Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 5

Dagur - 18.11.1997, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAG UR 18.NÓVEMBER 1997 - S FRÉTTIR L Sameiníngamlji Esk- fírdinga kom á óvart Áhugi manna va~ mikill fyrir kosningarnar og fundir fjölsóttir. Afdráttarlaus samein- ingaviiji nær alls staðar kom þó á óvart. Úrslit kosninga um sameiningu Eskifjard- ar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar voru meira afgerandi en reiknað var með, sér- staklega á Eskifirði þar sem 61% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já. Kosningaþátttakan var mest á Eskifirði, eða 83,1%, og sögðu 340 eða 60,6% já en 216 eða 38,5% nei en auðir og ógildir voru 5. A Neskaupstað var kosn- ingaþátttakan minnst, eða 69%. Þar sögðu 646 eða 82% já en 127 nei eða 16% en auðir og ógildir voru 14. Á Reyðarfirði kusu 82,8% og sögðu 276 eða 70% já en 108 eða 28% nei. Auð- ir og ógildir voru 14. Sameining- una samþykktu því 1.262 gegn 451. Kosin verður 11 manna bæjarstjórn hins nýja sveitarfé- lags í maímánuði 1998 og í kjöl- farið tekur sameiningin gildi. Smári Geirsson, forseti bæjar- stjórnar Neskaupstaðar, segir að úrslitin hafi verið meira afger- andi en hann hafi búist við, sér- staklega á Eskifirði þrátt fyrir að hinn neikvæði tónn hafi verið nokkuð áberandi þar. „Eg held að fylgnin með sameiningu hafi verið að aukast síðustu vikuna og mér er sagt að fundurinn á Eski- firði hafi haft þar mikil áhrif, jafnvel úrslitaáhrif og sá mál- flutningur sem fylgdi dagana þar á eftir. Það hafa heyrst margar tillögur um nafn á nýja sveitarfé- lagið, ekki síst Austurbyggð, en fólk er mjög frjótt og er að reyna að finna samnefnara svæðisins, bæði í austrinu og fjörðunum," sagði Smári Geirsson. Emil Thorarensen, bæjarfull- trúi á Eskifirði, barðist gegn sameiningu sveitarfélaganna. Hann bjóst við allt til loka kjör- fundar að sameiningin yrði felld. „Fólk virtist ekki varða þessi mál enda fór kynningin mjög seint af stað og var aðallega fólgin í því að sveitarstjórnirnar gáfu út bæklinga sem áttu að tíunda kosti og galla sameiningar, en þar er ekkert minnst á gallana þrátt fyrir að þeir séu kostaðir af bæjarsjóðunum. Þau rök að hægt væri að draga úr fólksflótt- anum og veita meiri þjónustu virðast hafa hrifið auk þess að stórðiðja kæmi ef sameinað væri,“ sagði Emil Thorarensen. - GG anfekk sekt Landabruggari hefur í Héraðs- dómi Reykjavíkur verið dæmdur til 300 þúsund króna sektar, en í forsendum dómsins kemur fram að gengið er út frá að aðeins sé sannað að hluti af bruggi manns- ins hafi verið sterkt áfengi. Maðurinn var tekinn sl. vor og fundust hjá honum 32 lítrar af landa og 211 Iítrar af gambra, en auk þess viðurkenndi maðurinn við yfirheyrslur hjá lögreglunni að hafa frá haustinu áður fram- leitt 250 til 300 lítra af „áfengi", sem hann sagði að meðaltali 40% að styrldeika. Þessa tilteknu játningu dró hann til baka fyrir dómi og taldi dómarinn að ekki lægi fyrir sönnun um styrkleika þessa hluta bruggsins. Hann var sakfelldur fyrir bruggun á 50 til 60 Iítrum af Ianda og hlaut sem fyrr segir 300 þúsund króna sekt. - FÞG Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, forsetafrú, var viðstödd tónleika í Kristskirkju í Landakoti í Reykjavik sl. sunnudag, ásamt eigin- manni sínum, Óiafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands. Þetta er í fyrsta sinn síðan í september sem hún kemur fram opinber- lega, en þá var tilkynnt að hún hefði veikst af bráðahvítblæði. Tilkynnt var fyrir skömmu að góður árangur hefði náðst í læknis- meðferð Guðrúnar Katrínar og koma hennar í Kristskirkju er staðfesting þess. Mynd: Pjetur. Víðtæk sajneining í Skagafirði Formaður sameining- amefndar í Skagafirði telur Skagfírðinga hafa verið mjög skyn- sama í kjörklefanum á laugardaginn í ljósi þess að áform um sameiningu 11 sveit- arfélaga gengu eftir. Það kom nokkuð á óvart að úrslit sameiningarkosninganna í Skagafirði skyldu vera svona af- gerandi í átt til sameiningar þrátt lýrir að svona kosningar séu töluvert tilfinningamál þar sem rökfærsla dugir stundum skammt til að sannfæra andmælanda um að hann hafi á röngu að standa. Minnstur var munurinn í Lýt- ingsstaðahreppi og það var raun- ar eina sveitarfélagið þar sem samþykktin stóð tæpt, munaði aðeins tveimur atkvæðum og einnig voru tveir seðlar auðir eða ógildir og leikur sjálfsagt ein- hverjum forvitni á að vita hverjir áttu þá atkvæðaseðla. Mestur var munurinn í Viðvíkurhreppi þar sem 38 sögðu já en 2 nei. Bjarni Egilsson, oddviti Skef- ilsstaðahrepps og formaður sam- einingarnefndar, er mjög ánægð- ur með niðurstöðuna og telur íbúa Skagafjarðar hafa verið mjög skynsama í kjörklefanum á laugardaginn. Ávinningurinn sé fyrst og fremst sá að með þessum úrslitum verður Skagafjörður ein samstæð heild og hægt verður að vinna að ýmsum málum á mun markvissari hátt. Auk þess verði þetta nýja sveitarfélag mun öfl- ugri málsvari út á við. Urslitin voru sem hér segir: Heildarkjör- sókn í sameiningarkosningunum í Skagafirði á laugardag var 57,1%, 1.393 eða 76% sögðu já en 449 eða 24% sögðu nei. í Fljótahreppi var kjörsókn 71%, 66 sögðu já en 5 nei; í Seylu- hreppi var kjörsókn 69%, 108 sögðu já en 40 nei; í Skarðs- hreppi var kjörsókn 82%, 37 sögðu já en 24 nei; í Rípurhreppi var kjörsókn 92%, 33 sögðu já en 27 nei; í Staðarhreppi var kjör- sókn 79%, 51 sagði já en 18 nei; í Skefilsstaðahreppi var kjörsókn 94%, 22 sögðu já en 10 nei; í Hólahreppi var kjörsókn 66%, 59 sögðu já en 6 nei; í Viðvíkur- hreppi var kjörsókn 76%, 38 sögðu já en 2 nei, í Hofshreppi var kjörsókn 66%, 127 sögðu já en 48 nei, í Lýtingsstaðahreppi var kjörsókn 82%, 78 sögðu já en 76 nei og á Sauðárkróki var kjör- sókn minnst eða 52%, 774 sögðu já en 193 nei. — GG Fjöldahandtök- ur á Dalvík Átta ungmenni voru handtekin vegna fíkniefnamála á Dalvík í fyrradag. Um ræðir neyslu á hassi og svokölluðu Poppers eða rush sem er mjög skaðlegt og reyndar ekki flokkað með fíkniefnum heldur eiturefnum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kemst upp um neyslu Poppers, en nokkuð er lið- ið frá því að efnisins varð síðast vart á landinu. Poppers er náskylt glyserýni og hefur sprengiáhrif á líkamann. Hjartsláttur og blóðflæði eykst verulega við neyslu, efnið getur valdið bráðageðveiki og jafnvel dauða. Ungmennin sem viður- kennt hafa neyslu eru í kringum 17 ára aldur. Þá var einn maður handtekinn og kærður á Akureyri á föstudag fyrir að kaupa áfengi fyrir ungl- inga í vínbúð ÁTVR. Að sögn Daníels Snorrasonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, stendur til að auka eft- irlit með þessu á næstunni. — BÞ Persónulegt mál „Eg hef ekki séð þessa niður- stöðu, en vil taka fram að Slysa- varnafélaginu ber skylda til að upplýsa skattinn um fjárreiður sínar og greiðslur til einstaklinga. Að öðru Ieyti er þetta persónulegt mál Hálfdáns gagnvart skattyfir- völdum,“ segir Gunnar Tómas- son, forseti Slysavarnafélags ís- lands. Dagur greindi frá því í síðasta helgarblaði að eftir nær þriggja ára málarekstur í skattkerfinu hefði Hálfdán Henrysson fengið uppreisn æru hjá yfirskattanefnd. Nefndin hafði til umfjöllunar skattlagningu á bótagreiðslum til Hálfdáns, en hann fékk 750 þús- und króna bætur vegna þess að Slysavarnafélagið sagði honum upp störfum. 1 samningum um bæturnar var kveðið á um að þær væru skattlausar, en eftir sem áður beindi Slysavarnafélagið er- indi til skattyfirvalda, sem Hálf- dán túlkaði sem kæru um skatt- svik. Skattur var lagður á bæturn- ar, en nú hefur Hálfdán fengið þær greiðslur til baka, 320 þús- und krónur og skattyfirvöld viður- kennt að ekki hafi borið að greiða skatt af bólunum. - FÞG Jafnréttiskæra upp á milljómr Málshöfðun kærunefndar jafn- réttismála, fyrir hönd Guðbjargar Önnu Þorv'arðardóttur, gegn rík- issjóði var í gær tekin fyrir til að- almeðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Guðbjörg Anna kref- ur ríkissjóð um 10 milljóna króna bætur. Mál þetta má rekja til haustsins 1993 er auglýst var staða héraðs- dýralæknis í Mýrasýslu. Guðbjörg Anna var á meðal umsækjenda og sérstök hæfnisnefnd um stöðu dýralækna mat hana hæfastan umsækjenda. En Rúnar Gíslason var ráðinn, en hann sagði stöð- unni hins vegar lausri fljótlega vegna mótmæla og þrýstings í þá átt að Gunnar Gauti Gunnarsson fengi stöðuna. Gunnar fékk stöð- una og Iítur Guðbjörg því svo á að henni hafi tvívegis verið hafnað þótt hún teldist hæfasti umsækj- andinn. Kærunefnd jafnréttismála gerir ekki kröfu til þess að ráðning Gunnars Gauta verði dæmd ógild, heldur að meðferð málsins verði dæmd ólögmæt og Guð- björgu dæmdar 10 milljóna króna bætur. - FÞG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.