Dagur - 13.11.1997, Page 3
Ðagur
MANNLÍFIÐ 1 LANDINU
FIMMTUDAGUR 13 .NÓVEMBER 1997 - 19
Beðið
norður-
ljósum
Kaupfélag sem selurpakkasúpur og sement,
Englendingur sem stundarjóga og útgerðarmað-
ursemgerireittsumarað 37 árum. Grímseyer
„Fólki finnast Grímseyingar á hjara veraidar. Fyrír því hefég aidrei fundið, “ segir Hannes Guðmundsson útvegsbóndi í Efri Sandvík.
ótrúleg.
„ 0« ,
Kaupfélaginu í Grímsey var lok-
að með íyrra fallinu á þriðjudag.
Það var eðlilegt, enda var ejjan
sjálf og allir íbúarnir að fara í
spariföt í tilefni Fiske-hátíðar.
Við vissum þó að ekki væri langt
að fara til þess að hitta kaupfé-
lagsstjórann. Hrafnhildur Osk
Jónsdóttir býr í Nýja-Sjállandi,
sem stendur við hliðina á útibúi
KEA. Þetta er embættisbústaður
nyrst staðsetta kaupfélagsstjóra
á Islandi.
Jólaskraut og veidarfæri
„Eg sá auglýsingu í Degi í sum-
ar, þar sem auglýst var eftir úti-
bústjóra hjá KEA hér í Grímsey.
Þetta greip mig og fáum vikum
síðar vorum við flutt hingað,"
sagði Hrafnhildur Osk. Eigin-
maður hennar, Erlendur Har-
aldsson, er Grímseyingur og fyr-
ir nokkrum árum gerðu þau til-
raun til heilsársbúsetu þar. En
hurfu frá þar sem atvinna var
ekki næg. En nú eru breyttir
tímar og þau Hrafnhildur og Er-
lendur hafa sett sér að verða í
eynni næstu fimm ár, ásamt
börnum sínum tveimur.
Kaupfélagið í Grímsey er sér-
stæð verslun, jrví þar fæst allt.
Skemmtiblaðið Séð og heyrt,
Maggi-súpur, Ajax hreingerning-
arlögur, stílabækur, Opal-pakkar
og gjafavörur úr lvristal. A lag-
ernum er vöruúrval enn skraut-
Iegra. Verkfæri, jólaskraut og
veiðarfæri. Síðan er hægt að
panta allt úr landi, eins og til
dæmis semet og ]>aksaum. Sá
varningur kom með síðustu ferð
Sæfara út í eyju. „Ég sé um búð-
ina og annast afgreiðslu hér. En
svo vantaði afgreiðsludömu og
þá réð ég Erlend, [50 hann hefði
ætlað sér að vera á sjó. Hann sér
um olíuafgreiðlu og annast um-
boð fyrir Sæfara,“ segir Hrafn-
hildur.
Hlustað á næturbrunlð
Fólk velur sér misjafnan lífsstíl
og Englendingurinn Mark
Hardimham, sem hefur búsetu í
húsinu Sæbergi, fer ótroðnar
slóðir. Hann hefur í árafjöld
siglt um sollinn sæ á flutninga-
skipum og verið sérlega heillað-
ur af norðurslóðum. Hann kom
til íslands í fyrsta sinn í vor sem
leið og lagði j:>á leið sína í
Grímsey. Strax gripu eyjan og
mannlíf þar hann föstum tökum
og hann einsetti sér að koma
aftur við fyrsta tækifæri. I októ-
berbyrjun kom hann og hyggst
vera ytra fram í janúar. — Þá fer
liann út, en okkar maður mun
koma aftur í Grímsey um jtað
leyti og lundinn sest í björg.
Mark Hardimham segist
heillaður af lslendingum vegna
afslappaðs lífsstíls þeirra. Þar
beri Grímeyingar af. Hann seg-
ist einmitt sækjast eftir þessu og
gott sé að láta dagana líða með
því að æfa jóga, reykja pípuna,
lesa bækur og skrifa bréf. „Ég
fer oft í göngutúra á nóttinni. Er
einn með sjálfum mér og hlusta
á brimið. Horfi upp í himininn.
Ég vona að það fari að létta til
því mig langar til Jress að sjá
norðurljós. Ég bíð eftir j)ví,“
segir Hardimham.
Eitt sumar er 37 ár
„Þetta eina sumar sem ég ætlaði
að vera hér er orðið langt. Alls
37 ár. Mér fannst ég strax eiga
heima hér þegar ég kom hing-
að,“ sagði Hannes Guðmunds-
son, útvegsbóndi í Efri-Sandvík.
Við hittum hann niður við höfn,
en þá var hann á leið í salthús
sitt. Við fórum með honum
jrangað.
Hannes stundar útgerð og
vinnslu með sonum sínum,
tveimur. „Ég er nú orðið lítið við
þetta. Vinn ekki nema hálfan
daginn og varla það. Ég get orð-
ið lítið unnið vegna veikinda.
Það er þetta hér,“ segir Hannes
og leggur hendi sina á hjarta-
stað. Hann segir að engan beyg
setji að sér að vera í Grímey sök-
um veikinda sinna svo Iangt frá
heilbrigðisþjónustu. „Ég er
Iöngu búinn að sætta mig við
]>etta.“
Á hjaxa veraldar
Islenska j>jóðarsálin er sérstæð.
íslendingum finnst vænt um
Grímseyinga og láta sig afkomu
þeirra sig talsverðu varða. „Þetta
er alveg rétt,“ segir Hannes
Guðmundsson, þegar þessi
kenning er borin undir hann.
Astæðuna telur hann vera þá að
fólki á fastalandinu finnst
Grímseyingar vera hreinlega úti
á hjara veralda. „Það er hinsveg-
ar nokkuð sem ég hef aldrei
fundið fyrir,“ segir Hannes, um
leið og hann strýkur sigggróinni
hendi sinni um skeggrótina.-SBS.
Efþað fæst ekki í kauþfélaginu þá vantar mig það ekki! En það fæst allt í kauþfélaginu i Grímsey. Hrafnhiidur Ósk Jónsdóttir
v/ð hiHurnar. Myndir: Brink.