Dagur - 01.11.1997, Side 21
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997 - 37
LÍFIÐ í LANDINU
BRIDGE
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
SKRIFAR
Úrslit íslandsmótsins í tvímenn-
ingi fara fram um helgina í hús-
naeði BSI, Þönglabakka 1.
Spilamennska hefst kl. 11.00
báða daga og lýkur kl. 23.40 í
kvöld en um 18.00 á morgun.
40 pör taka þátt í mótinu og þar
á meðal Islandsmeistararnir
1996, kempurnar Sverrir Ar-
mannsson og Björn Eysteinsson.
íslandsmót kvenna var spilað
um helgina 25.-26. október. 19
pör tóku þátt í barómeterství-
menningi, 6 spil milli para. Ný-
krýndir Islandsmeistarar í m'-
menningi eru Ragnheiður Tóm-
asdóttir og Soffía Daníelsdóttir
og óskar blaðið þeim til ham-
ingju. Þetta er í annað skipti
sem Ragnheiður hreppir þennan
titil en fyrsta sinn hjá Soffiu.
Fyrir síðustu umferð leiddu
Guðrún Jóhannesdóttir og Bryn-
dís Þorsteinsdóttir með +97,
voru sjö stigum á undan Ragn-
heiði og Soffíu. Þær síðarnefndu
skoruðu hins vegar grimmt í síð-
ustu spilunum og tryggðu sér
efsta sætið. Una Arnadóttir-Jó-
hanna Siguijónsdóttir voru
einnig í stuði og „stálu“ öðru
sætinu.
Lokastaða efstu para:
1. Ragnheiður Tómasdóttir-
Soffía Daníelsdóttir +110.
2. Una Arnadóttir-
Jóhanna Siguijónsdóttir 97.
3. Bryndís Þorsteinsdóttir-
Guðrún Jóhannesdóttir 94.
4. Gunnlaug Einarsdóttir-
Stefanía Skarphéðinsd. 80.
5. Esther Jakobsdóttir-
Valgerður Kristjónsdóttir 77
Keppnisstjóri var Jakob Kristins-
son en Ragnar Magnússon veitti
verðlaun.
íslaudsmót heldri spilara
Um næstu helgi, 8.-9. nóvem-
ber, fer fram Islandmót heldri
spilara í húsnæði BSÍ. Þátttöku-
rétt hafa allir sem orðnir eru 50
ára að því tilskyldu að saman-
lagður aldur parsins sé a.m.k.
110 ár. Keppnisgjald er kr. 5000
á par. Núverandi meistarar eru
Gylfi Baldursson-Jón Hjaltason.
íslandsmót yngri spilara
Á sama tíma og íslandsmót
heldri spilara fer fram munu
yngri spilarar kljást um meist-
aratign. Þátttökurétt hafa spilar-
ar fæddir 1973 eða síðar og skal
sérstaklega tekið fram að engin
keppnisgjöld eru í þessu móti.
Landstvímenningur 1997
14. nóvember nk. fer Landství-
menningurinn fram og verður
spilaður með sama sniði og síð-
ast. Evrópusambandinu hefur
ekki tekist að finna nýjan styrkt-
araðila fyrir Philip Morris
þannig að bridgesamböndin á
Úrslit um helgina
Davið Oddsson hefur engan tíma til að fylgjast með úrsl/tum íslandsmótsins í
tvímenningi enda fullt starf um þessar mundir að skamma Halldór Blöndal. Myndin er
tekin á Bridgehátíð fyrir nokkru.
Norðurlöndunum hafa ákveðið
að spila sömu spil 14. nóvember
og krýna norræna sigurvegara. Á
íslandi fer jafnframt fram lands-
tvfmenningur á sama tíma. Þau
félög sem hafa áhuga á að taka
þátt í þessum keppnum eru vin-
samlegast beðin að hafa sam-
band á skrifstofu BI í síma
5879360.
Bikarkeppni Suðurlauds
Dregið hefur verið í Bikarkeppni
Suðurlands, 1. umferð. Eftir-
taldar sveitir eigast við:
Garðar Garðarsson-
Sigfús Þórðarson.
Kristján M. Gunnarsson-
Guðjón Bragason.
Stefán Jóhannsson-
Sverrir Þórisson.
Magnús Halldórsson-
Karl Gunnlaugsson.
Magnea Bergvinsdóttir-
Brynjólfur Teitsson.
í fyrstu umferð sitja yfir sveitir
Össurar Friðgeirssonar og Þórð-
ar Sigurðssonar. Leikjum í 1.
umferð skal lokið í síðasta lagi
sunnudaginn 23. nóvember.
Frá Bridgefélagi Siglufjarðar
Lokið er 12 umferðum af 21 í
barómeter tvímenningi. Staða
efstu para:
1. Jón-Björk ............172.
2. Stefanía-Jóhann ......117.
3. Anton-Bogi ...........106.
4. Sigurður-Sigfús .......102.
5. Stefán-Páll Ágúst ......91.
6. Þorsteinn-Jón Hólm .....87.
Áður hefur komið fram að Jón
Sigurbjörnsson-Ingvar Jónsson
færðu Bridgefélagi Siglufjarðar
Norðurlandsmeistaratitilinn í
tvímenningi nýverið. Þá má geta
þess að helgina 22.-23. nóv. fer
Norðurlandsmótið í sveita-
keppni fram á Siglufirði.
Frá Bridgefélagi Akureyrar
Lokið er 11 umferðum af 23 í
keppninni um Akureyrarmeist-
aratitilinn í tvímenningi. Staða
efstu para:
1. Magnús Magnússon-
Sigurbjörn Haraldsson 1132.
2. Hróðmar Sigurbjömsson-
Ragnheiður Haraldsdóttir 933
3. Hilmar Jakobsson-
Ævar Ármannsson 804.
4. Jón Björnsson-
Tryggvi Gunnarsson 735.
5. Una Sveinsdóttir-
Stefán Ragnarsson 64.
Eftirtalin pör skoruðu mest sl. þriðjudagskvöld:
1. Magnús-Sigurbjörn 922.
2. Hilmar-Ævar 893.
3. Una-Stefán 684.
4. Haukur-Kristján 535.
5. Jón-Tryggvi 48.
24 pör taka þátt í mótinu og
fer Anton Haraldsson með
keppnisstjórn.
Bikarkeppm Nl. eystra 1997
Tíu sveitir skráðu sig til leiks í
bikarkeppni NI. eystra að þessu
sinni og hefur verið dregið í
tvær fyrstu umferðirnar. I þeirri
fyrstu eru raunar aðens tveir
leikir: Sv Björns Þorlákssonar,
BA-Sv. Kristjáns Þorsteinssonar,
BDÓ Sv. Strýtu (Preben
Prebensson), BA-Sv. Friðgeirs
Guðmundssonar, BH
í annarri umferð spila eftir-
taldar sveitir saman: Sv. Stefáns
Vilhjálmssonar, BA-Sv. Ragn-
heiðar Haraldsdóttur, BA Sv.
Þórólfs Jónassonar, BH-Sv. Ant-
ons Haraldssonar, BASv. Sveins
Pálssonar, BA-Sv. Strýtu eða
Friðgeirs Sv. Sparisjóðs Norð-
lendinga (Jón Björnsson)-Sv.
Björns eða Kristjáns.
Fyrri sveitin á heimaleik en
spilaðir eru 40-spila leikir. Sfð-
asti spiladagur í lyrstu umferð er
10.11. en 24.11. í annarri. Und-
anúrslitum á að vera lokið 8.12.
1997 og úrslitaleiknum fyrir jól.
Sigursveitin spilar sfðan við bik-
armeistara Norðurlands vestra
um titlinn Bikarmeistari Norð-
urlands.
^ÓUA,
* UUw ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG ÞINGEYINGA HF.
--------------------------------------
Markaðsfulltrúi
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf. með aðsetur á Húsavík óskar
eftir að ráða markaðsfulltrúa til að vinna að framgangi atvinnulífs-
ins á starfssvæði félagsins. Starfssvið markaðsfulltrúa felst í al-
mennri viðskiptaráðgjöf og fræðslu, með sérstakri áherslu á mark-
aðsmál m.a. á sviði ferðaþjónustu. Leitað er eftir einstaklingi sem á
auðvelt með mannleg samskipti og getur sýnt frumkvæði.
Umsóknarfrestur er til 21. nóv. og skal senda umsóknir til:
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
Garðarsbraut 5
640 Húsavík.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarfélagsins í síma 464 2070.
AKUREYRARBÆR
Grunnskólar Akureyrar
Kennara, þroskaþjálfa, sérkennara og starfsfólk í blönduð
störf vantar í eftirtaldar stöður:
Giljaskóli:
Vegna veikindaforfalla vantar nú þegar sérkennara í 2/3 stöðu-
hlutfall. Um er að ræða fjölbreytilegt og krefjandi starf í skóla í
uppbyggingu.
Giljaskóli er nýr skóli og eru nemendur nú 113 í 1.-4. bekk. í skól-
anum er einnig sérdeild umdæmisins fyrir nemendur með greind-
ar- og fjölfötlun. Um áramót er stefnt að því að flytja í nýtt skóla-
húsnæði.
Upplýsingar um starfið gefa skólastjóri og
aðstoðarskólastjóri í síma 462 4820.
Brekkuskóli:
1/2 staða kennara í heimilisfræði í 1.-7. bekk.
Vegna forfalla um óákveðinn tíma vantar strax í 1 og 1/2 stöðu
kennara með framhaldsmenntun í sérkennslufræðum og í eina
stöðu handmenntakennara.
Frá áramótum ‘97-’98 vantar kennara í íslensku í 10. bekk og til
starfa í bókasafni (heil staða).
í skólanum starfa 100 starfsmenn og 700 nemendur í 1.-10. bekk.
Upplýsingar veitir: Sveinbjörn Markús skólastjóri í símum
462 4241, 899 3599 eða heimasíma 461 3658 og aðstoðar-
skólastjórarnir, Birgir í heimasíma 462 6747 eða Magnús í
heimasíma 462 3351.
Síðuskóli:
Vegna veikindaforfalla vantar strax bekkjarkennara í 3. bekk í
u.þ.b. 70% starf.
Viðkomandi kennari kemur til með að starfa með öðrum kennara
inni í 26 nemenda bekk.
Vegna barnsburðarleyfis vantar þroskaþjálfa eða sérkenn-
ara/kennara til að hafa umsjón með 2 fötluðum börnum.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar hjá skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra í síma
462 2588 eða í heimasíma 461 2608 og 462 5123.
Lundarskólí:
Starfsmenn vantar í afleysingar vegna forfalla í blönduð störf og
skólavistun.
Upplýsingar veitir Anna María Snorradóttir forstöðumaður bland-
aðra starfa og skólavistunar í síma 462 4888.
Einnig veitir starfsmannadeild Akureyrarbæjar upplýsingar í síma
462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
upplýsingar í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9 og þeim á að skila á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 11. nóv. 1997.
Starfsmannastjóri.
BELTIN
UMFERÐAR
RÁÐ