Dagur - 18.10.1997, Blaðsíða 5
Xfc^MT
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR ÍB.OKTÓBER 1997 - S
Vélstjórar boða verkfaU
Yfirgnæfandi meirihluti vélstjóra á stærstu fiskiskipum landsmanna
samþykktu að boða til verkfalls um áramótin, hafi ekki samist fyrir
þann tíma. Af 238 sem greiddu atkvæði sögðu 197 já en 36 nei.
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins, segir að þessi niðurstaða
komi sér ekki á óvart. Hann segir að helstu kröfur vélstjóra séu um
aukinn skiptahlut í ljósi meiri ábyrgðar og aukinnar menntunar. Síð-
ast en ekki síst verði að koma lagi á verðmyndunarmál sjómanna og
uppræta kvótabraskið.
„Þetta eru upp til hópa tekjuhæstu mennirnir í flotanum,11 segir
Kristján Ragnarsson, formaður LIU. Hann telur að ef til verkfalls
kemur, þá muni það Iama velflesta frystitogarana, nokkra ísfisktogara
og hálfan loðnuflotann. Hins vegar sé viðbúið að veiðiheimildir skipa
sem stöðvast verði fluttar yfir á önnur skip.
Hann segir deiluna við vélstjóra ekki snúa að útgerðinni því þeir
vilji breyta hefðbundnum hlutaskiptum sjómanna. Utgerðin sé í sér-
kennilegri samningsstöðu í þessu máli vegna þess að undir- og yfir-
menn hafi mótmælt kröfu vélstjóra. Að mati útvegsins sé hún fráleit
og ekki verði um hana samið.
Boða lægra raforkuverð
Rafmagnsveita Reykjavíkur vinnur nú
að því fyrir íjárhagsáætlun næsta árs að
hagræðing fyrirtækisins geti skilað sér í
2-3% lækkun á raforkuverði.
Alfreð Þorsteinsson, formaður veitu-
stofnana borgarinnar, kynnti þessar fyr-
irætlanir um leið og blaðamönnum var
greint frá áætlun um virkjanafram-
kvæmdir að Nesjavöllum.
Forsenda þess að rafmagnsreikningar
heimilanna geti lækkað er að árangur
náist í yfirstandandi átaki til hagræð-
ingar og sparnaðar. Meðal aðgerða í
þessa veru sem ráðist hefur verið í á undanförum misserum er breytt
rafmagnseftirlit, launatengt frammistöðumat starfsmanna, nýtt inn-
heimtu- og bókhaldskerfi, aukin orkusala, sala fasteigna og aukin út-
boð.
Nesjavellir.
Sjálfstæðar konur fagna mjög þeirri ákvörðun ríkisstjórnar Daváðs
Oddssonar að gefa karlmönnum hjá ríkinu kost á hálfsmánaðar fæð-
ingarorlofi. I þakkarskyni færðu þær forsætisráðherra mynd af
fótsporum ársgamallar stúlku.
Atvumlausuin konum fækkar
Atvinnulausum fækkaði um rösklega 300 milli ágúst og september.
Fækkunin var næstum öll hjá konunum. Enn eru samt nær 2.800
konur (4,7%) á atvinnuleysisskrá, hvar af íjórðungur er þó í hluta-
starfi. Atvinuleysi meðal karla var aðeins 1,8% í september.
Á landsbyggðinni er aðeins 1% karla á skrá og það hlutfall er miklu
lægra á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi, en heldur hærra
(1,5%) á Norðurlandi. Um 3,8% kvennanna vildi lika fá vinnu eða
meiri vinnu.
Miklu fleiri vantar vinnu á höfuðborgarsvæðinu, eða 2,3% allra
vinnufúsra karla og 5,3% kvenna.
Um 230 atvinnuleyfi voru gefin út til útlendinga í september borið
saman við 90 í sama mánuði í fyrra. Atvinnuleyfi voru orðin næstum
eins mörg fyrstu níu mánuði ársins og allt árið 1996 og 1995. Um
130 laus störf voru í boði hjá vinnumiðlunum í septemberlok, þar af
80 á höfuðborgarsvæðinu.
Smiiar sögur verðlaunaðar
Elín Ebba Gunnarsdóttir hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar, en þau voru afhent í Höfða í gær. Verðlaunin hlaut Elín
fyrir bók sína Sumar sögur, safn 12 smásagna sem 3ja manna dóm-
nefnd var sammála um að væri skrifuð af mikilli list. MYND: E.ÓL
Hanes-hjónin
ekki framseld
Hæstiréttur hefur úrskurðað að
lagaskilyrði séu ekki fyrir hendi
til að senda Donald og Connie
Jean Hanes úr Iandi með fram-
sali. Allir fimm dómarar málsins
voru sammála um að ákæruvald-
inu hefði ekki tekist að sýna
fram á nauðsyn þess að framselja
hjónin og staðfestu því dóm und-
irréttar.
Randarfsk stjórnvöld fóru fram
á framsal hjónanna í sl. mars
vegna refsimáls sem þar hefur
verið höfðað gegn þeim. Málið
var rannsakað, en hjónin lýstu
því strax yfir að þau væru reiðu-
búin til að fara sjálfviljug og á
eigin kostnað til Bandaríkjanna
og gefa sig þar fram, gegn því að
alþjóðleg handtökuskipun yrði
felld niður. Sögðu þau að annars
biði þeirra ill meðferð, óþægindi
og lítillækkun. Einkum vildu þau
fá tryggingu fyrir því að þau
þyrftu ekki að afplána refsingu í
hinu illræmda Maricopafangelsi,
færi svo að þau yrðu sakfelld.
Meðalhófs ekki gætt
Dómararnir töldu að stjórnvöld
hér á landi hefðu ekki gætt með-
alhófsreglu stjórnsýslulaga um
að taka aðeins íþyngjandi
ákvörðun þegar lögmætu mark-
miði verður ekki náð með öðru
og vægara móti og höfnuðu því
framsali.
-FÞG
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, gangsetti kerin í nýja kerskálanum i álverinu í Straumsvík við hátíðlega athöfn í gær.
Síðan var boðið til heljarinnar veislu til að samfagna þessum áfanga i iðnaðarsögu landsmanna. mynd: hilmar
Stórveisla í álvermu
Álverið í Straiunsvík
er stærsta álver
Alusuisse og getur uú
framleitt 160 þúsuud
tonu á ári. Álið er
græni málmurinn,
segir forstjórinn.
Álið er græni málmurinn og
framtíðin í iðnaðinum er björt,“
segir Rannveig Rist, forstjóri ál-
versins í Straumsvík. Hún segir
áliðnaðinn ekki óttast sam-
keppni hvorki frá plasti eða stáli.
Mikill mannfagnaður var í gær
í álverksmiðjunni þegar hátt í
1500 manns var boðið til að
samfagna stækkun verksmiðj-
unnar. Þar var boðið öllum
starfsmönnum ásamt mökum,
viðskiptavinum og öðrum
velunnurum ásamt ráðherrum,
þingmönnum og fleirum.
Með tilkomu nýja kerskálans
með 160 kerum stækkaði verk-
smiðjan um 62%. Við það verður
ársframleiðsla álversins um 160
þúsund tonn á ári og heildar-
fjöldi starfsmanna er um 500-
600. Verksmiðjan verður jafn-
framt sú stærsta af álverksmiðj-
um Alusuisse Lonza sam-
steypunnar £ Sviss. Vegna hag-
stæðra ytri skilyrða s.s. góðrar
veðráttu við jarðvegsvinnu tókst
að klára stækkun verksmiðjunn-
ar nokkrum mánuðum fyrir
áætluð verklok. Af þeim sökum
reyndist kostnaður töluvert
minni en áætlað var.
Þakkir til starfsmanna
Rannveig segir að nær öll vinna
við stækkun verksmiðjunnar hafi
verið unnin af Islendingum að
undanskildum 12 pólskum
málmiðnaðarmönnum og
nokkrum enskum iðnaðarmönn-
um. Þá var yfir 30% af öilum
búnaði verksmiðjunnar fram-
leiddur innanlands. Það var
nokkru meira en reiknað var
með í byrjun. Hún segir það hafa
verið dálítið sérstakt að öll sam-
skipti manna á milli við stækk-
unina voru á íslensku. Hún lýkur
lofsorði á þátt starfsmanna við
stækkunina og telur að sá góði
gangur sem var við alla fram-
kvæmdina hefði aldrei náðst án
þeirra. -GRH
Höfdrykkjan skilgreind
Hóflega drukkið vín gleður
mannsins hjarta, segir máltækið
en margur hefur átt í mesta basli
með að skiigreina hófið. Það
hefur SAA nú gert £ bæklingi
með Ieiðbeiningum handa Iækn-
um við greiningu á áfengissýki.
Karlmaður á aldrinum 20-65 ára
sem drekkur 14 drykki eða
minna á viku, aldrei fleiri en 2 á
dag og aldrei fleiri en 5 drykki £
einu, er hófdrykkjumaður, sam-
kvæmt SÁÁ.
Kona sem drekkur svona mik-
ið er hins vegar engin hófsemd-
armanneskja, enda þola konur
áfengi verr en karlar. Hóf-
Sá sem hvolfir i sig meira en 5-6 flösk-
um af Guðna sterka í einu - eða
drekkur fleiri en 14 flöskur á viku - er
ofdrykkjumaður samkvæmt skilgrein-
ingu SÁÁ
drykkjukona er sú sem drekkur
einn drykk eða minna á dag og
aldrei fleiri en 4 £ einu og saman-
Iagt minna en 7 drykki á viku.
Drykkur þýðir hér einn sjúss af
brenndu vfni, 1 50 ml af léttu eða
um 400 ml af bjór.
Drekki menn meira en þetta
eiga læknar að ráðleggja þeim að
draga úr, samkvæmt SÁÁ. Og
sumum eiga þeir að ráðleggja að
drekka alls ekki. Það á við um
ófriskar konur, áfengissjúklinga
og þá sem þjást af maga- hjarta,
lifrar- eða alvarlegum geðsjúk-
dómum og með sumum lyfjum
má alls ekki drekka. -VJ