Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 10
10 -ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
rD^ftr
Ekkert smá
skemmti-
LEGUR
STRAUMRÁS
Furuvöllum 3 ■ 600 Akureyri
Sími 461 2288 ■ Fax 462 7187
ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
spjaldloka (Butterfly Valves). Um er að ræða kaup á
spjaldlokum í stærðum DN 400 til DN 800, fyrir veitu-
kerfi HR. Útboðsgögn sem eru á ensku eru afhent á
skrifstofu vorri. Opnun tilboða: Kl. 14:00 þriðjudaginn
16. desember 1997 á sama stað.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
kúluloka (Ball Valves). Um er að ræða kaup á kúlulok-
um í stærðum DN 200 til DN 500, fyrir veitukerfi HR.
Útboðsgögn sem eru á ensku eru afhent á skrifstofu
vorri. Opnun tilboða: Kl. 14:00 miðvikudaginn 17. des-
ember 1997 á sama stað.
F.h. Hitaveitu Reykjavfkur er óskað eftir tilboðum í há-
gæða-kúluloka (Fleavy Duty Ball Valves). Um er að
ræða kaup á hágæða-kúlulokum í stærðum DN 200 til
DN 700, fyrir veitukerfi HR.Útboðsgögn sem eru á
ensku eru afhent á skrifstofu vorri. Opnun tilboða:
Kl. 14:00 fimmtudaginn 18. desember 1997 á
sama stað.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
miðflóttaaflsdælur fyrir 3. áfanga Nesjavallavirkjunar.
Um er að ræða kaup á 5 dælum fyrir 260 kg/s við 300
kPa og 5 dælum fyrir 32 kg/s við 100 kPa. Dælurnar
skal afhenda fob. eigi síðar en í lok apríl 1998. Útboðs-
gögn sem eru á ensku eru afhent á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: Kl. 11:00 þriðjudaginn 16. desember
1997 á sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í smíði og uppsetningu á stýri-og eftirlits-
búnaði fyrir lagnakerfi í Sundlaug Grafarvogs við Dal-
hús. Um er að ræða stjórnbúnað, raflagnir, forritun og
uppsetningu á skjámyndakerfi. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri frá þriðjudeginum 18. nóvember 1997,
gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: Kl. 11:00
þriðjudaginn 9. desember 1997 á sama stað.
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
kúluloka, spjaldloka og einstefnuloka fyrir 3. áfanga
Nesjavalla-virkjunar. Um er að ræða kaup á kúlulokum
í stærðunum DN 15 til DN 400, spjaldlokum í stærðun-
um DN 150 til DN 600 og einstefnulokum í stærðunum
DN 350 til DN 400. Lokarnir eru í þrýstiflokki PN 10 og
PN 25.Útboðsgögn sem eru á ensku verða afhent á
skrifstofu vorri frá þriðjudeginum 18. nóvember 1997.
Opnun tilboða: Kl. 14:00 fimmtudaginn 11. desember
1997 á sama stað.
INNKAUPASTOFNUN
RE YKJA VÍKURBORGA R
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
FRÉTTIR
Fjöbnenni í miöbæ
og unglingadrykkja
Dagbók lögreglunnar
í Reykjavík 14. til
17. nóvember 1997
Helgin gekk vel fyrir sig hjá lög-
reglu. Talsvert fjölmennt var í
miðborginni einkum á laugar-
dag. A annan tug ungmenna
undir 16 ára aldri var ekið heim
eða í athvarf sem lögreglan hefur
sett á laggirnar ásamt Iþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkurborg-
ar og Félagsmálastofnun. For-
eldrar sækja síðan börnin sem
flutt eru í athvarfið. Lögreglan
vill brýna það íyrir foreldrum að
virða reglur um útivist barna
sinna.
Umferðarmálefni
Fjórtán ökumenn voru stöðvaðir
vegna gruns um ölvun við akstur
um helgina. Þá voru höfð af-
skipti af 35 ökumönnum vegna
hraðaksturs.
Þá voru lögreglu tilkynnt um
40 umferðaróhöpp en engin al-
varleg slys urðu á fólki. Astæða
er til að minna ökumenn á að
taka tillit til aðstæðna við akstur
ökutækja í skammdeginu.
Lnnbrot
Talsvert var brotist inn í ökutæki
um helgina og stolið þaðan verð-
mætum einkum útvörpum og
geislaspilurum.
Á föstudag var karlmaður
handtekinn eftir að hafa brotið
rúðu í lyfjaverslun í austurborg-
inni og reynt að fjarlægja hluti
sem voru í útstillingu. Hann var
fluttur á lögreglustöð en gat
enga skýringu gefið á athæfi sínu
aðra en ölvunarástand sitt.
Þá var brotist inn í búskúr á
miðbæjarsvæðinu á sunnudag og
þaðan stolið talsverðum verð-
mætum.
Líkamsmeiðmgar
Karlmaður var fluttur á slysa-
deild eftir að hafa fengið flösku í
höfuðið í miðborginni.
Þá kom til átaka milli tveggja
karlmanna í miðborginni að
morgni sunnudags. Flytja varð
annan manninn á slysadeild með
áverka á andliti. I fórum hans
fundust síðan ætluð fíkniefni.
Að morgni sunnudags kom til
átaka milli gests og starfsmanns í
vínveitingahúsi er gesturinn
reyndi að fá þjónustu með því að
framvísa fölsuðu greiðslukorti.
Eftir átökin verð að flytja gestinn
á slysadeild en áverkar eru ekki
taldir alvarlegir.
Annað
Eldur kom upp í viftu í glugga í
þvottahúsi á Iaugardag. Einum
aðila var ekið á slysadeild með
væga reykeitrun.
Númer klippt af
fjörutíu bifreiöum
Úr dagbók lögregl-
uirnar á Akureyri vilt
ima 10. til 17. nóv-
ember 1997.
Það er greinilegt, þegar dagbók-
in er lesin, að komið er haust og
myrkur og hálka gera aksturs-
skilyrði erfið fyrir ökumenn. Alls
voru skráð 11 umferðaróhöpp í
vikunni og í mörgum tilfellum
var um verulegt eignatjón að
ræða. Slys varð í einu þessara
óhappa en nokkrir fengu einnig
smá skrámur.
Skoðun og enduiskoðun
Að venju voru margir sem trös-
suðu að færa bifreiðar sínar til
skoðunar eða endurskoðunar og
voru númer klippt af alls 40 bfl-
um. Þetta er eins og í mörgum
öðrum tilfellum ónauðsynlegt
fyrir eigendur þessara bifreiða
þar sem þjónustan hjá Bifreiða-
skoðun hf. er góð og alltaf hægt
að komast að með bifreiðar sínar
til skoðunar. Umráðamenn bif-
reiða geta gengið út frá því vísu
að ef þeir ekki koma með bifreið-
ar sínar til skoðunar í þeim síð-
asta mánuði sem þeir eiga að
mæta þá verða númer þeirra
klippt af og akstur þeirra bann-
aður þar til skoðun hefur farið
fram. Vert er að geta þess að nú
er að koma að lokum þessa skoð-
unarárs þannig að þeir sem ekki
hafa farið með bifreiðar sínar til
skoðunar geri það hið fyrsta.
Margir ökumenn bifreiða
þurfa eftir Jressa viku að greiða
þúsundir í sektir fyrir umferðar-
lagabrot sem þeir hafa framið.
Þrír voru teknir fyrir meinta ölv-
un við akstur, fimmtán fyrir of
hraðan akstur, tveir fyrir að aka
réttindalausir, fimm fyrir ranga
stöðu, þrír fyrir að virða ekki
stöðvunarskyldu o.s.frv.
Veitingamaður kærður
Fjórir voru kærðir fyrir ölvun á
almannafæri og þá voru menn
kærðir fyrir að reyna að fara með
áfengi með sér inn á vínveitinga-
staði. Einnig var veitingamaður
kærður fyrir að selja áfengi til
ungmennis undir Iögaldri.
Nokkrir reyndu að komast inn á
veitingastaði með skilríki vina
sinna en árvakir dyraverðir hús-
anna komu í veg fyrir það og til-
kynntu lögreglunni um brotin.
Lögreglan fylgist mjög vel með
útivistartíma barna og ung-
menna og eru sérstök átök gerð í
þeim málum um helgar en þá er
einnig foreldravaktin að störf-
um. Að venju voru nokkur ung-
menni tekin og þurftu foreldrar
þeirra að sækja þau til lögregl-
unnar. Því miður er í mörgum
tilfellum um sömu ungmennin
að ræða margar helgar en svo
virðist sem sumir foreldrar séu
kærulausir um Jrann verð-
mætasta fjársjóð sem þeir eiga,
þ.e.a.s. börnin sín.
Olíubrák í höfniimi
Starfsmenn Akureyrarhafnar
urðu varir við Jrað einn daginn
að olíubrák var á sjónum í höfn-
inni. Þarna virðist skip hafa los-
að annað hvort olíu eða olíu-
mengaðan sjó í höfnina og er
J>að mál í rannsókn.
Þá er rétt að skora á alla þá
sem eiga ósótt skotvopnaleyfi að
nálgast skfrteini sín hið fyrsta á
lögreglustöðina svo ekki Jmrfi að
koma til afturköllunar leyfanna
og innköllun skotvopnanna.
- Ó.A.