Dagur - 01.11.1997, Qupperneq 12

Dagur - 01.11.1997, Qupperneq 12
28-laugardagur i.nóvember 1997 LÍFIÐ í LANDINU Franskt léttmeti Frönsk matargerð erheims- þekktfyrír gæði og allstaðar í Frakklandi er matur með- höndlaðurmeð mikilli virð- ingu. Notað ergott og einfalt hráefni í bragðgóða rétti sem hæfa árstíðum og veðurfari. Franskir matgæðingar nota hráefni semfæst í næsta ná- grenni og maturínn eraðlag- aðurdaglegu lífi ogþvísem akurínn, garðurínn eða markaðurínn býðurupp á hverju sinni. Töluverður svæðamunur er á matargerð- inni. Hefðbundnir réttir taka mið afþví hráefni sem fáanlegt er en úrvals hráefni ásamt mildu bragði krydd- jurta og krydds leggursamt sem áðurgrunninn að öllum hinum staðbundnu réttum. Það eru tværaðferðir til í franskrí matreiðslu. Annars vegar„haute cusine“ sem er hin flókna,fremur dýra að- ferð,þróuð afmatreiðslu- meisturum. Hins vegarer það almenna og staðbundna matreiðslan sem lýsirþeim réttum sem matreiddir eru dags daglega á heimilum og litlum kaffthúsum víðsvegar um Frakkland. Þessi tegund matreiðslu erfremur ódýr því við hana eru notuð ein- fóld hráefni og eldunarað- ferðir. Uppskríftimar sem hér birtast em valdar með tilliti til þessararvinsælu eldamennsku. Þærmætti helst kallafranskt léttmeti enda súpur, bökuroggræn- meti ífyrírrúmi. I eldhúsi frönsku bóndakonunnar er allt notað og sjaldgæft að einhverju ætilegu sé fleygt. FRÖNSK LAUKSÚPA I 50 g smjörl tsk. ólífuolía 4 stórir laukar, skornir í sneiðar 1 hvítlauksgeiri, vel pressaður 1 msk. sykur 2 msk. rauðvínsedik 'A bolli hveiti 'A bolli sérrý 1' bolli þurrt hvítvín 430 g nautakjötssoð 1 'á bolli vatn Smjörið og olían er hitað í potti og laukurinn steiktur í um 20 mín. eða þar til hann verður gullinbrúnn. Þá er hvítlauk og sykri bætt saman við Iaukinn og sykurinn látinn brúnast. Edikið er sett saman við og látið malla í 2 mín. Þá er hveitinu stráð yfrr og hrært vel. Sérrý, hvítvíni, kjötsoði og vatni hellt í pottinn með lauknum. Hrært mjög vel saman og súpan látin sjóða á vægum hita í 25 mín. A meðan er brauðið undirbúið. Olíu og hvítlauk er þar blandað saman, blandan smurð á snittubrauðs- sneiðar, beggja vegna og parmesanosti stráð á aðra hlið- ina. Bakað í ofni á 200°C hita í 5 mín. Brauðið er sett út í súp- una áður en hún er borin fram. FRÖNSK LAUKSÚPA II 5 stórir laukar 1-114 1 kjötsoð 1 lárviðarlauf salt og pipar 1 'A dl þurrt hvítvín 'A snittubrauð 2 dl rifinn ostur Laukurinn er skorinn í sneiðar og gylltur í potti í olíunni og smá smjöri. Þá er soðinu og kryddunum bætt út í pottinn og soðið við vægan hita þar til lauk- urinn meyrnar. Hvítvíninu þá bætt út í súpuna. Brauðið er skorið í sneiðar og ristað í ofni eða brauðrist. Sneiðamar smurðar með smjöri og osturinn settur ofan á það. Brauðið lagt ofan á súpuna. GRÆNMETISSÚPA 250 g kúrbítur 125 g blaðlaukur 500 g tómatar, afhýddir 175 g gulrætur 500 g Iaukur 250 g belgbaunir 250 g flatbaunir 1,2 1 kjúklingasoð 125 g stuttar makkarónur salt og pipar Mauk: 4 hvítlauksgeirar 12 basilikumkvistir 4 msk. ólífuolía parmesanostur Grænmetið er skorið og sett í pott ásamt soðinu, kryddað eftir smekk. Suðan látin koma upp og Iátið malla í pottinum í 15 mín. Þá er makkarónunum bætt saman við og soðið í 10-12 mín. Hvítlaukurinn er marinn mjög vel ásamt basilikum og hrærður saman við olíuna (henni bland- að saman við í smá skömmtum). Þegar súpan hefur soðið er maukinu blandað varlega saman við. Parmesanosti er stráð að Iokum yfir súpuna áður en hún er borin fram. GRÆNMETIS- RÉTTUR 2 stór eggaldin, í sneiðum salt 2 kúrbítar, í sneiðum 'A bolli ólífuolía 1 stór laukur, í sneiðum 2 hvítlauksgeirar, vel marðir 2 tsk. sykurpipar 2 msk. rauðvínsedik 1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir A bolli hvítvín A bolli parmesanostur Eggaldinsneiðarnar eru lagðar í salt og látnar bíða ásamt kúr- bítnum. Saltið þvegið af eftir um 30 mín. og sneiðarnar þerraðar. Laukurinn er brúnað- ur á pönnu í olíu, hvítlauk og eggaldin bætt á pönnuna og steikt þar til gullinbrúnt, þá er allt tekið af pönnunni og kúrbít- urinn steiktur þar til gullin- brúnn. Þá er allt grænmetið sett á pönnuna aftur og sykri, pipar og ediki hellt yfir, þá tómötun- um og hvítvíninu. Soðið í 30 mín. og borið fram með parmes- an osti. SKINKU- OG SVEPPABAKA Deig: 75 g smjör 1 bolli vatn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.