Dagur - 07.10.1997, Síða 7

Dagur - 07.10.1997, Síða 7
Gunnar Oddsson og félagar börðust hetjulega á Laugardalsvelli um helgina og uppskáru sigur eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. Árni valinn Ami Gautur Arason, mark- vörður knattspymuliðs Stjöm- unnar, var valinn leikmaður ársins á lokahófi liðsins um síðustu helgi. Ámi Gautur gekk til liðs við Stjömuna frá ÍA fyrir þetta tímabil. Pantið námskeið! Fræðslustarf UMFÍ er rekið með svipuðu sniði og áður. Boðin em fjölbreytt námskeið sem hvert tekur þrjá tíma. Hægt er að halda námskeiðin stök eða raða fleiri saman að vild. Þau er hægt að panta hvert á land sem er með litlum fyrirvara. Kostnaði við námskeiðin er haldið í lágmarki. Framundan em námskeið hjá UMSS, HSK, UMSB og fleiri aðilum. Sambönd og félög em hvött til að panta námskeið hið fyrsta. Allar nánari upplýsingar fást á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929 eða á heimasíðunni. Slóðin er www.toto.is/umfi. Viðtal við forseta íslands Um miðjan mánuð kemur 4. tölublað Skinfaxa út og þar er meðal annars að finna viðtal við Olaf Ragnar Grímsson, forseta Islands. Einnig verða birt öll úrslit frá Landsmótinu í Borgamesi og Ingimundur Ingi- mundarson, formaður Lands- mótsnefndar, gerir mótið upp. Frábær sigur Ungmennafélagið Afturelding vann frábæran sigur í Evrópukeppninni í handknattleik um helgina. Afturelding vann Austurríska liðið Stockerau með sjö mörkum og er það gott veganesti fyrir seinni leikinn í Austurríki. F rjálsíþróttíiæfingar í Reykjavík Eins og undanfarin ár leigir UMFÍ aðstöðu í Baldurshaga í Laugardal á föstudagskvöldum. Þama er tækifæri fyrir ungmennafélaga sem búsettir em á höfuðborgarsvæðinu yftr vetrartímann að mæta til æfinga, ásamt frjálsíþróttafólki víða að af landinu sem vill leggja á sig ferðalögin. Æfingamar em á föstudögum kl. 19:40-21:20. Ungmennafélagar em hvattir til að mæta vel. Héraðssambönd og félög ættu að láta boðin berast og ýta við sínu fólki. Æfingamar em ungmenna- félögum að kostnaðarlausu. Umsjón Jóhann Ingi Árnason s: 568-2929 Bikarmeistarar Það var góð byrjun og góður endir á knattspymusumri Kefl- víkinga. Liðið sýndi allar sýnar bestu hliðar í upphafi móts en í seinni umferðinni fór aðeins að síga á ógæfuhliðina. Liðið komst hins vegar í úrslit Coca- Cola bikarsins og þar sýndu ungu strákamir stáltaugar. Keflavíkurliðið sigraði slakt lið ÍBV eftir framlengdan leik og vítaspymukeppni en hvemig var hljóðið í Gunnari Oddssyni skömmu fyrir leik. Það voru ótrúlegar sveiflur hjá liðinu, um mitt tímabil þá dettur botninn úr þessu. Einhver skýring á þessu? „Ég held að það sé ekki hægt að finna einhverja einhlíta skýr- ingu. Það vom sjálfsagt ýmsir þættir sem spiluðu þama inn í. Fyrst og fremst var lítil breidd hjá okkur og því nánast engin samkeppni um stöður. Það vom of margir menn sjálfsagðir í liðið og við gátum gert litlar breytingar. Önnur lið lærðu því smátt og smátt inn á leik okkar. Einnig vom fáir menn að gera hlutina hjá okkur í byrjun, eins og að skora og liðin gátu því einbeitt sér að taka þessa menn.” Hvað viltu segja um árangur liðsins í ár? „Við settuin það markmið að láta þessa ungu stráka þroskast í spennulitlu umhverfi þ.e.a.s. að láta þá ekki standa í fallbaráttu. það tókst. Okkar markmið tókust að miklu leyti og við eigum enn möguleika að ná í titil (sem nú hefur náðst). Ef við skoðum þetta með mannskapinn í huga og árangur liðsins í fyrra, þá mega menn vera nokkuð sáttir, þótt við séum flestir ósáttir við árangurinn í seinni umferðinni.” Þú varst ekki einn þíns liðs varðandi þjálfunina. Hvernig gekk samstarflð hjá þér og Sigurði Björgvinssyni ? „Samstarfið gekk mjög vel. Við þekkjum vel hvor annan og emm á sömu nótum varðandi þjálfun. Það reyndi ekki mikiðá okkur í byrjun en síðan magnaðist álagið eftir að verr fór að ganga en það hafði engin áhrif á samstarf okkar.” Hvað með næsta ár, verðið þið áfram? „Samningar okkar við félagið renna út á sunnudaginn (s.l. sunnudag) eftir birkarúrslita- leikinn og eftir það verður framhaldið skoðað. Það er ekkert ákveðið í þessum efnum en það getur vel farið svo að við höldum áfram.” Þú ert orðinn 32 ára gamall. Ætlarðu að halda áfram eftir að þú leggur skóna á hilluna? ,Já, ég hugsa það. Ég á von á að ég verði eitthvað að brasa við þjálfun. Þetta var mjög skemmtilegt og áhugavert ár sem maður lærði mikið af og maður verður að nýta sér það.“ Viðtal: Valdimar Grimsson Mynd: Sigurjón Ragnar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.