Dagur - 13.11.1997, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 13 .NÓVEMBER 1997 - 27
X^wr
BÍLAR OG VETUR
Harðkoma dekk sækj a í sig veðrið
Svokölluð harðkoma
dekk eru sífelltað
auka við vinsældir sín-
ar. Þau em framleidd
hérlendis samkvæmt
íslenskri hugmynd.
Þetta er þriðji veturinn sem
Sólning hf. framleiðir harðkorna
dekk. „Við byrjuðum frekar
smátt í þessu, síðan jukum við
þetta allverulega í fyrravetur. I
vetur höfum við varla haft und-
an að framleiða,11 segir Jón Stef-
ánsson, sölustjóri hjá Sólningu
hf. „Við framleiðum jrau jafn-
hliða hinum dekkjunum sem við
framleiðum ekki með harðkorn-
um en með nöglurn."
Harðkorna dekkin eru sóluð
dekk og munurinn á þeim og
hefðbundnum sóluðum dekkj-
um er að hörðum karbít stálögn-
um er dreift í sólann um leið og
hann er vafinn upp á dekkið.
„Þegar við sólum dekk þá er
belgurinn sem við ætlum að sóla
raspaður niður þannig að hann
verður alveg sléttur. Síðan er
hann límborinn. Þá fer hann í
tölvustýrða vél sem sér um að
vefja gúmmíinu upp á belginn
eins og lakkrísborða."
Sléttir lakkrfsboróar
Jón líkir gúmmíinu í heitsóln-
ingunni við slétta lakkrísborða.
„Um leið og þeir vefjast upp á
dekldð hrynja kornin ofan í
gúmmíið sem er heitt. Þegar
það magn er komið sem á að
vera á dekkinu, þá fer það inn í
pressur og þar er munstrið mót-
að í dekkið. Þetta er sett í rosa-
legan hita í pressunni sem þrýst-
ir mótunum inn í gúmmíið og
myndar þannig munstrið. Þessi
korn eru alveg frá innsta Iagi og
upp í það efsta og fyrir bragðið
eru þessi dekk mun stamari en
venjuleg ónegld snjódekk,“ út-
skýrir Jón.
Hann viðurkennir að harð-
korna dekkin komi ekki alveg í
staðinn fyrir nagladekk. „Við
verðum svolítið að hugsa um að-
stæður. Úti á landi þar sem eru
miklir svellbunkar eru naglarnir
betri. En um leið og naglarnir
eru farnir að ganga svolítið út úr
dekkinu og leggjast, þá eru þeir
farnir að verða að litlu gagni. En
harðkorna dekkið heldur alltaf
sínu gildi sem það hafði upphaf-
lega.“ -OHR
Jón Stefánsson og harðkorna dekkin sem eru að sækja í sig veðrið á markaðnum.
Alvöru ieppi á verði iepplings
IVITARA 1998
Suzuki Vitara er ekta jeppi.
Hann er með háu og lágu
drifi, sterkbyggður á grind,
upphækkanlegur, með feiki-
lega stöðuga fjöðrun
og
• VERÐ: JLX 3-D. 1.675.000 KR., JLX 5-D. 1.940.000 KR.,
DIESEL 5-D 2.180.000 KR.,V6 2.390.000 KR.
• Snar í viðbragði, hljóðlátur, lipur í akstri
- og ekki bensínhákur.
• Gott pláss - mikill staðalbúnaður.
Komdu og sestu inn!
Sjádu plássið og alúðina við smáatriði.
Vitara sr vinsœlasti jeppinn á Islandi.
Og skyldi engan undra.
SUZUKI
AFI. OG
ÖRVGGI;
SUZUKI BILAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
SULUUMBUÐ: AKranes: Olatur G. Olatsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA ht., Lautasgotu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og buvelasalan ht, Miðasi 19, simi 47
Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00.
Sími 568 51 00.
• • « «« « • • • • « * * •••••*•«