Dagur - 13.11.1997, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 1 3.NÚVEMBER 1997 - 21
XWtor
MENNINGARLIFIÐ I LANDINU
L.
Blómaskoðun Hálfdans
Steinunn Sigurðar-
dóttir hefur sentfrá
sér skáldsöguna
Hanami. Þarsegirfrá
Hálfdani Fergussyni
sem einngóðan veður-
dag kemst að þeirri
niðurstóðu að hann sé
látinn.
Hcmami heitir hókin, hvaðan
kemur þessi óvenjulegi titill?
„Hanami er japanskt orð og
þýðir blómaskoðun. Blóma-
skoðun fer fram þegar kirsu-
blómin springa út á vorin og fólk
sest undir tré með mat og drykk
og heldur stórveislu. Þessa
blómaskoðun má tengja við sög-
una mína en svo fannst mér á
vissan hátt gaman að gefa bók-
inni sérkennilegan titil.“
Bókin fjallar um mann sem
trúir því að hann sé dáinn.
Hvemig fékkstu þessa hugmynd?
„Vinur minn Magnús S.
Magnússon sagði mér að til
væru sjúklingar sem trúðu því
að þeir væru dánir. Mér fannst
þetta merkilegt og gott efni í
bók. A þessum tíma var ég að
skrifa Hjartastað en var hálf
strönduð. Eg byrjaði því að
skrifa nokkra kafla þessarar bók-
ar. Hugmyndin gerjaðist í nokk-
ur ár og togaði alltaf jafn mikið í
mig. Ég byrjaði síðan á bókinni
af fullum krafti strax og ég hafði
lokið við Hjartastað."
Er þetta kannski grallaraleg-
asta skáldsagan þín?
„Já, framan af. Svo breytist
hún, það færist yfir hana ró og
friður enda finnur aðalpersónan
sína Paradís."
En hvað með þig, ert þú sjálf
sannfærð um að það taki ekkert
við eftir dauðann?
„Ég veit það ekki. En ég veit
að ef eitthvað tekur við þá er
það miklu ótrúlegra og skrýtnara
en við gerum okkur í hugarlund,
ekki þessi útþynnti heimur sem
spíritistar lýsa, þar sem allt er
örlítið sætara og betra en hér.
En það er svo margt skrýtið og
dularfullt sem hefur gerst í sam-
bandi við söguhetjurnar í bók-
unum mínum og þá sem virðast
vera fyrirmyndir þeirra. Það er
stundum eins og verið sé að
stríða mér.
Þegar ég var að ljúka við Síð-
asta orðið flutti ég í Bogahlíð-
ina. I húsinu bjuggu tveir pipar-
sveinar sem báðir héldu til í
Safnahúsinu við Hverfisgötu,
eins og piparsveinarnir í Síðasta
orðinu gerðu. Síðan kom í ljós
að ég var nágranni Lýtings Jóns-
sonar en ein aðalsöguhetjan í
Síðasta orðinu bar það nafn.
Þeir voru á sama aldri, og hvor-
ugur hafði gifst né eignast börn.
Ég hef einnig frétt af konum
úr sömu ætti sem eru eins og
beinar fyrirmyndir kvennanna úr
Hjartastað, aðstæður, útlit og
nöfn fara þar saman í veiga-
mestu atriðum."
Þú hefur verið að skrifa í mörg
ár, eru erfiðleikarnir alltaf þeir
sömu eða fara þeir eftir verkinu
sem þú ert að vinna hverju sinni?
„Erfiðleikarnir eru misjafnir
frá bók til bókar. Það er alltaf
„Ég skemmti mér einna mest við að skrifa þessa bók, kannski vegna þess að söguhetjan er karlmaóur.
Það gaf mér skemmtilegt frelsi." mynd: e.ól.
erfitt að koma fyrsta uppkasti á
blað og handavinnan í lokin er
alltaf jafn leiðinleg. Ég er sífellt
að gera tillögur að texta og er
endalaust að breyta. Þetta er
basl og barningur. En ég
skemmti mér einna mest við að
skrifa þessa bók, kannski vegna
þess að söguhetjan er karlmað-
ur. Það gaf mér skemmtilegt
frelsi.“
Hefurðu sniíið baki við Ijóða-
gerðinni?
„Sannarlega ekki. Næsta bók
mín gæti vel orðið ljóðabók.
Annars hélt ég alltaf að ég væri
leikskáld og skrifaði leikrit en
þau voru svo léleg að ég þorði
ekki að sýna þau. Þau eru ofan í
skúffum og ég held að þau verði
þar til dómsdags."
Nií ertu flutt á Selfoss, finnst
þér betra að skrifa í dreifbýli en
þéttbýli?
„Það er ekki komin mikil
reynsla á það en ég held að frið-
urinn og kyrrðin hjálpi mér
rnikið."
Hvað gerirðu ífrístundum?
„Ég rækta tré í Austur-Skafta-
fellssýslu þar sem pabbi og
mamma eiga sumarbústað. Eg
fer í langar gönguferðir og ég les
mildð en vinirnir hafa orðið
nijög útundan. Síðustu árin hafa
að mestu farið í að skrifa bækur
og flakka um. Nú ætla ég að
fara að sinna vinum rnínum, ef
einhverjir eru eftir.“
Hinn marg umtalaði og eftirspurði kabarett
„í BOÐI SVEITASTjÓRNAR,,
verður framinn í Freyvangi næstkomandi
laugardagskveld 15. nóvember kl. 22.
Forsala aðgöngumiða er fimmtudag
13. nóvember kl. 20-22 í Freyvangi.
Miðaverð kr. 1.600.
Tökum ekki greiðslukort
Hreint aldeilis gljúrin hljómsveit llluga leikur fyrir dansi.
Ekki missir sá sem fyrstur fær...Hvað?
Freyvangsleikhúsið.
Leikfélag
Akureyrar
4
Hart
✓
i
bak
Af fwí ég skenimti rnér svo vel.
Arthúr Bjiirgvin Bollason
í Dagsljósi. 'kr
föstudagskvöld 14. nóv. kl. 20.30
laus sæti
laugard. 15. nóv. kl. 16.00
laus sæti
laugardagskvöid 15. nóv. kl. 20.30
UPPSELT
Sunnudaginn 16. nóv. kl. 20.30
laus sæti
föstudagskvöid 21. nóv. kl. 20.30
laus sæti
laugard. 22. nóv. kl. 16.00
laus sæti
laugardagskvöld 22. nóv. kl. 20.30
UPPSELT
Næst síðasta sýningarhelgi
föstudagskvöid 28. nóv. ki. 20.30
laus sæti
laugard. 29. nóv. ki. 16.00
laus sæti
Næst síðasta sýning
laugardagskvöld 29. nóv. kl. 20.30
laus sæti
Síðasta sýning
Missið ekki af þessari
bráðskemmtilegu
sýningu.
Á ferð með
frú Daisy
eftir Alfrcd Uhry
í hlutverkunum:
Daisy Werthan:
Sigurveig Jónsdóttir
Hoke Coleburn:
Þráinn Karlsson
Boolie Werthan:
Aðalsteinn Bergdal
Þýðing: Elísabet Snorradóttir
Lýsing: Ingvar Björnsson
Leikmynd og búningar:
Hlín Gunnarsdóttir
Leikstjórn: Ásdís Skúladóttir
Frumsýning á
Renniverkstæðinu
annan í jólum, 26. des. kl. 20.30
2. sýning 27. dcs. kl. 20.30
3. sýning 28. des. kl. 20.30
4. sýning 30. des.
Gjafakort í leikhúsið
Jólagjöf sem gleður
Verð:
Almenn kort 1800 krónur
Kort á Söngvaseið:
Fullorðnir: 2.400 kr.
Börn: 1.300 kr.
Eldri borgarar: 1.500 kr.
Söngvaseiður
Aðalhlutverk:
Þóra Einarsdóttir
frumsýning í Samkomuhúsinu 6. mars
^ Markhúsar-
guðspjall
liinivikur Aðalsteins Bcrgdal
Frurnsýning á Renniverksræðinu um
páska Sími 462 1400
Munið Leikhúsgjuggið
FIUGFÉLAG ÍSLANDS
sími 570-3600
er styrktaraðili Leikfélags AkurejTitr