Dagur - 26.11.1997, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 26.NÓVEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
Tveir kylfingar heppnir að
sleppa lifaiHU frá eldingum
Birgir Leifur Hafþórs-
son þarf að leika þrjár
síðustu holumar á
Guadalmina-veHmum
á Spáni á fjórum
höggum undir pari tH
að viuna sér sæti á
evrópsku mótaröð-
iuni. MiJklar eldingar
og vatnsveður hafa
sett aUt mótshald úr
skorðum og tveir
kylíingar voru heppn-
ir að sleppa lifandi
þegar eldingum laust
niður á golfvöUunum
þar sem mótið er
haldið.
Birgir Leifur á enn eftir að leika
þrjár holur í fjórða hringnum
sem hann byrjaði á í fyrradag og
í gærdag var ekki vitað hvort
Birgir Leifur mundi ná að ljúka
fjórða hring sínum í dag. „Það á
að reyna í fyrramálið (i dag), en
ef veðrið verður eitthvað í þess-
um dúr á morgun, þá verður ekki
spilað," sagði Björgvin Þorsteins-
son, aðstoðarmaður Birgis Leifs,
og bætti því við að hann hefði al-
veg eins trú á því að komið yrði á
fót nýju móti, ef kylfingar næðu
ekki að klára fjórða hring sinn í
dag.
Steingrímur
áfraui með KA
Steingrímur Eiðsson, sóknar-
maður KA í knattspyrnu, verður
áfram með liðinu næsta sumar,
en hann hefur skrifað undir
tveggja ára samning við félagið.
Heyrst hafði að Steingrímur
væri á leið til Leifturs í Olafs-
firði en ekkert verður úr því.
Þetta eru góð tíðindi íyrir 1.
deildarlið KA en Steingrímur
var markahæsti Ieikmaður
þeirra síðasta sumar með átta
mörk. Tveir Dalvíkingar hafa
einnig ákveðið að ganga til liðs
við KA liðið en það eru þeir Þor-
Ieifur Arnason og Stefán Gunn-
arson. Skamkvæmt heimildum
Dags eru KA-menn í viðræðum
við fleiri leikmenn þessa dagana
og er ætlunin að styrkja hópinn
enn meira. — Jj
Birgir Leifur Hafþórsson á litla mögu-
leika á sæti á evrópsku PGA-mótaröd-
inni.
Lítil von
Birgir Leifur náði að leika fimm
holur í fyrradag og spilaði þær á
einu höggi undir pari. I gær fékk
hann „skolla“ á 5. holunni og
þeirri þrettándu. Hann á þrjár
holur eftir og tvær þeirra eru par
fimm holur, sem Birgir Leifur
hefur náð að slá inn á í tveimur
höggum. Það má því segja að
enn sé von hjá Skagamanninum,
en hún er ekki mikil. Ef Birgir
Leifur leikur holurnar þrjár á
einu undir pari skipar hann sér í
hóp þeirra 75 bestu og vinnur
sér keppnisrétt á Challenge-mót-
unum, sem leikin eru víðs vegar
um Evrópu.
Ef veður leyfir mun Birgir
Leifur klára fjórða hring sinn í
dag. Eftir að fresta þurfti keppni
l'talinn Alberto Binaghi var heppinn að
sleppa lifand/ þegar eldingu laust niður
í regnhlíf hans í fyrradag.
í fyrradag, var ákveðið að fækka
mótsdögum um einn og í gær
tóku mótshaldarar þá ákvörðun
að sleppa fimmta hringnum,
vegna þess hve veðurspáin er
slæm og hversu vellirnir eru
orðnir blautir.
MikiII meirihluti kylfinganna
hefur Iokið keppni og fjörtíu
þeirra hafa komið inn á 288
höggum eða færra og fastlega er
búist við því að sú tala verði ráð-
andi um það hverjir komast á
evrópsku mótaröðina. Meðal
þekktra kylfinga sem tryggðu sér
skírteinið voru Gary Nicklaus,
sonur Jack Nicklaus, sem var á
sínu þriðja úrtökumóti, Englend-
ingurinn Paul Way og Nýsjálend-
ingurinn Michael Campell.
Besta skor mótsins var 280 högg
og það voru Hollendingarnir
Chris Van der Veld og Robert Jan
Derksen, Englendingurinn Phil
Golding og Svíinn Fredrik
Henge sem því náðu.
Heppiim að sleppa lifandi
Keppni var frestað í fyrradag
vegna eldinga og Björgvin sagði
að illa hefði getað farið þegar
einn keppandi, sem var tveimur
ráshópum á undan Birgi Leif og
Björgvini á Guadalmina-vellin-
um, fékk eldingu í golfkylfu sína.
Hann sagðist ekki vita um afdrif
hans, en hann var fluttur á
sjúkrahús í fyrradag.
Einn besti kylfingur Itala, Al-
berto Binaghi, sem meðal annars
hefur keppt fyrir þjóð ' sína í
heimsbikarnum og í liðakeppn-
inni á Dunhill Cup, var einnig
lánsamur að ekki skyldi fara illa
þegar hann var á gangi fyrir aft-
an 14. flötina á San Rogue vell-
inum. Nýbúið var að fresta
keppninni þegar eldingu laust
niður í regnhlíf Italans og
kastaði honum til jarðar. „Ég er
mjög heppinn að vera á lífi. I
tuttugu mínútur gat ég ekki
hreyft fæturnar og þremur
klukkustundum síðar var ég enn
með sinadrátt í fótunum. Lækn-
ar á sjúkrahúsinu sögðu mér að
ef eldingin hefði varað tveimur
sekúndum lengur þá hefði ég
dáið,“ sagði hinn 32 ára Itali.
Þrátt fyrir hremmingarnar tók
Binaghi það ekki í mál að hætta
keppninni. v -FE
KNATSPYRNA
Bað Irvvin afsökunar
Paul Bosveldt, Ieikmaður hol-
lenska liðsins Feyenoord, hefur
beðið Denis Irwin, leikmann
Manchester United, afsökunar á
ljótri tæklingu hans í Evrópuleik
liðanna í síðasta mánuði.
Bosveldt braut illa á Iruán með
þeim afleiðingum að Irwin hefur
ekki getað leikið síðan og óvíst er
hvort hann muni leika meira
með enska liðinu á þessu keppn-
istímabili.
Evans á förum frá Liver-
pool?
Sögusagnir um að Roy Evans,
framkvæmdastjóri Liverpool,
verði látinn taka pokann sinn
hafa fengið byr undir báða
vængi, eftir tapið gegn Barnsley
um síðustu helgi. Nils Arne
Eggen, sem stjórnar norska lið-
inu Rosenborg í sfðasta sinn eft-
ir tvær vikur, hefur verið orðaður
sem Iíklegur eftirmaður og í ný-
legu viðtali sagði hann starfið hjá
Liverpool vera mjög áhugavert.
Steve McMahon er hins vegar
efstur á lista veðbanka, með
hlutföllinn 4-1 á bakvið sig.
McMahon var leikmaður hjá
Liverpool í sjö ár og hefur náð
góðum árangri með 1. deildarlið
Swindon.
Forsala á landsleik
Forsala aðgöngumiða á landsleik
Islands og Júgóslavíu í riðla-
keppni EM í handknattleik verð-
ur í versluninni Útilíf í Glæsibæ
og hófst hún í gær. Miðaverð er
kr. 1000 fyrir þá sem eru 12 ára
og eldri, þeir sem eru á aldrinum
6-11 ára greiða 500 kr. en að-
gangur er ókeypis fyrir börn
fimm ára og yngri.
Jordan vallim leik-
maður vLkunnar í NBA
Michael Jordan var kjörinn besti
leikmaður síðustu viku í NBA
deildinni. Jordan skoraði 37,3
stig að meðaltali í þremur úti-
leikjum Chicago. Hann tók einn-
ig 4,7 fráköst og átti 4,3
stoðsendingar á félaga
sína. Jordan er nú
kominn á forn-
ar slóðir
stigaskor-
un og er
efstur
á lista
95-87, og vann þar
með sinn 6. leik í
röð. Penny
Hardaway lék á
ný með liðinu og
skoraði 1 5
deildinni með 27,7 stig
að meðaltali í leik.
Þrír æsispennandi leikir fóru
fram á aðfaranótt þriðjudags.
Portland lagði Toronto, 91-90,
með mjög umdeildri sigurkörfu
frá Rasheed Wallace á síðustu
sekúndu leiksins. Þar með tapaði
Toronto sínum 10. leik í röð og
er það met í stuttri sögu félags-
ins. Porlland lék án hins skap-
stóra I. Rider en hann var dæmd-
ur í 3 leikja bann á dögunum fyr-
ir að hrækja á áhorfanda á leik
liðsins í síöustu viku!
Orlando sigraði Washington,
stig. Rony Seikaly var hins vegar
stigahæstur með 24 stig. Ekkert
gengur hjá Washington og virðist
það Iitlu hafa breytt þó liðið hafi
skipt um nafn á þessari leiktíð.
Chris Webber var eini maðurinn
sem eitthvað gat hjá liðinu og
skoraði 29 stig og tók 16 fráköst.
Að lokum sigraði Utah Jazz hið
efnilega lið Minnesota í fram-
lengdum leik, 133-124. Karl
Malone var bestur í liði Utah og
skoraöi 33 stig. Stephon Mar-
bury átli hins vegar stórleik hjá
Minnesota og skoraði 38 stig og
átti 10 stoðsendingar.
Kynuing á PartHle-cup
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
vinnur nú að kynningu á
Partille-cup handknattleiksmót-
inu, sem haldið verður í Svíþjóð
dagana 27. júní til 3. júlí á næsta
ári. Framkvæmdastjóri mótsins,
Stefan Albrechtson, er nú hér á
landi ásamt fleiri starfsmönnum
mótsins og munu þeir gangast
fyrir kynningu í KA-heimiIinu í
kvöld kl. 18. Partille-cup er mót
fyrir yngri aldursflokka og hefur
verið mjög íjölmennt á undan-
förnum árum. Um það bil 500
lið tóku þátt í mótinu í fyrra.
Kópavogslistinn
Opinn borgarafundur um bæjarmálefni í Kópavogi
fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20.30 í Félagsheimili Kópavogs.
Undirbúningshópur nýs bæjarmálafélags, Félags um
jafnaðarstefnu, félagshyggju og kvenfrelsi, boðar bæjarbúa
til kynningar- og málefnafundar um sameiginlegt
framboð í Kópavogi.
Á fundinum verður fjallað um aðdraganda, tilgang og markmið
sameiginlegs framboðs til bæjarstjórnar Kópavogs, einnig
verður fjallað um málefnaáherslu og fundargestum gefst kostur
á að skrá sig til þátttöku í málefnastarfi og stefnumótun.
Fundurinn er opinn öllum Kópavogsbúum sem hafa áhuga
á að taka þátt í starfi og stefnumótun Kópavogslistans.