Dagur - 15.10.1997, Síða 2
18-MIDVIKUDAGUR ÍS.OKTÓBER 1997
rD^tr
LÍFIÐ í LANDINU
L A
Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri
og Þverliolti 14 • 105 Reykjavík
Siininn hjá lesendaþjónustunni:
563 1626netfang : ritstjori@dagur.
só,b,éf 460 G17i^ssl 6270
1S
Bráf frá Homafirði
Þrælast í gegrnun dagblað
Sjaldan les ég dagblað
frá orði til orðs, og
munu sjálfsagtfáir
gera,því það er tals-
vertátak. En ég las
dagblað eittsvona
vandlega, að ég rakst
þar fljótlega á leiðin-
lega orðsskipan.
Og svona til að vita, hvort meira
af því líku góðgæti kynni að
leynast, tók ég mig til og skrifaði
niður það, sem mér fannst at-
hugavert af sama toga. Þarna er
allt of oft notað hið klúðurslega
orðasamband, þar sem „að það“
er þrælað inn í setninguna og
fornafninu „það“ er sums staðar
algjörlega ofaukið. Skal ég nú
sýna nokkur dæmi þessa hvors
tveggja, úr útgáfu dagblaðs ný-
lega.
„Það“
„Það verða ekkí spilaðar nema
þrjár Iotur í úrslitaleiknum". =
Ekki verða leiknar nema þrjár
lotur í úrslitaleiknum.
„Eg er hlynnt frjálshyggjunni,
en mér finnst, að það verði að
tengja hana við raunveruleik-
ann.“ = Ég er hlynnt frjálshyggj-
unni, en mér finnst, að tengja
verði hana við raunveruleikann.
„Eg geri ráð fýrir, að það verði
einhverjar breytingar." = Eg geri
ráð íyrir, að einhverjar breyting-
ar verði.
„Vegna þess, að það eru kosn-
ingar fram undan, þá verður
stærsta breytingin sú, áð pólit-
fska umræðan verða aggressív-
ari.“ = Vegna þess, að kosningar
eru fram undan, verður stærsta
breytingin sú, að stjórnmálaum-
ræðan verður áreitnari." ( Forð-
umst útlendar slettur!)
„Það hafa verið orðaðir við
mig möguleikar á, að ég taki að
mér ýmis konar störf.“ = Orðað
hefur verið við mig, að ég taki
að mér ýmis störf.
„Ég er hóflega bjartsýnn á, að
það sé vilji til að leysa málið, á
meðan fólkið heldur áfram að
hittast og skiptast á hugmynd-
um.“ = Ég er hóflega bjartsýnn
á, að vilji sé til að leysa málið,
o. s. frv.
Mörg vinna?
„Mörg vinna er þess eðlis, að
það fer best á því, að hún sé
unnin í kyrrþey og næði.“ =
Margt starf er þess eðlis, að best
fer á því, að það sé unnið í kyrr-
þey og næði.
„Ef það á að taka eitthvað
mark á svona setningargreyi." =
Ef taka á eitthvert mark á svona
setningargreyi.
„Og það þarf að verða til
traust.“ = Traust þarf að skap-
ast.
„Það er svo umfangsmikil
kerfisbreyting, að það er erfitt
að gera sér grein fyrir því til
fulls, hverjar afleiðingarnar
verða.“ = Það er svo viðamikil
kerfisbreyting, að erfitt er að
gera sér grein fyrir því til fulls,
o. s. frv.
„Og það væri Iíka hættulegt að
fara yfir götu.“ = Og hættulegt
væri líka að fara yfir götu.
„Frá virkjunarmönnum komu
þau svör, að það væri margt í
mörgu.“ = Frá virkjunarmönn-
um komu þau svör, að margt
væri í mörgu.
„Element“
„Staðreynd málsins er einfald-
lega sú, að það vantar alveg
framsóknar-elementið í Kópa-
vogslistann." = Staðreynd máls-
ins er einfaldlega sú, að fram-
sóknar-þáttinn vantar alveg f
Kópavogslistann.
„Það liggur við, að það sé að-
gerðanefnd í hverjum skóla.“ =
Það liggur við, að aðgerðanefnd
sé í hveijum skóla.
„Það er ekki hægt að rekja
þetta akkeri til ákveðins skips,
en það er vitað, að það var í eigu
Kveldúlfs, og sennilega skútu-
akkeri." = Ekki er hægt að rekja
þetta akkeri til ákveðins skips,
en vitað er, að það var í eigu
Kveldúlfs, o. s. frv.
„Þetta er gömui arfleifð, sem
búin er að vera í gangi um ára-
tuga skeið, að það skuli vera í
gangi hámarksverð á þessa þjón-
ustu, og það hefur ekki þótt vera
forsenda til þess að breyta vegna
fjöldatakmarkana að atvinnu-
greinum." = Þetta er gömul arf-
leifð, sem verið hefur í gangi
um ártugi, að hámarksverð skuli
vera á þessari þjónustu, og ekki
hefur þótt vera forsenda til að
breyta, vegna fjöldatakmarkana
að atvinnugreinum.
„Allar tilraunir til að færa
þetta í frjálsræðisátt, yrðu því
líkt skref aftur á bak, að það er
með ólíkindum." = Allar tilraun-
ir til að færa þetta í frjálræðis-
rátt, yrðu þvílíkt skref aftur á
bak, að með ólíkindum væri.
„Ekki fer á milli mála, að verið
er að þrengja að Karadzic." Hér
er um góða málnotkun að ræða.
Engin athugasemd!
í stórum stíl
„Háttsettur bandarískur erind-
reki sagði ennfremur í Sarajevó
á sunnudaginn, að það væri
nauðsynlegt að fjarlægja Kara-
dzic = . að nauðsynlegt væri að
fjarlægja K.
„Segja upp í stórum stíl.“ =
Segja upp í miklum mæli.
„Hefurðu trú á, að það takist
að spara í þetta skiptið í rekstri
stóru sjúkrahúsanna?" = Hef-
urðu trú á, að takast muni í
þetta skiptið að spara í rekstri
stóru sjúkrahúsanna?
„Það þarf að gera vinnutíma
kennara sýnilegri." = Gera þarf
vinnutíma kennara áþreifan-
legri.
„Nú veit ég svo sannarlega
ekki, hvers vegna þessum mönn-
um fannst, að það þurfi að gera
vinnutíma kennara sýnilegri.“ =
Nú veit ég sannarlega ekki,
hvers vegna þessum mönnum
fannst, að gera þurfi vinnutíma
kennara áþreifanlegri.
„Ég held, að mennirnir eigi
einfaldlega við, að það þurfi að
lengja vinnutíma kennara." = Ég
held, að mennirnir eigi einfald-
lega við, að lengja þurfi vinnu-
tfma kennara.
Auðunn Bragi Sveins-
son,Hjarðarliaga 28,
107 Reykjavík.
Kjaranefnd skaðar heilsukerfi iandsbyggöarinnar verulega.
HeUMgðisvanda-
málið Iqaranefnd
HALLIJR
MAGNÚSSON
SKRIFAR
Eitt alvarlegasta heil-
brigðisvandamál
landsbyggðarinnar um
þessarmundirer
kjaranefnd. Kjara-
nefnd erað leggja
heilsugæslukerfi
landsbyggðarinnar í
rúst.
Ólíkt ýmsum veirum sem skaða
ekki starfsemi líkamans að ráði
meðan þær liggja í dvala aðgerð-
arlausar, þá skaðar kjaranefndin
verulega starfsemi heilsugæslu-
kerfisins úti á landi með aðgerð-
arleysi sínu. Líkt og ýmsar veir-
ur lama ákveðna líffærastarf-
semi þegar þær fara á kreik, þá
lamar kjaranefnd heilsugæslu-
starfsemi Iandsbyggðarinnar
með því að fara ekki á kreik. Af-
leiðingarnar í báðum tilfellum
getur orðið dauði. Dauði líkam-
ans annars vegar og dauði ein-
stakra byggðarlaga hins vegar.
Þetta ’ eru al-
ur ekki fyrr en kjaranefnd skilar
af sér verki sínu.
Við á Hornafirði erum með
lækna. Þeir eru jafn algengir og
hvítir hrafnar hér um slóðir, því
heilsugæslustöðvarnar hér fyrir
austan okkur eru meira og
minna læknalausar vegna að-
gerðarleysis kjaranefndar.
Kjaranefnd vinni sín verk
Læknir er forsenda starfhæfrar
heilsugæslustöðvar. Þá er ekki
verið að gera lítið úr nauðsyn
annarra starfsstétta á heilsu-
gæslustöðvum. Ef heilsugæslan
er ekki lengur starfhæf í byggð-
arlögunum þá skiptir ekld neinu
máli hversu gott atvinnulíf og
góð þjónusta er til staðar að
öðru leyti. Fólkið flytur burt
þangað sem læknisþjónusta er
til staðar og kemur trauðla aftur
til baka.
Heimildir mínar herma að
kjaranefnd hafi sama og ekkert
Ijallað um málefni heilsugæslu-
Iækna og það sé langur tími þar
til niðurstöður kjaranefndarinn-
ar liggi fyrir. Ef það er rétt þá
eru allar Iíkur á að heilsugæslu-
kerfið verði komið á gjörgæslu
innan skamms tíma. Þar sem
lyfin við sóttinni eru eingöngu í
höndum kjaranefndar, þá getur
heilbrigðisráðherra og hennar
fólk ekki gert annað en að fylgj-
ast með dauðastríðinu. Heil-
brigðisráðherra mun hins vegar
að ósekju vera sakaður um
dauða sjúldingsins ef hann gefur
upp öndina.
Nú veit ég ekki hverjir það eru
sem skipa kjara-
varleg orð. , ,, , „ ., , ^ nefnd og mig
Vegna íyrri NU liefur VCnð lagt langar ekkert til
reynslu minnar _ „ . 17 . . að v'*:a Þa^’
hafði ég ákeðið jTaJU 3 AlþVUgl tlllaga Hins vegar
að birta ekki aft- , _ .. , . verður þetta
ur á prenti sann- UTU að ajtUT Verðl teklU fólk að gera sér
Ieikskorn
sem
gæti komið mér í
ldandur vegna
þess að þau
kæmu illa við
einhveijar per-
sónur. En þar
sem ástandið er
alvarlegt skipti ég um skoðun.
Heilsugæslulæknar hafa nú í
rúmt ár beðið í lausu lofti eftir
úrskurði kjaranefndar. Þolin-
mæði þeirra er skiljanlega fyrir
löngu þrotin. Heilsugæslulækn-
ar ráða sig ekki til starfa í ein-
manaleg heilsugæsiuumdæmi,
þar sem vinnuálag getur verið
nánast ómannlegt, fyrr en kjör
þeirra liggja Ijós fyrir. Það verð-
grem fyrir
upp tekjutenging elli- ábyrgð sinni og
launa við þróunina á
launamarkaðinum.
hefjast handa
nú þegar og
skila af sér því
verki sem kjara-
nefndinni var
falið. Stundum
er nauðsynlegt að bregðast snar-
lega við banvænni veirusýkingu
með tvísýnum aðgerðum. Nú er
lífsnauðsynlegt fyrir landsbyggð-
ina að kjaranefndin skili af sér
niðurstöðum sínum hvað kjara-
mál heilsugæslulækna varðar,
þótt afleiðingar þeirra niður-
staðna geti verið tvísýnar. Ef
ekkert er að gert deyr sjúkling-
urinn hvort eð er.