Dagur - 08.10.1997, Side 7

Dagur - 08.10.1997, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 8.0KTÓBER 1997 - 23 FÍNA OG FRÆGA Væntanleg- urþjóð- höfoingi I þessum mánuði eru fimmtán ár Iiðin frá því Grace Kelly Iést í bílslysi í Mónakó. Eiginmaður hennar Rainer fursti hefur ríkt sem þjóðhöfðingi í landi sínu í 48 ár og búist er við að hann muni senn draga sig í hlé frá op- inberum störfum og fela syni sínum Albert stjórn ríkisins. Albert er 39 ára gamall og einn eftirsóttasti piparsveinn heims. Vinsælasta spurning sem blaðamenn beina til hans er sú hvort hann sé á biðilsbuxunum. Hann sagði á dögunum að hann vildi ekki svara þessari spurn- ingu, það kæmi í Ijós í fyllingu tímans. Prinsinn þykir glaðlyndur maður, gefinn fyrir lystisemdir lífsins án þess að vera ábyrgðar- laus. „Mér finnst gaman að skemmta mér. Þótt ég sinni skyldum mínum af ábyrgð og festu þá tek ég sjálfan mig ekki hátíðlega. Mér finnst fólk sem tekur sig of hátíðlega vera þreyt- andi, leiðinlegt og óáhugavert. Það sem er verst af öllu er að Albert príns mun senn taka viö embætti föður síns sem fursti i Mónakó. það getur einnig verið hégóm- legt og snobbað.“ Albert segist fagna umræðum um nýjar og breyttar áherslur í mótun konungsdæma. „Kon- ungsveldið í hvaða landi sem er verður að þróast í takt við tím- ann,“ segir hann. „Það er ekki mögulegt að gegna æðsta emb- ætti lands síns og sinna því á sama hátt og gert var fyrir hálfri öld.“ Fyrirsæta fiiinur hainmgjmia Hinn rómantíski andi miðalda sveifyfir vötnum þegar Kirsty Hume giftist syni Donovans. Hin 21 árs fyrirsæta Kirsty Hume, ein skærasta stjarna Chanel fyrirtækisins, giftist á dögunum hinum 28 ára gamla Donovan Leitch, sem hefur einnig atvinnu af sýningarstörf- um. Brúðguminn er sonur hippasöngvarans og lagasmiðs- ins Donovans. Skötuhjúin voru gefin saman í sveitakirkju í Skotlandi. Brúðurin klæddist kjól sem hannaðar var í mið- aldastil, og var með fléttað hár líkt og saklaus miðaldamær. Brúðguminn klæddist skotapilsi. Meðal gesta voru fyrirsæturnar frægu Helena Christensen og Amber Valetta og hönnuðurinn Stella McCartney, dóttir Pauls bítils. Vinkona piinsessunnar Marion er ellefu ára skólastúlka í Belgíu. Á seinasta degi ágúst- mánaðar missti hún kæra vin- konu sína, Díönu prinsessu. „Hún sagði mér að ég væri eng- ill, að hún liti á mig sem dóttur sína og að hún vildi alltaf hafa mig nálægt sér,“ segir Maríon. Marion kynntist Díönu á eyju í Karabíska hafinu þar sem prinsessan dvaldi í páskaleyfi ásamt sonum sínum. Faðir Marion hafði umsjón með golf- vellinum á hóteli prinsessunnar. Þær kynntust þegar Marion tók upp tennisbolta sem prinsessan hafði misst. Þær tóku tal saman. „Komdu sæl Díana prinsessa," sagði Maríon og prinsessan svar- aði: ,/E, nei, ég vil ekki að þú kallir mig prinsessu, kallaðu mig bara Díönu.“ Díana bauð Marí- on í hádegismat og eftir það urðu þær óaðskiljanlegar. „Hún var svo eðlileg," segir Maríon um vinkonu sína. „Hún sagði mcr að hún vildi njóta frelsis. Hún var mjög afslöppuð og kát. Hún var frábær. Eg hélt að hún myndi vera eins og allar prinsessur, of alvörugefin fyrir Iitla stúlku eins og mig.“ Díana gaf Maríon heimilisfang sitt og leynisímanúmer. Hún vildi einnig gefa Maríon háls- men sem hún átti en Maríon sagði að hún vildi miklu fremur að prinsessan ætti það. Þegar Díana yfirgaf eyjuna eftir tveggja vikna frí spurði hún Maríon hvort hún vildi koma með sér, en Maríon sagðist ekki geta það. „Ég reyni að ímynda mér að Díana sé ekki dáin, að hún sé lif- andi og muni koma aftur,“ segir Maríon. „Díana verður alltaf mjög góð vinkona mín.“ KIPULAG RÍKISINS Svæðisskipulag miðhálendisins Framkvæmdanefnd samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendisins hefur ákveðið að framlengja frest til að skila athugasemdum við svæðisskipulagstillöguna til 10. desember 1997. Skipulagsstjóri rfldsins. Sýslumaðurinn á Húsavík Útgarði 1, 641 Húsavík, sími 464 1300. Uppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við lögreglustöðina á Þórshöfn, föstudaginn 17. október kl. 16.00: KR-084, MU-272, PM-796, R-10471, R-3520, Þ-2207. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Húsavík, 7. október, 1997. Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr. Sýslumaðurinn á Húsavík Útgarði 1,641 Húsavík, sími 464 1300. Uppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við lögreglustöðina á Raufarhöfn, föstudaginn 17. október 1997 kl. 14.00: A-6347, R-73849. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Húsavík, 7. október, 1997. Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr. Sýslumaðurinn á Húsavík Útgarði 1, 641 Húsavík, sími 464 1300. Uppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við iögreglustöðina á Húsavík, fimmtudaginn 16. október 1997 kr. 14.00: BZ-898, 1-431, JÖ-397, LE-665, LG-382, LK-842, ON-913, R-38498, Y-122, Þ-1485. Greiðsla við hamarshögg. Sýsiumaðurinn á Húsavík, 7. október, 1997. Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr. Sýslumaöurinn á Húsavík Útgarði 1,641 Húsavík, sími 464 1300. Uppboð Eftirtaldir munir verða boðnir upp við lögreglustöðina á Húsavík, fimmtudaginn 16. október 1997 kl. 14.00: Haglabyssa Baikal Y09035 einhleypa, haglabyssa CBC Rem- ington nr. 1160403 einhleypa, haglabyssa CBC Remington nr. 1160436 einhleypa, haglabyssa Fabarm nr. 235263 pumpa, haglabyssa Fabarm nr. 489606 hálfsjálfvirk, haglabyssa Fabarm nr. 649818 pumpa, haglabyssa Glenfield nr. 19806175 einhleypa, haglabyssa Lamber 323109 hálfsjálfvirk, haglabyssa Nikko J25712 hálfsjáflvirk, haglabyssa R.F. Belgia nr. 8074 einhleypa, haglabyssa Rausti Stefano A11684 tví- hleypa, haglabyssa Remington nr. M34917 hálfsjálfvirk, hagla- byssa Remington P210517 hálfsjálfvirk, haglabyssa Suhl Bu- hag, Simson nr.860027 tvíhleypa, haglabyssa Winchester L559607 pumpa, og steypusög SMG 75. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með sam- þykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Húsavík, 7. október, 1997. Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr. t

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.