Dagur - 18.11.1997, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 19 9 7 - 13
l^wr
ÍÞRÓTTIR
13 marka
taphjáKA
Islandsmeistarar KA máttu þola
þrettán marka tap, 36:23, fyrir
Badel 1862 í leik liðanna í Za-
greb á sunnudaginn. KA-menn
héldu í við króatíska liðið framan
af leiknum, en staöan var 18:1 1
í leikhléi. Sverrir Björnsson var
atkvæðamestur í liði KA með sex
mörk, en Karel Yala og Jóhann
G. Jóhannsson skoruðu fimm
mörk hvor. Næsti leikur KA í
riðlinum er 4. janúar en þá leik-
ur liðið gegn Generali Trieste, á
Ítalíu.
Úrslit lt'ikja um helgina:
A-riðilI:
Celje-Trieste 30:25
Badel 1862-KA 36:23
Staðan er Jiessi:
Badel 2 2 0 0
Celje 2 2 0 0
Gener. Trieste 2 0 0 2
KA 2 0 0 2
B-riðill:
ProseaAdem. Leon-
Red Star 40:21
Pfadi Winterthur-
Drammen 31:21
Bjarki Sigurðsson skoraði sjö af
mörkum Dramnten, sem tapað
hefur háðum leikjum stnum.
58:43 4
56:48 4
45:52 0
46:62 0
C-riðiIl:
Virum Sorgenfri-
ABC Braga 21:22
Barcelona-
Hapoel Rishon 42:17
D-riðill
Cabot Zubri-TBV Lemgo 22:27
Fotex Veszpr.-Jafa Pronet 27:22
Hver tekur
við stöðu
Gustafs?
Gústaf Bjarnason, handknatt-
leiksmaður úr Haukum, gekkst
undir hnéaðgerð á föstudaginn
og ljóst er að hann verður frá
keppni næstu Ijórar til sex vik-
urnar. Gústaf mun því ekki leika
með íslenska landsliðinu í leikj-
unum mikilvægu gegn
Júgóslavíu síðar í þessum mán-
uði og hann er annar vinstri
hornamaður landsliðsins sem er
úr leik. Björgvin Björgvinsson,
hornamaður I<A, er úr leik í bili
vegna kjálkabrots.
„Þetta er óneitanlega mjög
slæmt. Bæði Björgvin og Gúst-
af hafa verið lykilmenn í þessari
stöðu ásamt Konráð (Olavsyni)
og það er ljóst að það verður val-
inn nýr maður í hornið. Ljósi
punkturinn er hins vegar sá að
þetta er best mannaða staðan á
fslandi í dag, það er hægt að
velja úr svo mörgum sterkum
leikmönnum í þessa stöðu,“
sagði Þorbjörn Jensson, lands-
liðsþjálfari. Þorbjörn sagðist bú-
ast við að hann mundi tilkynna
lið sitt í dag eða á morgun. Fast-
lega er reiknað með því að ann-
að hvort Páll Þórólfsson eða
Guðmundur Pedersen komi inn
í hópinn. Páll átti stórleik með
Aftureldingu gegn Runar á
sunnudagskvöld og Guðmundur
hefur leikið mjög vel fyrir lið
sitt, FH, í vetur.
Stórleikur Páls
og Bergsveins
Afturelding tryggði sér sæti í 8-liða úrslituu-
um í Borgakeppni Evrópu á sunuudagskvöldið
með átta marka sigri á norska liðinu Runar í
síðari leiknum í MosfeHsbænum, 34:26.
Norska liðið hafði í fullu tré við
Aftureldingu á fyrstu tuttugu
mínútum leiksins. Mosfellingar
Iéku vörnina framarlega og það
gafst ekkert sérstaklega vel gegn
norska liðinu sem ógnaði vel í
hornunum og með gegnumbrot-
um. Hjá Aftureldingu var ógnun-
in að mestu vinstra megin og
norsku varnarmennirnir
gleymdu oftar en ekki að gæta
Skúia Gunnsteinssonar, sem
nýtti færi sín nijög vel af Iínunni.
Fátt benti til þess að Aftureld-
ing væri á leið í 8-liða úrslitin
eftir tuttugu mínútna leik, en þá
var staðan jöfn 10:10, en þær tíu
mínútur sem eftir voru til hálf-
leiks voru heimamönnum drjúg-
ar. Afturelding keyrði upp hrað-
ann og gestirnir duttu hreinlega
út úr leiknum. Sterkur varnar-
leikur, frábær tilþrif Bergsveins í
markinu og stórleikur Páls í
sóknarleiknum gerðu það að
verkum að norska liðið réði ekki
neitt við neitt. Staðan var 16:11
í leikhléi og segja má að Evrópu-
sætið hafi verið úr hættu þegar
Afturelding náði átta marka
mun, 22:14, eftir tíu mínútna
leik.
Páll hefur líklega aldrei leikið
betur fyrir Aftureldingu og það
sem meira er, flest allt sem hann
reyndi gekk upp. Bergsveinn var
firnasterkur í markinu, sérstak-
lega í síðari hálfleiknum og varn-
arleikurinn sterkur eftir að Mos-
fellingar bökkuðu aftur á línuna.
Þýskir dómarar voru frekar á
bandi Aftureldingar í leiknum,
þó það hafi ekki ráðið úrslitum.
Thormet Moldestat, miðjumað-
ur Runar, var atkvæðamesti mað-
ur norska liðsins með sex mörk.
Gangur leiksins:
3:3, 5:6, 10:7, 10:10 (16:11),
24:15, 24:18, 31:21, 34:26.
Mörk UMFA:
Páll Þórólfsson 12/1, Skúli
Gunnsteinsson 6, Einar Einars-
son 5, Sigurður Sveinsson 5,
Einar G. Sigurðsson 4, Gunnar
Andrésson l,Jason Olafsson 1.
Wuppertal yfirspilaði
Essen á heimavelli
Wuppertal yfirspUadi
Tusem Essen í íslend-
iugaslagnum í þýsku
1. deildinui í hand-
knattleih á laugardag-
inn og sigraði með sjö
marka mun, 27:20.
„Leikmenn Wuppertal voru ótrú-
lega öflugir í þessum leik og þeir
yfirspiluðu Essen, rneðal annars
nreð hraðaupphlaupum, sem
gengu mjög vel upp,“ sagði Þor-
björn Jensson landsliðsþjálfari,
sem fylgdist með þessum leik ís-
lendingaliðanna.
„Wuppertal var með sterka
vörn, með þá
Geir Sveinsson
og Stig Rask
sem sterkustu
menn og yfir
höfuð voru ís-
lensku Ieik-
mennirnir að
spila vel. Varn-
armenn Essen
fóru mikið út á
móti Ólafi (Stef-
ánssyni) og hann átti margar
sendingar sem gáfu mörk. Hann
var síðan tekinn úr umferð
ásamt Norðmanninum Rask og
þá losnaði um Dag (Sigurðsson)
sem gerði margt laglegt og vann
vel með Geir. Eftir að munurinn
var orðinn tíu mörk, fór Viggó
(Sigurðsson, þjálfari Wuppertal)
að skipta inn á varamönnunum,"
sagði Þorbjörn.
Ólafur og Dagur gerðu báðir
sex mörk fyrir Wuppertal í leikn-
um og Geir Sveinsson gerði tvö
mörk. Patrekur Jóhannesson
gerði fjögur af mörkum Tusem
Essen, en Hvít-Rússinn Alexand-
er Tutschkin var með níu mörk.
„Mér fannst Patrekur vera að
gera ágætishluti, en mér fannst
þjálfarinn vera á bakinu á hon-
um. Hann var oft að skamma
Patrek, á meðan að stórkóngar
eins og Tutschkin voru látnir í
friði, þó hann hafi gert enn fleiri
mistök. Það voru greinilega ekki
allir jafnir í liðinu og það er öm-
urlegt að horfa upp á svoleiðis,"
sagði Þorbjörn.
Bikarslagur í
Garðabænum
Bikarmeistarar karla í hand-
knattleik, Haukar, lentu gegn
Stjörnumönnum í Garðabæ í 16-
liða úrslitum keppninnar, sem
leikin verður helgina 5.-7. næsta
mánaðar. Dregið var á laugar-
daginn og lentu eftirtalin lið
saman:
Grótta/KR-Víkingur
Selfoss-Fram
Hörður Ísaf.-ÍBV
Valur/Austri-HK
ÍR-Valur
ÍR B-Afturelding
Stjarnan-Haukar
Fjölnir-Fylkir
Stjaman á toppnum
Stjarnan velti Haukum úr topp-
sæti 1. deildar kvenna í hand-
knattleik með sigri gegn
Gróttu/KR, á meðan Haukar
máttu þola óvænt tap gegn Vík-
ingi.
Úrslit urðu þessi:
Stjarnan-Grótta/KR 26:20
Fram-ÍBV 21:30
FH-Valur 18:18
Haukar-Víkingur 24:26
Staðan er nú þessi:
Stjarnan 9 6 2 1 221:180 14
Haukar 9 6 1 2 234:206 13
FH 9 4 2 3 187:182 10
Grótta/KR 8 4 2 2 162:16010
Víkingur 9 4 1 4 224:229 9
ÍBV 8 4 0 4 188:195 8
Valur 9 1 2 6 167:182 4
Fram 9 0 2 7 189:238 2
Tveir sigrar hjá Þór
Lið Þórs frá Akureyri gerði góða
ferð á suðvesturhornið um helg-
ina. Norðanmenn uppskáru fjög-
ur stig úr leikjum sínum og er á
toppnum í 2. deild karla í hand-
knattleik.
Hörður-Ármann 33:28
Fjölnir-Selfoss 27:27
Grótta/KR-Þór 15:21
Fvlkir-ÍH 31:30
HM-Þór 22:32
Staðan er nú þessi:
Þór 6 5 1 0 167:1 13 1 1
Fylkir 5 4 10 147:1 16 9
Selfoss 6 3 2 1180:145 8
Grótta/KR 4 2 11 115:100 5
Fjölnir 5 2 1 2 118:124 5
Hörður 5 2 0 3 133:132 4
HM 4 10 3 96:118 2
ÍH 5 0 0 5 125:165 0
Ármann 4 0 0 4 74:142 0
Grótta/KR mætir HM í kvöld kl.
20 í Iþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi.
Hvaða lið mætir UMFA?
Eftirtalin lið tryggðu sér sæti í 8
liða úrslitum í Borgakeppni Evr-
ópu um helgina:
IFK Skövde frá Svíþjóð,
Forst Brixen frá Ítalíu,
Wallau-Massenheim frá Þýska-
landi,
Benfica frá Portúgal,
Nettelstedt frá Þýskalandi,
Afturelding frá íslandi,
Pick Szeged frá Ungverjalandi,
Academia Octavio Vigo frá
Spáni.