Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 5

Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 26.NÓVEMBER 1997 - S FRÉTTIR Heilbrigðisþj ónusta óháð aldri og tekjum Aldraðir munu áfram hafa sama rétt til þjónustu og áður, en nefndin leggur áhersiu á jafnræði, óháð aidri og tekjum. Sjuklingar ekki látnir gjaldaþess að heilsu- leysi sé af völdum iifsstíls. Varað við sköttum á sjuklinga. Ný heilbrigðisáætlun í smíðum. Helsta nýrnæli í tillögum nefnd- ar um forgangsröðum í heil- brigðiskerfinu er að biðtími eftir jijónustu verði ekki meira en 3-6 mánuðir. Arlega verði varið 3-5% af fjárframlögum heilbrigðis- stofnana til tækjakaupa og end- urnýjunar á tæknibúnaði. Auk þess verði upplýsingakerfi heil- brigðisþjónustunnar samræmt og skapaðir möguleikar á teng- ingu tölvu- og upplýsingakerfa. Ábyrgð á eigin hcilsu Nefndin leggur jafnframt áherslu á að aðgengi að heil- brigðisþjónustu eigi að vera auð- velt og sem jafnast fyrir alla landsmenn, óháð aldri og tekj- um. Þá varar nefndin við því að einstaklingar verði látnir gjalda þess þótt heilsuleysi megi rekja til lífsstíls. I stað þess að skatt- leggja sjúklinga sé vænlegra til árangurs að skattleggja sérstak- lega heilsuspillandi varning og efla ábyrgð fólks á eigin heilsu. Þá sé mikilvægt að réttarstaða sjúklinga gagnvart heilbrigðis- þjónustunni sé tryggð og að starfsmenn haldi trúnað við sjúklinga. Auk þess verði fjar- lækningar nýttar til að jafna að- stöðumun á milli dreifbýlis og höfuðborgar. Þá þurfa fjárfram- lög að taka ríkara mið en ella af markmiðum þjónustunnar og öðrum faglegum viðmiðunum. Sfðast en ekki sfst eigi sú heil- brigðisþjónusta að hafa forgang þegar meðhöndla þarf alvarleg bráðatilfelli, lífshættulega sjúk- dóma og slys sem geta valdið dauða án læknisfræðilegrar með- ferðar. Ný heilbrigðisáætliui Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra sagði á blaðamanna- fundi í gær tillögur nefndarinnar verða sendar til umsagnar hjá fagstéttum og öðrum hagsmuna- aðilum. Á grundvelli þeirra mun nefndin síðan fá tækifæri til að yfirfara tillögur sínar og skila endanlegu áliti eigi síðar en 15. mars nk. Tillögurnar verða síðan lagðar til grundvallar starfi nefndar sem vinnur að endur- skoðun og endurbótum á nýrri heilbrigðisáætlun. I nefndinni áttu sæti 17 manns sem komu saman til 40 funda. Þar áttu allir stjórnmála- flokkarnir fulltrúa ásamt Neyt- endasamtökunum, Siðfræði- stofnun Háskóla Islands, Læknafélaginu, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Landssam- tökum heilsugæslustöðva og Landssambandi sjúkrahúsa. For- maður nefndarinnar var Ólafur Ólafsson landlæknir. — GRH Páll Pétursson segir opnað fyrir Rúm- ena finnist ekki íslendingar til að vinna störfin. Páll opnar á Rúmena Páll Pétursson félagsmálaráð- herra segir að dvalar- og atvinnu- leyfi fyrir 25 iðnaðarmenn frá Rúmeníu vegna Norðuráls á Grundartanga verði veitt ef ekki er sýnt fram á að iðnaðarmenn hér á landi muni manna stöðurn- ar. „Umsókn Norðuráls er nú með hóflegri tölu en áður, þeir sækja um leyfi fyrir 25 menn frá Rúm- eníu, en ekki 239 eins og í upp- hafi. Við munum ræða við hlut- aðeigandi aðila. Samiðnarmenn segja að hér sé nægur mannskap- ur til að manna þessi störf og ég mun láta reyna á það. Reynist þetta ekki rétt þá mun ég endur- skoða fyrri afstöðu, því ég héf engan áhuga á því að tefja upp- byggingu verksmiðjunnar," segir Páll. Ráðherra hitti fulltrúa iðnaðar- ins síðdegis í gær, en ákvörðunar er ekki að vænta strax. — FÞG Kæran iiiisskihiiiigiir Bæjarstjórinn á Sauðárkróki segir kæru vegna samein- ingarkosniuga hyggða á misskilningi. Snorri Björn Sigurðsson, bæjar- stjóri á Sauðárkróki, telur ómak- lega að sér og störfum bæjar- stjórnar vegið í kæru tveggja fyrr- verandi bæjarfulltrúa á Sauðár- króki sem hafa krafist að úrslit sameiningarkosningarinnar í Skagafirði á dögunum verði dæmd ómerk vegna fram- kvæmdagalla. „Þetta virðist nánast allt sam- an á misskilningi byggt. Það er rétt að þegar Erlendur Hansen og Hörður Ingimarsson sátu í bæjarstjórn fyrir áratugum þá skrifaði bæjarstjórn í heild undir kjörskrá. Það hefur hins vegar orðið breyting á lögum síðan, búið er að afnema að bæjar- stjórnin skrifi undir kjörskrá. Varðandi kjördeild á sjúkrahús- inu er rangt að það fyrirkomulag hafi ríkt í áratugi. Það var reynd- ar viðhaft í nokkrum kosningum en eftir að fólk fékk rétt á heima- kosningu þá hættum við með þessa kjördeild," sagði Snorri Snorri Björn Sigurðsson telur ómaklega að sér vegið. Björn þegar Dagur náði tali af honum í Lundúnum í gær. Eins og fram kom í Degi telja Erlendur og Hörður yfirgnæf- andi líkur á að úrslit kosning- anna hefðu farið á annan veg í Lýtingsstaðahreppi ef frám- kvæmd kosninganna hefði ver- ið fullnægjandi. Þar munaði að- eins tveimur atkvæðum að sam- einingunni yrði hafnað og nefna bæjarfulltrúarnir sérstaklega klúður bæjarstjórnar gagnvart sjúklingum. Þessu vísar Snorri Björn á bug: „I kjördeildinni á sjúkrahúsinu hefðu aðeins íbúar Sauðárkróks getað kosið. Þetta er því út í hött.“ Snorri Björn segir það enn- fremur rangt sem fram kemur í kærunni að bæjarstjórn Sauðár- króks hafi samþykkt með 7 at- kvæðum áskorun til bæjarbúa um að samþykkja sameiningu sveitarfélaganna. „Þetta er rangt. Það sem bæjarstjórn samþykkti var að hvetja kjósendur til að mæta á kjörstað og taka þátt í þessu mikilvæga máli. Ekki var minnst einu orði á að sam- þykkja." Sýslumaður hefur kæruna undir höndum og mun nú skipa þriggja manna nefnd sem tekur á málinu innan tíðar. Hægt er að skjóta úrskurði nefndarinnar til félagsmálaráðuneytis. — BÞ Fyrsta samstarflð í iðnaði Dóttiurfyrirtæki Sæplasts á Indlandi, Sæplast-India Pvt. Ltd., hefur tilraima- framleiðslu í fehrúar- niáiiuöi uk. Verksmiðjuhúsið er tilbúið og uppsetning véla er að heíjast. Um 15 manns munu starfa hjá félaginu og verður framleiðsla einangraðra kera til notkunar í fiskiðnaði og öðrum matvæla- iðnaði í fyrirrúmi. Einnig verða framleiddir vatnstankar og önn- ur hverfasteypt ílát, líkt og hjá móðurfélaginu á Dalvík. Þessar upplýsingar koma fram í frétta- bréfi félagsins. Um 15 manns munu starfa hjá félaginu og verður framleiðslan um 4.000 einingar á ári, en í Iandinu húa urn 900 milljónir manna og markaðurinn því stór. Auk þess er þar oft mjög heitt og því margt sem þarfnast góðrar kælingar. Verkefnastaða Sæplasts á Dalvík er góð um þessar mundir, en þrátt fyrir aukna afkastagetu er afgreiðslu- tími á kerum og trollkúlum nokkrar vikur. Pantanir ná fram í fyrstu mánuði ársins 1998. Starfsmenn eru fleiri en nokkru sinni frá stofnum fyrirtækisins árið 1984, eða 45 talsins. — GG Ekki tímabært Starfshópur Verslim- arráðs telur stöðu sjávarútvegs í dag ekki gefa tilefni til að taka upp veiðileyfa- gjald, en það komi til greiua í framtíðinui. Þetta er meginniðurstaðan í skýrslu starfshóps Verslunarráðs um auðlindagjald, sem kynnt var á morgunverðarfundi ráðsins í gær. 1 skýrslunni segir að athugun á reikningum sjávarútvegsfyrir- tækja bendi til þess að enn sé töluvert langt í að raunverulegur umframhagnaður, eða fiskveiði- arður, myndist í sjávarútvegi. „Heildarframlegð fyrir afskriftir og fjármagnskostnað miðað við núverandi fjármunaþörf þarf meira en að tvöfaldast og verða á bilinu 40-50 milljarðar til að ná mögulegum fiskveiðiarði að mati fræðimanna.11 Starfshópurinn telur ekki skynsamlegt við ríkjandi aðstæð- ur að taka upp veiðileyfagjald, en það konii til greina í framtíð- inni. Ennfremur hljóti auð- lindagjald að koma til skoðunar ef Ieyfð heildarveiði sé umfram það sem telja megi sjálfbæra veiði. Þá telja skýrsluhöfundar hugsanlegt að úthluta kvótum úr norsk íslenska síldarstofninum með gjaldtöku, enda sé engin reynsla af veiðum úr þeim stofni. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins og talsmaður veiðileyfagjalds, sagðist túlka niðurstöður starfshópsins svo að hann væri í grundvallaratriðum samþykkur veiðileyfagjaldi. Það væri fagnaðarefni því að Verslun- arráði stæði viðskiptalífið í Iand- inu, þar á meðal mörg stærstu fyrirtækin sem ættu hagsmuna að gæta í sjávarútvegi. Þorsteinn Pálsson, sjávarút- vegsráðherra og harður and- stæðingur veiðileyfagjalds, fann einnig fagnaðarel'ni í skýrslunni. Sýnt væri fram á efnhagslegar afleiðingar þess að leggja á veiði- leyfagjald. Það myndi korna nið- ur á lífskjörum fólks. — VJ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.