Dagur - 07.10.1997, Síða 12
I
i
i
I
!
I
f
í
1
i
Þriðjudagur 7. o k t ó b e r 19 9 7
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI - SÍMI 462 3524
Seiðandi söngur barnanna
Fjöldi hæfileLkaríkra
krakka mætti í
áheymarpróf vegna
uppsetningar á söng-
leiknum Söngvaseiði.
„Eitt af því erfiðasta sem hægt er
að gera held ég að sé að standa á
sviði og syngja fyrir ókunnugt
fólk; fólk sem þú veist að er að
fylgjast með því hvernig þú syng-
ur og spjarar þig. En krakkarnir
sem komu í prófið stóðu sig afar
vel, og það var erfitt að gera upp
á milli þeirra. Ætli þetta hafi ekki
alls verið um 100 krakkar," segir
Trausti Ólafsson, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar.
Sex hlutverk bama
Um sl. helgi var efnt til áheyrnar-
prófs hjá Leikfélaginu vegna
söngleiksins Sound of Music,
Söngvaseiðs, sem félagið mun
sýna á útmánuðum komandi árs.
I verkinu eru alls sex hlutverk
sem börn fara með og til að
dreifa álagi á þau hefur verið
brugðið á það ráð að tvísetja þau.
Það stefnir því í að alls muni tólf
börn taka þátt í uppsetningunni.
„Flest þeirra krakka sem komu
í prófið hafa áður haft reynslu af
leiklist og tónlist, svo sem því að
leika, syngja eða leika á hljóð-
færi. Því komum við ekki að tóm-
um kofunum hjá þeim,“ segir
Trausti. „Við munum svo byija
æfingar á verkinu strax eftir ára-
mót. Frumsýnt verður þann 6.
mars og þetta verður opnunar-
sýning okkar eftir miklar breyt-
ingar á Samkomuhúsinu.
Auður leikstýrir
Auður Bjarnadóttir mun leikstýra
Söngvaseiði og Guðmundur Óli
Gunnarsson verður tónlistar-
stjóri sýningarinnar. Fjölmargir
aðrir koma við sögu í uppsetn-
ingu þessa verks, sem hefur not-
ið svo mikilla vinsælda um langa
hríð. -sbs.
Fylgst með upprennandi æsku. Guðmundur Úli Gunnarsson, tónlistarstjóri, Auður Bjarna-
dóttir, leikstjóri og Trausti Úlafsson, leikhússtjóri.
t