Dagur - 18.10.1997, Qupperneq 2
2 - LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
Tkypr
FRÉTTIR
Halldór Ásgrlmsson, utanríkisráðherra, hefur staðið í ströngu undanfarna daga við að bæta sambúð íslands og Kína. Kínverjar hafa m.a. rætt að
kaiia sendiherra sinn á isiandi heim, en Haiidór vonar að svo fari ekki.
Sendinefnd til að
blíðka Kínverja
Utanríkisráðherra stað-
festir frétt Dags nm að
Kínverjar hafi rætt að
kalla sendiherra sinn á ís-
landi heim.
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins og skrifstofustjóri Alþjóðaskrifstofu
fara til Kína í dag til fundar með kínv-
erskum ráðamönnum. Að sögn Hall-
dórs Asgrímssonar utanrikisráðherra
er tilgangur að treysta á ný samband
ríkjanna og eyða þeim misskilningi
sem upp hefur komið og haft neikvæð
áhrif á annars vinsamleg samskipti.
„Við höfum ítarlega rætt þessi mál
með kínverskum yfirvöldum síðustu
daga og niðurstaðan er að þessi ferð er
farin. Eg geri mér hins vegar varla
grein fyrir framhaldinu. ísland hefur
haft stjórnmálasamband við Alþýðulýð-
veldið Kína síðan 14. desember árið
1942 og við opnuðum sendiráð í
Beijing árið 1995. Það hafa verið meiri
samskipti við Kína en nokkurt annað
land á undanfömum árum. Margir
ráðherrar heimsótt landið auk forseta
Islands og kínverskir ráðherrar verið
tíðir gestir hér. Það verður hins vegar
að segjast alveg eins og er að við höfum
orðið lyrir vonbrigðum með hve lítil
viðskipti hafa orðið milli landanna.
Þau eru enn sem komið er miklu
minni en við áttum von á,“ segir Hall-
dór.
Rætt um að sendiherrann fari
heim
Dagur hefur haft heimildir lyrir því um
skeið að Kínveijar hafi hótað að kalla
sendiherrann heim frá Islandi, eins og
fram hefur komið í blaðinu. Þetta stað-
festir ráðherra: „Það hefur verið rætt
já, en ég vænti þess að svo fari ekki. Þá
yrðu mikil kaflaskipti í samskiptum
þjóðanna og alveg á skjön við þá vin-
áttu sem þróast hefur að undanförnu."
- Finnst þér líkur á að ferð sendiherr-
anna muni skila árangri?
„Ég held að samskipti okkar síðustu
daga hafi orðið til þess að bæta and-
rúmsloftið og ég vænti þess að eðlilegt
ástand geti aftur skapast í framhaldi af
þessari ferð.“
- Telurðu enn að móttökurnar sem
taívanski varaforsetinn fékk hafi verið
við hæfi?
„Við getum ekki staðið í vegi fyrir því
að einstaklingar komi hingað til lands
sem ferðamenn. Við teljum hins vegar
ekki rétt að viðhafa opinber samskipti
við yfirvöld í Taívan.“
- Þaðfá ekki allir ferðamenn hátíðar-
kvöldverð með forsætisráðherra á Þing-
völlum.
„Nei, það er alveg rétt. Hins vegar
var sú heimsókn óopinber og ekkert í
sjálfu sér meira um það að segja.“ — Bl>
Ný ríkisstjóm í Noregi þótti
tíðindum sæta í heita pott-
inum. Eins og menn vita cr
það Kristilegi þjóðarflokk-
urinu sem fer fyrir henni.
Bondevik forsætisráðherra
er prestlærður og starfaði
meira að segja sem sjúkra-
húsprestur áður en hann
hellti sér í pólitikina. Kristileg gildi era ofarlega
í hans huga og verða sett á oddinn í ríkisstjóm-
inni. Og hvað ber að kalla slíka stjóm. Auðvit-
að Klcrkastjómina í Noregi.
Það er erfitt að spá, sérstak-
lega um fortíðina, sagði
samgönguráðherra einu
sinni, en pottverjar
skemmta sér þessa dagana
við að spá pínkulítið fram í
tímann - eða fram að úrslit-
um í prófkjöri Sjálfstæðis-
maima í Reykjavik. Flestir
veðja á að 3 efstu sætin verði óbreytt, Ámi Sig-
fússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Inga Jóna
Þórðardóttir, en um önnur sæti em ákaflega
skiptar skoðanir. Júlíus Vífill þykir þó h'klegast-
ur í 4. sæti, en margir spá því að Jóna Gróa Sig-
urðardóttir, borgafulltrúi detti út og enn fleiri
að Ólafur Magnússon læknir geti verið nokkuð
öraggur um að halda sínu sæti, scm varaborgar-
fulltrúi nota bene.
Fjórmenningaklíkan var heiti á ijóram helstu
stuðningsmönnum og arftökum Maós formanns
í Kínaveldi á sinum tíma. Nú cr risin ný fjór
menningaklíka í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Þau Guðlaugur Þór, Baltasar Kormák-
ur, Ágústa Johnson og Eyþór Amalds hafa sam-
einast um kosningamiðstöð í húsi við Austur-
stræti og standa saman að ýmsum áróðursað-
gerðum. Héldu til dæmis sameiginlegt ball á
Borginni í fýrrakvöld.
Reykjavík
9 Sun Mán Þri Mið mm
Akureyri
°c Sun Mán Þri
"10 -i----------------------
NV2 A2 SSA3 SSA3 SSA3
SA3 SSA3 S3 SSA3
Stykkishólmur
°P Sun Mán Þri Mið mm_
NNA2 S2 SSV3 SSV3 SSV3
SSV2 SSV3 SSV3 SSV3
Egilsstaðir
5-
0
-5
Mán
Þri
Mið
Bolungarvík
Sun Mán Þri Mið
NNV3 VSV2 SSV3 SV3 SV3
SSV3 SV3 SV3 SV3
Kirkjubæjarklaustur
NA3 S2 SSV4 S5 S4
S3 SSV4 SSV5 S4
VSV2 ASA2 SSA1 S1
ASA3 SSA3 SSV3
Blönduós
Stórhöfði
jg Sun Mán Þri Mið mm
iÍ-Su-n
Mán
Þri
Mlð mmb
NNA2 SSA1 S3 S3 SSV3
S2 SSV2 SSV3 S2
-10
- 5
0
VSV4 ASA6 SA6 SSA6 S5
ASA6 SA5 S5 S5
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Hæg N-læg átt.
Smá él norðan
lands en annars
þurrt og víða
léttskýjað syðra.
Hiti 0-6 stig.
Færð á vegiun
Fært er fjaUabíliun iim Kjöl og Kaldadal og iim hálendisvegi á
Suður- og Austurlandi, aðrir hálendisvegir eru ófærir. Á Norð-
austur og Austurlandi eru víða hálkublettir. Greiðfært er um
aðra vegi landsins.