Dagur - 15.10.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 1 S . OKTÓ B E R 1997 - 23
FINA OG FRÆGA
i.
Demetz 8 5 ára
Óperusöngvarinn Sig-
urðurDemetz varð 85
ára um helgina. Sig-
urðurfékk til sínýmsa
landsfræga gesti og
samferðamenn og að
sjálfsögðu varglattá
hjalla og mikið sungið.
ÆvarKjartansson út-
varpsmaður stjómaði
veisluglaumnum,
Garðar Cortes flutti
ræðu og Fóstbræður
tóku lagið svo nokkuð
sé nefnt. Guðlaugur
Tryggvi Karlsson vará
staðnum ogfesti nokk-
ur andlit áfilmu.
Garðar Cortes óperusöngvari flutti
skemmtilega rædu í tilefni dagsins.
Signý Sæmundsdóttir óperusöngkona syngur fyrir afmælisbarnið.
Jóhann Sigurðarson leikari
smakkará dýrindis veitingum.
Red Skelton kveður
Skemmtikrafturinn heimsfrægi
Red Skelton, Jim Carrey síns
tíma, lést fyrir skömmu 84 ára
að aldri.
Red fæddist árið 1913. Faðir
hans var sirkustrúður og alkó-
hólisti sem lést tveimur mánuð-
um fyrir fæðingu fjórða sonar
síns. Sá hlaut nafnið Richards
en vegna rauðs háralitar var
hann nefndur Red af bræðrum
sínum og nafnið festist við
hann.
Móðir Reds var ræstingakona
en tekjur hennar nægðu engan
veginn til að sjá fyrir fjölskyld-
unni og Red hætti í skóla fjórtán
ára og hóf að vinna fyrir sér sem
skemmtikraftur. „Mamma leyfði
mér að hætta í skóla vegna þess
að við sultum,“ sagði hann síðar.
Hann tók um tíma upp starfa
föður síns sem sirkustrúður og
kom einnig fram í revíum og á
skemmtidagskrám í leikhúsum
Hann var 19 ára þegar hann
giftist sætavísunni Ednu Marie
sem var tveimur árum yngri en
hann. Hún varð umboðsmaður
hans og skrifaði allt efni hans.
„Efni hennar var betra en það
sem ég gat keypt, stolið eða búið
til sjálfur," sagði Red. Edna kom
eiginmanni sínum á kvikmynda-
samning í Hollywood þar sem
hann lék í alls Ijörutíu 'kvik-
myndum. Hjónin skildu eftir 13
ára samvist en héldu vináttu
sinni og Edna sinnti áfram starfi
sínu sem umboðsmaður hans.
A sjötta áratugnum hóf Red
Skelton glæstan feril sem
skemmtikraftur í sjónvarpi þar
sem galsa-
fullur
húmor hans
naut sín til
fullnustu.
Þar starfaði
hann í tæpa
tvo áratugi,
en þættirnir
voru teknir
af dagskrá
árið 1970,
þrátt fyrir
mikið áhorf,
þar sem þeir
þóttu of
gamaldags.
Skelton sat
þó ekki auð-
um hönd-
um,
skemmti
sviði
gerðist
stundamál-
ari. Olíumálverk hans eru um
þúsund talsins og seldust fyrir
offjár.
Skelton, sem í starfi sínu var
síbrosandi, varð fyrir áföllum í
einkalífi. Önnur eiginkona hans
var fyrirsætan Georgia Davis.
Þau eignuðust tvö börn, dreng
og stúlku. Sonurinn lést úr hvít-
Nfu árum síöar fyrirfór Georgia sér.
blæði 9 ára gamall. Hjónin
komust ekki yfir áfallið og skildu
loks eftir nær þriggja áratuga
hjónband. Þremur árum eftir
skilnaðinn og átján árum eftir
lát sonarins fyrirfór Georgia sér.
Þriðja eiginkona Skeltons var
Lothian, einkaritari sem var 25
árum yngri en hann. „Eg held að
Red hafi verið hamingjusamur
maður á efri árum,“ sagði Ger-
ald Ford, fyrrum Bandaríkjafor-
seti þegar hann minnist vinar
síns. „Hann vissi að gamanleik-
ur hans myndi ætíð njóta hylli.
Hann var sáttur. Hann átti frá-
bæran feril.“
Skelton, eins og heimurinn man hann,
í trúðslíki.