efna- hagsvöxtur a.m.k. sumra landa Austurlanda Ijær byggist sum- part á. Mökkurinn stafar af gríðar- miklum eldum í frumskógunum á Súmötru, indónesísku Borneó og vesturhluta Nýju Gíneu, sem heyrir undir Indónesíu og er þar- lendis kölluð Irian Jaya. Víðátta frumskóga í Indónesíu er meiri en í nokkru öðru ríki heims, að Brasilíu frátalinni. Fyrir nokkru lét indónesískur embættismaður hafa eftir sér að um 300.000 hektarar skóglendis hefðu þegar orðið umræddum eldum að bráð, aðrir töldu að um 800.000 hektarar væru þá þegar eyddir af völdum þeirra og fullvíst má telja að síðan hafi stór svæði skógar eldi eyðst. Frá fornu fari hafa menn víða í núverandi Indónesíu stundað akuryrkju með því að brenna rjóður í skóginn og nota öskuna sem áburð. Vegna gífurlegs þétt- býlis á Jövu, þar sem búa um 70% íbúa Indónesíu, sem eru um 200 milljónir, hefur stjórnin undanfarin ár látið yfir sex millj- ónir Jövumanna setjast að á Súmötru og Borneó (sem Indónesar kalla Kalimantan) og fyrirhugað er að flytja margar milljónir manna frá Jövu til ann- arra eyja í viðbót. Innflytjend- urnir brenna einnig skóginn með akuryrkju fyrir augum, en af minni kunnáttu en innfæddir. Stórfyrirtæki skæöust Innfæddir sviðyrkjubændur og enn frekar nýbúar frá Jövu munu vera valdir að núverandi eldum þarna að einhverju leyti, en miklu meiri bál munu þó hafa kviknað af völdum stórfyrir- tækja, sem ryðja skóginn eldi til þess að fá land undir plantrekrur og iðjuver. Sum fyrirtækja þess- ara hrenna lágskóg og runna til þess að komast að verðmætum trjátegundum, en í iðnaði sem byggist á því hráefni er Indónesía framarlega. Fnimskógar Indónesíu standa í ljósum logum og Suð- austur-Asía er mikið til hulin reykjar- mekki. „Ósköpin sem yfir ganga í ár eru endurtekning á því, sem ger- ist árlega, í margfalt stærri stíl,“ segir talsmaður umhverfisvernd- arfélags í Sarawak, malasískum landshluta á Norður-Borneó. I þýska fréttatímaritinu Der Spi- egel stendur að árlega skreppi skógar Indónesíu saman um 900.000 hektara, aðallega af völduin elda sem kveiktir hafi verið beinlínis til þess að eyða skóg. Aðalástæðan til þess að þesskonar eldar urðu óvenju skæðir í ár er að venju fremur lengi hefur dregist að monsún- regnið byrjaði. Um það er kennt dularfullri hitun, sem nefnd er E1 Nino, í miklum hluta Kyrra- hafs. Þetta hófst fyrr í ár en venjulega og sjávarhitinn hækk- aði óvenju mikið. Olli þetta því að vindar breyttu um átt og regn- ið, sem vaninn er að monsún- vindurinn beri með sér yfir Suð- ur-Asíu, féll í staðinn úti á Kyrrahafi. Skógar Indónesíu eru því þurrir og eldfimir. Sviði í augum og lungiun Margir sérfræðingar um þetta telja gróðurhússáhrifin valda því að E1 Nino er svo svæsinn að þessu sinni, en að vísu er vitað að monsúnregnið hefur átt það til að bregðast í Suður-Asíu frá fornu fari. Gífurleg loftmengun í stór- borgum Suðaustur-Asíu af völd- um iðnaðar og umferðar er fyrir löngu orðin alvarlegt vandamál þar, og nú heldur reykjarlagið frá skógareldunum mengaða loftinu kyrru í borgunum og hlandast því. Reykurinn frá skógareldun- um er mengaður efnum eins og benzoli og benzpýreni, sem eru krabbameinsvaldandi og marg- falt hættulegri sem slík en sfgar- ettur. Fjöldi fólks á erfitt með andardrátt í svælunni, sérstak- lega þeir sem áttu við astma og aðra sjúkdóma í öndunarfærum að stríða fyrir, fólk svíður í augu og Iungu og það er kvíðafullt. I Kuching, borg vestan til í Sarawak, hefur loftmengun mælst rúmlega áttfalt meiri en óhætt þykir til þess að heilsu fólks sé elcki hætta búin.Víða eru yfirvöld grunuð um að segja mengunina minni en hún sé, af ótta við að annars brjótist út al- menn ofsahræðsla. Indónesíustjórn hefur bannað að skógar séu ruddir með eldi, en lítt hefur verið að þ\’í farið, einkum að sögn vegna þess að herforingjar, embættismenn, Suharto forseti sjálfur og fjöl- skylda hans eiga mikilla hags- muna að gæta í stórfyrirtækjum þeim er mestan skóg brenna. Af þessu gæti hlotist enn verri martröð ef eldurinn kæmist fyrir alvöru niður í lög af mó, sem víða eru skammt undir yfirborð- inu í frumskógum Indónesíu. Ekki er einu sinni víst að steypiregn slökkti í slfkum eldsvítum neðanjarðar. Enn logar raunar í mó á Austur- Kalimantan, sem kviknaði í 1982, en þá voru einnig þurrkar þar. Jeltsin afskrifar ekki þriðja kjörtímabilið Boris Jeltsfn, forseti Rússlands, sagði f gær að of snemmt væri enn fyrir hann að ákveða hvort hann ætli að gefa kost á sér sem forseti þriðja kjörtímabil sitt, sem myndi hefjast árið 2000 og standa í fjög- ur ár. Jeltsín var kosinn forseti árið 1991 og náði aftur kjöri 1996. I september síðastliðnum aftók hann það með öllu að hann myndi fara í framboð f þriðja sinn, því samkvæmt stjórnarskrá landsins geti for- seti ekki setið lengur en tvö fjögurra ára kjörtímabil. Stjórnarskráin tók hins vegar ekki gildi fyrr en árið 1993, tveimur árum eftir að hann var kosinn í fyrra sinnið. Prodi reynir að bjarga stjóminni Romano Prodi, forsætisráðherra Italíu, hóf í gær eina tilraunina enn til þess að bjarga ríkisstjórn sinni, og reyndi að sannfæra einn af stuðningsflokkum ríkisstjórnarinnar, Endurreisnarflokkinn, sem er arftaki fyrrverandi kommúnistaflokksins, um að hætta við að fella stjórnina vegna óánægju flokksins með fjárlagafrumvarpið fyrir 1998. Meginmarkmið Ijárlagafrumvarpsins er að tryggja að Italía uppfylli skil)TÖi Evrópusambandsins fyrir þátttöku í myntbandalaginu strax í byrjun árið 1999. Því fylgir mikill niðurskurður sem kommúnistar geta ekki sætt sig við og hafa því hótað að fella ríkisstjórnina með því að greiða frumvarpinu ekki atkvæði sín. Ekkert vafasamt græmneti, takk Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sagðist í gær ætla að gera ráðstafanir til þess að ávextir og grænmeti frá löndum sem uppfylla ekki bandarískar gæða- kröfur komi ekki inn fyrir landamæri Bandaríkjanna. Á næsta ári hyggst hann leita til þingsins um meira fjármagn handa Matvæla- og lyfjaeftirliti Banda- ríkjanna sem nota á til þess að ráða til starfa stóran hóp eftirlitsmanna sem stárfa eiga erlendis við að fylgjast þar með matvælaframleiðslu. Rúta tarapar af brú A.m.k. tólf manns létu lífið í Frakklandi í gær þegar rúta hrapaði nið- ur af brú á vegamótum norðan við Marseille. Bifreiðin féll tæpa sautján metra og var mjög illa farin. Marga klukkutíma tók að bjarga farþegum úr flakinu, en flestir þeirra voru frá Marokkó. Fitnm hljóta „hin Nóbelsverð- launin66 Fimm manns deila með sér Right Livelyhood verðlaununum þetta árið, en oft er talað um þessi verðlaun sem mótvægi við Nóbelsverð- launin. Þeir sem hljóta verðlaunin eru tveir kjarnorkuandstæðingar, Myclo Schneider frá Frakklandi og Jinzaburo Takagi frá Japan, sagn- fræðingurinn Joseph Ki-Zerbo frá Burkina Faso, umhverfisverndar- sinninn Michael Succow frá Þýskalandi og bandarísk kona, Cindy Duehring, sem er sérfróð um áhrif eiturefna. Verðlaunin verða afhent í Stokkhólmi þann 8. desember næstkom- andi. 26 norsk skip kyrrsett? Norska sjóferðaeftirlitið telur að öll norsk farþegaskip sem byggð voru fyrir 1994 uppfylli ekki nýjar kröfur um brunavarnir um borð í skip- unum. Hugsanlegt er að stjórnvöld kyrrsetji skipin, sem eru 26 tals- ins, vegna þessa. Utgerðarfyrirtækin eru æf vegna málsins, en fengu stuttan frest til þess að koma með áætlanir um hvernig þau hyggist fullnægja kröfun- um. Sex mánaða stiílka fær nýtt hjarta Sex mánaða stúlka í Svíþjóð, sem fæddist mánuði fyrir tímann, gekkst nýlega undir aðgerð þar sem skipt var um hjarta í henni. Hún er yngsti hjartaþeginn á Norðurlöndum til þessa, en aðgerðin var talin óhjákvæmileg ef bjarga ætti lífi hennar. Ellefu dagar eru frá því aðgerðin var gerð við Östra sjúkrahúsið í Gautaborg, og horfur á því að barnið lifi af eru taldar mjög góðar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.