Dagur - 13.11.1997, Blaðsíða 7

Dagur - 13.11.1997, Blaðsíða 7
FIMMTVDAGVR 13 .NÓVEMBER 1997 - 23 Tfc^wr ÍSíetfafjarðsrfsfjan Balcíur iSrrterð i (iiv: BÍLAR OG VETUR Upplýsingar umfæro Upplýsingar umfærð, veðurog ástand vega eru sífelltað verða að- gengilegri. Þæreru þegará símsvara, Textavarpi, Intemeti og upplýsingaskjám. „Þetta er byggt á kerfi sem við erum búnir að reka í mörg ár inn- anhúss hjá okkur. Það er á öllum okkar Vegagerðum því þetta er stjórntæki um leið. Síðan settum við þetta upp á skjá í tilrauna- skyni í Hyrnunni í Borgarnesi. Núna erum við búnir að setja þetta út á Netið en í fyrra stað- færðum við þetta svolítið betur,“ segir Björn Olafsson, forstöðu- maður þjónustudeildar Vegagerð- arinnar hf., um Vegvísinn, upp- lýsingakerfi um færð og ástand vega sem Vegagerðin rekur. Vegfarendur eiga sífellt auð- veldara með að nálgast upplýs- ingar um færð og ástand vega bæði í gegn um síma 800 6316 og Netið sem hvorutveggja er beintengt kerfinu. Slóðin er: http://w'ww.vegag.is og þar er hægt að nálgast upplýsingar um ástand vega, færð, mokstur, veðrið á um 40 sjálfvirkum veð- urstöðvum og umferðarþunga. Textavarpið er líka beintengt. Einnig eru beintengdir upp- lýsingaskjáir, eins og sá sem er í bensínafgreiðslu Hyrnunnar í Borgarnesi, og beintengd upp- lýsingasldlti við Öxnadalsheiði, Holtavörðuheiði og Hellisheiði. „Það eru að koma upp fleiri svona skilti og þau eru öll sjálf- virk og beintengd veðurstöðvun- um, en við getum einnig slegið inn texta, t.d. ef það er lokað. Síðan erum við líka í beinu sam- bandi við umferðarútvarp og fjölmiðla almennt,“ segir Björn. „Vegfarandi getur fengið upplýs- ingar um veður á öllum leiðum nánast.“ Umtalsvert öryggisatriði Fyrir ferðalanga er þetta umtals- vert öryggisatriði, ekld síst þegar veður eru válynd á vetrum. Inn- an tíðar verða þessar upplýsing- ar enn aðgengilegri því Vega- gerðin er í þann veginn að ganga frá svokallaðri sjoppuút- gáfu. „Við búum til kerfi þannig að það verður mjög auðvelt fyrir alla aðila að vera með það. Menn þurfa bara að eiga tölvu og hafa netsamband. Þá verður þetta eins og í Hyrnunni, skjár- inn rúllar yfir og í gegn um Net- ið nær tölvan sjálfvirkt í nýjar upplýsingar allan sólarhringinn. Þannig að það er í rauninni eng- inn rekstrarkostnaður á þessu nema að menn þurfa að vera nettengdir. Það gengur mjög hratt að ná í upplýsingar og endurnýja þær,“ segir Björn. Hann segir að Vegagerðin muni bjóða hverjum sem vera vilji að hafa þetta upplýsingakerfi á sín- um stöðvum endurgjaldslaust af hállu Vegagerðarinnar. „Við erum að prufukeyra þessar sjoppuútgáfur og þegar því er lokið geta allir fengið þetta.“ -OHR Þetta er mynd sem birtist þegar skodað var ástand vega og færð á Vestfjörðum fyrripart síðasta þriðjudags. í efra horni vinstra megin er listi yfir hvað mismunandi litir á vegum merkja og hvað hin og þessi tákn þýða. Svona var veðrið fyrripart síðasta þriðjudags á sjáifvirkum veðurstöðvum Vegagerðar- innar sem eru vítt og breitt um iandið. Gíeiðfaert Hátfcubtetbr 11111.1937 09:40 Hált Flugháft Ktap/snÉóf Þwfir^w mmmmm frungtert Öfasrt *-» Óveðui ^ Snjókome 4* SkéfrenrwiSMt V Stáhfíé = Þoha JV Opnun F»tt fieSabte ? Ekkí viiað Það er engin ástæða tii að bíða með að setja háu ijósin á þegar maður hefur mætt bíinum, en það er rétt að biða þar tii maður mætir bíinum. Ruddaskapur skapar hættu Ljósin á bílnum og notkun þeirra em mikilvæg í skammdeg- inu. Hvemig á að nota háu Ijósin? Notkun hárra og lágra Ijósa virð- ist vefjast fyrir mörgum öku- manninum þegar skammdegis- myrkrið rennur í garð og ótrú- lega margir ökumenn átta sig ekki á því hvenær á að skipta frá háum ljósum til Iágra og hvenær á að setja háu ljósin á aftur. Það hefur verið brýnt fyrir ökumönn- um í gegn um tíðina að skipta ekld yfir á lágu ljósin fyrr en geislar háu ljósanna eru farnir að skerast. Margir beita þeirri reglu að sldpta yfir á lágu ljósin þegar ljós bílsins á móti eru far- in að verða óþægileg. Það sem þarf að hafa í huga er að hafa sem minnst óupplýst svæði á milli bílanna, en jafnframt gæta þess að blinda ekki bílstjórann á móti með háu ljósunum. Engin ástæöa til að bíða Það er engin ástæða til að bíða með að setja háu ljósin á þegar maður hefur mætt bílnum, en það er rétt að bíða þar til maður mætir bílnum, ekki setja háu ljósin á rétt áður en bílnum er mætt. Maður lendir merkilega oft í því að bílar skella á mann háu ljósunum rétt áður en mað- ur mætir þeim. Stundum getur ruddaskapur af þessu tagi skap- að stórhættu. Þá getur ökumað- urinn sem fær háu ljósin óvænt í augun beinlínis blindast og af- leiðingarnar orðið skelfilegar. Svo eru það bílarnir sem aka á eftir öðrum bílum. Gætið þess að háu ljósin blindi ekki þann sem er á undan og lælddð ljósin í tíma. Ljósin ofhá? Það er nauðsynlegt að gæta að viðhaldi ljósanna. Eineygður bíll getur valdið hættu á vegum úti. Sumir bílstjórar lenda í því að það er sífellt verið að blikka þá. Þeir ættu að Iáta stilla ljósin á bílnum sínum - það eru meiri líkur á því að ljósin séu of há en þeir séu svona vinsælir. -OHR 13.-22. n vember Tilboð 20-25% verðlækkun Tilhofls- Ifö sturtuklefi með hitastýrðu blöndunartæki kr; 49.854,-, Kynningarverð á GROHE blöndunartækjum Gerðu þér ferð - það borgarsig! Sími: 4fi0 351 Hornbaðker með nuddi á frábæru verði frá kr: 127.700,-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.