Dagur - 18.11.1997, Síða 12

Dagur - 18.11.1997, Síða 12
12- ÞRIÐJUDAGUR 18.NÓVEMBER 1997 ÍÞRÓTTIR L. j Brotnir Stólar Keflvíkiiigar imnu fá- sédan yfirburðasigur á heillum horfnu Tindastólsliðiuu í úr- slitaleik Eggjabikars- ins. Lökatölnmar, 111-73, segja meira til um yfirburði Kefl- víkinga en nokkur orð. Keflvíkingar voru lengi að koma sér í gang í úrslitaleiknum. Eftir- tæplega fimm mínútna leik var staðan 2-4 fyrir Tindastól og fátt benti til að skemmtilegur leikur væri í vændum. Mistök og hnoð voru í fyrirrúmi þar til Keflvík- ingurinn Gunnar Einarsson tók af skarið og setti niður tvær þriggja stiga körfur í röð. Þar með fann hraðlestin beinu brautina og leit ekki um öxl eftir það. A fjórum mínútum breyttist staðan í 17-4 og Stólarnir stóðu í eltingaleik það sem eftir var. Leikur þeirra var vonlaus og ekk- ert sem þeir reyndu gekk upp. Hittnin var hörmuleg og vörnin góða, sem færði þeim sigurinn á UMFN, var týnd og í tröllum gefin. Guðjóns þáttur Skúlasonar Eftir að Gunnar Einarsson gaf félögum sínum tóninn var það fyrirliðinn, Guðjón Skúlason, sem tók við og fór fyrir sínum mönnum. Hann átti stórkostleg- an fyrri hálfleik og skoraði þá 24 af 26 stigum sínum í leiknum. Þar fyrir utan átti hann góðar sendingar og hraðabreytingar hans settu Stólana úr jafnvægi. I seinni hálfleik kom Kristján Guðlaugsson sterkur inn. Bar- átta oghungur í sigur er aðals- merki hans og hann sveik ekki í úrslitaleiknum. Fjórar þriggja stiga körfur lágu hjá honum á stuttum tíma og alls nældi hann í 22 stig í leiknum. Fannar Ólafsson, ungur strák- ur sem kom frá Laugdælum í haust, kom einnig mjög sterkur inn hjá Eggjabikarmeisturunum. Hann spilaði feikna góða vörn á Spánverjann, Naranjo, og sýndi oft ágæt tilþrif í sókninni. Fram- tíðar maður þar á ferð og Kefl- víkingar eru ekki á flæðiskeri staddir með miðherja þar sem Fannar og Birgir Örn eru, en Birgir átti einnig fínan leik í úr- slitunum. Torrey Johii í blindflugi Torrey John, sem flaug hátt í undanúrslitaleiknum á móti Njarðvík, flaug blindflug að þessu sinni. Hann var nánast ósýnilegur í þessum Ieik og skor- aði aðeins 9 stig í fyrri hálfleik og 7 stig í þeim seinni. Það er stærri sveifía en Tindastólsliðið ræður við, 36 stigum færra en í undan- úrslitaleiknum. Aðrir leikmenn Stólanna voru á sama plani, þeir komu til að horfa á en ekki að hirða fyrsta bikarinn sem þeir áttu möguleika á. Það var engu líkara en liðs- menn væru sáttir við frammi- stöðuna í leiknum við UMFN og létu sér það nægja. Þeir mega ekki gleyma því að enginn man eftir silfurliðinu eftir> nokkrar vikur. Það er gullið sem gildir og fyrir því þarf að berjast. — GÞÖ Liósheildin vann þennan leik Gunnar Einarsson var sá sem velti steininum úr stað. Og steinninn hélt áfram að velta. „Auðvitað er ég ánægður. Eg er alltaf ánægður þegar kemur litill til Keflavfkur. Það var mikið stress á okkur fyrstu mínúturnar. En við héldum haus og þá fór þetta allt að ganga.“ - Þú braust ísinn með tveim þriggja stiga körfum í röð. Hvernig var tilfinningin þegar þú tókst ákvörðun um að Iáta vaða á körfuna? „Þótt stressið sé mikið verður maður að halda haus. Maður verður að hafa sjálfstraustið í Iagi og taka á þegar á þarf að halda. Við fengum góðar körfu úr þessu og þá kom þetta allt á eftir. Fairnar Ólafsson Fannar Ólafsson kom sterkur inn í lið Keflvíkinga í sínum fyrsta stórleik. Hann lék feikna góða vörn á stóru mennina hjá Stólunum og skilaði sínu í sókn- inni. Hvað fannst honum um leikinn? „Þetta var alveg frábært. Eg átti alveg von á þessu. Við fórum í þetta til þess að vinna. Jú, ég er nokkuð ánægður með minn íeik en ég er ekki eins ánægður með alla dómana sem ég fékk á mig. Ég er náttúrulega ungur enn og verð að sanna mig, bæði fyrir fé- lögunum og dómurunum. Þetta gengur víst þannig fyrir sig.“ - Hvernig fannst þér að leika á móti Torrey og Jose Maria í þess- um leik? „Það var náttúrulega erfitt, en það er erfiðara að spila á móti Dana og Birgi þannig að ég hef kynnst sterkum mönnum á æf- ingum," sagði Tungnamaðurinn ungi í sigurgleði. Guðjón Skúlason. Kristján Guðlaugsson Kristján setti sannarlega mark sitt á seinni hálfleikinn með mjög góðri innkomu. Fjórar þriggja stiga körfur Iágu hjá hon- um á stuttum tíma auk þess sem hann barðist eins og Ijón í vörn- inni. „Það var liðið sem vann þenn- an sigur. Við spiluðum vel saman og þess vegna vannst þetta. Við erum með mjög gott lið ef við spilum saman. Við skorum bara 2 stig fyrstu fjórar mínúturnar en endum leikinn með I I i stig- um. Það sýnir hvað hægt er að gera ef allir leggja sig fram og spila saman.“ - Þú fannst þig vel í leiknum. „Já, ég fann mig mjög vel í Ieiknum. Þetta er besti leikur sem ég hefnokkurn tímann spil- að með Keflavík." — GÞÖ Italir og Belgar í lokakeppnl HM Ítalía, Júgóslavía, Belgía og Króatía urðu síðustu Evrópu- þjóðirnar til að tryggja sæti sín í lokakeppni HM í knattspyrnu á næsta sumri. Þrjár aðrar þjóðir, Japan, Chile og Jamaíka, tryggðu sér farseðilinn til Frakklands um helgina og það er því ljóst hvaða 32 lið taka þátt í lokakeppninni. Pierluigi Casiraghi skoraði sig- urmark Itala gegn Rússum í síð- ari hálfleik í viðureign liðanna í Róm og það var aðeins mark- varsla Sergei Ovchinnikov sem kom í veg fyrir að mörk heima- manna yrðu fleiri. Jafnt var í fyrri leiknum í Moskvu, 1:1. Annað Sovétlýðveldi, Ukraína, féll einnig úr keppninni eftir 1:1 jafntefli gegn Króatíu í Kiev. Fyrri Ieiknum lyktaði með 2:0 sigri Króata og þeir fara því með lið sitt til Frakklands. Luc Nilis, leikmaður PSV, kom Belgum í lokakeppni HM með því að skora sigurmarkið á 68. mínútu í 2:1 sigri gegn Irum í Brussel. Luis Olivera, leikmað- ur Fiorentina, náði forystunni fyrir Belga en Ray Houghton jafnaði metin á 58. mínútu með glæsilegu skallamarld. Predrag Mijatovic skoraði Ijögur mörk íyrir Júgóslavíu sem lagði Ungverja 5:0. Leikurinn í Belgrad var formsatriði þar sem Júgóslavar unnu útileikinn 8:1. Þjóðhátíð í Jamaíka! Einnig var Ieikið um sæti í Asíu, þar sem Japan tryggði sér sæti í lokakeppninni. Þá komust Chile og Jamaíka áfram úr Suður-Am- eríkuriðlunum um helgina. Chile sigraði Bolivíu 3:0, en Jamaíka gerði markalaust jafn- tefli við Mexíkó og það dugði, þar sem E1 Salvador tapaði 4:2 fyrir Bandaríkjunum. Forsætis- ráðherra Jamaíka tilkynnti í sjónvarpi eftir Ieikinn að gær- dagurinn yrði almennur frídagur í landinu til að fagna árangrin- um, sem væri sá stærsti í sögu íþrótta í landinu. — FE Ragnheidur Runólfsdóttir. Ragnheiður hætt þjálfun Ragnheiður Runólfsdóttir, sem þjálfað hefur sundlið Keflavíkur ásamt Eðvarð Þór Eðvarðssyni á síðustu misserum, hefur sagt upp starfi sínu frá og með næstu áramótum. Ragnheiður hyggst flytja á æskustöðvarnar á Akra- nesi þar sem hún mun gerast framkvæmdastjóri útgerðarfyrir- tækis sem er í eigu fjölskyldu hennar. KNATTSPYRNA Þorvaldux Makan kominn heim Þorvaldur Makan Sigbjörnsson knattspyrnumaður kom heim um helgina eftir að hafa verið í reynslu hjá enska I. deildarlið- inu Stoke. Þorvaldur lék tvo leiki með varaliði félagsins. Búast má við því að Þorvaldur leiki hér á landi næsta sumar. Leifturs- menn hafa áhuga á að gera nýjan samning við Þorvald, en Vals- menn og Eyjamenn vilja einnig fá hann að samningaborðinu. - FE KARFA Biðst afsökunar! „Við erum náttúrulega í fyrsta skipti í úrslitaleik og við bara frusum. Menn eins og Gaui og Falur eru þaulvanir svona leikj- um og þeir einfaldlega rifu sína menn áfram. En þetta er byrjun- in. Nú vitum við hvað er að vera í úrslitaleik og við ætlum okkur ekkert annað en að vinna næst,“ sagði Ómar Sigmarsson. Sveiflan var mikil frá leiknum við Njarðvík. Voru menn ein- faldlega orðnir saddir og undu glaðir við árangurinn sem þegar hafði náðst? „Það getur vel verið að innst inni hafi menn verið orðnir ánægðir með það sem komið var. Okkur langaði náttúrlega í þennan bikar og gerðum allt sem við gátum. Það einfaldlega gekk ekkert upp hjá okkur að þessu sinni meðan þeir hittu úr öllum sínum skotum. Við vorum einfaldlega slakir í dag og ég bið áhorfendur okkar afsökunar á þesssari hörmung. Stuðningur þeirra var frábær og þeir áttu því betra skilið." — GÞÖ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.