Dagur - 15.10.1997, Síða 1

Dagur - 15.10.1997, Síða 1
„I dag er tilgangur kvótakerfisins ekki að stjórna fiskveiðum, heldur að vera mikilvirkt stjórntæki i verðbréfaviðskiptum, “ segir Jón Arason skipstjóri, sem hér sést á heimavelli við höfnina i Þorlákshöfn. mynd: jón þórðarson JónArason, skipstjóri í Þorlákshöfn, ferjyrir þúsund tnanna fylk- ingu sem beinirkröf um sínum gegn kvóta- kerfiniL Tilgangur samtakanna ermeðal annars að skiptajafn- ararðinum affiskveið- um landsmanna, enda séfiskurinn sameign landsmanna. „Upphaflegur tilgangur kvóta- kerfisins var að stjórna fiskveið- um í sjónum umhverfis landið og sporna gegn ofveiði. Þessu yfir- lýsta markmiði þjónaði kerfið í upphafi, en síðan hafa veiði- heimildir færst á æ færri hendur; til manna sem segjast eiga veiði- réttinn. I dag, þrettán árurn eftir að kvótakerfið var sett á laggirn- ar, er tilgangur þess orðinn að vera mikilvirkt stjórntæki í verð- bréfaviðskiptum og efnahagslífi þjóðarinnar,11 segir Jón Arason, skipstjóri í Þorlákshöfn og for- maður Samtaka um þjóðareign. „Aö eiga kvóta“ Um eitt þúsund manns hafa nú þegar skráð sig í Samtök um þjóðareign, en þau voru stofnuð í síðustu viku. Yfirlýstur megintil- gangur samtakanna er að þjóðin njóti réttláts arðs af sameign sinni; íslandsmiðum. Er í þessu sambandi lagt út frá fyrstu grein laga um fiskveiðistjórnun, þar sem segir að fiskimiðin séu sam- eign þjóðarinnar. Liðsmenn sam- takanna telja að raunin sé orðin önnur. „Forsætisráðherra sagði á dög- unum að stefnt væri að setningu Iaga um að einstökum útgerðum skyldi ekki vera heimilt að eiga meira en 10% af heildarkvótan- um á hverjum tíma. Þetta orðá- lag „að eiga kvóta" segir raunar allt sem segja þarf,“ segir Jón Arason. í mér slær Vestfirðings hjarta Jón Arason er fæddur á Eyri við Skötufjörð árið 1960. Hann byrj- aði til sjós tólf ára gamall og réri þá uppá hálfan hlut á móti frænda sínum. Síðar fór hann í Vélskól- ann, tók seinna pungapróf skip- stjórnarmanna, og í Fiskvinnslu- skólann í Hafnarfirði fór Jón árið 1983. „Ég fluttist til Þorláks- hafnar 1973 og hér hefur fjöl- skyldan búið nær óslitið síðan. Sjálfsagt fer ég núna að teljast löggiltur Þorlákshafnarbúi, þó hjarta Vestfirðingsins slái í brjósti mér - og svo mun verða áfrarn," segir Jón. A fyrstu árum kvótakerfisins stundaði Jón sjálfur útgerð, en sí- fellt minnkandi kvóti Ieiddi til meðal annars þess að hann hætti slíku. Frá 1989 hefur hann verið skipstjóri á annarra manna bát- um, - síðustu misserin á Sæljós- inu AR -11, sem er í eigu Gylfa l’raustasonar, sveitunga Jóns frá Flateyri. Humariim er herramaður í sér „Aherslurnar í fiskveiðistjórnun hafa verið rangar. Það er fullt af þorski um allan sjó og það vita allir,“ segir Jón Arason. „I fyrra- vetur vorum við gjarnan við veið- ar rétt út af Hafnarnesvita hér við Þorlákshöfn og eftir fárra mínútna stím voru allar trossur fullar af þorski — þessum fiski sem við megum ekki koma með af landi. Og eitthvað þarf þorsk- urinn að éta; við sjómennirnir segjum að hann sé svo mikill herramaður í sér að hann bjóði hrygnunni aðeins það besta og þau fái sér humar. Það dýrasta og fínasta. Og þvílíkt er étið af humrinum að veiði á honum hef- ur hrunið algjörlega síðustu sum- ur og í fyrrasumar var hún nán- ast engin. Einnig hefur kolaveiði hér við suðurströndina stórlega dregist saman." Jón segir liðs- menn Samtaka um þjóðareign ætla að leiða saman helstu sér- fræðinga í greininni um það hvernig koma megi saman öðru fiskveiðistjórnunarkerfi. „Og þá förum við á fjörurnar við alla sem geta komið að þ\a máli.“ — Undir- húningur að stofnun Samtaka um þjóðareign hefur staðið yfir í nokkra mánuði. Jón segir að hann hafi komið fyrst að þessum málum þegar Valdimar Jóhanns- son, framkvæmdastjóri í Mos- fellsbæ, komst í fréttirnar eftir að hann sótti sjálfur um kvóta á grundvelli þess að hann ætti jafn rnikið í kvótanum og aðrir, ef marka mætti fyrstu grein fisk- veiðistjórnunarlaganna. Byggðarlög eins og Hakandi sár „Þá setti ég mig í samband við Valdimar og fleiri komu síðan í framhaldinu til iiðs við okkur - og nú hafa orðið til þessi samtök. Viðtökurnar eru góðar og miklu betri en við bjuggumst við. Og til liðs við okkur kemur fólk ekki einvörðungu vegna þess að því ofbjóði óréttlætið sem felst í kvótakerfinu, heldur er það einnig að berjast fyrir afkomu sinni og ævistarfi. Einstök byggðarlög eru eins og flakandi sár, eftir að það- an hefur verið keyptur allur kvóti. Ég get nefnt kauptún á sunnanverðum Vestfjörðum og kaupstaði vestra eins og Isaljörð og Bolungarvík, auk staða hér á suðvesturhorni landsins. En nú er mál að linni - og ég skora á alla sjálfstæða íslendinga hvar sem þeir standa að þeir taki höndum saman, uni óréttlætinu ekki leng- ur og sameinist í samtökum um þjóðareign." -SBS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.