Dagur - 28.10.1997, Blaðsíða 10
10- ÞRIDJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
PÁLL SKJÓLDAL,
húsasmíðameistari,
Víðimýri 7, Akureyri,
er látinn. Útför hans fer fram frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 28. október kl. 13.30.
Margrét Kristinsdóttir,
Halia Pálsdóttir, Tómas Bergmann,
Margrét Tómasdóttir, Ólafur Torfason,
Kristján Tómasson, Tómas Ólafsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
FREYJA KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Ásgarði, Húsavík,
lést í Sjúkrahúsi Þingeyinga sunnudaginn 26. október.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju föstudaginn
31. október kl. 13.30.
Páll Vigfússon, Ragnheiður Valdimarsdóttir,
Gísli Vigfússon, Hrafnhildur Ragnarsdóttir,
Helgi Vigfússon, Unnur Jónsdóttir,
Elísabet Vigfúsdóttir, Leifur Jósefsson,
Hjálmar Vigfússon, Hildur Kristjánsdóttir,
Sigurður Vigfússon, Dögg Hringsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR,
Þingvallastræti 33, Akureyri,
sém lést föstudaginn 24. október, verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 30. október kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri.
Álfhildur Vilhjálmsdóttir, Jón Trausti Björnsson,
Friðgeir Vilhjálmsson, íris Svavarsdóttir,
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Ingvar Þóroddsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
ÞORGERÐUR HAUKSDÓTTIR,
kennari, Hólabraut 20, Akureyri,
verður jarðsett frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn
31. október kl. 11.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Guðmundar Óla Haukssonar,
reikningur 322-13-877054 í Búnaðarbanka
íslands, Kópavogsútibúi.
Haukur Ingibergsson, Birna Bjarnadóttir,
börn og barnabörn.
FRÉTTIR
Rj úpnaskyttuleit
á Bláfj allasvæöi
Dagbók lögreglimnar
í Reykjavík 24. til 27.
október 1997.
Um helgina voru rúmlega 500
mál færð til bókunar hjá lög-
reglu. Höfð voru afskipti af 29
einstaklingum vegna ölvunar
þeirra á almannafæri.
Umferðarmálefni
A föstudag kl 16:20 var bifhjóli
ekið á lágan steinvegg á Háaleit-
isbraut. Okumaður hjólsins var
fluttur á slysadeild en meiðsli
voru ekki talin alvarleg.
Tvær bifreiðar skullu saman
síðdegis á föstudag á Bústaðavegi
við Kringlumýrarbraut. Ökumað-
ur og farþegi fóru sjálfir á slysa-
deild til aðhlynningar. Fjarlægja
varð báðar bifreiðarnar af vett-
vangi með kranabíl.
A laugardag var bifreið ekið á
13 ára stúlku á reiðhjóli á suður-
strönd. Stúlkan var flutt á slysa-
deild en hún kenndi til á fæti og
andliti.
Fjórtán ökumenn voru grunað-
ir um að hafa ekið bifreiðum sín-
um undir áhrifum áfengis og 40
voru sektaðir vegna hraðaksturs.
Þá voru eigendur 98 ökutækja
sektaðir þar sem bifreiðum var
ekki lagt í samræmi við umferð-
arreglur og reyndist nauðsynlegt
að fjarlægja tvö ökutæki með
kranabifreið af þeim sökum.
Leit að mönniim
A föstudagskvöld hófst leit að
feðgum sem höfðu farið til
rjúpnaveiða fyrr um daginn en
ekki skilað sér heim. Leitin
beindist einkum að Bláfjalla-
svæðinu en þangað var talið að
þeir hefðu haldið. Bifreið þeirra
fannst síðan klukkan 14:00 á
laugardag við skíðaskála Fram í
Bláfjöllum. Feðganir komu síðan
fram klukkan 15:00 en þeir
höfðu villst í þoku og verið á
göngu alla nóttina. Mennirnir
voru kaldir og svangir en í góðu
ástandi að öðru leyti.
Ástæða er til að hvetja þá sem
halda til fjalla til veiða að huga
vel að veðurútliti áður en ferð er
hafin. Þá er skynsamlegt að hafa
meðferðis síma eða annan fjar-
skiptabúnað til öryggis.
Veggjakrot á hús
Nokkuð hefur borið á því að ver-
ið sé að rita veggjakrot á húsnæði
í borginni að undanförnu. Þeir
sem upplýsingar hafa um aðila
sem stunda slíka iðju er bent á
að hafa samband við lögreglu.
Tveir piltar voru handteknir við
slíka iðju á laugardag en þeir
höfðu sprautað málningu á
nokkuð hús á miðborgarsvæð-
inu.
Ólöglegur tilbúningur áfeng-
is
Karlmaður var handtekinn vegna
gruns um aðila hans að tilbún-
ingi áfengis. Lagt var hald á 900
lítra af gambra og 40 lítra af
landa ásamt suðutækjum.
Annað
Til átaka kom milli unglingahóps
og afgreiðslumanns í söluturni í
vesturbænum um miðnætti á
laugardag. Einn unglingurinn sló
til afgreiðslumannsins en annar
náði að stela úr penignakassa
staðarins.
Yfir 360utkö1lí
síóustu viku
Úr dagbók lögregl-
iuiuar á Akureyri vik-
una 19. til 26. okt.
1997.
Vikan í heild var með rólegra
móti og engin stór mál komu til
kasta lögreglunnar. Hefur svo
verið undanfarið og verður von-
andi áfram. Lögreglan hafði þó í
ýmsu að snúast og þannig voru
363 verkefni skráð í vikunni sem
er vel í meðallagi. Hin góða tíð
undanfarið virðist gera það að
verkum að hjólreiðatíminn hafi
iengst til muna og að sama skapi
sú áráttra ýmsra að nýta sér ann-
arra manna hjól til að komast
Ieiðar sinnar. Þannig var tilkynnt
um þjófnað á 15 reiðhjólum í
vikunni og er rétt að minna reið-
hjólaeigendur á að ganga tryggi-
lega frá hjólum sínum. Ennfrem-
ur þurfa hjólreiðamenn að hafa í
huga að vera með gott Ijós og
glitmerki eftir að skyggja tekur
því nú fer í hönd hættulegur tími
fyrir hjólreiðamenn þegar
skammdegið nálgast.
Ekiö á ferfætlilnga
12 umferðaróhöpp urðu í vik-
unni og minniháttar meiðsl í 3
þeirra. Þá Ieikur grunur á að
Bakkus hafi lagt hönd á stýri í
þremur þeirra en alls voru 6
teknir grunaðir um ölvun við
akstur í vikunni. Ferfætlingar
virðast hafa átt fótum Ijör að
launa f vikunni en þó ekki dugað
til í öllum tilfellum þvf ekið var á
hest, hund og kött með þeim af-
leiðingum að hundurinn og kött-
urinn týndu lífi. Ekki er vitað um
afdrif hrossins, sem hvarf út f
myrkrið, en töluvert tjón varð á
bifreiðinni. Á þessum árstfma er
þörf sérstakrar aðgátar vegna bú-
fénaðar við þjóðvegi og íbúum
þéttbýlisins er bent á þá skyldu
sína að hafa gæludýr sín í örugg-
um höndum innan veggja heim-
ilisins eða tryggilega bundin en
ekki á vergangi út í bæ.
Klippt af 3S bílum
Auk áðurnefndra yfirsjóna öku-
manna voru 17 kærðir fyrir of
hraðan akstur og númer tekin af
1 1 bifreiðum sem ekki höfðu
verið færðar til skoðunar á til-
skyldum tíma. Þá voru tekin
númer af 35 bifreiðum vegna
vangoldinna bifreiðagjalda og er
hér með skorað á alla þá sem
enn eiga óuppgerð bifreiðagjöld
að gera nú skil hið snarasta til að
komast hjá óþarfa óþægindum
þannig að lögreglan geti hætt því
leiða starfi að taka númer af bif-
reiðum af þessum sökum.
Varð inidir fiski
Tilkynnt var um þrjú innbrot þar
sem litlum verðmætum var stolið
og skemmdir minniháttar. Þá var
tilkynnt um eitt vinnuslys þar
sem verið var að landa frosnum
fiski og fiskstæða hrundi yfir
einn starfsamann. Var hann
fluttur á slysadeild en meiðsl
munu ekki hafa verið mikil.
Meðalölvun
Olvun var í meðallagi og sam-
komugestir höguðu sér skikkan-
lega. Ein minniháttar líkams-
árás var bókuð og 5 gistu fanga-
geymslur. Á mánudag var hringt
út af drukknum manni er slegið
hefði húsráðanda í andlitið.
Hafði þeim sinnast út af fjármál-
um og sá drukkni tekið þetta til
bragðs er hann taldi sig ekki fá
skuld sína greidda. Þetta heitir
víst að handrukka en betra er að
vera allsgáður við þau störf sem
önnur þar sem lögreglan var
kölluð til og fjarlægði rukkarann.
Rjúpnaskyttutimabil
Þar sem rjúpnaveiðitímabilið er
nú í hámarki er ekki úr vegi að
benda veiðimönnum á að hafa
ávallt með sér áttavita auk góðs
hlífðarfatnaðar og láta vita af
ferðum sínum. Þá má ítreka að
við veiðar er einungis heimilt að
vera með skotvoopn sem ekki
taka nema tvö skothylki í skot-
geymi. Þeir sem staðnir eru að
veiðum með skotvopn með
stærri skotgeymi eiga það á
hættu að vopnið verði gert upp-
tækt.