Dagur - 18.11.1997, Side 8

Dagur - 18.11.1997, Side 8
8- ÞRIÐJUDAGUR 1 8 .NÓVEMBER 1997 FRÉTTASKÝRING Meistaraverk eða málni FKIÐRIK ÞOR GUÐMUNDS- SON SKRIFAR Hafa tveir meiin stimdað þá iðju að falsa málverk og eigna þau Kjarval og öðrum íslenskum meistur- um? Ríkislögreglan skoðar nú eigendasög- ur 25 málverka og gögn GaUerís Borgar þar að lútandi, en Ólafur Ingi Jónsson forvörður segir að verkin séu upp til hðpa fölsuð og segist vita hver eða hverjir hafi falsað þau. Ibúar listaheimsins bíða nú með krosslagða fingur eftir niðurstöð- um rannsóknar Ríkislögreglu- stjóra á kærum út af meintri föls- un 25 málverka. Það yrði að sjálf- sögðu listrænt áfall ef öll þessi verk eða stór hluti þeirra reynd- ust fölsuð, en sýnu verra er, að þarna er aðeins talað um toppinn á hugsanlegum ísjaka; fölsuð málverk gætu verið um 200 hér á landi og verðmæti þeirra (fram að þessu) talið geta hlaupið á bilinu 50 til 200 milljónir króna. Grunur leikur á að falsanirnar megi rekja til minnst tveggja ein- staklinga, manna sem stundað hafa að stæla látna íslenska meistara. Er annar þeirra talinn hafa stundað iðju sína í Kaup- mannahöfn, að minnsta kosti um skeið. Af ofangreindum 25 verkum hafa öll nema eitt farið um hend- ur uppboðshaldara Gallerís Borg- ar, en enginn hefur þó enn hald- ið því fram að Gallerí Borg sé beinn aðili að sjálfum fölsunun- um. Olafur Ingi Jónsson forvörð- ur, sem hefur beitt sér manna mest í málinu - og kært megin- hluta verkanna með leyfi eigenda þeirra - hefur hins vegar gagnrýnt Gallerí Borg og eigenda þess, Pétur Þór Gunnarsson, og ítrek- að kallað eftir eigendasögu og upprunaferli verkanna. Aðeins vafi uni fjögur eða flnun verk? „Ég vil lítið tjá mig um þetta mál á meðan rannsókn þess stendur yfir. En ég get upplýst að upp- runaferill flestra þessara mál- verka liggur nú fyrir og í raun er uppruni aðeins fjögurra eða fimm verka á reiki,“ segir Pétur Þór í samtali við Dag. Pétur hafnar þeim möguleika að fjöldi verka kunni að vera föls- un. „En það væri heimskulegt af mér að útiloka að einhver fölsuð verk gætu verið í umferð. Þar erum við að tala um vandamál sem er glímt við um heim allan. Minna má á að dýrasta verk heims, Sólblóm Van Gogh, eru af mörgum talin fölsuð og það á við um fleiri þekkt málverk. Þetta er alþjóðlegt vandamál. Það er hins vegar gjörsamlega út í hött að halda því fram eða gefa í skyn, eins og sumir samkeppnisaðilar Gallerís Borgar hafa gert, að ég sem eigandi Gallerís Borgar eða menn á mínum vegum standi í fölsun verka og að falsanir hér á landi hlaupi á hundruðum millj- óna króna,“ segir Pétur. Ólafur Ingi Jónsson, forvörður og upphafsmaður að rannsókn málsins, segir það gott ef eig- endasaga meintra falsana sé að skila sér til rannsóknaraðila. „Þeir munu síðan komast að sannri og réttri eigendasögu. í mínum huga getur það aldrei staðist að þessi verk verði rakin til þeirra listamanna sem sagðir eru höfundar þeirra. Því er ég sann- færður um að þær upplýsingar sem boðið er upp á muni hjálpa við að upplýsa um hverjir standa að baki þessum ófögnuði. Ég full- yrði sem sérfræðingur að þetta eru fölsuð verk og er sannfærður um að það sem Pétur Þór er að skila inn muni aðeins bæta við upplýsingum um falsanir þeirra.“ Minnst tveir hafa falsað verkm Ólafur neitar að hann sé sam- keppnisaðili Gallerís Borgar. „Pétur getur ekki átt við mig í þessu samhengi. Honum til hug- hreystingar tek ég fram að það skiptir engu máli hvort uppboðs- fyrirtækið heitir Gallerí Borg, Bruun Rasmussen, Sothebys eða Christies. Eg hefði alltaf upplýst um meintar falsanir á einn eða annan veg og minni á að þessi rannsókn mín byrjaði þegar ég var að skoða verk frá Bruun Rasmussen en ekki Gallerí Borg.“ Veit Ólafur hver eða hveijir hafa málað umrædd verk? „Já, þeir eru minnst tveir og ég tel mig vita hverjir þeir eru. En ég vil líkja þessum meintu fölsunum við opið og djúpt sár. Mér hefur tekist að stöðva blæðinguna, en það er hlutverk Ríkislögreglunnar og Gallerís Borgar að sauma sár- ið saman. Og það er hlutverk ráðuneyta mennta-, viðskipta- og dómsmála að búa svo um sárið að svona endurtaki sig ekki um alla framtíð." Pétur Þór er ekki hræddur um framtíð síns fyrirtækis. „Eg veit ekki hvort tala megi um að tor- tryggni gæti í garð Gallerís Borg- ar. Ef til vill heldur fólk eitthvað að sér höndum hvað látna lista- menn varðar, en við höfum verið að selja geysivel að undanförnu. Það er eðlilegt að ýmsum þyki skrítið að öll þessi verk nema eitt hafi verið seld í Gallerí Borg, en það má ekki gleyma því að þetta hefur verið eina uppboðsfyrirtæk- ið hér á landi um margra ára skeið eða síðan Klausturhólar hættu.“ Litlar upplýsingar var að fá um málið hjá Ríkislögreglpnni. „Ég get aðeins staðfest að 25 málverk hafa verið kærð. Fyrst þrjú verk í mars sk, síðan 20 verk í júní og á dögunum bárust tvær kærur til viðbótar. Allar kærurnar koma frá sama lögfræðingnum og eru til rannsóknar," segir Arnar Jensson hjá ríldslögreglunni. Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Lístasafns Reykjavíkur, t húsakynnum Kjarvalsstaða. L Verst að velkjast í vafa Listasafn Reykjavíkur (Kjarvals- staðir o.fl.) er eigandi 11 þeirra verka sem grunur leikur á að séu fölsuð. Þar af eru fimm myndir sagðar eftir Jóhannes Kjarval, ein mynd sögð eftir Jón Stefánsson, þrjár myndir sagðar eftir Þórar- inn B. Þorláksson, ein er eignuð Svavari Guðnasyni og ein eignuð Mugg. Eiríkur Þorláksson for- stöðumaður staðfestir að öll verk- in hafi komið frá Gallerí Borg. „Það er mjög mikilvægt að fá óyggjandi upplýsingar um málið sem allra fyrst og þá með óvé- fengjanlegum úrskurði. Ef rétt er að málverkin hafi verið rang- feðruð þá er enn mikilvægara að fá úr því skorið hver þar hefur átt hlut að máli,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir að ekki sé hægt að segja að mjög miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi fyrir Lista- safn Reykjavíkur. „Þessí verk okk- ar hafa að meðaltali verið verð- lögð á 200 til 300 þúsund krónur og þá í heild á tvær til þrjár millj- ónir króna. Verra er að velkjast í vafa og því brýnt að fá úrskurð sem fyrst og þá ekki síður, ef verkin reynast fölsuð, hver eða Ég get upplýst að upprunaferill flestra þessara málverka liggur nú fyrir og i raun er uppruni aðeins fjögurra eða fimm verka á reiki, “ segir Pétur Þór t samtali við Dag.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.