Dagur - 07.10.1997, Síða 3
ÞRIÐJUDA GUR 7.0KTÓBER 1997 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Bjarki Guðmundsson, t.h., fagnar bikarmeistaratitlinum. Hægra megin við hann stendur einn afungu
ieikmönnunum í Keflavík, Þórarinn Kristjánsson. mynd: brynjar gauti
Allir eiga að
nota hj álma
Bjarki Guðmundsson, mark-
vörðurKeflvíkinga, vann það
einstæða afrek að verja þrjár
vítaspymurí úrslitaleiknum
gegn Vestmannaeyingum í
bikarkeppninni um helgina.
„Ég varheppinn, “ segir
hann.
„Leikurinn var ágætur hjá okkur. Við spil-
uðum massívan leik, náðum góðum ár-
angri og gerðum það sem við ætluðum að
gera nema að skora. Okkur tókst það ekki
en það voru náttúrulega allir í liðinu sem
unnu þetta,“ segir kornungur markvörður
Keflvíkinga í knattspymu, Bjarki Guð-
mundsson, 21 árs, en hann vann það
einstæða afrek á sunnudaginn að veija
þijár vítaspyrnur frá Islandsmeisturum
IBV og tryggja þannig liði sínu sigurinn.
Bjarki er maður leiksins og hefur verið
kallaður bjargvættur Keflvíkinga enda
hefur aðeins einn markvörður gert þetta
áður.
Bjarki er sonur Guðmundar Valtýsson-
ar og Kristínar Rósu Sigurðardóttur og á
einn hálfbróður, sem er seigur á skíðun-
um. Kona Bjarka er Bryndís Valsdóttir,
nemi við Háskóla Islands. Hvorugt for-
eldranna hefur verið í íþróttum að ráði en
„eitthvað" hefur hann íþróttirnar í blóð-
inu því móðurbróðir hans er Bjarni Sig-
urðsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður.
Bjarki vinnur við innritun hjá Flugleiðum
á Keflavíkurflugvelli og hefur starfað við
það frá því í vor. Hann vonast til að halda
því starfi í vetur og segist kunna ágætlega
við það. Fyrir utan fótboltann hefur hann
mestan áhuga á góðri tónlist og bíómynd-
um
Góð stenunning á bikarleilmuni
„Stemmningin var gífurleg og það var
mjög gaman að spila undir svona kring-
umstæðum. Það var fullt af fólki og góðar
aðstæður. TitiIIinn var náttúrulega í húfi,“
segir Bjark1 morguninn eftir leikinn.
Hann er lítillátur þó að hann hafi unnið
það afrek að verja þrjár vítaspyrnur og
segir að markverðir eigi aldrei von á að
gera slíkt. „Það er alveg frábært náttúru-
lega,“ segir hann.
- Fyrsta vítaspyrnan var dæmd á Bjarka
sjálfan fyrir að fella Inga Sigurðsson í
leiknum og myndi margur sjá bikarinn
fljúga úr höndum sér eftir slíkt. Hvernig
ætli honum hafi Iiðið, til dæmis þegar
hann varði fyrstu vítaspyrnunar
„Þá leið mér alveg ótrúlega vel, alveg
toppurinn á tilverunni og það batnaði með
hverri spymunni,“ segir hann og hlær.
í stuttu fríi næstu vikurnar
Bjarki segir að það hafi gerst áður að
nokkrar vítaspyrnur hafi verið varðar í
bikarúrslitaleik og það í leik Vals og KR
þegar markvörðurinn varði tvær víta-
spyrnur. Markvarsla Bjarka er þó söguleg
því hann varði þrjár, „smálukka með
rnanni," segir hann. Það hlýtur þó að vera
aðeins meira en smálukka því að Bjarki er
aðeins 21 árs og hefur bara spilað með
liði Keflvikinga frá því í sumar.
Bjarki var í fríi úr vinnunni í gær, dag-
inn eftir leikinn, enda fóru strákarnir í
liðinu með- sínu fólki, meðal annars
stjórnarmönnum, á Glóðina í Keflavík og
fengu sér að borða til að fagna sigrinum.
Liðið verður svo í fríi næstu tvær til þrjár
vikurnar en svo byrja þeir á dútli innan
húss og svo fer alvaran að taka aftur við.
Hann segir að fótboltinn reyni ekkert á
kroppinn, „þetta er bara útrás, maður er
búinn að vera í þessu síðan maður var tíu
ára og bara vanur þessu. Þetta er hluti af
lífinu," segir hann.
Vill verða „betri og betri“
Bjarki stefnir að þvi að komast vel í gegn-
um lífið og gera sem fæst mistök, „bara
lifa vel“, segir hann. I fótboltanum er
helsta markmiðið að verða betri, „alltaf
betri og betri“. Hann vonast til að komast
í atvinnumennsku eins og fleiri fótbolta-
strákar en segir sallarólegur að það verði
að hafa sinn gang. „Það gengur vonandi
einhvern tímann upp,“ segir hann. -GHS
Að undanfómu hefurnotkun
reiðhjólahjálma verið í um-
ræðunni. Því miðurem þeir
enn offáirsem nota hjálma
og sýnirfjöldi alvarlegra
slysa það beturen alltannað.
Að sögn lækna á Slysadeild
em áverkarþeirra sem koma
inn eftirreiðhjólaslys, mun
minni hafi þeirnotað hjálma
og þá sérstaklega höfuð-
áverkarsem oft em mjög al-
varlegir og geta orsakað var-
anlegan skaða. DagurTím-
inn tók nokkra krakka tali og
spurði þá um hjálmanotkun.
Apríl Sól Salomonsdóttir
er 9 ára snót.
„Ég er eiginlega aldrei að hjóla, því
bróðir minn sprengir alltaf dekkið á hjól-
inu mínu, en ég á samt hjálm“, segir Apríl
Sól Salomonsdóttir. Ég hjóla aldrei á göt-
unni, bara á gangstéttinni og á bílastæð-
um“. Henni finnst sjálfsagt að nota hjálm
og skilur vel áhættuna sem fylgir því að
vera hjálmlaus. „Ég held það séu bara
tvær vinkonur mínar sem eru alltaf með
hjálm", segir Apríl að lokum.
Böðvar Darri Le’Macks
er 11 ára gamall.
„Ég á hjálm og nota hann stundum, en
ekki alltaf," segir Böðvar Darri Le’Macks.
„Stundum finn ég hann ekki og ef ég er
að flýta mér út þá man ég ekki alltaf eftir
því að setja á mig hjálminn". Krakkarnir
sem hann umgengst nota hjálma lítið,
e,t I\/í nrviivín <nn, n«i.
alltaf að segja mér að nota hjálminn,"
bætir hann við að lokum.
Ingalóa Ingólfsdóttir
er 8 ára ára.
„Ég á hjálm og nota hann alltaf þegar
ég er að hjóla. Mér finnst að krakkar eigi
alltaf að vera með hjálm,“ segir Ingalóa
Ingólfsdóttir. Hún segir að krakkamir sem
hún umgengst noti alltaf hjálma og heyrir
mikið um hjálmanotkun heima hjá sér.
„Ég veit alveg hvað það er hættulegt að
hjóla með engan hjálm,“ segir hún svo.
Viktoría Guðmundsdóttir
er 7 ára.
„Ég á hjálm. Ég nota hann alltaf þegar
ég fer út að hjóla,“ segir Viktoría Guð-
mundsdóttir. „Mér finnst það ekkert
bjánalegt, en sumir krakkar segja það,“
bætir hún við. „Fullorðna fólkið er alltaf
að segja mér að nota hjálm.“ Krakkarnir í
hennar bekk og árgangi nota flest hjálma,
en stóru krakkarnir ekki. Hún heldur að
það sé vegna þess að þeim fínnst hjálmar
asnalegir.
Gunnar Ingi Sveinsson
er 15 ára.
„Ég á ekki hjálm, en myndi nota hann
ef ég ætti hann“, segir Gunnar Ingi
Sveinsson, sem kemur á hjóli í skólann.
„Fæstir þeirra sem ég þekki nota hjálma,
eldri krakkar gera það yfirleitt ekki“.
Honum finnst hjálmanotkun ekkert asna-
leg. Hann segir enga umræðu á meðal
krakka um slys í umferðinni og þó svo
verði dauðaslys, þá ræði þau það ekki sín
á milli.
' i \ r \ > .* 4 >
\ i
r \ ^ T