Dagur - 14.10.1997, Page 11
ÞRIÐJVDAGUR 14.QKTÓBER 1997 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
Ég fylgi mínu fóM
Undanfama mánuði
hejuríslenska
fjömiðlafjelagið undir-
búið útsendingará
nýrri útvarpsstöð.
Jón Axel Ólafsson stendur fyrir
þessari nýju stöð og á meðal
þeirra sem hann hefur valið
með sér, er hin þekkta útvarps-
kona, Valdís Gunnarsdóttir.
Hún hefur í sumar „verið
heima, stundað jóga og horft á
tærnar á sér“, eins og hún
kemst svo skemmtilega að orði.
„Þetta er búinn að vera alveg
yndislegur tími, þetta sumar,"
segir Valdís. „Ég hef leyft mér
að vera heima og slappa af með
litla stráknum mínum og bara
hugsað mín mál.“
Það hefur verið nokkuð lang-
ur aðdragandi að þessari út-
varpsstöð og Valdís hefur íylgst
með frá upphafi. „Þetta verður
Þetta verður
yndisleg
útvarpsstöð
alveg yndisleg útvarpsstöð," seg-
ir hún ákveðin, „hann Jón Axel
gerir ekkert nema gera það vel.
Og ég treysti honum mjög vel til
að gera þetta. Við verðum með
allt sterkasta fjölmiðlafólkið
með okkur, þetta verður ÚT-
VARPSSTÖÐIN," bætir hún
við.
Hlakkíir lil
Valdís segist hlakka mikið til að
fá aftur samband við sína hlust-
endur, sérstaklega þar sem hún
fékk ekki tækifæri til að kveðja
þá þegar hún hætti með þátt
sinn. Hún telur að fólk sé í
auknum mæli að átta sig á því
hvað dagskrárgerðarfólk er mik-
ilvægt og að áheyrendur fylgi
orðið fólki á milli stöðva ef það
skiptir um starf.
Én dagskrá nýju stöðvarinnar
er leyndarmál enn sem komið
er, þó vill Valdís segja það, að
fólk megi búast við „Valdísi eins
og hún gerist best, afslöppuð og
yfirveguð eftir yndislegan tíma
heima við.“
NÝJAK ÞJÓÐSÖGUR
„Eflum okkar
framsókn“
Það var á héraðsmóti sjálfstæð-
ismanna í Þingeyjarsýslum íýrir
svo sem þrjátíu árum að Jóhann
Hafstein mætti þar og flutti
ræðu, en um þessar mundir var
hann einn af forystumönnum
flokksins. Mótið var fjölsótt og
þangað mættu allra floklca
menn, enda þótt Þingeyingar
séu kannski flestir fylgismenn
Framsóknarflokksins. Sýslurnar
eru þekktar sem slíkar, enda
stóð þar vagga samvinnufélag-
anna - sem aftur stóðu að stofn-
un flokksins árið 1916.
Jóhann þurfti þetta sumar að
flytja ræður á fjölmörgum hér-
aðsmótum og þar sem harla litl-
ar líkur voru á því að sama fólk
sækti tvö mót flutti hann yfir-
leitt sömu ræðuna á þeirn öll-
um, þótt blæbrigðamuns gætti -
í samræmi við stað og sund.
Meginkjarni allra ræðnanna var
vitaskuld sá að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri burðarás íslenskra
stjórnmálaflokka og innan hans
stæði stétt með stétt.
En þessi algildi boðskapur
gekk illa í þingeyska framsókn-
armenn. Því var Jóhann Haf-
stein komin í hvínandi vandræði
þegar hann var búinn með sína
hefðbundnu ræðu og fór því að
prjóna við hana allskonar útúr-
dúrum. En aldrei hlógu fram-
sóknarmennirnir, þar til í lokin
þegar Jóhann kom með setningu
sem sló allt út og átti vel við - og
fangaði salinn:
„Góðir sjálfstæðismenn; við
verðum að standa sarnan og efla
okkar framsókn.“
Umsjón: Sigurður Bogi
Sævarsson.
\ w nr« C'TÁB'T'
hMAll uualUKl
Flokksbróðir eða ekki
• Ekki fer á milli mála að Logi
Bergmann Eiðsson er kominn til
starfa á fréttastofu Sjónvarpsins,
það sást alveg greinilega þegar
Steingrímur Hermannsson mætti
í sjónvarpssal á fimmtudags-
kvöldið til að svara gagnrýni undanfarinna vikna.
Gamli maðurinn stóð uppi sem sigurvegari kvölds-
ins þó að Logi Bergmann bryf>ðist ekki vonum
áhorfenda, dansaði eins og óður hani kringum
karlinn og goggaði í hann. Steingrímur kann nátt-
úrulega ýmislegt fyrir sér úr pólitíkinni og tókst
að verja ótrúlegustu afglöp með stæl, mótmælti
harðlega þegar Logi talaði um Finn Ingólfsson
sem „flokksbróður11 Steingríms og vildi frekar tala
um hann sem ungan og efnilegan ráðherra. En
Logi lofar góðu fyrir veturinn.
Hvort er vinsæUa?
• Niðurstöður skoðanakönnunar eru stöðugt
kynntar og í síðustu viku glumdi á útvarpsstöðv-
unum spurningin: Hvor er vinsælli, Arni Sigfús-
son eða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir? Góð spurn-
ing sem auðvelt er að svara. Þegar spurt er um
karlkyn hlýtur svarið að vera karlkyns. Leiðandi
spurning myndu sumir segja en við hér á Degi
spyrjum hvort þeirra skyldi nú vera vinsælla eftir
allt saman? Það er spurningin.
Sækjabolta
• Góður andi fylgir nunnunum í
klaustrinu í Hafnarfirði - það
finna íbúarnir greinilega - og öll
samskipti við klaustrið eru afar
góð þó lítil séu. Fátt er vitað um
lífið í klaustrinu en þó er Ijóst að
nunnurnar eru ólatar við að
sækja bolta sem lenda í klaust-
urgarðinum og það er ekki
ósjaldan. Ibúarnir eru að sjálf-
sögðu forvitnir að fylgjast með
nunnunum, sem gleðjast yfir
litlu, og stundum berst söngurinn yfir klausturvegginn. Þá segir
sagan að nunnurnar standi á hól inni í garðinum, syngi lofsöng
og hrópa út í loftið: „Guð elskar ykkur líka!“ Og svo skríkja þær á
eftir. Það ríkir greinilega mikil hlýja í þessu klaustri.
Á hvaða rás?
Og hér kemur svo einn brandari úr Hafnarfirði:
Hlustarðu stundum á samviskuna? Nei, það held ég ekki. A
hvaða rás er hún? Góður þessi.
Ólatar að sækja bolta.
Logi Bergmann
Eiðsson: Óður
hani?
Steingrímur Her-
mannsson: Með
fínan stæl.
Jóhann Hafstein, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hvattisína menn tilað taka
höndum saman og efla framsóknina.