Dagur - 18.10.1997, Page 1
T
Tvær þjóðir í
neyslidandinu
Höfudborgarbúar verja margfalt stærri hluta í fiug og pakkaferðir en landsbyggdar-
fóik. Allt sem kallast „lífsins lystisemdir“ vegur mun þyngra i útgjöldum borgarbúa
en i dreifbýli. Hvað kostar meira á landsbyggðinni? Ljós og hiti!
Borgarbúar eyða 4-5
siimuin iiieira í
áfengi, veitingahús og
utanferðir en dreif-
býlisfófk. Stdr munur
á mörgum liðum
heimilisútgj aldanna.
Nýjasta neyslukönnun Hagstof-
unnar gefur til kynna að tvær
þjöðir búi í „neyslulandinu" okk-
ar. I áfengiskaup, veitingahús,
pakkaferðir og aðrar flugferðir
fara yfir 250 þúsund kr. á ári að
meðaltali hjá fjölskyldum á höf-
uðborgarsvaeðinu, en innan við
58 þús. kr. hjá dreifbýlisfjöl-
skyldunum, sem þó eru jafnaðar-
lega fjórðungi fjölmennari.
Raunar skipti Hagstofan fjöl-
skyldum í þrennt eftir búsetu.
Þriðji hópurinn var annað þétt-
býli, með fleiri en 1.000 íbúa.
En neyslu svipar þar til höfuð-
staðarins þó hún sé heldur hóf-
samari á það sem ekki telst til
brýnna nauðsynja. Kannski
vegna færri tækifæra í heima-
bænum. Þessi „milliþjóð11 á þó
eitt óskorað met; bílakaupin,
sem hún eyðir þrisvar sinnum
meira í en „dreifbýlisþjóðin".
Útgjöldin 50% meiri á mann
Stóri munurinn er milli höfuð-
staðar og dreifbýlis (130 sveitar-
félög með færri en 1.000 íbúa).
Heimilisútgjöldin eru t.d. 50%
hærri á mann í höfuðstaðnum.
„Lifa hinir bara ekki á eintómu
heimaslátruðu og fríum fiski?“
spyr eflaust einhver. Þvert á
móti, dreifbýlisfjölskyldan eyðir
meiru í kjöt og fisk, og reyndar
öll matarkaupin, utan hvað hún
drekkur miklu minna af gosi - en
þar á móti miklu meira kaffi.
Borgarfjölskyldan eyðir næst-
um tvöfalt meira í áfengiskaup,
sömuleiðis í húsbúnað og gard-
ínur, næstum þrefalt meira í
pakkaferðir og flug. Höfuðborg-
arbúar eyða um 50% meira á
veitingahúsum og einnig í lík-
amsrækt, lottó, spilakassa og
fleira sem telst til lystisemda Iífs-
ins.
Á gömlum lélegum
bilskrjóðum
Bensínreikningurinn bendir til
að „þjóðirnar" aki álíka mikið.
En dreifbýlingar eyða nær helm-
ingi minna í bílakaup, en næst-
um helmingi meira í varahluti,
viðgerðir og viðhald. Og bíla-
styrkir eru nær óþekktir utan
höfuðstaðarins, þar sem að jafn-
aði 1/5 af bensínreikningunum
er borgaður „af öðrum".
Lyfjakostnaður er álíka mikill
hvar sem er á landiu, en Iæknis-
kostnaður tvöfalt meiri í höfuð-
staðnum (dýrara að fara til sér-
fræðinga en á heilsugæslustöð).
Dreifbýlisfólk sparar líka með
því að láta farsímakaup eiga sig,
sem einnig þýðir Iægri síma-
reikning. Það eina sem fólk
borgar miklu (70%) meira fyrir í
dreifbýlinu er Ijós og hiti. — HEI
Skaðleg orð
Halldór Ás-
grímsson utan-
ríkisráðherra
fordæmir yfir-
lýsingu norska
sjávarútvegsráð-
herrans, Peters
Angelsen, en
hann vill loka
Smugunni og
útiloka íslensk-
an kvóta. And-
ersen, sem er nýr i embætti, hef-
ur jafnframt látið að því liggja að
Islendingar eigi sök á að veiðin í
Smugunni brást í ár.
„Þetta eru afar óheppileg orð
og skaðleg. Ef þessi tónn á að
rfkja þá mun það skaða sam-
skipti landanna enn frekar en
orðið er. Eg vona að Norðmenn
sjái að sér í þeim efnum,“ segir
Halldór. — BÞ
Sjá viðtal við Halldór utn
Kínaför sendinefndar á bls. 2
„Upp upp mín sál og allt mitt geð.“ Viðgerðarmaðurinn i turni Akureyrarkirkju naut sköpunarverksins I dýrð haustsins: rauð lauf
í b/and við græn á trjám, húsin í bænum i öllum regnbogans litum undir heiðríkum bláum himni og fjallakransinn hvítur.
Allt á hvolfi í pollinum! - mynd: brink
Löggait
með Doxið
í rannsökn
Ómar Smári Ármannsson.
Lðggan skoðar mynd-
band. Stöð 2 til at-
hugimar. Læknafélag-
ið á móti hnefaleik-
um.
Lögreglan í Reykjavík hyggst
verða sér úti um myndband af
hnefaleikabardaganum sem fram
fór í fyrradag í húsakynnum
Hnefaleikafélags Reykjavíkur.
Myndbandið verður notað sem
innlegg í meðferð kærumáls sem
lögreglan hefur verið að rann-
saka vegna sýningar og kennslu
félagsins í hnefaleikum.
Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn segir að
málið sé hjá lögfræðingi lög-
regluembættisins til frekari
ákvörðunar. Hann segir forráða-
menn Hnefaleikafélagsins þegar
hafa fengið aðvörun frá Iögregl-
unni. Þá býst hann við að út-
sending Stöðvar 2 frá þessari
ólöglegu íþrótt í þættinum Is-
land í dag verði skoðuð, bæði hjá
Pósti & síma sem leggur til dreif-
ingarbúnaðinn og útvarpsréttar-
nefnd sem gefur út sjónvarps-
leyfi. Þá sé viðbúið að þáttur
Stöðvar 2 komi einnig til skoð-
unar hjá lögreglu vegna ákvæða í
lögunum sem banna allar sýn-
ingar frá hnefaleikum.
I skoðanakönnun sem gerð var
á meðan útsending Stöðvar 2 fór
fram, kom í ljós að 65% voru
hlynnt hnefaleikum en 35%^ á
móti. Stjórn Læknafélags ís-
lands vill hinsvegar óbreytt bann
við hnefaleikum. — GRH