Dagur - 02.12.1997, Blaðsíða 6

Dagur - 02.12.1997, Blaðsíða 6
22 - ÞRIÐJVDAGUR 2.DESEMBER 1997 ro^tr LÍFIÐ 1 LANDINU Jólabókagleði „Sumarið er tíminn," söng Bubbi, en þá átti hann ekki við rithöfunda og útgefendur. Nú er þeirra tími. I hverju horni er verið að gleðjast yfir uppsker- unni, eftirvænting liggur í loft- inu þegar höfundar og þýðend- ur koma saman og sjá bókina nýrunna úr prenti. Menn blaða, spjalla, spá í og velta fyr- ir sér hvort kápan sé nógu „söluleg". Ættingjar óska til hamingju. Og svo tekur við taugastríðið. Ritdómar birtast og sölutölur berast. Verða það bókajól? Verða það mín bóka- jól? En meðan menn staldra við £ útgáfuteiti er sjálfsagt að hafa hemil á taugunum, brosa, gleðjast og taka við hamingju- óskum. Enginn getur eyðilagt þessa stund fyrir útgefanda, höfundi, aettingjum og vinum. Dagur sendir öllum sem berjast í bókaflóðinu bestu kveðjur með fyrirfram þökk! Mædgumar Guðný Halldórsdóttir og Auður Laxness ásamt Elínu Bergs, eiganda Vöku-Helgafells. myndir Þök. Ingi Karl Jóhannesson, gluggar í afrakstur eigin verka. Svart-hvítt rokk ein- kennirplötu Rúnars Júlíussonarþar sem samanferfantagóður hljóðfæraleikur og mergjaðir textar. Það fer heldur lítið fyrir róleg- heitum á nýjustu plötu Rúnars Júlíussonar, þótt hún heiti Rokk og rólegheit. Þar er hins vegar gnógt af hráu kraftmiklu rokki eins og það gerist best. Ellefu lög eru á plötunni og eru þau flest eftir Rúnar, auk þess sem hann á obbann af textunum. Fantagott rokktríó Fyrir utan afbragðs góðan hljóm á plötunni er aðalsmerki hennar fantagóður gítarleikur Tryggva Húbners, sem er einn albesti gítarleikari landsins. Ilann og Rúnar ásamt Ásgeiri Óskarssyni trommuleikara mynda mjög áheyrilegt rokktríó sem keyrir plötuna áfram á góðum rokk- hraða. Þessir menn eiga líka að baki áratuga tónlistarhefð í rokkinu auk þess sem þeir Rún- ar og Tryggvi leika saman nánast um allar helgar vítt og breitt um landið og þekkja því vel til hvors annars. Þeim til aðstoðar eru þeir Baldur Guðmundsson á hljómborð, Jens Hansson á saxa- fón, Jóhann Helgason á gítar og bakrödd, Sverrir Stormsker og Júlíus Guðmundsson. Aðrir sem koma við sögu eru t.d. dr. Gunni, Megas, Kristján Hreins- son og Larry Otis. Svart-hvítt rokk Það er því óhætt að fullyrða að á þessari nýju plötu Rúnars er að finna svart-hvítt rokk, eins og það kemur bókstaflega af trján- um. Orkugjafarnír og frumefnin eru bassi, gítar, trommur og söngur. Þetta er lítið kryddað en aðalrétturinn er hrátt rokk og meðlætið kraftmiklir og mergj- aðir textar. Þar fyrir utan ein- kennir plötuna mikil spilagleði og fer ekki á milli mála að þarna hafa menn haft ánægju af vinn- unni við gerð plötunnar. Þá er plötuumslagið vel heppnað með trúðsívafi. Hins vegar gera skreytingar á textablaði mönn- um erfitt fyrir að berja textann augum. Það kemur kannski ekki að sök því framburður á texta kemur efni hans vel til skila. Upptökur fóru fram í heima- hljóðveri Rúnars í Keflavík. Stjórn upptöku var í höndum hans sjálfs og Tryggva auk þess sem þeir sáu einnig um útsetn- ingar. Upptökumenn voru þeir Júlíus Guðmundsson og Jens Hansson og sáu þeir einnig um vel heppnaða hljóðblöndun. Guðmundur Rúnar Heiðarsson. Rúnar Júlíusson hefur bætt enn einni skrautfjöðrínni í rokkhattinn meö sinni nýjustu plötu, Rokk og rólegheit.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.