Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 8

Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 8
8- MIBVIKVDAGUR 26.NÓVEMBER 1997 SDnpr FRETTASKYRING Frelsið dýruve keyirt BJÖRN ÞORLAKS- SON SKRIFAR Unglingar um allt land drekka, reykja og neýta fíkmefna. Það er óþægiieg staðreynd að horfast í augu við að vimuefnanotkun færist neðar í aldurs- hópunum. Foreldrar eru kallaðir til áhyrgð- ar. Dalvíkurbær blæs til sóknar til að taka á vaxandi vímuefnavanda meðal unglinga. Blaðamenn Dags brugðu sér til Dalvíkur til að spjalla við nokkra unglinga í 8. og 9. bekk Dalvíkurskóla. Einnig var rætt við félagsmála- stjóra bæjarins og aðstoðarskóla- stjóra. „Það er gott að búa á Dal- vík,“ segja krakkarnir en neysla áfengis og fíkniefna veldur áhyggjum. Unglingarnir sem við var rætt sóru náttúrlega af sér bæði reykingar og drykkju! En það er engin ástæða til að ætla að þau segi ósatt um þann veruleika sem þau verða vitni að. Veruleika sem hinir fullorðnu hafa e.t.v. vikið sér undan að horfast í augu við. „Svona 50%.“ - Hvenær byrja krakkarnir að drekka? „Það eru nokkrir krakkar sem eru farnir að drekka að staðaldri frá 13 ára aldri. Almennt byrjar þetta þó frekar í 9. bekk.“ - Af hverju? „Ég veit það ekki. Sennilega finnst þeim að þá séu þau orðin nógu gömul. Þetta hefur greini- lega færst í aukana, það koma svona bylgjur á nokkurra ára fresti." - Finnst ykkur líklegt að krakk- arnir á Dalvík skeri sig að ein- hverju leyti frá jafnöldrunum í Reykjavík eða á Akureyri? „Nei, ég held að við hljótum öll að vera mjög svipuð.“ - Af hverja drekka unglingar og dópa? Þykir þaðflott? „Nei, eða það skiptist í tvo hópa. Sumum finnst það.“ - Finnst ykkur að vímuefna- neysla hafi aukist almennt? „Já. Og líka reykingar. Sem dæmi þá voru ekki nema einn eða tveir fyrir tveimum árum sem reyktu í 10. bekk en nú liggur við að helmingurinn af eldri krökk- unum reyki að staðaldri." - Sumir telja það einmitt fyrsta skrefið í alvarlegri hlutum? Finnst ykkur það eðlilegt samhengi? „Nei. Ég vil gera dálítinn grein- armun á tóbaksreykingum og hinu.“ - Drekkiði eða neytið vímuefna? „Nei.“ - Hvað gerið þið þegar þið skemmtið ykkur? „Förum út, t.d. á diskótek á Ak- ureyri eða í Ólafsfirði. Svo horfir maður á vídeó.“ Ólöf Heiða Óskarsdóttir 8. bekk og Verna Sigurðardóttir 8. bekk. Helmingiir drekkur - Hve stór hluti eldri bekkinga notar áfengi eða eitthvað annað við skemmtanir? - Og enginn bjór? „Nei.“ - Af hveriu ekki? „Bara.“ - Er gott að búa á Dalvík? J' « a. - Hvað þyrfti helst að bæta? Víðir Ómarsson, Sverrir Þór Skaftason, Helgi Jónasson og Hermann Albertsson, (allir í 9. bekkj voru þokkalega sval/r þegar þeir stilltu sé. vegar vaxandi áhyggjur af drykkju og vímuefnanotkun. - myndir: brink „Félagslífið mætti vera betra. Það mætti t.d. vera oftar opið í fé- lagsmiðstöðínni." Foreldramir ekld barn anna bestir Dagur tók næst fjóra pilta tali en það eru þeir Víðir Ómarsson, Sverrir Þór Skaftason, Helgi Jón- asson og Hermann Albertsson, níundu bekkingar. - Nú á að gera vímuefnaátak á Dalvík. Er þörf á þvt? „Það held ég ekki./ Ég veit það ekki./Jú, mér finnst það.“ - Eru margir að djamma og djúsa? „Já og það er að færast í vöxt. Maður veit ekki af hverju." - Er mikið um áfengisneyslu meðal skólafélaganna? „Naaa, kannski ekki mikið. Það eru aðallega fullorðnir sem drekka illa!“ - Mikið um það? „Ja, slatti.“ - Nú kom upp alvarlegt fíkni- efnamál hérfyrir skömmu... „Meinarðu Rushið?" - Ja. Svæsið eitur sem var sniff- að og getur auðveldlega lagt líf fólks í rúst. Hvað finnst ykkur um það? „Ég held að það sé algjör und- antekning. Þetta er í fyrsta skipti sem maður heyrir eitthvað um hörð eiturlyf hérna á Dalvík. „ - Hvenær byrja flestir að drekka? „Sennilega svona um um ferm- inguna.“ - Af hverju reykið þið ekki eða drekkið? „Það er bara vitlaust./Ég hef ekki áhuga á því./Við erum f íþróttum og það fer ekki saman.“ - Hvemig skemmtiði ykkur? „Bara./Eitthvað./Förum f fé- lagsmiðstöðina." - Er nóg gert fyrir unglinga héma? „Nei. Við vildum fá meira líf. Félagsmiðstöðin er hálftómleg." - Ræða foreldrar við ykkur um áhrif fíkniefna og áfengisdrykkju? „Já.“ (einn segir nei). - Af hverju gera foreldrar þínir það ekki? „Það veit ég ekki.“ - Sumir segja að fullorðnir líti framhjá þessum málum. Eruð þið sammála því? „Jaaá. Eða maður hefur ekkert pælt íðí.“ Meira eirðarleysi Gísla Bjarnasyni aðstoðarskóla- stjóra virtist ögn brugðið þegar blaðamaður Dags bar undir hann upplýsingar frá unglingunum um að jafnvel helmingur eldri bekk- inga drykki að staðaldri. Gísli tel- ur það ósennilegt en segist hins vegar hafa merkt breytingar á hegðun nemenda síðustu 10 ár. „Ég held að þetta sé ekki rétt, en ég veit að þetta er eitthvað „Já, ég er sammála því. Ég sé mun á krökkunum frá því að ég byrjaði að kenna fyrir 11 árum. Það virðist meira eirðarleysi og einbeitingarskortur. Margt er í boði fyrir þá sem stunda íþróttir en það hafa ekki allir áhuga á íþróttum og e.t.v. þyrftum við að sinna þessum hópi betur. Hins vegar eru mjög jákvæðir hlutir að gerast núna. Bæði má nefna sér- stakt námsefni um tóbaksvarnir sem ekki veitir af þar sem reyk- ingar hafa stóraukist að undan- förnu og þá fagna ég ekki síður að allir kennarar þessa skóla fóru á námskeið nú í ágúst til að kynna sér svokallað Éion Quest náms- efni sem gengur út á það hvernig ná eigi tökum á lífinu. Það er erfitt að vera unglingur í dag og miklu erfiðara en manni finnst sjálfum að það hafi verið." - Finnst þér að samfélagið hafi sofið á verðinum? „Kannski að vissu leyti. Ég tel persónulega að samvinna milli foreldra, skóla, lögreglu og félags- c"„ * Gísli Bjarnason aðstoðarskólastjóri. byijað í 9. bekk og jafnvel fyrr. Eitthvert fikt.“ - En ekki að staðaldri? „Nei.“ - En þú ert sammála því að heldur hafi sigið á ógæfuhliðina nú um skeið? málayfirvalda geti gert kraftaverk. Nú er búið að stofna vímuvarna- hóp hér og það er mjög jákvætt skref sem ég held að eigi eftir að skila miklum árangri ef foreldr- arnir eru tilbúnir að koma inn í það. Þar sem öflugt foreldrastarf

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.