Dagur - 26.11.1997, Qupperneq 12
12- MIÐVIKUDAGUR 2 6 .NÓVEMBER 1997
ÍÞRÓTTIR
L
Hollendingar æfír
yfír aðstoðunni
Landsliðsþjálfari Hol-
lendinga var æfur er
liðið mætti á æfingu
í LaugardalshöUinni á
mánudagskvöld vegna
þeirrar aðstöðu sem
honum og liði hans er
hoðið upp á hér á
landi. Hann neitaði
hlaðamanni Dags iun
viðtal og bannaði fyr-
irliða liðsins að tala
við blaðamann.
Þjálfari hollenska landsliðsins
var allt annað en blíðnr á mann-
inn er hann mætti með lið sitt á
æfingu í Laugardalshöllinni á
mánudagskvöldið. Er blaðamað-
ur Dags ætiaði að fá viðtal við
kappann brást hann fúll við og
sagðist ekki tala við blaðamenn
strax. Það sem hann hafði helst á
hornum sér var sú aðstaða sem
Hollendingarnir höfðu hér á
landi. Liðið gistir á Hótel Kefla-
vík, sem honum fannst ekki
nógu gott og auk þess sem það er
í 45 km. fjarlægð frá Laugardals-
höllinni og það tæki iiðið
klukkutíma að komast á æfingu.
Þá var þjálfarinn mjög óánægður
með aðstöðuna í Laugardalshöll-
inni og það sem hann setti út á
var, að ekki voru vatnsbrúsar til
taks handa leikmönnum hans er
þeir komu á æfinguna. Stórmál
það og ófyrirsjáanlegt vandamál
fyrir landsliðsþjálfarann.
Ekki tók betra við er Dagur
ætlaði að fá stutt spjall við fýrir-
liða hollenska liðsins. Þjálfarinn
bannaði honum að tala við
blaðamenn að svo stöddu. Gerði
hann blaðamanni Dags skiljan-
legt að ekki þýddi að reyna frek-
ari viðtöl fýrr en honum væri
runnin reiðin, annað hvort eftir
æfinguna eða næsta dag. Eini
maðurinn sem ræddi við Dag var
fararstjóri liðsins sem tók geð-
illsku þjálfarans nærri sér en
þakkaði blaðamanni fyrir að út-
vega þjálfaranum og leikmönn-
um nothæf vatnsílát.
Er Dagur ræddi við Pétur Sig-
urðsson, framkvæmdastjóra
KKÍ, sagði hann ástæðu þess að
hollenska liðið gisti í Keflavík þá
að Körfuknattleikssambandið
væri með góðan samning við
Hótel Keflavík. Það væri gott
hótel og þó það tæki Hollending-
ana rúman hálftíma að koma sér
til og frá æfingum væri það ekki
meira en gerðist í stórborgum
Evrópu eins og t.d. Amsterdam.
- GÞÖ
Guömundur Bragson og félagar börðust hart á slöustu æfingu áður en Jón Kr. valdi liðlð sem keppir við Hollendinga i kvöid.
Góðir möguleikar
Griiiimiir varnarleHair og skyusamur sóknar-
leikur er lykHlinn ad góðum árangri í Evrópu-
leiknum við HoUendinga í kvöld. Hraði og góð
hittni úr þriggja stiga skotum er aðaH
íslenska liðsins. Átta af tíu leikmönum ís-
lands eru góðar þriggja stiga skyttur.
íslendingar leika sinn fyrsta leik í
Evrópukeppni landsliða í
körfuknattleik í kvöld er þeir taka
á móti Hollendingum í Laugar-
dalshöllinni. Islenska liðið hefur
aldrei náð jafn langt í alþjóðleg-
um körfubolta og því ríkti mikil
spenna meðal þjálfara og leik-
manna er Dagur leit við, í Höll-
inni, á æfingu hjá liðinu.
„Jú, það eru allir við hesta
heisu og til í slaginn," sagði Jón
Kristinn Gíslason Iandsliðsþjálf-
ari. „Það er búin að vera mikil
keyrsla á æfingunum og ég sé
ekki betur en að allir séu í góðu
formi. Við vorum á mjög erfiðum
æfingum í gær og fyrradag og því
Jón Kristinn, karlinn í brúnni.
bjóst ég við smá þreytu hjá þeim
nú en það er alls ekki. Þeir eru
allir mjög ferskir og spenntir fyr-
ir kvöldinu. Við erum búnir að
bíða eftir þessu tækifæri í eitt ár,
eða síðan við unnum okkur rétt-
inn til að taka þátt í riðlakeppn-
inni, og ég get lofað ykkur miklu
fjöri í HöIIinni í kvöld og því
skiptir miklu máli að fá sem
flesta áhorfendur á staðinn."
- Hvemig ætli þjálfaranum sé
innanbrjósts svona réttfyrir stærs-
ta leik Islands til þessa?
„Ég er náttúrulega rosalega
spenntur. Ég er búinn að horfa
svo mikíð á körfubolta í vetur og
nú er Ioksins komið að því að
taka þátt í baráttunni. Nú get ég
ekki beðið lengur,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn tilbúinn í leikinn.
Ætlum að standa okkur
Guðmundur Bragason er fyrirliði
íslenska körfuboltalandsliðsins
og annar tveggja atvinnumanna
þess í íþróttinni. Hann leikur í
Þýskalandi og hefur því ágæta yf-
irsýn yfir körfuboltann á megin-
landinu.
„Eg þekki hollenska liðið ekki
mikiö núna. Þeir eru búnir að
skipta um þjálfara og liðið er því
nokkuð breytt frá því við lékum
síðast við þá. Gert Hammick,
miðherjinn þeirra, leikur með
Alba Berlín og er mjög sterkur.
Ég hlakka bara til að glíma við
þá.“
- Nií er það ekki ný bóla hjá þér
að eiga við mun stærri leikmenn
en þú ert sjálfur.
„Neí, ég tel mig líka kominn
með ágætis reynslu við það sem
vonandi nýtist okkur vel í Iands-
Herbert þekkir Hollendingana best.
leikjunum. Við þurfum líka að
spila grimman varnarleik, vera
duglegir að ná varnarfráköstun-
um, ná upp góðri keyrslu, hitta
vel úr þriggja stiga skotunum og
hafa dálitla fjölbreytni í leiknum."
- Hvemig er mórallinn i lið-
inu?
„Andinn er frábær í hópnum.
Það er gaman að sjá unga stóra
menn koma inn í þetta. Nú er ég
ekki stærstur lengur og því er ég
bara bjartsýnn á framhaldið.
Þetta er það sem við erum búnir
að vera að keppa að allan þennan
tíma, að komast í þessa Evrópu-
keppni og nú ætlum við að stan-
da okkur.“
Herbert þekkir HoHending-
ana
„Ég þekki til nokkura þessara
leikmanna," sagði Herbert Arnar-
son, atvinnumaður í Belgíu. Það
eru þarna tveir leikmenn sem ég
lék með í Hollandi í fyrra. Svo
eru þarna nokkrir sem spila í
Belgfu, þar sem ég er núna. Þetta
eru alll góðir leikmenn og til þess
að vinna þá verðum við allir að
Guðmundur leiðir sfna menn á vellinum.
leika sérstaklega vel. Við þurfum
að halda þeim frá varnarfráköst-
unum en megum samt ekki ein-
blína á stóru karlana þeirra. Þeir
eru með menn inn á milli sem
eru alveg hörku skyttur. Ef við
náum góðum varnarleik og skyn-
sömum sóknarleik eigum við
góða möguleika. Sagan sýnir að
við getum alveg unnið Hollend-
inga og að því stefnum við nú.“
- Er körfuboltinn í Hollandi
mikið frábrugðinn boltanum hér
heima?
„Hann er frábrugðinn að því
Ieyti að í hverju einasta liði þar er
alvöru miðherji. Þeir eiga nóg af
stórum mönnum. Þjálfari lands-
Iiðsins er Belgi, sem þjálfaði liðið
sem ég leik með núna og hann
vill mjög mikinn aga og kerfis-
bundinn körfubolta. Ég vænti
þess að þeir reyni mildð að koma
boltanum inn í teiginn á stóru
mennina. Þannig geta þeir líka
opnað vel fyrir ulan. Þetta er aðal
munurinn á íslenska og hol-
Ienska boltanum. Þeir eru kerfis-
bundnari og eiga meira af stórum
mönnum," sagði Herbert. —GÞÖ