Dagur - 04.10.1997, Side 10

Dagur - 04.10.1997, Side 10
10-LAUGARDAGVR 4. OKTÓBER 1997 ÞJÓÐMÁL Pólitískur heilsubær ÁKNI GUNN- ARSSON skrifar Kæri Gísli Páll: I viðtali við þig í Degi-Tíman- um í dag, 30.09.97, vísar þú um- mælum mínum um umhverfís- og mengunarmál í Hveragerði til gömlu góðu föðurhúsanna, sem hljóta senn að fyllast því þangað hefur mörgu verið vísað í gegn- um tíðina, með réttu eða röngu. A því leikur ekki vafí, að við höf- um báðir verulegan metnað fyrir hönd Hveragerðisbæjar og vilj- um efla þetta sérstæða og merki- lega samfélag með ráðum og dáð. Við erum hins vegar ekki alveg sammála um leiðir og aðferðir. Eg hef lengi verið þeirrar skoð- unar, að Hveragerðisbær ætti að taka langtímalán til að ljúka eins fljótt og unnt er smíði hreinsi- stöðvar fyrir frárennsli, ganga frá öllum frárennslislögnun, götum og gangstéttum og verða fyrir- myndarsamfélag í umhverfís- og mengunarmálum. Bæjarfélagið þarf fyrr eða síðar að greiða fyrir þessi verkefni. Auðvitað kostar það peninga að taka lán, en ég hygg að sá fjármagnskostnaður yrði fljótur að skila sér með nýj- um atvinnufyrirtækjum og fjölg- un íbúa, sem fylgdu í kjölfar hreinna og snyrtilegra bæjarfé- lags. Félagslegu áhrifin yrðu - einnig mjög mikil. Þetta er mín skoðun. Þú vilt fara hægar í sak- irnar og þá afstöðu virði ég, en tel mína Ieið vænlegri til árang- urs. Eiturefni Þá hef ég í tíma og ótíma (er að verða eins og Kató gamli) talið það skyldu stjórnvalda, en ekki bæjarfélagsins að hreinsa upp leifarnar af Samvinnuhreyfing- unni. Hún átti hér ullarþvotta- stöð sem dældi margvíslegum eiturefnum í Varmá. Ur því hefur verið bætt að mestu leyti. en enn rennur brúnleitur sápulögurinn og froðan í ána og stöðin veitir 18 manns vinnu, sem er mjög mikilvægt í samfélagi tiltölulega fárra atvinnutækifæra. Fallegri náttúru Hveragerðis hefur verið misþyrmt með þessari þvottastöð í áratugi. Samvinnuhreyfingin hljóp frá fyrirtækinu og efnalítið bæjarfélag hafði ekki fjármuni til að hreinsa í rústunum. Hér hefðu þingmenn og ráðuneyti umhverfísmála mátt koma við sögu. Aldrei heilsubær I viðtalinu er eftirfarandi haft eftir þér, þegar spurt er hvort Hveragerði standi ekki undir því að vera heilsubær: „Hann hefur aldrei staðið undir því, enginn hefur, hvorki fyrr né síðar talað .. . «♦- Höfundur vill gera HveragerÖi aö pólitískum heilsubæ. um Hveragerði sem heilsubæ. Við stefnum hins vegar að því að verða heilsubær.“ Það hefur verið rætt um Hveragerði sem heilsubæ allt frá því að hinn framsækni og merki maður, Gísli Sigurbjörnsson í Ási, undirbjó smíði heilsustöðvar í Hveragerði og frá því að Heilsu- hæli NLFÍ tók til starfa árið 1955. Bæjarstjórn Hveragerðis hefur fengið erlenda sérfræðinga til að gera úttekt á möguleikum bæjarfélagsins til að gangast undir flóknar reglur Þjóðveija um löggildingu heilsubæja. Hveragerði er líka einn af H-bæj- unum svokölluðu, þar sem sér- staklega hefur verið unnið að heilsueflingu. Mér er hins vegar alveg ljóst, að Hveragerði hefur hvorki fengið innlenda né er- lenda löggildingu sem heilsubær og á þar langt í land. En það þarf að hraða þeirri þróun að bærinn verði ákjósanlegur kostur inn- lendra og erlendra íjárfesta, sem gera sér' grein fyrir þeim miklu möguleikum sem felast í um- hverfí og náttúru Hveragerðis. Þeir opna ekki buddumar sínar eftir að hafa séð litinn á Varmánni, hafa fræðst um frá- rennslismál og ekið sumar göt- urnar. Aðferðir Og auðvitað erum við sammála um stöðu þessara mála. Okkur greinir á um aðferðir til úrbóta. Sannarlega hefur margt verið gert vel á síðari árum, en af ýms- um ástæðum hefur bæjarfélagið ekki haft úr miklum Ijármunum að spila. Þetta hefur reynt mjög á þá, sem með forystu bæjarmála hafa farið. Og kannski er það skýringin á hörðum átökum í hvergerðskri pólitík. En nú þarf bæjarfélagið á engu öðru meira að halda en samstöðu bæjarbúa við úrlausn verkefna. Framund- an eru sveitastjórnarkosningar og fátt myndi skaða bæjarfélagið meira en áframhald á harðvítug- um deilum. Eg skora á þig, Gísli Páll og alla sem ætla sér ein- hvern hlut í bæjarmálum að líta á það sem meginhlutverk sitt að samfylkja þeim, sem metnað hafa fyrir hönd bæjarfélagsins. Þá getur Hveragerði kannski orð- ið „pólitískur heilsubær" áður en að löggildingunni kemur. Gangi þér allt í haginn. Þinn Ami Gunnarsson. Vegagerð á vUligotum Umhverfisráðuneytið virðist ekkert hafa að segja um ákvarðanir þær sem teknar eru í samgönguráðuneytinu. DAGMAR hÍorleifs DOTTIR fyrrverandi ibúi að Móum skrifar Þar sem ég bý nú í útlöndum hafa velviljaðir ættingjar sent mér úrkiippur úr íslenskum dagblöð- um til að lesa. Þar sé ég, að fjöl- skyldan á Stóra Kroppi er flúin af Vesturlandi og er sest að á Suður- Iandi. Þetta er önnur Ijölskyldan, sem mér er kunnugt um að hafí flúið Vesturland undan Vegagerð- inni í þessum landshluta á nokkrum mánuðum. Hin fjöl- skyldan bjó í Innri Akraneshreppi að Móum. Þaðan er héraðslækn- ir Vesturlands flúinn með sína fjölskyldu ekki aðeins af Vestur- landi heldur alla leið til útlanda. Getur það talist eðlilegur fram- gangur Vegagerðarinnar að hrek- ja fólk þannig undan sér að það sjái sér ekki fært að búa lengur í sínum gamla landshluta, jafnvel ekki á sjálfu Iandinu? Það fer að verða fundarfært í félagi flótta- manna undan vegagerð Vestur- lands. Það er áhugavert að bera saman þessi tvö flóttadæmi af Vesturlandi. I öðru tilfellinu stóð hreppsnefndin með fjölskyldunni á móti áformum Vegagerðarinnar. I hinu tilfellinu féllst hrepps- nefndin á áform Vegagerðarinnar þrátt fyrir skrifleg mótmæli hreppsbúa. Vegagerðin fær sitt Það sem er sameiginlegt báðum þessum tilfellum er að vegagerð- in fær sínu framgengt hvort sem hreppsnefnd viðkomandi hrepps er með eða á móti. Eru þetta eðli- leg vinnubrögð? Samkvæmt Iög- um þessa lands mega íbúar kæra þannig mál til umhverfisráð- herra. Það hefur svo sannarlega verið gert. Umhverfisráðuneytið virðist bara ekkert hafa að segja um ákvarðanir þær sem teknar eru í samgönguráðuneytinu, eða réttara sagt hjá Vegagerðinni. Samgönguráðuneytið sjálft virðist heldur lítið hafa að segja um ákvarðanir Vegagerðarinnar. Enda má Vegagerðin lögum sam- kvæmt leggja vegi eins og henni sýnist þó að landeigendur fari í mál og kæri athafnir hennar fyrir dómstólum. Það er ekki fyrr en dómur er fallinn að hún neyðist til að hugsa sinn gang. Mér af vit- andi hefur slíkur dómur enn ekki verið felldur landeigendum í hag. Líklega þarf að fara með slík mál alla leið upp í mannréttindadóm- stól Evrópu til að fá réttlætinu fullnægt. Slík málaferli kosta mikla peninga. Grátbroslegt Það er því orðið grátbroslegt að til að fá dæmt óháð í þannig máli þurfí að selja eignina, sem verið er að verja til að útvega peninga, til að geta kært framferði Vega- gerðarinnar til óháðra dómstóla. Af öllum þeim lögfræðingum, sem leitað var ráða hjá í öðru þessara mála rataðist einum satt á munn. Vegagerðin fer alltaf sínu fram, það er bara spurning um hversu mikið blóð liggur í slóðinni eftir hana. Fyrir hveija vinnur Vegagerðin? Er það fyrir fólkið í þessu landi eða er hún að Ieggja vegi fyrir sjálfa sig? Fólkið virðist ekkert hafa að segja, alla vega skipta álit hreppsnefnda og undirskriftir hreppsbúa engu máli. Það að verið sé að fórna minni hagsmunum fyrir meiri getur varla staðist því eftir því sem ég best veit er í báðum þessum til- fellum tilbúinn annar vegur að- eins í nokkur hundruð metra Qar- lægð frá þeim nýja og sem liggur í sömu átt. Sé átt við Reykvfkinga þegar talað er um meiri hags- muni þá veit ég ekki til þess að þeir hafi verið spurðir að því hvorn veginn þeir vilji aka ef þeir eigi Ieið um þessa tvo hreppa. Er Vegagerðin á Vesturlandi ekki að villast af leið? Með von um betri tíð á íslandi. Aldaraf- mæli Æskunnar KRISTIN SIGFUS- DOTTIR menntaskólakennari á Akureyri skrifar Til hamingju kæra afmælis- barn! Tímaritið Æskan hefur nú þann 5. október haldið velli á hálu svelli fjölmiðlanna í heila öld. Það þyldr okkur sem fylgst höfum með henni og átt með henni margar ljúfar stundir af- skaplega eðlilegt. Æskan hefur alltaf gætt þess á hverjum tíma að þiggja góð ráð lesenda sinna um breytingar og þróun og hefur því aldrei misst málfrelsi og til- lögurétt meðal þeirra. Margir á mínum aldri muna flissið og hlátrasköllin þegar skrítlurnar voru lesnar eða Bjössi bolla skoðaður og lesinn. Það var kær- komið að fá Æskuna í barnaskól- ann í sveitinni og geta lesið vin- sæla dægurlagatexta eða les- endabréf frá börnum í öðrum landshlutum og leikþættirnir voru fluttir eða staðfærðir og notaðir sem innblástur í nýjan þátt. Það hefur verið þörf fyrir Æskuna alveg frá upphafi, en nú er hún beinlínis nauðsynleg til mótvægis við allt myndbandsefn- ið sem börnum býðst að horfa á. Æskan flytur vandað fjölbreytt og spennandi efni sem börn og unglingar kunna að meta. Eins og góðum uppalanda sæmir er innrætingin mannbæt- andi og heiðarleg í Æskunni. Börn hafa jafnan skrifast á í blaðinu og birt hugðarefni sín eða áhyggjur í ljóðum eða les- endabréfum. Þetta gerirÆskuna að opnum og víðsýnum fjölmiðli. Á þessum merku tímamótum hefur Æskan í hyggju að stækka blaðið, þannig að sérstakt ungl- ingaefni fái meira svigrúm. Blað- ið kemur út tíu sinnum á ári og kostar árgangurinn lítið meira en eitt tölublað af hefðbundnu glanstímariti. Foreldrar, ömmur og afar ættu að athuga hvort ekki er verðugt að hafa Æskuna í huga þegar verja skal peningum f gott tómstundaefni. Það er at- hugandi hvort Æskan getur ekki séð fyrir skemmtiefni í barnaaf- mæli í stað þess að velja æsinga- efni á myndbandsspólu. Megi Æskan dafna sem fyrr og halda áfram að auðga íslenskar bók- menntir, ungum lesendum sín- um til gleði og fróðleiks.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.