Dagur - 28.10.1997, Síða 2
2 -ÞRIÐJVDAGVR 28.QKTÓBER 1997
FRÉTTIR
ro^tr
„Tvetm viðbótaránun
ótrúlega vel varið“
Mannraunirnar í Gvalemata hafa hert Einar Ágústsson, sem iék sér að því að útskrifast með þrjár
háskólagráður fyrir helgina.
Það gefur miMim styrk að
hafa þeirnan breiða bak-
gruim, segir Einar Ágústs-
son, sem brautskráðst hef-
ur með sex háskólagráður.
„Menn taka háskólagráðu venjulega á
þrem árum, en ég hef verið fimm. Eg
var eitt misseri í Danmörku og annað í
Þýskalandi, hef verið í fjórum háskól-
um, lokið 350 einingum og er með 6
háskólagráður og góðar einkunnir í
þeini öllum. Eg tel þessum tveim við-
bótarárum þannig ótrúlega vel varið,“
svaraði Einar Agústsson, sem braut-
skráðist fyrir helgina úr þremur grein-
um í IIÍ: BA í heimspeki, hagfræði og
viðskiptafræði, til viðbótar þrem á sl.
vori: BS í tölvunarfræði, stærðfræði og
eðlisfræði.
„Eg hef áhuga á stjórnun," svarar
Einar spurður um framtíðaráformin.
„Eg ætla að snúa mér að meistaranámi
í alþjóðastjórnun í Bandaríkjunum
eftir áramótin. Þetta er mjög alþjóð-
legt, þar sem ég verð að hluta til í Jap-
an og að hluta í Frakklandi, og hugsan-
lega í Kína. Síðan ætla ég að sjá til, fer
e.t.v. í doktorsnám í Evrópu."
Eðlisfræðm leiðinlcgust undir
lokin
Einar segir mikinn styrk að hafa þenn-
an breiða bakgrunn. „Tölvutækni verð-
ur ein af undirstöðugreinum næstu
aldar. Þetta er ung grein, ákaflega
skemmtileg og gráða í tölvunarfræði
gefur mér gríðarlegt forskot. Heim-
spekin gefur manni húmanískan bak-
grunn, sem er mjög mikilvægur þáttur
í mínu lífi. Hagfræðin sýnir manni
hvernig þjóðfélagið virkar í heild. Við-
skiptafræðin er öllum mjög gagnleg í
atvinnulífinu. Stærðfræðin, með töl-
fræði og rökhugsunin, nýtist bæði
beint og óbeint og er undirstaða bæði
tölvunarfræði og eðlisfræði. Eðlisfræð-
in nýtist mér e.t.v. síst af þessum sex
greinum og var kannski sú grein sem
var leiðinlegust undir lokin.“
„Að taka námið með þessum hætti
FRÉTTAVIÐ TALIÐ
var líka skynsamlegt varðandi tungu-
málanámið," segir Einar. Til viðbótar
ensku, dönsku og þýsku er hann nú
læra spænsku, sem hann er kominn vel
á veg með. „Frönskuna ætla ég að taka
samhliða meistaranáminu.11
Náð sér 100%
Einar segist hafa náð sér 100% eftir
erfiða lífsreynslu í regnskógum
Gvatemala. „Ég var svo heppinn, er
raunar alltaf heppinn, að þessu fylgdu
engin andleg vandamál, engir vondir
draumar eða annað. Eg missti aftur á
móti allt líkamlegt þrek, en hef nú náð
því að fullu upp aftur." - HEI
í heita pottinum er mikið
rætt um prófkjör sjálfstæð-
ismanna og flestum kotn á
óvart hversu lítið niður-
stöðurnar komu á óvart.
Einn pottverji benti á að
„Anna og andlitið"
hefðuaugljóslega misst
andlitið á laugardaginn - pólitíska andlitið í það
minnsta...
Og mönnum þóttu sjálf-
stæðismenn taka illa á móti
fína og fræga fólkinu, því
auk Önnu náðu þau ekki
verulegum árangri Baltazar
Kormákur, Eyþór Araalds
eða Ágústa Johnson. Einn
hafði eftir Helga Hjörvar al-
þýðuhandalagsmanni að
það væri sitthvað gæfa og gjörvileiki og sitt hvað
Jolmsen ogjohnson...
Aksjón-sjónvarp á Akureyri
hóf göngu sína á laugardag-
iun og segja menn í pottin-
um norðan heiða að þar
hafi komið frain litrófið
allt, hæði það sem vel tókst
og eins góður skammtur af
mistökum. Þannig segja
menn að útsending hafi haf-
ist mun fyrr en til stóð þegar sent var út frá opn-
unarveislunni án þess að Aksjónmenn sjálfir
vissu af því. Indverjhm sem varð landsfrægur
þegar Stöð 2 fór af staó kom þó ekld fram í út-
sendingum Aksjón, en Pctur Pétursson heilsu-
gæsiulæknir var í viðtali og gerði stormandi
lukku í bænum - ekki síst f ádeilu sinni á vaxtar-
ræktarstöðvar. Péfur sagði þær okra á fólki með
samviskubit en hefðu ekkert mcð heilsu að
gera...
\_______
MargrétPála
Ólafsdóttir
leikskólastjóri.
Jafnréttisviðurkenning
Jafnréttisráðs féll Margréti
Pálu í skaut, en hún hefur
staðið fyrír uppeldisaðferð-
um sem byggja á að gefa
kynjunum færí á að þroskast
á eiginforsepdum.
MLnnka það sem kynin fara á mis við
— Hvaða þýðingu hafa verðlaun sent
þessi fyrir starfsemi ykkar?
„Þetta hefur ótrúlega mikla þýðingu bæði
fyrir mig og leikskólann Hjalla, en þó fyrst
og fremst fyrir aðferðafræðina, það er að
segja kynjaskiptinguna. Verðlaunin eru í
mínum huga brýning og hvatning því skóla-
fólki sem ekki hefur enn verið tilbúið til að
skoða þessa aðferð faglega og leggja á hana
mat, heldur ýtt henni frá sér með fordóm-
um og íhaldssemi.
Þessi hvatning er mér einstakt gleðiefni,
því í tíu ár hef ég trúað því að kynjaskipting-
in sé áhrifamesta aðferð sem við getum
brúkað til aukins jafnréttis í skólum. Verð-
launin skipta mig máli sem fagmanneskju
og þau ættu að opna dyr til frekari þróunar
og rannsókna. Þau skipta líka miklu máli
fyrir leikskólann Hjalla sem hefur fóstrað
þessa hugmynd í átta ár.“
— Þessi aðferð byggir á þvt að veita kynj-
tinutn aðgang að þvt settt þau fara á mis
við í daglegu umhverfi stnu?
„Jú, ef við einföldum málið viljum við
veita báðum kynjum uppbót fyrir það sem
þau hafa verið svikin um í krafti kynferðis,
en um leið gefum við báðum kynjiun JmM á
sams konar verkefnum og starfi. Kynjaskipt-
inginer þó ekki algjör heldur mætast kynin
daglega og þjálfa jákvæð samskipti sín á
milli."
— Fyrstu börnin sem fengu þetta u-pp-
eldi eru að verða stálpuð. Hefurðu fylgst
með þeim?
„Eg hef ekki átt þess kost, en ég hef heyrt
jákvæðar raddir frá foreldrum og kennurum
og ég veit að börnin mín eru verulega sam-
skiptaflink þegar þau fara héðan. Eg er
núna í undirbúningi að skólarannsókn til að
meta gengi Hjallabarnanna í grunnskóla og
ég vona að eftir veturinni liggi einhverjar
niðurstöður fyrir."
— Þessi hugmynd hefur ekki verið sam-
þykkt alls staðar. Finnst þér að fordómar
hafi ríkt í hennar garð?
„Svo sannarlega. Sérstaklega í upphafi var
það hið ríkjandi viðhorf sem hefur þó dreg-
ið úr, enda hlutirnir sannað sig og fleiri
komið og tekið þátt. I upphafi, var engin
fyrirmynd að kynjaskiptu leikskólastarfi til
að vitna í, þannig að fáfræði og fordómar
ríktu. Ég held því að verðlaunin hafi mikla
þýðingu, þvf ef skólafólk kemur að hug-
mynrkinum fagiega og fordómalausE-þáiief
ég engar áhyggjur af niðurstöðunni."
— Er þessi aðferð hugsuð til að vega upp
á móti félagsmótun sem er úti í samfélag-
inu eða líturðu svo á að kynin sé erfða-
fræðilega óltk?
„Ég hef gert það upp við mig fyrir löngu
að það getur enginn svarað því í dag hvers
vegna við erum jafn ólík og við erum. Eg er
hins vegar sannfærð um að það skiptir
minnstu máli. Börnin birta sig svona ólíkt
og þau haga sér ólíkt og mín hugmynd geng-
ur út á það að vinna jöfnum höndum að því
að gefa þeim frið á eigin forsendum; leyfa
strákum að vera strákar og stelpum stelpur
með öllu sem því fylgir, en bæta jafnframt
fyrir þá félagsmótun sem afliendir stúlkum
aðeins suma eiginleika og drengjum allt
aðra.“
— Hugmyndin gengur með öðruitt orð-
uttt út á að minnka það sem þau fara á
mis við, ett ekki að breyta þeim í sjálfu
sér?
„Einmitt, að minnka það sem þau fara á
mis við, en leyfa þeim að öðru leyti að vera
jjað sem þau eru þannig að þau gjaldi ekki
fyrir kyn sitt, heldur mætist á jákvæðum
nótuœ2‘ ^ --------