Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 3

Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 3
 ÞRIÐJUDAGUR 18.NÓVEMBER 1997 - 3 FRÉTTIR Óvíst hvað verður uin þingflokk Kveimalista Veruleg óvissa ríkir 11 in framtíð þing- flokks Kveimalistans, eftir að landsfimdur samtakanna sam- þykkti að hefja við- ræður við A-flokkana. Þingflokkurinn þrí- klofnaði í afstöðu sinni. Þriggja manna þingflokkur Kvennalistans klofnaði frum- eindir sínar þegar greidd voru at- kvæði um tillögu um viðræður við A-flokkana á Iandsfundi sam- stakanna um helgina. Guðný Guðbjörnsdóttir greiddi atkvæði með tillögunni, Kristín Hall- dórsdóttir sat hjá en Kristín Ast- geirsdóttir greiddi atkvæði á móti. Tillagan var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 16 og 6 sátu hjá. Ovíst er hvað verður um þing- flokkinn. Kristín Halldórsdóttir og Guðný Guðbjörnsdóttir vona báðar að þær geti allar þrjár unn- ið saman hér eftir sem hingað til á grundvelli stefnuskrár Kvenna- listans en Kristín Astgeirsdóttir segist vera að íhuga stöðu sína. „Það er auðvitað erfitt að vera þingmaður Kvennalistans og al- gjörlega á móti því sem samtökin eru að gera. Þessi samþykkt boðar stefnubreytingu. Nú er ég, sem gerði upp við flokkakerf- ið íyrir 15 árum, ekki síst sósíal- ismann og arf hans, allt í einu komin í vinstri flokk. Kvenna- listinn er búinn að stilla sér upp við hliðina á A-flokkunum, en var stofnaður sem hreyfing sem reyndi að tala máli allra kvenna,“ segir Kristín. Hún segir að þótt framtíðin sé óviss, sé að sumu leyti mikill léttir að loks hafi fengist niðurstaða í þessari löngu og erfiðu umræðu. Tímamtít Atkvæðagreiðslan markar tíma- mót í starfi Kvennalistans í ýms- um skilningi. Samtökin hafa til þessa forðast atkvæðagreiðslur eins og heitan eldinn og rætt ágreiningsmál þar til sameigin- leg niðurstaða fékkst. Eftir því sem næst verður komist hafa aldrei verið greidd atkvæði um stórmál af þessu tagi fyrr og aldrei verið viðhaft nafnakall eins og gert var um helgina. Meðal þeirra sem greiddu at- kvæði gegn samfylkingu voru ýmsar þeirra sem starfað hafa hvað lengst með Kvennalistan- um, t.d. Kristín Einarsdóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson fyrr- verandi þingkonur, Elín G. Ólafsdóttir og Þórhildur Þor- Ieifsdóttir fyrrverandi borgarfull- trúar og varaþingmennirnir Mar- ía Jóhanna Lárusdóttir og Sigríð- ur Lillý Baldursdóttir. I hópi þeirra sem samþykktu eru Jóna Valgerður Krist- jánssdóttir, fyrrverandi þing- kona, og borgarfulltrúarnir Steinunn V. Óskarsdóttir og Guðrún Agústsdóttir og einnig margar konur sem eru tiltölulega nýbyrjaðar að starfa með Kvennalistanum. -VJ Þarf Geysir að bíða Suð- urlands- skjálfta? Svo gæti farið að Suðurlands- skjálfti reyndist blessun fyrir Geysi sem er löngu hættur að geta gosið án utanaðkomandi aðstoðar. Gossaga Geysis er ekki að fullu leyti kunn en fyrstu skrif- uðu heimildir um hverasvæðið í Haukadal eru frá árinu 1294. Helgi Torfason hjá Orkustofnun segir að hverinn hafi nánast ver- ið hættur að gjósa árið 1915. Grafin hafi verið rauf árið 1935 og síðan hafi sápa mikið verið notuð til að hjálpa honum þótt stundum hafi hann gosið að- stoðarlaust. Arið 1982 var rauf- in orðin nánast full. Athygli vekur að fyrsta til- raunin til að setja sápu í Geysi var árið 1894 þegar 10 pund fóru ofan í hann. A 20. öldinni hafa menn að mestu leyti haldið sig við 50 kíló, líkt og gert var í mótmælaskyni síðastliðinn föstudag. Líftími hvers er tak- markaður og ef síðasta sápan hefur „dottið“ ofan í Geysi eru líkur á að hann hafi lifað sitt skeið. Þó eru líkur á að hressilegur Suðurlandsskjálfti gæti haft já- kvæð áhrif að sögn Helga. „Jarð- skjálftar hrista upp í aðfærslu- æðum og hreinsa út. í Suður- landsskjálfta gætum við e.t.v. fundið einn jákvæðan flöt í þeim hörmungum sem annars gætu dunið yfir,“ segir Helgi. -BÞ Kærir Neytendasam- tökin fýrir stuld Mágujr Jóhaimesar Giuinarsson fjölfald- aði ólöglegan húnað fyrir Neytendasamtök- in að sögn Vilhjálms Inga. Bæjarfulltníar eru hátíð miðað við Vilhjálm, segir for- maður Neytendasam- takanna. Vilhjálmur Ingi Arnason hefur ákveðið að kæra Neytendasam- tökin fyrir stuld á tölvuhugbún- aði til lögreglunnar. Erindið er komið í vörslu lögreglu og nær til búnaðar samtakanna um allt land. „Eg hef fengið staðfest að hug- búnaðurinn sé ólöglegur og hann er ekki bara notaður á Akureyri heldur um allt land. Mágur Jó- hannesar Gunnarssonar fjölfald- aði þetta og þegar ég reyndi inn- an samtakanna í framkvæmda- stjórn að fá botn í málið, var mér vikið frá áður en það var tekið fyrir. Það er betra að fórna ein- um en mörgum en ég ætla ekki að vera neinn ómerkingur í þessu og kæri nú til Iögreglu til að hið sanna komi í ljós,“ segir Vil- hjálmur Ingi. Hann segir jafn- framt að alveg nýverið hafi sam- „Ég ætla ekki ad vera neinn ómerking- ur í þessu máli og kæri nú tii lögreglu til að hid sanna komi i Ijós, “ segir Vil- hjálmur Ingi Árnason. „ Vilhjálmi verður að iærast að einstaklingurinn er ekki aðalatriðið í neytendaþjónustu heldur það sem fengist er við, “ segir Drífa Sigfúsdóttir. tökin enn frantið lögbrot með nýrri fjölfjöldun á búnaði og sparað sér stórfé. Vilhjálmur lagði eftirfarandi tillögu fyrir stjórn Neytendasam- takanna 25. október sl. „Stjórn Neytendasamtakanna ávítar framkvæmdastjóra samtakanna alvarlega, fyrir að láta starfs- menn Neytendasamtakanna nota ólöglegan tölvubúnað." Þessi tillaga kostaði hann sæti í framkvæmdastjórn þegar hann var „tekinn af lífi“ um helgina, eins og hann orðar það. Drífa Sigfúsdóttir, formaður Neytendasamtakanna, vísar því á bug, en segir nánast vonlaust að vinna með Vilhjálmi. „Ég hef ekki orðið vör við að hann geri sér grein fyrir ákveðnum siða- reglum og því miður hefur trún- aðarbrestur hans verið alvarlegs eðlis. A síðustu mánuðum hafa Vilhjálmi verið gefin öll tækifæri sem hægt er að gefa og jafnvel fleiri en allt kemur fyrir ekki. Ég er búin að vera lengi í pólitík og get sagt að bæjarfulltrúar eru há- tíð miðað við Vilhjálm, þeir skjóta ekki undir beltisstað. Vil- hjálmi verður að lærast að ein- staldingurinn er ekki aðalatriðið í neytendavernd heldur það sem fengist er við,“ segir Drífa Sigfús- dóttir. Framtíð Vilhjálms f neytenda- starfi á Akureyri er óbreytt að hans sögn og hann segir næsta verkefni að hjálpa nýjurn starfs- manni á nýrri skrifstofu á Akur- eyri. Vilhjámur er enn í stjórn samtakanna og segir hann að ekki standi til að segja sig úr samtökunum. Nk. fimmtudags- kvöld verður haldinn opinn fundur á Fiðlaranum á Akureyri þar sem Vilhjálmur mun kynna ýmsa starfsemi á liðnum árum. - BÞ Vilja styrkja efni- lesja námsmenn Níu þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram þingsályktunar- tillögu um að fela menntamálaráð- herra að undir- búa stofnun styrktarsjóðs námsmanna. I greinargerð segir að tilgangurinn eigi að vera að veita efnilegu námsfólki styrki til náms og að styrktarsjóðnum sé ekki ætlað á neinn hátt að koma í staðinn fyrir Lánasjóð ís- lenskra námsmanna. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði stofnaður í samvinnu við sveitarfélög, félagasamtök, vinnuveitendur, launþegasam- tök og námsmenn. Fyrsti flutn- ingsmaður er Hjálmar Arnason, Framsóknarflokki. Launaþróim hjá ríkinu Tíu þingmenn stjórnarandstöð- unnar hafa óskað eftir skýrslu frá fjármálaráðherra um þróun launa hjá ríkinu, með tilliti til launamunar karla og kvenna. Þar komi m.a. fram hvað hafi verið gert til að draga úr launa- mun kynjanna hjá ríkinu, hvort kjarasamningar undanfarinna 2 ára hafi dregið úr honum, eins og haldið hafi verið fram og hvort konum hafi fjölgað í hópi embættismanna. Kristín Ást- geirsdóttir, Kvennalista, er fyrsti flutningsmaður þessa þingmáls. Yfirtaka Kefla- víkurflugvallar Sex þingmenn Alþýðubandalags og Kvennalista vilja að skipuð verði nefnd fulltrúa allra flokka til að ræða við bandarísk stjórn- völd um að Islendingar taki við rekstri Keflavíkurflugvallar áður en gildandi samkomulag um umfang starfseminnar rennur út. Þingmennirnir telja að vegna breyttra aðstæðna í heiminum og í ljósi þess að Bandaríkja- menn vilji draga úr umsvifum sínum hér, hafi nú skapast sögu- legt tækifæri til að sætta þjóð- ina, sem hafi um árabil verið klofin í afstöðu til hersins, með því að hann hverfi af landi brott. Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti flutningsmaður. Smáuarhlettur Biðlistarnir eftir hjúkrunarrými fyrir aldraða í Reykjavík eru smánarblettur á velferðarkerfinu, sagði Svavar Gestsson, þing- maður Alþýðu- bandalagsins, í fyrirspurnartíma á Alþingi. Hann spurði heilbrigðisráðherra hvað ríkisstjórnin hyggðist gera til að bæta ástandið sem væri mjög al- varlegt. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, sagði að verið væri að taka á þessum mál- um og á næsta ári yrði veitt 300 milljónum króna í rekstur nýrra heimila. Svavar Gests- son.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.