Dagur - 28.10.1997, Side 16
TVOFALDUR I. VINNINGUR
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
VEÐUR-
HORFUR
Línuritin sýna fjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Ltnan
sýnir hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu en vln-
dáttir og vindstig eru
tilgreind fyrir neðan.
Reykjavík
:JiÍLkIUL
SSA4 SV3 S3 SSV3
SSAS SSA5 SSV5 S3
Stykkishólmur
SSV4 ANA4
SSV5 S4
Bolungarvík
' c Mið
10-——
5-
0-
-5
Lau mm
------20
■15
■10
- 5
0
ANA3 ANA3
0
Kirkjubæjarklaustur
0
S2 VSV2 SSV3 SV2 ASA2
SSA3 SSV2 SV3 SSV1
-5 J
SSA6 V6 S7 SV6 ASA6
SSA10 SSA8 SV9 S5
Þriðjudagur 28. október 1997
Veðrið í dag...
Suðlæg átt, gola eða kaldi, en stinningskaldi á stöku stað
vestan til. Súld eða rigning með köflum um landið sunnan-
og vestanvert, en að mestu þurrt norðaustan til. Áfram
fremur hlýtt í veðri.
ffiti 7 til 11 stig.
ÍÞRÓTTIR
Tinda-
stóll
áfram
Findastóll, KH, Njarðvík og nú-
verandi deildarbikarmeistarar
Keflavík tryggðu sér sæti í und-
anúrslitum Eggjabikarsins, en
síðari leikir átta liða úrslitanna
fóru fram um helgina.
Tindastóll sló Grindvíkinga út
úr keppninni í æsilegum viður-
eignum þar sem fjörtíu stiga
sveifla var á stigaskori liðanna.
Grindvíkingar unnu upp tuttugu
stiga mun Sauðkrækinga frá
fyrri leiknum, því að loknum
hefðbundnum Ieiktíma var stað-
an 97:77 Grindavík í vil. Tinda-
stólsmenn náðu að minnka
muninn niður í sex stig,
106:100, í framlengingunni og
tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Deildarmeistarar Keflavíkur
báru sigurorð af KFI í báðum
leikjum liðanna. Suðurnesjalið-
ið sigraði í fyrri viðureigninni í
Isjakanum með þriggja stiga
mun og tólf stiga munur var á
Iiðunum í síðari Ieiknum, 84:72.
Njarðvíkingar slógu Hauka út
úr keppninni eftir spennandi
viðureign. Njarðvíkingum tókst
að sleppa með fjögurra stiga tap
úr fyrri viðureigninni á Strand-
götu, en Njarðvíkingar höfðu
betur í „Ijónagryfjunni“ 77:64.
Þá gerðu KR-ingar góða ferð
til Akraness og sigruðu með
sextán stiga mun í fyrri leik lið-
anna. Sá munur var aldrei í
hættu á Seltjarnanesinu. Jafnt
varð í leiknum, 68:68.
Mikil barátta var í átta liða úrslitum í eggjabikarkeppninni. Tindastóll, Njarðvík, KR
og Keflavík munu mætast í undanúrslitum keppninnar.
Blikar hættu keppni
eftir 100 stiga tap
Stjóm Körfnknatt-
leiksdeildar Breiða-
bliks ákvað iim helg-
ina að draga meistara-
flokkslið sitt í
kvennaflokki út nr 1.
deildarkeppninni.
Ákvörðunin var tekin eftir að
liðið hafði tapað með 100 stiga
mun, 124:24, fyrir Grindavík í
viðureign liðanna í deildinni.
í yfirlýsingu frá stjórn
Körfuknattleiksdeildar Breiða-
bliks er ákvörðunin tekin í kjöl-
far mikilla erfiðleika sem flokk-
urinn hefur átt við að glíma á
síðustu misserum, eða allt frá
haustinu 1996. „..ástæðulaust er
að mati stjórnarinnar að skaða
sjálfsvirðingu og þroska stúlkn-
anna með áframhaldandi þátt-
töku í mótinu," segir í yfirlýsing-
unni, þar sem farið er inn á það
hve lílil breidd er í 1. deildinni.
Það dylst engum sem fylgist
með íslenskum körfuknattleik að
kvennakarfa á Islandi er í mikilli
kreppu. Aðeins sex lið tilkynntu
þátttöku í I. deild kvenna fyrir
yfirstandandi tímabil. Fjögur
þeirra eru áberandi sterkust og
milli þeirra mun keppni um ís-
landsmeistaratitilinn standa. í
þeirri keppni ríður á að vinna
veikari liðin með sem mestum
mun. Fórnarlömbin þurfa að
þola hverja niðurlæginguna eftir
aðra með þeim afleiðingum að
sjálfsvirðing og þroski sem
íþróttamanna þverr. Flestir Ieik-
menn meistaranokks kvenna hjá
Breiðabliki eru mjög ungir að
árum og augljóst að þessar að-
stæður verða þeim ekki til góðs,“
segir í yfirlýsingunni.
íslendingar með átján
mörk í sigri
Wupperthal
Ólafur Stef-
ánsson skoraði
átta af mörk-
um þýska I.
deildarliðsins
Wupperthal
þegar liðið
lagði Gum-
m e r b a c h ,
32:29 í leik
liðanna um
helgina. Is-
lendingarnir þrír hjá Wupperthal
voru mjög atkvæðamiklir í leikn-
um, því þeir Geir Sveinsson og
Dagur Sigurðsson skoruðu báðir
fimm mörk í leiknum og mörk
íslendinganna urðu þvf átján
talsins.
Patrekur Jóhannesson var
einnig atkvæðamikill fyrir lið sitt
Tusem Essen. Hann skoraði átta
marka liðsins í tapleik gegn
Nettelstedt, 29:24. Fjórmenn-
ingarnir eru nú staddir í Þýska-
landi, þar sem íslenska landslið-
ið býr sig undir átökin við Lit-
háen í riðlakeppni Evrópumóts-
ins á morgun.
Ólafur Stefánsson.
Bjarnólfux skoraði fyrir
Hibemian
Eyjamaðurinn Bjarnólfur Lárus-
son skoraði mark í sínum fyrsta
leik fyrir Hibernian, sem mátti
lúta í lægra haldi, 2:1, fyrir
Kilmarnock í skosku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu. Bjarnólfi var
skipt inn á í síðari hálfleik og
mark hans kom á 80. mínútu
leiksins.