Dagur - 13.11.1997, Blaðsíða 1

Dagur - 13.11.1997, Blaðsíða 1
Fiske í hverju húsi Það erhátíð í Grímsey 11. nóvember árhvert. Daniel Willard Fiske, mesti velgjörð- armaður eyjunnarjyrr og síð- ar, varfæddurþann dag 1831 og minnast eyja- skeggjar afmælisdags hans með veglegrí hátíð árhvert. Dagurfórá Fiske-hátíð í Grímsey Ekki fór á milli mála, strax þegar við lögð- um af stað til Grímseyjar, að mikið stóð til. I flugvélinni voru leikarar og matreiðslu- menn frá Akureyri með kokkabúninga undir hendinni og steikarhnífa í tösku. Kartöflusalat í plastfötum var í farangurs- geymslu fram í trýni vélarinnar. Þegar var svo lent í eynni var þangað kominn fjöldi fólks - sé miðað við mælikvarðann í Grímsey, en þar búa tæplega 100 manns. Og réttilega stóð mikið til, framundan voru hátíðahöld á þjóðhátíðardegi eyja- skeggja, sem er 11. nóvember. KirkjuMukkur, taflinenn og bokasaln Daníel Willard Fiske hét maður sá sem Grímseyingar minnast sem mesta vel- gjörðarmanns síns. Hann var fæddur 11. ' Skemmtiatridi skólabarna voru uppistaða Fiske-hátíðarinnar. Nemendur við grunnskólann i vetur eru þrettán, ellefu skrákar og tvær stelpur. Þær eru báðar sjö ára, en víðfrægt var að engar Grímseyjarstelpur fæddust í árafjöld. myndir: brink. nóvember 1831 vestur í Bandaríkjunum og þegar hann nam við háskóla í Nýju Jór- vík vaknaði áhugi hans á norrænum fræð- um. Árið 1879 kom Fiske til hingað til lands og ferðaðist víða. Fór meðal annars í hringferð umhverfis landið með eimskipi og sá þá í fjarska eyjuna sem síðan átti hug hans allan. Fljótlega eftir þetta fóru gjafir að gerast til Grímseyinga frá Fiske, sem var sterk- efnaður maður. Má nefna kirkjuklukkur, sem hann fékk í skiptum fyrir Guðbrands- biblíu. Hæst ber nafn Fiske þó fyrir að leg- gja skáldist í eynni lið. Fyrir því eru og traustar heimildir að fyrr á öldum hafi eyjaskeggjar verið afbragð annarra í skák og vorið 1900 sendi Fiske skákborð og taflmenn á heimilin þrettán í eynni. Ári síðar sendi hann veglega bókagjöf til eyja- skeggja, sem hafði að geyma fræði-, mynda- og skákbækur. Er þetta safn enn varðveitt í eynni. Fiske lést árið 1904 og arfleiddi Grímseyinga þá að stórri pen- ingagjöf, sem næstu áratugi varð varasjóð- ur þeirra. Fjöldasöngur og tslendtngasögux Hefð er fyrir því að halda afmælisdag Fiske hátíðlegan í Grímsey og frá henni var ekki vikið nú. Haldin var skemmtun í félagsheimilinu Múla sem velflestir eyja- skeggjar sóttu. Skemmti fólk sér við heimatilbúin skemmtiatriði af ýmsum toga, á stokk stigu upplesarar, veitt voru verðlaun íyrir góðan árangur í skák, sung- in var Ijöldasöngur og í lokin var slegið upp mikilli veislu. „Það er búið að halda Fiskedaginn há- tíðlegan síðan ég man eftir mér,“ segir Þorlákur Sigurðsson oddviti í Garði. Hann segir að hátíðin hafi vitaskuld breyst í ár- anna rás. „Eg man að þegar ég var strákur var kennari hér, Sæmundur Dúason, sem fór alltaf með Islendingasögur á þessum degi og ég held að varla hafi skeikað orði, svo vel kunni hann þær.“ Þj óðhátíðardagnr Stundum hefur verið um það rætt hvort Islendingar séu full meðvitaðir um hvers- vegna efnt sé til þjóðhátfðar 17. júní ár hvert, en ekki einhvern annan dag. Rétti- lega er það vegna þess að þá fæddist frels- ishetjan Jón Sigurðsson. En vita það allir'? „Hér býr Fiske í hverju húsi,“ sagði einn Grímseyingurinn við okkur Dagsmenn þegar við könnuðum mannlíf og móral þar. Þannig virðast eyjaskeggjar full með- vitaðir um hversvega efnt sé til hátíðar 11. nóvember. Þar er það hluti af uppeldi barna að segja þeim sögur af Fiske og starf í grunnskólanum er miðast að miklu leyti við það, fram eftir hausti, að undirbúa hátíðina sælu, sem haldin var með svo eftirminnilegum hætti þetta árið. Svo verður vonandi áfram meðan byggð helst í Grímsey. -SBS. Sjú meira um Grímsey ú bls. 19. ; Veitum hagstæð lán til kaupa á landbúnaðarvélum m Reíknaðu með ® SP-FIÁRMÖGNUN HF Þoö tekur aöeins einrt m u ■virkan dag að koma póstinum þínum til skila Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Simi 588-7200 • Fax 588-7201

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.