Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 11

Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 18.NOVEMRER 1997 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Frá réttarhöldunum yfir Wei árió 1995, sem hann sagdi vera tii háðungar lýðræði og réttarríki. Úr fangelsi í útlegð Kínverski andófsmað- uriiui Wei Jingsheng hélt í gær til New York þar sem hann ui u ii leita læknis. Wei flaug til Bandaríkjanna eftir að kínversk stjórnvöld létu hann lausan úr fangelsi á sunnudag. Hann er nú 47 ára en hefur dval- ist í fangelsi eða vinnubúðum allar götur frá því 1979, að und- anskildu sex mánuða tímabili veturinn 1993-1994. Þótt Jiang Zemin, forseti Kína, hafi kallað hann ótíndan glæpa- mann á fréttamannafundi í síð- asta mánuði, þá hefur Wei verið einn af skeleggustu talsmönnum lýðræðis og tjáningarfrelsis sem Kína hefur eignast, og var í fyrra tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels af þeim sökum. „Satt er það, Wei er aðeins einn af mörgum,“ sagði Merle Goldman, prófessor við Boston Háskóla, „þúsundir annarra eru enn í fangelsum eða vinnubúð- um, en hann er mikilvægt tákn fyrir mannréttindabaráttuna og gefur öðrum von um frelsi.“ Kínversk stjórnvöld hafa áður sagt að Wei gæti losnað úr fang- elsi af heilsufarsástæðum, en hafa allt fram að þessu sagt hann vera við hestaheilsu þrátt fyrir að fjölskylda hans, vinir og mann- réttindasamtök hafi haldið því fram að hann eigi við ýmis konar kvilla að stríða í fangelsinu. Við komuna til Bandaríkjanna gekkst hann undir læknisskoð- un, og að henni lokinni sögðu læknar að heilsa hans væri í „þokkalegu ástandi". Þrýstinguriim virkar Wei hefur verið andvígur því að fara í útlegð, enda muni lausn hans úr fangelsi þá hafa tak- markaða þýðingu fyrir kínversk stjórnmál þar sem þeir sem viðra gagnrýni sína á Kommúnista- flokkinn eiga enn á hættu að hljóta langa fangelsisdóma. Fréttaskýrendur sögðu þó að lausn Weis sýni að kínversk stjórnvöld hafi í raun látið undan þrýstingi að utan og sýnt við- leitni til að draga úr spennu í samskiptunum við Bandaríkin, þrátt fyrir allar yfirlýsingar um að gagnrýni á mannréttindaá- standið í Kína sé afskipti af inn- anríkismálum sem öðrum ríkjum komi ekki við. „Þetta þýðir ekki að þeir sem halda áfram að opna munninn á opinberum vettvangi um stjórn- mál og mannréttindi muni ekki sæta refsingum. Það munu þeir, en það gæti gefið þeim kjark til að tjá sig vegna þess að þeir vita að stjórnvöld bregðast í raun við þrýstingi frá Bandaríkjunum í þessum efnum,“ sagði Goldman. Wei er sendur úr landi aðeins 11 dögum eftir að Jiang sneri aftur heim úr átta daga ferð sinni um Bandaríkin. Með því að draga lausn W'eis þar til eftir leiðtogafundinn tókst kínversk- um stjórnvöldum að koma í veg fyrir að Wei skýggði á forsetann og einnig að mönnum sýndist sem Kína hefði látið undan þrýstingi fyrir leiðtogafundinn. Fyrir heimsókn sína lil Banda- ríkjanna hafði Jiang gefið Banda- ríkjamönnum nokltuð Ijóslega til kynna að framfarir gætu átt sér stað í mannréttindamálum ef ferðin tækist vel. Óhræddui að gagnrýna Wei, sem á árum áður var sann- færður Maóisti, náði athygli heimsins í lýðræðishreyfingunni sem komst á kreik í Kína árið 1979, þegar menntamenn og at- hafnasinnar birtu ögrandi grein- ar á vegg við fjölfarna götu í Beijing. 1 fyrstu grein sinni á lýð- ræðisveggnum svonefnda gagn- rýndi Wei umbótahugmyndir þá- verandi leiðtoga Kína, Deng Xia- oping, og sagði þær dæmdar til að mistakast ef íýðræðisumbæt- ur fylgdu ekki efnahagsumbót- unum sem fyrirhugaðar voru. Á þeim tíma var litið á Deng sem mikla framför frá þeirri for- ystu sem bar ábyrgð á Menning- arbyltingunni, en Wei var óspar á gagnrýni sína og sagði Deng á góðri leið með að verða „nýr ein- ræðisherra". Ekkert kæmi í stað- inn fyrir raunverulegt lýðræði. Hann kallaði leiðtoga landsins „pólitíska svikara", og sagði stjórnmálakerfið byggjast á „lénsskipulagi“. Wei þurfti að gjalda það dýru verði að hann skyldi opinbera skoðanir af þessu tagi. Aðeins viku eftir að hann gagnrýndi Deng með nafni var hann hand- tekinn og síðan dæmdur í 1 5 ára fangelsi í október 1979. Honum var sleppt úr fangelsinu í sept- ember 1993, einmitt þegar kínv- ersk stjórnvöld sóttu fast að fá að halda Olympíuleikana árið 2000. Hann tókþá þegar ótrauð- ur til við að blása lífi í glóðir and- ófshreyfingarinnar í Kína, sagði skoðanir sínar hverjum sem heyra vildi, gaf viðtöl við frétta- menn og komst í samband við marga helstu leiðtoga mótmæl- anna frá 1989, sem hann missti af í fangelsinu. Skammviimt frelsi Vorið 1994 var stjórnvöldum nóg boðið og Wei var hnepptur í varðhald stuttu eftir að hann hafði hitt þáverandi aðstoð- arutanríkisráðherra Bandaríkj- anna. I nóvember 1995 hófust loks réttarhöld yfir honum í ann- að sinn og mánuði síðar var hann dæmdur enn í 14 ára fang- elsi fyrir samsæri gegn ríkis- stjórninni. Wei lét engan bilbug á sér finna, jafnvel ekki þegar hann átti í annað sinn yfir höfði sér langa fangavist. 1 yfirlýsingu sinni fyrir rétti sagði hann að þegar baráttumaður fyrir mann- réttindum og lýðræði væri sakað- ur um „undirróðursstarfsemi“ þá væri það í sjálfu sér viðurkenn- ing á því að stjórnvöld væru á móti mannréttindum og lýðræði. -77te Washington Post. 60 ferðameim myrtir EGYPTALAND - Sex menn vopnaðir byssum hófu í gær skotárás á hóp ferðamanna við ævafornt grafhýsi í Luxor í Egyptalandi og skipt- ust síðan á skotum við lögreglumenn sem voru á vakt við grafhýsið í um þrjá tíma. Meira en sextíu manns létust í skotárásinni, að því er heimildir sögðu, þar af allir byssumennirnir sex og tveir lögregluþjón- ar. Stjórnvöld töldu að þarna hefðu íslamskir Imðjuverkamenn verið á ferð, sem stefna að því að spilla fyrir ferðaþjónustu Egypta. Arafat með Parkinsons? ISRAEL - ísraelskur taugafræðingur sagði í gær að hugsanlega væri Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, með Parkinsonsveiki. Hann byggði þessa skoðun sína á nýlegum sjónvarpsviðtölum við Arafat, þar sem neðri vör hans sást titra nokkuð. Sjálfur segist Arafat aðeins hafa sofið illa. Ymsar vangaveltur hafa verið um veikindi Arafats síðustu daga, en hann segist einskis meins kenna sér. jfe ÞROSKAHJÁLP Á NORÐURLANDI EYSTRA Félagsfundur verður miðvikudaginn 19. nóv. kl. 20.30 í Kaupangi v/Mýrarveg. Þroskahjálp á Norðurlandi eystra u Framsóknarflokkurinn Aðalfundur miðstjórnar Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins verður haldinn dagana 21.-22. nóvember nk. í Lionssalnum að Auðbrekku 25, Kópavogi. Aðalmál fundarins verða auk venjulegra aðalfundarstarfa byggðamál og undirbúningur sveitarstjórnarkosninga. Nánari dagskrá auglýst síðar. Framsóknarflokkurinn. Sýslumaðurinn á Akureyri Hófl' EA-1970, skr. nr. 1157, þingl. Hafnarstræti 107, 600 Akureyri eig. Friðgerður Pétursdóttir, gerðar- Sími 462 6900 beiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, Ak- ureyri, föstudaginn 21. nóvember 1997 kl. 10 á eftirfarandi eignum: Ásvegur 6, Dalvík, þingl. eig. Símon Ellertsson, gerðarbeiðandi Dalvfk- urkaupstaður. Brekkuhús 1, norðurhl. Hjalteyri, Arnarneshreppi, þingl. eig. Árni Magnússon og Kristbjörg Oddný I. Egilsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður ríkisins og Sýslumaður- inn á Akureyri. Einholt 8D, Akureyri, þingl. eig. María Agnarsdóttir og Gunnar Jónsson, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður ríkisins, húsbréfad. og (slandsbanki hf. Gránufélagsgata 46, hl. 01-01-02, Akureyri, þingl. eig. Ketill Guð- mundsson, gerðarbeiðandi Iðnlána- sjóður. Karlsbraut 7, Dalvík, þingl. eig. Dóra Rut Kristinsdóttir, gerðarbeið- andi Dalvíkurkaupstaður. Karlsrauðatorg 26f, Dalvík, þingl. eig. Sigríður Dóra Friðjónsdóttir og Þórhallur S. Jónsson, gerðarbeið- andi Dalvíkurkaupstaður. Litlahlíð, úr landi Ytri-Varðgjár, íb. hús, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Lilja Guðrún Axeldóttir, gerðarbeið- andi Sýslumaðurinn á Akureyri. Lóð úr landi Flugmálastjórnar, Akur- eyrarflugvelli, Akureyri, þing, eig. Bakkasel efh, gerðarbeiðendur Ak- ureyrarbær og Sparisjóður Akureyr- ar/Árnarneshr. Lækjargata 11a, Akureyri, þingl. eig. Birgir Ottesen, gerðarbeiðandi Sparisjóður Akureyrar/Arnarneshr. Múlasíða 1a, Akureyri, þingl. eig. Lilja Sigurðardóttir, gerðarbeiðend- ur Akureyrarbær og Byggingarsjóð- ur verkamanna. Hafnarbraut 7, hluti 07-02-02, Dal- vík, þingl. eig. Verslunin Kotra ehf, gerðarbeiðendur íslandsbanki hf. höfuðst. 500, Nína Áslaug Stefáns- dóttir og Sportís ehf. Hafnargata 17, Grímsey, þingl. eig. Brynjólfur Árnason, gerðarbeiðend- ur Byggingarsjóður ríkisins og Sýslumaðurinn á Akureyri. Tjarnarlundur 7b, Akureyri, þingl. eig. Elísabet Björg Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Akureyrarbær. Sýslumaöurinn á Akureyri, 17. nóvember 1997. Harpa Ævarsdóttir, ftr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.