Dagur - 15.10.1997, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 1 S . OKTÓBER 1997 - 21
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
Þóra Einarsdóttir er í hlutverki Despinu og er
næsta óborganleg i gervum sínum.
„Þessi gleðileikur Davids Freeman og Lorenzos da Ponte við undirleik Mozarts er semsagt hin bezta skemmtun, og sennilega getur
ekki betri í bænum um þessar mundir, “ segir Sigurður Steinþórsson.
SIGURÐUR
STEINÞÓRS-
SON
SKRIFAR
íslenska óperan frum-
sýndi Cosifan tutte
eftirMozartföstudag-
inn 10. október. Cosi
ergamanópera, en þó
þótti sá broddurí efni
hennarlengi framan af
að hún varekki mikið
sýndfyrren á þessari
öld.
Mozart í þriðj a sæti
Því nafnið Cosi fan tutte vísar
til þess að á tryggð kvenna sé
ekki meira treystandi en refs-
hala. Og sagt er að bæði Beet-
hoven og Wagner hafi talið óp-
eru þessa fyrir neðan virðingu
Mozarts vegna efnisins.
Höfundur textans er Lorenzo
da Ponte, sem einnig samdi
Brúðkaup Figaros og Don
Giovanni. Da Ponte var merki-
legur höfundur en brokkgengur,
og endaði daga sína sem pró-
fessor við Columbia í New York,
sem er önnur saga. En nú orðið
skiptir textinn meira máli en
áður var, þökk sé textavél Óper-
unnar, því allir geta fylgzt með
þeim orðaskiptum á ítölsku sem
fram fara á sviðinu. Og það er
einmitt þessi textavél og ágæt
þýðing Óskars Ingimarssonar
sem gerir leikstjóranum David
Freeman ldeift að búa til sýn-
ingu þar sem Mozart og tónlist-
in eru í þriðja sæti, eftir Free-
man sjálfum og Lorenzo da
Ponte í fyrsta og öðru. Þó merki-
legt megi virðast „gengur þetta
upp“ eins og listfræðingarnir
segja, og úr verður bráð-
skemmtilegur farsi sem Mozart
sjálfur hefði sennilega skemmt
sér vel á - þó hugsanlega hefði
honum þótt tónlist sinni gert
fulllágt undir höfði, því honum
gramdist það að tengdamóðir
hans og fleiri töluðu um að „sjá“
Töfraflautuna en ekki „heyra“.
Svaladrykkir og sólarströnd
Ekki vil ég þó mæla með þessari
aðferð almennt við að setja upp
óperur, því það er vegna Moz-
arts og tónlistarinnar sem þessi
ópera er yfirleitt sýnd. Og ekki
megum við heldur ímynda okkur
að þessi uppsetning brjóti blað í
óperuuppsetningum í heimin-
um: alls staðar eru leikstjórar að
búa til „sinn eigin“ Shakespeare,
Mozart, Ibsen, Wagner og Verdi
- aðeins með því að stjaka þeim
gömlu til hliðar myndast rúm
fyrir þá nýju, eða þannig leit
Darwin a.m.k. á málið.
Eins og fram hefur komið í
auglýsingum Óperunnar og víð-
ar, gerist stykkið nú á sólar-
strönd þar sem unga fólkið er að
striplast í sandinum með svala-
drykki og sólolíu. „Albanirnir" í
texta da Pontes eru orðnir að
ríkum aröbum, Despina að
gengilbeinu á hóteli, og annað
er aðlagað þessari hugmynd.
Arabarnir tveir eru að vísu svo
drumbslegir að
þeir líkjast mest
Mormónatrú-
boðum með
arabaslæðu á
höfði, enda
„falla“ stúlkurnar
tvær fremur fyrir
olheldiskennd-
um þrýstingi en
fyrir sjarma
þeirra.
Erfiðar söngað-
stæður
Þóra Einarsdóttir er í hlutverki
Despinu og er næsta óborganleg
í gervum sínum - raunar er eitt-
hvað „chaplinesque“ við Þóru í
þessum hlutverkum sem kitlar
hláturtaugarnar - og eitthvað var
hún að syngja líka og gerði það
vel. Sólrún Bragadóttir og Ing-
veldur Yr Jónsdóttir syngja og
leika hlutverk fórnarlambanna
Fiordiligi og Dorabellu með
mildum ágætum - mjög vel Iukk-
að var atriði þar sem Sólrún
(Fiordiligi) predikaði dyggðirnar
yfir daufum eyrum áheyrenda
sinna, og mörg fleiri atriði gera
þessar fínu söngkonur prýðilega.
Bergþór Pálsson er í essinu
sínu sem hinn kaldhæðni Don
Alfonso, hreyfikraftur leikritsins.
Hlutverk hans er að mestu tal-
söngur, tónles, en Bergþór er
hinn prýðilegasti leikari. Loks
eru það elskhugarnir tveir,
Ferrando og Guglielmo, Björn
Jónsson og Loftur Erlingsson.
Báðir eru hinir vörpulegustu
menn og sóma sér vel á sviðinu.
Loftur hefur fallega barytonrödd
og Björn þekkilegan tenór þar til
í ljós kemur í aríu Ferrandos
„Tradito, schernito ...“ að hann
á mjög margt ólært í tenór-
kúnstinni.
I Cosi fan tutte eru fáar fræg-
ar aríur. Skemmtilegustu söng-
atriðin eru hins vegar samsöng-
ur, en Mozart
var einmitt
stoltur af þeirri
íþrótt sinni að
semja þau af
mikilli snilld.
Atriði þessi eru
þó framkvæmd
við hinar erfið-
ustu aðstæður,
á einum stað
hangir Fior-
diligi (Sólrún)
öfug um háls
Guglielmos (Loftur) og syngur
aftur milli fóta hans. Og mörg
söngatriði eru tekin liggjandi í
sandinum, eða jafnvel á grúfu.
Hægt að loka augimum
Þessi gleðileikur Davids Free-
man og Lorenzos da Ponte við
undirleik Mozarts er semsagt
hin bezta skemmtun, og senni-
lega getur ekki betri í bænum
um þessar mundir. Þar að auki
gætu þeir, sem meiri áhuga hafa
á Mozart en Freeman, sem hæg-
ast lokað augunum og hlustað á
vora ágætu söngvara og prýði-
legu hljómsveit (konsertmeistari
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, stjórn-
andi Howard Moody) flytja tón-
list eftir snilling sem hefði ekki
getað samið lélega tónlist þótt
hann reyndi það.
Nafnið Cosifan tutte
vísartilþess að á
tryggð kvenna sé ekki
meira treystandi en
refshala.
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMP A HF.NDl
Hart
S
eftir Jökul Jakobsson.
á Renniverkstæðinu
3. Sýning
Föstudaginn 17. október
örfá sæti laus
4. Sýning
Laugardaginn L8. október
UPPSELT
5. Sýning
Föstudaginn 24. október
6. Sýning
Laugardaginn 25. október
Gagnrýnendur segja:
„Uppsetning LA á Hart í bak er
hefðbundin og verkinu rrú. Örlög
og samskipti persónanna eru í
fyrirrúmi ...''
Au/iur llydar FDV
„Leikritið Harc í bak er meistara-
lega samsett af hliðstæðum og
andstæðum, táknum og samblandi
af stílfærðu raunsæi og botnlausri
rómantík.
Svcinn Haraldsson i Mbl.
„Inn í dökkva söguþráðarins fléttar
hann (höfúndur) fögur ljósbrot og
spaugiieg atriði auka dýpt
verksins."
Haukur Ágústsson í Degi
„Því er fyllsta ástæða tii að grípa
þessa gæs meðan hún gefst."
Þórgnýr Dýrfjörð í RÚV
♦ Á ferð með frú Daisy
Frumsýnmgá Remmvrkstœðmu 27. des.
Titilhlutverlc
Sigurveig Jónsdóttir
^ Söngvaseiður
Ftumsýnmg íSainktmiuhúsinu 6. mars
Aðalhlutverk:
Þóra Einaxsdóttir
4» Markúsarguðspjail
Fntmsýmng d Renmvcrkshedim/ 5. opríl
Leikari:
Aðalsteinn Betgdal
Leikfélag Akureyrar
Við bendum leikhúsgestum á að
enn gefst tækifæri til þess að
kaupa aðgangskort á allar
sýningar Leikfélagsins, tryggja
sér þannig sæti og njóta ljúfra
stunda í leikhúsinu á
einstaklega hagstæðum kjörum.
S. 462-1400
er styrktaraöili Leikfélags AkurcyTar