Dagur - 15.10.1997, Blaðsíða 10
26 - MIÐVIKUDAGUR ÍS.OKTÓBER 1997
Ð^uir
LÍFIÐ í LANDINU
'
KÁRI
ARNÓRSSON
SKRIFAR
Gísli Pálsson með nýja bók:
Reiðmenn í norðri - Fram-
varðarsveitin -
Enn hefur Bókaútgáfan á Hofi - Gísli
Pálsson — sent frá sér bók um hesta-
mennsku.
Þessi bók er sú síðasta í bókaflokkn-
um Hestar í Norðri sem Gísli hefur gef-
ið út. Það er með eindæmum hvað
hann hefur verið ötull í þessari útgáfu
og hvað bækur hans geyma mikinn
fróðleik um ræktun íslenska hestsins og
notkun hans. Bækurnar eru gefnar út á
erlendum tungum auk íslenskunnar svo
hestaunnendum erlendis gefist kostur á
að kynna sér innihald þeirra. Það er fátt
sem gert hefur verið sem betur hefur
stuðlað að kynningu hestsins erlendis
og margir eru þeir sem hafa fengið sölu
út á frásagnir í fyrri bókum um eigin
ræktun. í þeim bókum var greint frá
ræktendum um allt land og hvað þeir
legðu áherslu á í sinni ræktun.
í þeirri bók sem nú sér dagsins ljós
eru það afreksmenn í reiðmennsku og
keppni í hestafþróttum sem eru kynntir.
Gísli nefnir þá FRAMVARÐARSVEIT-
INA og má það kallast réttnefni. Þar
eru viðtöl við 21 atvinnumann, eða
menn því nokkur hjón eru þarna tekin
tali, í hestamennskunni og er það bæði
fróðleg og skemmtileg lesning. Flestir
hafa þessir menn getið sér frægðarorð
fyrir reiðmennsku og margir fyrir góðan
árangur í ræktun. Jens Einarsson hefur
tekið flest þessi viðtöl.
Þá ritar Sigurður Haraldsson, einn
af þekktustu hrossaræktarmönnum
landsins, stutt ágrip af sögu íslenska
hestsins og einnig bráðskemmtilegan
þátt um reiðsnillinginn Jón Asgeirsson
á Þingeyrum sem varð strax í Iifanda lífi
þjóðsagnapersóna vegna snilli sinnar í
tamningu og meðferð hesta og er enn,
en hundrað ár eru nú Iiðin frá andláti
hans.
Kári Arnórsson ritar ágrip af leið-
beiningarþjónustunni í hrossarækt á
þeirri öld sem nú er senn að kveðja. Þar
er ýmsan fróðleik að finna.
Ohætt er að mæla með þessari bók
Gfsla, sem er gott framlag í þeirri við-
Ieitni að varðveita þann menningararf
sem samneyti manns og hests hefur
skilað þessari þjóð.
Góðgangur á Bylgjuniii
Útvarpsstöðin Bylgjan hefur nú haf-
ið útsendingar sem ætlaðar eru
áhugamönnum um hesta og hesta-
mennsku. Þessi þáttur nefnist Góð-
gangur og er í umsjá Júh'usar Brjáns-
sonar. Júlíus er enginn nýgræðingur
á þessu sviði því auk þess að stunda
hestamennsku hefur hann verið virk-
ur f félagsstarfi hestamanna, ekki
síst í hestaíþrótlum. Þá hefur hann
verið starfandi við fagblöð hesta-
manna.
Þátturinn Góðgangur er sendur
út einu sinni í viku á sunnudags-
kvöldum og var fyrsta útsendingin 5.
október.
HESTAR
Reiðmenn í
norðri
tbókinni er ítar/egt viðtal við hjónin Sigurbjöm Bárðarson og Fríðu Steinarsdóttur. mynd: ej
Þitt er valið
Stefánsdóttin
Þetta er þitt líf.
Það er í þínu valdi að velja það
sem þú vilt gera
og gera það vel.
Það er í þínu valdi
að njóta þess sem þú vilt og njóta þess vel.
Þuð er í þínu valdi að ganga um í
skóginum
og vera hluti náttúrunnar.
Það er í þínu valdi
að stjóma Itfi þínu.
Enginn annar getur gert þaðfyrir þig.
skrifar
Það er í þínu valdi að lifa
hamingjusömu lífi.
Þetta fallega ljóð er eftir Susan
Polis Schutz og í því minnir hún
okkur á valið sem við stöndum frammi
fyrir alla daga, að velja hvernig lífi við vilj-
um lifa. Allt of oft viljum við skella skuld-
inni á utanaðkomandi áhrif, það sé ein-
hverjum eða einhverju öðru að kenna
hvernig fór í stað þess að velta því nánar
fyrir okkur hvað það er sem við erum að
velja hverju sinni.
HVAÐ Á É G A Ð GERA
Sumarfrí
Við hjónin eigum uppsafnað frí og höfum
verið að tala um að fara tif útlanda. En
við erum alls elcki sammála um það hvert
við eigum að fara. Konan vill endilega
fara til Frakklands, en mig langar til að
skoða Bandaríkin. Þetta virðist alveg í
hnút hjá okkur, við erum bæði stíf á okk-
ar meiningu og hvorugt vill láta undan.
Hvað er til ráða?
Hafið þið hugleitt að fara sitt í hvoru
lagi? Það er engin heilög skylda að
hjón fari saman í frí og ef þið eruð
ósammála, þá er hætt við að annað
verði hálfleitt allan tímann sem þið
eruð á þeim staðnum sem fyrir valinu
verður. Svona mál eru alltaf erfið
viðureignar og sérstaklega ef hvorugt
vill láta sig. Svo má reyna að nálgast
málið frá öðru sjónarhorni, t.d. að fara
í ár til annars landsins og á næsta ári
til hins, þ.e. ef þið getið Qármagnað
það.
Vigdís svarar í símaim!
Ertu með ráð, þarffu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Síminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
FLÓAMARKAÐUH
Brauðvél og hrærivél
Það vill koma fyrir að hrærivélaspaðar
brotna eða týnast og þá er illt í efni. Hún
Helga Hansdóttir sem býr á Hvolsvelli á
gamla Kenwood hrærivél sem er f góðu
lagi, en því miður það brotnaði hrærarinn
á henni og hana vantar nýjan. Ef einhver
á í fórum sínum slíkan grip, þá væri hún
þakklát fyrir og er til í að skipta við við-
komandi á einhverju öðru.
Hún hefur líka áhuga á þvf að eignast
brauðvél ef einhver á og er ekki að nota.
Helga segist vera mikill safnari og skiptari
og vafalaust eiga eitthvað í staðinn.
Síminn hjá Helgu er: 487 8262.
Mynd úr myndasafni.
Húsráð
Þurrkuð epli
Það er auðvelt að þurrka epli
og þau eru góð til að grípa sem skyndi-
bita. Skolið eplin og þurrkið. Takið
kjarnann úr og sneiðið í 1 sm. þykkar
sneiðar. Leggið sneiðarnar á ofngrind
og hafið pappír undir. Setjið grindina í
ofn og hitið í um 80°C. Látið eplin vera
inni þar til þau fá flauelsáferð. Lækkið
þá hitann í 50°C og þurrkið áfram í 1
sólarhring. Ofninn þarf að vera hálfop-
inn á meðan. Þurrkuð epli eiga að vera
mjúk, en svo þurr að ekki komi raki úr
þeim þó þau séu kreist.