Dagur - 14.10.1997, Qupperneq 2
18-ÞRIÐJUDAGUR H.OKTÓBER 1997
ro^tr
LÍFIÐ í LANDINU
Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri
og Þverholti 14 • 105 Reykjavík
Síminn hjá lesendaþjónustunni:
S63 1626netfang : ritstjori@dagur.is
Bréf til Dags frá aðgerðahópi aldraðra (AHA)
Geðheilsa
bama
Samtök aldraðra efndu á dögunum til mótmælastöðu fyrir framan Alþing/shúsið þar sem því var mótmælt að aldraðir fái ekki sama
skerf og aðrir í góðærinu. mynd: hilmar
Aldraðir
hafa orðið
Á fundi í Félagi eldri borgara í
Reykjavík (FEB) var á s.l. vori
samþykkt tillaga um að fylgst
væri með því hvernig þingmenn
greiða atkvæði í málum sem sér-
staklega varða fjárhags- og fé-
lagslega afkomu aldraðra og að
sjá til þess að þessum staðreynd-
um verði komið út til þeirra um
land allt.
Nú þegar hafa verið teknar til
skoðunar atkvæðagreiðslur, upp
úr Alþingistíðindum, í þremur
mjög mikilvægum málum sem
sérstaklega snerta aldraða um-
fram aðra landsmenn og hefur
einu þessarra mála verið gerð
skil í félagsblaði FEB nú í síð-
astliðnum mánuði hvað varðar
Reykjanes- og Reykjavíkurkjör-
dæmi, en blaðið er borið út til
allra 67 ára og eldri í Reykjavfk,
og félagsmanna í nágranna-
byggðum. Nú á að bæta um bet-
ur og koma málum á framfæri
um Iand allt og hefur ritstjóri
Dags brugðist mjög vel við þeirri
málaleitan, að ljá okkur rúm
um málefni aldraðra í blaði
sínu.
Ölmusumenn
Hugmyndin á bak við þetta
framtak er að gera öldruðum létt
að átta sig á því hvernig menn
og konur sem þeir hafa kosið til
setu á löggjafarsamkomunni, fari
með það umboð þegar kemur að
málum sem geta skipt sköpum
fyrir afkomu þess, og þá sérstak-
lega þegar þingmenn fara að
sækjast eftir endurkjöri og próf-
kjör fara fram, en þá er jú tæki-
færi til að þakka fyrir síðast!
Aldraðir eru ekki að fara fram
á að þeir fái einhverja sénjtaka
meðhöldun þegar kemur að því
að skipta kökunni, heldur að á
þeirra rétt sé ekki gengið eins og
gert var þegar 15% skattafrá-
dráttur til lífeyrisþega, sem til-
kominn var vegna tvísköttunar
lífeyris, var afnuminn, þegar
lagður var á skattur (sem einnig
skerti bætur almannatrygginga),
fjórum mánuðum fyrr á 67 ára
og eldri en aðra landsmenn eða
þegar þingmenn samþykktu að
afnema bætur almannatrygginga
launaþróuninni í Iandinu, og
láta þannig aldraða vera háða
duttlungum ráðherra um af-
komu sína við allar launabreyt-
ingar, m.ö.o að gera þá að ölm-
usu-mönnum.
Nú hefur verið lagt fram á Al-
þingi tillaga um að aftur verði
tekin upp tekjutenging ellilauna
við þróunina á launamarkaðin-
um sem ríkisstjórnin rauf á síð-
asta þingi. Aldraðir munu fylgj-
ast vel með þeim undirtektum
sem hún fær í þinginu og hver
afdrif hennar verða þvf að
SANNLEIKURINN UM AF-
STÖÐU ÞINGMANNA TIL
MÁLA, FELST í ATKVÆÐA-
GREIÐSLUM ÞEIRRA í
ÞINGSÖLUM, VIÐ SKULUM
EKKI HLUSTA Á FAGUR-
GALA ÞEIRRA ÞEGAR ÞEIR
ÞURFA Á OKKUR AÐ HALDA
i
Hér birtist listi, sem greinir
frá atkvæðagreiðslu sem fram
fór þann 18. desember 1995 um
afnám 15% skattafsláttar vegna
tvísköttunar lífeyris og greinir
frá afstöðu þingmanna Reykja-
víkur og Reykjaness, síðar verð-
ur greint frá niðurstöðum ann-
arra þingmanna um sama mál.
Þessir þingmenn Reykjavíkur
samþykktu afnám 1 5% skatta-
frádráttar sem tilkominn var
vegna tvígreidds skatts lífeyris.
Björn Bjarnason,
Sjálfstæðisflokki.
Finnur Ingólfsson,
Framsóknarflokki.
Friðrik Sophusson,
Sjálfstæðisflokki.
Geir H. Haarde,
Sjálfstæðisflokki
Guðmundur Hallvarðsson,
Sjálfstæðisflokki.
Lára Margrét Ragnarsdóttir,
Sjálfstæðisflokki
Ólafur Örn Haraldsson,
Framsóknarflokki.
Pétur H. Blöndal,
Sjálfstæðisflokki.
Sólveig Pétursdóttir,
Sjálfstæðisflokki.
Fjarstaddur: Davíð Oddsson,
Sjálfstæðisflokki.
Á móti voru:
Ásta R. Jóhannesdóttir,
Þjóðvaka.
Bryndís Hlöðversdóttir,
Alþýðubandalagi.
Guðný Guðbjörnsdóttir,
Kvennalista.
Jóhanna Sigurðardóttir,
Þjóðvaka.
Jón Baldvin Hannibalsson,
Alþýðuflokki.
Kristín Ástgeirsdóttir,
Kvennalista.
Svavar Gestsson,
Alþýðubandalagi.
Ögmundur Jónasson,
Alþýðubandalagi.
Össur Skarphéðinsson,
Alþýðuflokki.
Og þessir þingtnenn Reykja-
ness samþykktu afnámið:
Árni M. Mathiesen,
Sjálfstæðisflokki.
Árni R. Árnason,
Sjálfstæðisflolíki.
Hjálmar Árnason,
Framsóknarflokki.
Kristján Pálsson,
Sjálfstæðisflokki.
Ólafur Einarsson,
Sjálfstæðisflokki.
Sigríður A.Þórðardóttir,
Sjálfstæðisflokki.
Siv Friðleifsdóttir,
Framsóknarflokki.
Á móti voru:
Ágúst Einarsson, Þjóðvaka.
Ólafur Ragnar Grímsson,
Alþýðubandalagi.
Rannveig Guðmundsdóttir,
Alþýðuflokki
Kxistín Halldórsdóttir,
Kvennalista.
Fjarstödd: Petrína Baldursdóttir,
Alþýðuflokki.
Hvemiggetum við í
þéttbýlinu og dreifbýli
hlúð að bömum okkar,
þannig aðgeðheilsa
þeirra verði sem best, -
þeim líði sem best.
Jú - það eru ýmis ráð til bjargar
og við þurfum að hjálpast að við
að finna þau bestu og koma
þeim í framkvæmd.
Eitt er að hlúa vel að foreldr-
unum - styðja þá og styrkja í
hlutverkum sínum - andlega og
líkamlega. Stóríjölskyldan er lið-
in undir Iok og afar og ömmur
oft önnum kafin og þreytt eins
og foreldrarnir sem þyrftu þó
svo sárlega meiri hvíld í þvf
mikla kapphlaupi sem flestar
barnafjölskyldur búa við í dag.
Við þurfum með öllum tiltækum
ráðum að skapa þessum fjöl-
skyldum og ekki síst smábarna-
fjölskyldum ráðrúm til að geta
notið sín betur og haft meiri
tíma til samvista.
Annað gott ráð er að hlúa vel
að uppeldisstéttunum okkar -
fagfólkinu sem við treystum fyrir
börnunum okkar. Við leggjum
mikla ábyrgð á herðar leikskóla-
kennara, kennara og leiðbein-
enda og ætlumst til mikils af
þeim. Þetta fólk á ekki einungis
að uppfræða börnin okkar, held-
ur Ifka að sjá til þess að þau hagi
sér vel og sýna þeim umhyggju
þegar á bjátar og síðast en ekkj
síst að vera börnunum góðar fyr-
irmyndir í orði og æði.
Líðan þessa fólks og ánægja
eða óánægja í starfi skiptir höf-
uðmáli í því hvernig and-
rúmslofið er í skólanum eða
leikskólanum og þá um leið
hvernig börnunum okkar líður.
Sum börn eru svo næm að það
þarf lítið út af að bregða, til að
setja þau úr jafnvægi.
Eg held að við þufum meiri
alúð og umhyggju hvert fyrir
öðru í okkar íslenska samfélagi
almennt - meiri væntumþykju
og þor til að sýna hana í verki.
Eldra fólk er oft óhræddara
við að láta væntumþykju sína í
ljós. Það er synd að við skulum
ekki hafa meira samneyti við
eldra fólkið dags daglega, því
góðar fyrirmyndir eru gulls
ígildi, hvar sem er.
Þvf er stundum haldið fram að
krefjandi barn sem truflar mikið
með hegðun sinni og er órólegt,
sé að kalla á hjálp. Ef við göng-
um út frá því að svo geti verið -
þá þurfum við sem fullorðin eru
að geta gefið okkur að barninu
og veitt því það öryggi sem því er
nauðsynlegt og til þess þarf tíma
- tíma sem eingöngu er ætlaður
barninu í ró og næði.
Það eru gífurlegar kröfur sem
við fullorðna fólkið gerum til
sjálfra okkar á hinum ýmsu svið-
um. Kröfur um velgengni í
starfi, boðleg hýbýli með öllu því
sem heimili „þarf' í húsbúnaði
og rafmagnstækjum, bílaeign,
fatnað við hæfi fyrir alla
fjöskylduna, ferðalög, gott og
hraustlegt útlit, fínan garð, sum-
arbústað o.fl.
En gerum við nógu miklar
kröfur til þess að okkur sjálfum
og börnunum okkar líði vel?
Gefum við börnunum okkar
nægilegt rými í lífi okkar - í öllu
kapphlaupinu?
Eg á þá ósk heitasta að við
getum í sameiningu náð að
slaka svolítið á - íslenska þjóðin
og njóta betur og meir samvista
með börnunum okkar - því það
bætir ekki einungis geðheilsu
þeirra - heldur okkar eigin líka.
íslenska þjóðin og njóta betur og meir samvista með börnunum okkar - þvíþað bætir
ekki einungis geðheilsu þeirra - heldur okkar eigin iíka.