Dagur - 02.12.1997, Side 2

Dagur - 02.12.1997, Side 2
18-ÞRIÐJUDAGUR 2 .DESEMBER 1997 LÍFIÐ í LANDINU Dagiir • Strandgötu 31 • 600 Akureyri og Þverholti 14 • 105 Reykjavík V Skátagilið og gagn Símiun hjá lesendaþjónustuuni: S63 1626netfang : ritstjori@dagur.is Símbréf: ja« eðai 460 6171 551 6270 seml þess Skátagilið á Akureyri er í mið- bænum og er því mjög verðmætt viðskiptalega séð. Eg geri því að tillögu minni að það verði fært f þann búning að landsvæðið sem gilið tekur yfir verði nýtt í þágu viðskipta í miðbænum. Það er hægt að gera með því að fylla gilið upp og gera þar bílastæði sem geta þjónað miðbænum. Fólk sem vinnur á þeim vinnu- stöðum sem tilheyra miðbænum gæti geymt bíla sína á þessu stæði og mundi það létta mikið á bílastæðaeftirspurn í miðbæn- um. Aðgengið að stæðinu yrði um lyftuna í krónunni. Ég mun láta tvær myndir fylgja þessum skrifum sem sýna svo ekki verð- ur um villst hver nauðsyn er á þessari framkvæmd. Þær sýna ástandið eins og það er vestan við Læknamiðstöðina þegar fólk sækir þjónustu þangað. Astand- Full stæðl vestan við Læknamiðstöðina. ur á að farið verði í bráð í að vinna eftir þeim teikningum Viðvarandi ástand við Skátagilið og erstundum bílaröð beggja vegna götunnar þó svo hafi ekki verið þegar myndin var tekin. Sambærileg bílaröð er líka í Gilsbakkavegi. uósmyndir: brynjólfur. ið á bílastæðum í miðbænum á álagstímum er öllum kunnugt. Þar er ekkert gjaldfrítt stæði að hafa eftir klukkan níu á morgn- ana þegar starfsfólk miðbæjarins er mætt til vinnu á bílum sín- um. Að setja tré og skúlptúra í gilið gerir ekkert gagn og gilið eins og það er núna gerir heldur ekkert gagn. Ekki eru miklar lík- sem til eru af tillögum arkitekts af gilinu vegna þess að það mundi kosta tugi miljóna er mér sagt. Eg hefi ekki séð þessar teikningar en þær innihalda víst ekki bílastæði. Þær taka þvi ekki á þeim vanda og ekki á þeirri lausn sem ég er hér að gera til- lögu um. Við Skátagilið er íbúð- arbyggð á þrjá vegu og mundi bílastæði þarna notast íbúum við götur sem að því Iiggja. Auk þess á frímúrarareglan sitt hús þarna í nágrenninu og gætu þeir haft not af bílastæðinu þegar þeir funda í húsinu. Skátagilið sem bílastæði rnundi því nýtast mjög vel alveg frá Oddeyrargötu og niður að göngubrúnni sem Iiggur yfir gilið neðanvert. Akur- eyrarbær er allur sem einn skrúðgarður og er því ekki þörf á að láta tugi milljóna króna í skrúðgarð í Skátagilinu. Gróður er ekki það sem helst skortir í bænum. Ýmislegt annað er það sem þarf að huga að og mætti þar t.d. nefna setbekki til að byrja með, en þeir heyra einmitt undir umhverfisdeild. Mikið af jarðefni losnar á næsta ári þegar farið verður að grafa fyrir tveim- ur stórum húsum sem er illu heilli ákveðið að byggja í mið- bænum. Þarna kemur efni sem bærinn gæti fengið til þess að fylla í gilið og er mjög stutt að fara með það. Eg vil Ieyfa mér að skora á fulltrúa í bæjarstjórn Ak- ureyrar að taka þessa hugmynd til athugunar og ræða hana og athuga hversu mikið vit er í henni Mér sjálfum finnst hún góð, ef ekki eru einhver tækni- leg atriði sem mæla gegn henni. Brynjólfur Brynjólfsson. Þessir hringdu... Þaug eru erlendis Ævareiður iesandi hringdi og vildi benda landslýð á að rangt væri að tala um að einhver færi erlendis menn færu til útlanda. Eins var lesandinn foxillur yfir boðflennu g-i sem fólk skellir aftan við fornafnið þau (g). Mjög algengt er að „þaug ætli sér öll að fara erlendis." — Bréfúr... ; Blöndudalnum ISlorðlenskar nœtur Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps var stofnaður á Eyvindarstaðaheiði áriö 1925 af glöðum söngmönnum í gangnamannaskála og hefur kórinn starfað óslitið síðan. Kórinn hefur nú gefið út annan geisladisk sinn og heitir hann „Norðlenskar nætur". Norðlenskar nætur! Já takk! Ég hef oft verið skömmuð fyrir það að í þessum bréfum mínum hafi ég ekki talað nógu mikið um það sem er að gerast í heimabyggð. Að ég ætti að segja meiri „Regínu" fréttir. Sjálfsagt er nokkuð til í því, en þetta ér kannski vegna þess að ég á ekki auðvelt með að skrifa um neitt nema það hrífi mig einhverra hluta vegna eða sé brennandi réttlætis- eða áhugamál. Og yf- irleitt er það sem er fréttnæmt tengt fyrirtækjum, stofnunum hvers konar eða einhverjum samsteypum, en ég hrífst hins vegar auðveldlega af því sem er einstaklingsframtak, því sem hópar eru að gera og fram- kvæma í sjálfboðavinnu með hugsjónina að leiðarljósi, t.d. leikfélög og fólk sem býr sér til atvinnu, lífsfyllingu og gleði til handa sjálfum sér og öðrum. Fólk með frumkvæði, fólk sem nennir! Reyndar er það nú þannig'að þessa stundina er ég full aðdá- unar vegna þess að karlakórinn er búinn að gefa út diskinn „Norðlenskar nætur“. Karlakórinn, besti kór á land- inu að öðrum ólöstuðum, er Karlakór Bólstaðarhlíðar- hrepps. „Norðlenskar nætur“ er fyrsti geisladiskur kórsins en 1985 gaf kórinn út hljómplöt- una „Tónar í tómstundum". Söngstjóri kórsins er Sveinn Arnason á Víðimel í Skagafirði og undirleik við upptökur á efni disksins annaðist Thomas Higgerson. Eg vil óska þessum frábæru söngmönnum í Karla- kór Bólstaðarhlíðarhrepps hjartanlega til hamingju með diskinn, hann er gimsteinn, og það er alveg sama hvert maður fer þessa dagana eða hvar mað- ur kemur, alls staðar er verið að spila „Norðlenskar nætur“ og fólk þekkir auðvitað þessi yndislegu lög og syngur hástöf- um með, allt niður í 2ja ára! Ef ég ætti að segja ykkur hvað mér finnst um lögin, hvað er best og svoleiðis, þá held ég að ég sé ekki rétta manneskjan til þess Jóhanna Hallddrsdóttir skrifar að dæma um það, en mér finnst auðvitað eitthvað, eins og öllum öðrum hérna, og flest- ir eiga sín uppáhalds- lög. Ég fæ til dæmis alltaf gæsahúð og tár í augu þegar Svavar syngur „Blökkustúlk- ______ una“, eins og honum einum er lagið, og ég elska lagið um Sigurð Lúther og „Norðlensku næturnar", tit- illagið, og svo er eitt lag á disk- inum sem er svo skemmtilega öðruvísi en hin og í því er þrí- söngur þeirra snillinganna, Brynjólfs, Halldórs og Þorleifs og heitir „Til vorsins". En ég ætla ekki að segja ykk- ur meira, þið getið bara keypt ykkur diskinn og látið ykkur líða vel. Sextánda skáldsagan Stórskáldkonan okkar, hún Birgitta, hefur nú sent frá sér sína sextándu bók! Birgitta hef- ur aldrei verið betri en núna, bókin hennar heitir „Nótt á mánaslóð" og er spáð metsölu. Sagan fjallar um nornir, ævin- týri þeirra, ástir og örlög og er svo sannarlega bók sem allar íslenskar nornir þurfa að eign- ast, og allir sem hafa áhuga á jákvæðri umfjöllun um nornir. Frábær bók fyrir alla sem njóta þess að Iesa góða, spenn- andi sögu og eru orðnir leiðir á tískuskáldsögum (sem ég kalla nú alltaf orðasamsetningu á tölvu en ekki sögur) og tilbún- um metsöluhöfundum. Að lok- um vil ég minna ykkur á að Vil- ko-súpa með rjóma er hreint lostæti, og kaupfélagið okkar, Kaupfélag Húnvetninga, hefur breytt um svip og er orðið enn glæsilegra en áður. Lykillinn að góðri aðventu er því verslunar- ferð í kaupfélagið, Vilkosúpur, Vilkovöfflur og pönnsur, ásamt lestri Birgittuhókarinnar yfir heimabökuðum smákökum, við undirleik Karlakórs Bólstaðar- hlíðarhrepps. Njótið aðvent- unnar fyrir alla muni! Með norðlenskri nomakveðju úr Blöndudalnum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.