Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 6

Dagur - 26.11.1997, Blaðsíða 6
6- MIVIKUDAGUR 26.NÓVEMBER 1997 ÞJÓÐMÁL C 'T/1- Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórar: stefán jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði Lausasöluverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Simbréf augiýsingadeiidar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617UAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Veiðigjald í fyrsta lagi Umræðan um auðlindagjald fyrir aðgang útgerðarinnar að fiski- miðum þjóðarinnar er á miklum skriði þessar vikurnar. Hin svo- nefndu „réttlætisrök“ fá almennan og víðtækan hljóm í samfé- laginu. Þar ber hæst almenn andstaða við að einstaklingar og fjölskyldur skuli geta breytt „gjafakvótum" sínum í hundruða milljóna eða milljarða eign og farið með hvert í veröld sem lyst- ir. Þegar um er að ræða annarar eða þriðju kynslóðar „sægreifa" sem aldrei hafa migið í saltan sjó og þekkja ekki kalt vatn nema í sódavatnsflöskum þykir almenningi illa farið með „sameign þjóðarinnar". Köllum það öfund ef vill. En hún er þjóðfélagsafl. í öðru lagi Stjórnmálamenn í öllum flokkum skynja þungann. Halldór As- grímsson, formaður Framsóknar, vék að því á miðstjórnarfundi flokksins að þingmenn hefðu heyrt raddir þjóðarinnar og það væri verkefni flokksins að móta stefnu á næsta ári; Alþýðu- bandalagið stendur frammi fyrir sama verkefni; Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra hefur staðfest að sú grundvallarregla að greiða beri fyrir afnot auðlindarinnar sé komin á með gjöld- um sem útgerðin ber þegar. Nú hefur Verslunarráð gefið út skýrslu þar sem grunnhugmyndin er fyllilega talin koma til greina. Óhætt er að segja að „réttlætiskrafan" hafi knúið þessa umræðu. Andstaðan er byggð á hagrænum rökum: útgerðin ber ekki frekari álögur. í þriðja lagi Formaður Framsóknarflokksins lýsti því að jafnvel hóflegar veiðgjaldshugmyndir leggðu Utgerðarfélag Akureyringa í rúst ef að veruleika yrðu. Sjávarútvegsráðherra segir að þær muni færa arðsemi útgerðar aftur um áratugi, leggja byggðir í auðn og kalla versnandi lífskjör yfir þjóðina. Þetta eru rök - alveg burt- séð frá því að aldrei hefur verið til atvinnuvegur sem hefur talið sig geta borið nýjar álögur. Rök sem veiðigjaldssinnar verða að svara. Réttlætisumræðunni er í raun lokið. Arðsemisumræðan getur þá haldið áfram af fullum krafti, og sá bolti er nú hjá þeim sem vilja veiðigjald. Hvert er það verð sem nægir til að friðþægja þá sem „svíður óréttlætið"? Og hvernig getið þið tryggt að sá reikningur komi ekki í hausinn á okkur öllum? Stefán Jón Hafstein. 00 f l Iiiii og út iiiii gluggann Þá er Ágúst Einarsson enn á ný genginn í Alþýðuflokkinn, en hann hefur farið þar inn og út um gluggann nokkrum sinnum. Nú eins og jafnan þegar Ágúst fer inn eða út um þennan glugga eru stórpólitísk tíðindi á ferðinni, sem jafnan eru kölluð sam- eining jafnaðarmanna. Millj- ónamæringurinn með verka- mannshjartað, Fredrik Eng- els íslenskra jafnaðarmanna, eins og hann er stund- um kallaður, hefur þó eldd verið einn í þess- um Ieik, því „inn og út um gluggann" er að verða einkennisleikur þess sameiningarferlis sem staðið hefur nán- ast óslitið frá því að Frjálslyndir og vinstrimenn reyndu að brjóta upp flokka- kerfið árið 1971. Inn og út um glugga Alþýðuflokks. Inn og út um glugga Alþýðu- bandalags. Inn og út um glugga Kvennalista (aðallega þó út). Og síðast en ekki síst inn um glugga Alþýðuflokks og út um glugga Alþýðu- bandalags - eða út um glugga Alþýðuflokks og inn um glug- ga Alþýðubandalags. Götur troðnar Allur þessi umgangur um glugga flokkanna hefur haft sín áhrif. Ekki einvörðungu hefur flokkaflakkið hlaðið utan á sig eins og snjóbolti: (“nem ég staðar bak við hann Ágúst, Ossur, Jóhönnu, Mörð, Kristínu Ólafsdóttur, Hrannar, Svanfríði, svo ein- hverjir séu nefndir), heldur hafa troðist niður greiðfærari götur og boðleiðir milli þeirra. Það er einmitt þess vegna sem Ágúst Einarsson, hinn ís- Ienski Engels, leyfir sér að vera vonbetri en áður um að V loksins, loksins fari eitthvað að gerast. Og trúlega er sú von ekki óraunhæf, f það minnsta er formaður Fram- sóknarflokksins orðinn svo viss um sameiningarfram- vinduna að hann telur ástæðu til að benda sínu fólki vítt um land á að Framsóknarflokkur- inn er ekki hluti af þessum nýja stjórnmálaflokki sem er að verða til, þó svo að fram- sóknarmenn starfi með þeim innan Reykjavfkurlist- ans. HuiðafóIMð En þrátt fyrir alla um- ferðina milli jafnaðar- mannaflokkanna og |>ær greiðu götur sem troðist hafa niður á leið manna inn og út um gluggann, eru ýmis ljón í veg- inum. I húsum A-flokkanna eru nefnilega margar vistar- verur, sem margar hverjar eru með hurðum. Inni í þeim vist- arverum heldur sig fólk sem Iítinn áhuga hefur á samein- ingu og væri tilbúnara til að finna sér einhvern allt annan vettvang en þann nýja og sam- einaða. í Ijósi þess að fram- sókn hefur þegar biðlað með áberandi hætti til Kristínar Ástgeirsdóttur, en hún er ein- mitt ein þeirra sem hefur haft herbergi með hurð í sínum flokki, þá kæmi ekki á óvart þó fleira slíkt hurðafólk, t.d. úr Alþýðubandalaginu á landsbyggðinni, yrði boðið velkomið inn á framsóknar- miðjuna þegar fram í sækir. Annað hurðafólk mun eflaust finna sér nýjan vettvang eins og gengur. Það stefnir því í að leikurinn inn og út um glugg- ann verði áfram áberandi í ís- lenskum stjórnmálum þó Ágúst og félagar hætti í hon- um. GARRi. ODDUR ÓLAFSSON skrifar Umræðan um launakjör ætlar engan enda að taka, enda ekki von, þar sem sífellt koma upp ný ágreiningsefni og nýjar upplýs- ingar um hve launamismunur er gífurlegur í landinu. Þá kemur í ljós, að þegar almennir launþegar semja um hverja þjóðarsáttina af annarri, hækkar kaup og fríðindi kjaraaðalsins, sem situr í háum embættum eða stjórnar fyrirtækj- um. Þegar almúginn spyr hvað rétt- læti þau góðu kjör, sem sífellt fleiri og fleiri njóta, eru svörin ekki önnur en sú að pupullinn sé uppfullur af öfurídsýki og eigi að venja sig af þeim ósið að vera að skipta sér af því sem honum kem- ur ekki við. Síðan er sýnt fram á með vondum rökum að aurarnir sem kjaraaðallinn hreppir séu ekki frá öðrum teknir. En málið er það, að launamun- urinn í landinu eykst ár frá ári og þeir sem hafa undirtökin á kjara- markaði taka ávallt meira og Velmegim góóærisins meira til sín. BHið breikkar Fyrir um fjörutíu árum síðan var það eins konar þumalputtaregla að forstjóralaun voru helmingi hærri en verkamanna- laun. Þar á milli voru svo margir launaskalar. Fyrir tuttugu og fimm árum var launahlutfallið í stóru ríkisfyrirtæki að forstjórinn hafði rúm- lega 120 þúsund kr. á mánuði. Löglærður fulltrúi hjá fyrirtækinu um 85 þúsund kr. og verkamenn 60 þúsund kr. Iðnað- armenn og vélstjórar og ýmsir aðrir höfðu laun þarna á milli. Nú eru dæmin um fimmfaldan og jafnvel tífaldan launamun inn- an sömu fyrirtækja og stofnana. Má glöggt sjá hverjir maka krók- inn og á kostnað hverra. Það er þessi milda mismunun sem fólk á erfitt með að sætta sig við og skil- ur ekki hvernig það má vera að alltaf sé til nóg fé í fyrirtækjum og stofnunum til að hlaða undir yfirmenn samtímis því að brýna nauðsyn ber til þess að halda öðr- um launahækkunum í skefjum. Því er jafnvel haldið fram að það sé einhver þjóðarvá ef minnka á launabilið. AHt kaupinu að kenna Nýlega birti eitt stórfyr- irtækja landsins af- komutölur fyrir þrjá árs- fjórðunga. Allar spár um afkomu fyrirtækisins hrundu og varð hagnaðurinn ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem gert hafði verið ráð fyrir. Á svipstundu féllu hlutabréfin í verði og skýr- inga er krafist. Ekki stendur á þeim. Kjara- samningar og launahækkanir á árinu valda því að reksturinn ber sig tæpast. En enginn spyr hvort fyrirtækið þoli að borga forstjóra og ótalmörgum framkvæmda- stjórum og yfirmönnum deilda margfalt kaup á við það sem lág- launafólkið fær í sinn hlut. Ríkisbankar ganga á undan með vondu fordæmi þegar kemur að samningum við yfirmenn um kaup og kjör. Það er rétt eins og að þingkjörnum bankaráðum sé ekki sjálfrátt þegar verið er að semja við kjaraaðalinn á þeim bæjum. Og það er ekki nema von að mörgum verði heitt í hamsi þegar þeir fara að bera saman þjóðarsáttarlaunin sín og þau kjör sem fyrirtæki og stofnanir hafa efni á að bjóða yfirmönnunum. Kjaramunurinn eykst sífellt og enginn gerir neitt í málunum. Kannski er enginn ástæða til þess á meðan bankastjórar og ráðu- neytisstjórar taka sér tvöföld og þreföld laun forsætisráðherra. Allir stjórarnir eru verðir Iauna sinna, en gallinn er aðeins sá að það er verkamaðurinn ekki. Og allir hljóta að sjá hvar velmegun góðærisins Iendir. spurtla svaurad Spillirþað trausti á læknum að einn úr þeirra hópi lýsi yfir í bók að hann hafi átt í ástarsambandi viðfyrr- um sjúkling? Ásta MöUer fonnaður Félags íslenskra hjíikmnar- fræðinga. Nei, ég held að ekki sé hægt að taka eitt dæmi út úr og nota það sem áfellisdóm yfir heilli starfsstétt. Siðareglur lækna eru mjög strangar í þessum efnum - sem og siðareglur annarra heil- brigðisstétta - og þær virka sem Guðmundur Bjömsson formaðurLæknafélags íslands. Já, ég myndi telja að svo væri. Ef það er rétt, sem haft er eftir viðkomandi, þá verður það að telj- ast brot á siðareglum lækna, sem settar eru upphaflega til þess að trúnaður megi ríkja milli læknis og sjúklings. Katrín Fjelsted yflrlæknir Heilsugæslunnar í Foss- vogi. Hver ein- staklingur ber ábyrgð á sjálfum sér, læknar og aðrir - en það fólk, a n d 1 e g a veilt, stend- ur höllum fæti hvað þetta varðar. Læknar hafa siða- reglur og siðanefnd tekur á vafa- atriðum. Landlæknir er faglegur yfirmaður lækna og sviptir þá læknaleyfi ef hann telur þá brot- lega. Miklu skiptir að læknar haldi reglurnar og almenningur sjái að tekið sé á málum ef lækn- ar brjóta þær. Á þann hátt tel ég tryggt að fólk eigi að geta treyst læknastéttinni. Grétar Sigurbergsson réttargeðiæknir. Mér finnst svarið liggja í augum uppi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.