Dagur - 07.10.1997, Page 10
26 -ÞRIÐJUDAGUR 7.0KTÓBER 1397
LÍFIÐ t LANDINU
BÍLAR
Glæsilegur og
gaman að aka
Toyota Landcruiser er laglegur bíll sem mann langar /
Olgein Helgi
Kjartansson
skrifar
Toyota Landcruiser bar
lengi vel höfuð og herð-
ar yfir aðra jeppabíla- á
markaðinum hérlendis
en á síðustu árum hafa
komið nýjar jeppateg-
undir sem vermt hafa
veldi hans undir uggum
en þrátt fyrir það er orð-
sporið ótvírætt og nýr
Landcruiser stendur vel
fyrir sínu. A miðju síðasta ári kom
Landcruiserinn í breyttri útfærslu sem
minni bíll en áður. Stóri
bíllinn er áfram í boði en
verðmunurinn á bílun-
um er u.þ.b. ein milljón
króna.
Bíllinn sem Dagur
reynsluók var Toyota
Landcruiser GX með 3.0
lítra turbo diesel vél
breyttur fyrir 33“ dekk.
Þessi breyting gerir það
að verkum að það er
strax orðið svolítið
óþægilegra að ganga um
bílinn þar sem hann er
orðinn hærri. En 33“
dekkin gefa bílnum meiri
möguleika f ófærum og
heldur meiri mýkt en væri hann á þeim
hjólbörðum sem hann kemur á. Hins
vegar er Landcruiserinn mjúkur bíll og
fer vel með mann nánast á hvaða dekkj-
um sem hann er.
Til að sjá er þetta glæsilegur bíll.
Þegar sest er upp í hann finnur maður
strax fyrir svolítilli íhaldssemi í hönnun
aðallega varðandi mælaborðið. Klukkan
er t.d. skífa en ekki stafræn og hraða-
mælinum svipar mjög til hraðamælanna
í Hi-Lux fyrir fimmtán árum. En það er
líka dálítill virðuleikablær yfir bílnum að
innan. Stokkurinn milli framsætanna er
mjög rúmgóður. Það fer vel um mann f
framsætunum. Bekkurinn aftur í er í
harðara lagi. Aftast í bílnum eru auka-
sæti, skráð fyrir þijá. Þau eru í minna
lagi fyrir fullorðna, þó það sé kannski
engin nauð að sitja í þeim en þau henta
betur börnum eða unglingum en full-
orðnum. Alls er bíllinn skráður fyrir átta
manns.
Gaman að aka
Það er ósköp notalegt að aka þessum bíl
Hann ermjúkur
ogfervel með mann
liggurvelávegi
og það erbráð-
skemmtilegt að
aka honum.
og í rauninni er þetta einn af þeim bíl-
um sem mjög gaman er að aka. Þriggja
Iítra túrbóvélin tekur vel á þrátt fyrir
stærri dekk og þegar bíllinn er farinn að
hitna er upptakið orðið í fínu lagi.
A malbikinu eru að sjálfsögðu engin
vandræði að aka bílnum. Þegar komið
er út á malarvegina fer hann hins vegar
fyrst að njóta sfn fyrir alvöru. A krókótt-
um og ósléttum malarvegum finnur
maður mest fyrir stærstu kostum bíls-
ins: Mjúkri fjöðruninni sem tekur flest-
ar holur og gerir það að verkum að bíl-
inn tekur í mesta lagi
dýfur en heggur aldrei;
lipri gírskiptingunni og
túrbínuvélinni sem rífur
Landcruiserínn af stað
eftir að hægt hefur verið
á vegna beygju eða holu;
ABS-hemlalæsivörninni;
frábærri svörun í stýri og
svo einfaldlega klessu-
Iiggur bíllinn. Að vísu
fannst mér ABS-brems-
urnar ekki taka nógu vel
á þegar nauðhemlað var
á þvottabretti með lausu
malarlagi ofan á vegin-
um, en það er í sjálfu sér
rannsóknarefni hversu
vel ABS-hemlar henta yfir höfuð á mik-
ið breyttum jeppum.
Bíllinn er með sítengdu aldrifi en
hægt er að læsa millikassa með hand-
fangi, þ.e.a.s. setja í fjórhjóladrifið.
Einnig er hægt að læsa afturdrifi með
takka í mælaborði. Tvennt finn ég að
Landcruisernum. Orlítið marr eða
skrölt heyrðist á ósléttum vegum hægra
megin í mælaborðinu og fyrir minn
smekk mætti útlitið á mælaborðinu vera
örlítið nútímalegra. En ég get ekki fund-
ið mikið að þessum bíl.
Mundi ég
Mundi ég kaupa svona bíl? Já, svo sann-
arlega ef ég bara hefði efni á því. En ég
er hræddur um að það vanti eitthvað
upp á það. Bíllinn sem var reynsluekið
kostar ríflega 3,7 milljónir eins og hann
er en 3.275 þúsund krónur eins og
hann kemur til landsins óbreyttur. En
eftir stendur að þetta er einn af þeim
reynsluakstursbílum sem mann langar
ekkert til að skila aftur.
Ýmsar stærðir Lægstur Eigin þyngd 230 mm 1940 kg
Heildarlengd Heildarþyngd 2680 kg
4730 mm Tankur 901
Heildarbreidd 1730 mm Afl v/3600 sn. (kW/hö) 92/126
Heildarhæð 1860 mm
Hjólabil Sporvídd f^ Sporvídd a. 2675 mm 1475 mm 1480 mm UmQölIun um bíla verður hér eftir á þessum stað í Degi á þriðjudög- um og fimmtudögum.
fOM 01
Stærsta gerð af vatnsrúmi inni-
heldur nóg vatn til að fylla 200
fm. gólfflöt í húsi með 10 sm.
djúpu vatni.
Valdís
Steíansdollir
skrifar
Ruslapokar eru ekki góðar fall-
hlífar.
Legokubbar skila sér í gegnum melt-
ingarveg fjögurra ára barna.
Dublokubbar gera það ekki.
Plastleir og örbylgjur ættu aldrei að
hittast.
Tarzan getur kennt okkur ýmislegt sem
við viljum ekki vita.
Það skiptir engu hvað þú setur mikið
af hlaupi í sundlaugina, þú getur ekki
gengið á vatni.
Smágrjót í vatnstankinum or-
sakar mikinn hávaða þegar bíllinn
er í gangi.
Það borgar sig að kíkja inn í ofninn
áður en kveikt er á honum.
Plastleikföng þoia ekki mjög mikinn
hita í ofninum.
Þeytivinda í þvottavél dugar ekki til að
ormar finni til svima.
Þögn þýðir ekki endilega að maður
þurfi ekki að hafa áhyggjur.
HVAÐ A E G AÐ GERA
Við erum hér nokkrar vinkonur á besta
aldri og vorum að velta því fyrir okkur
hvort lífeyrisréttindi skiptast við skilnað,
líkt og þau erfast við dauða maka. Þegar
konur hafa verið heimavinnandi alla tíð,
þá er það sérstaklega mikilvægt að þær
háfi einhveija slíka tryggingu. Oft hafa
eigimennirnir verið í góðri vinnu og fá
miklar lífeyrirsgreiðslur, en konan er jafn-
vel aðeins með ellilífeyri frá ríkinu.
Hjá Sameinuðu lífeyrissjóðunum feng-
ust þau svör að um það væri ekki að
ræða. Ef um skilnað er að ræða, þá fylgja
lífeyrisréttindi þeim sem hefur áunnið sér
þau, hinn aðilinn, hvort sem hann hefur
verið heimavinnandi eða útivinnandi fær
engin réttindi út á makann. Hjá Lífeyris-
sjóði starfsmanna rfkis og bæja var það
sama uppi á teningnum, aðeins við dauða
maka erfast lífeyrisréttindi.
Athygllsverðar
vefsíðirr
http://www.cancom.net/~lcajicamp/
index4.htm
Hér er að finna myndir og upplýsingar
fyrir veiðimanninn sem vill fara til
Kanada að veiða. Upplýsingar um verð og
aðstöðu, þarna er líka hægt að fá að setja
niður húsbíla.
http://www.napsnet.com/consnm-
er/consumer.htmlconsumer news
Neytendafréttir. Allt mögulegt sem
varðar neytendur, nýjar vörur erlendis og
umsagnir. Að vísu allt fyrir erlendan
markað.
http://www.spots.ab.ca/%7Eics/Liv-
ing.html
Á þessari síðu er allt mögulegt um að
http://www.wmi.org/hassfish/hass-
board/fishing_tactics/397.htm
Bátar, vélar, aðferðir við að veiða,
veiðistangir, veiðihjól, ábendingar um
veiði og staðir til að veiða á. Nauðsyn fyr-
ir veiðimanninn.
http://altavista.telia.com/cgi-
bin/query?mss=is%2Fse-
arch&pg=q&country=is&what=weh
&kl=&q=diat%2Brooms%2Blist
Listi yfir hvar hægt er að finna chat
rooms, eða spjallherbergi.
http://www.penthou-
semag.com/magazine/archive.html
Penthouse tímaritið, greinar úr því,
myndir og umfjöllun.
Ráðagóða homið
Pizzur sem keyptar eru í versl-
unum, eru oft með litlum osti
og dálítið þurrar þegar þær
hafa verið hitaðar upp heima.
yfir þær fyrir hitun, verða þær að sann-
kölluðum veislumat. Hægt er að nota
bæði kryddaðan ost og ókryddaðan í
þetta.