Dagur - 18.11.1997, Page 1
Verð ílausasölu 150 kr.
80. og 81. árgangur - 218. tölublað
BLAÐ
Forvígiskonur ynr-
gefa Kvennalista
Sigriður Lilly Baldursdóttir, for-
maður Kvenréttindafélags Is-
lands og ein af forvígiskonum
Kvennalistans, sagði sig úr sam-
tökunum í gær. Hún greiddi at-
kvæði gegn því á landsfundi
Kvennalistans um helgina að far-
ið yrði í viðræður við A-flokkana
um hugsanlegt samstarf. Það
var hins vegar samþykkt með 38
atkvæðum gegn 16 atkvæðum,
en 6 konur sátu hjá.
Fjöreggið brotið
Sigríður Lillý segist fyrst og
fremst ósátt við vinnubrögðin.
Hópur kvennalistakvenna hafi „í
krafti 22ja atkvæða munar
þvingað Kvennalistann til vinstri
í stjórnmálum. I mínum huga
skiptir þó mestu að „hópur
kvennalistakvenna“ hefur í að-
gerðum sínum langt í frá haft í
heiðri vinnubrögð Kvennalist-
ans... „Hópur kvennalista-
kvenna" fer með nafn Kvenna-
listans með sér í viðræðurnar við
flokkana en hann fer ekki með
fjöregg hans því það var brotið á
landsfundi Kvennalistans," sagði
Sigríður Lillý í samtali við Dag í
gærkvöld.
Töluverð hreyfing
Viðmælendur blaðsins innan
Kvennalistans eiga von á að fleiri
eigi eftir að segja skilið við sam-
tökin en einnig hafa nokkrar
Sigrldur Lillý Baldursdóttir segir bless við Kvennalistann.
konur gengið til liðs við hann
eftir landsfundinn. Þar á meðal
er Elísabet Þorgeirsdóttir sem
gekk til liðs við Þjóðvaka í síð-
ustu kosningum.
Ekkert hreint framboð
Afar ólíklegt þykir að Kvennalist-
inn bjóði aftur fram til þings,
j'hver svo sem niðurstaðan verður
úr samfylkingarviðræðum vinstri
flokkanna. Flest bendir einnig
til að Kvennalistinn bjóði hvergi
fram í sveitarstjórnarkosningum
næsta vor, nema í samstarfi við
aðra flokka. Fimmtán ára sögu
sérstakra kvennaframboða virð-
ist vera að ljúka.
Sjá eitinig bls. 3.
-VI
Skoða hval
fyrir 860
milljóiiir
Hvalaskoðun er orðin blómleg
atvinnugrein hér á landi. I grein-
argerð kemur fram að yfir 20
þúsund manns hafi farið í hvala-
skoðunarferðir á liðnu sumri, en
voru 2200 fyrir aðeins 2 árum.
Aætlað er að heildartekjur þjóð-
arbúsins af þessu ári nemi allt að
860 milljónum króna.
Þessar upplýsingar koma fram
í greinargerð með frumvarpi þar
sem fimm þingmenn úr öllum
flokkum leggja til að samgöngu-
ráðherra verði falið að sjá til þess
að settar verði reglur um hvala-
skoðun hér við land. Markmiðið
á m.a. að vera að tryggja að um-
gengni við hvalina valdi stofnun-
Lim ekki skaða og að öryggi
ferðamanna á sjó sé viðunandi.
I greinargerðinni kemur einnig
fram að Asbjörn Björgvinsson,
forstöðumaður Hvalamiðstöðv-
arinnar á Húsavík og leiðsögu-
maður, hefur mótað tillögur um
umgengnisreglur við hvaiaskoð-
un svipaðar því sem tíðkast í öðr-
um löndum. — VJ
Unnið við köfun i Reykjavíkurhöfn með hvalbátana bundna i baksýn. Kannski er þetta tímanna tákn - kafarinn skoðar heima
undirdjúpanna en hvalveiðiflotinn liggur aðgerðalaus við bryggju? - myno e.ól.
Lrnda færir
út kvíamar
Linda Péturs-
dóttir hefur fest
kaup á gamla
Þórskaffi við
Brautarholt í
Reykjavík og
mun flytja þang-
að rekstur Bað-
hússins sem
hún hefur rekið
í Armúlanum. Linda er að færa
út kvíarnar, þvf nýja húsnæðið er
meira en helmingi stærra en það
gamla, eða um 900 fermetrar. 12-
15 starfsmenn munu starfa við að
þjónusta konur á öllum aldri en
karlar fá ekki aðgang frekar en
fyrri daginn.
„Það hefur gengið mjög vel að
undanförnu, en með mikilli
vinnu. Við munum halda áfram
að bjóða persónulega þjónustu og
eingöngu fyrir konur. Nei, ég
hyggst ekki opna nein útibú fyrir
karlmenn. Það er nóg af stöðum
fyrir ykkur,“ sagði Linda í samtali
við Dag í gær.
Markhópur Lindu er „venjuleg-
ar“ konur á aldrinum 25-55. Hins
vegar eru fastakúnnarnir frá 14
ára og upp í níræðisaldur. — BÞ
Linda
Pétursdóttir.
Verðlaun
fyrir íslenska
tungu
Blað 2
Málverk eða
málningar-
klessur?
bls. 8 9
SINDRI
-sterkur í verki
' -J