Dagur - 17.12.1997, Page 4
4 -MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
Dí^ur
FRÉTTIR
Flugleiðir og FÍ mega stofna
hótelfélag
Samkeppnisráð nefur komist að
þeirri niðurstöðu að Flugleiðum
og Ferðaskrifstofu Islands sé
heimilt að stofna hlutafélag utan
um rekstur hótela í eigu þessara
aðila. Ráðið setur þó skilyrði
vegna Flugleiða og þá aðallega
að í stjórn hótelfélagsins skuli
ekki sitja stjórnarmenn eða
starfsmenn ferðaskrifstofa sem
Flugleiðir eða dótturfélög Flugleiða eiga hlut í.
Einnig eru það skilyrði að öll viðskipti Flugleiða og hótelfélagsins
verði eins og viðskipti milli óskyldra aðila og að keppinautum hótel-
félagsins verði tryggð sambæriieg viðskiptakjör og hið nýja félag mun
njóta hjá Flugleiðum. Nokkur fleiri skilyrði eru sett og kveðið á um
að þau séu öll bindandi fvrir Flugleiðir. - FÞG
Flugleiðum er heimilt meö skilyrdum að
stofna hlutafélag um rekstur hótela að dómi
Samkeppnisráðs.
Svínaræktendur gefi ekki nt
leiðbeinandi verð
Samkeppnisráð hefur hafnað beiðni
Svínaræktarfélags íslands um að fá að
gefa út leiðbeinandi verð (viðmiðunar-
verðskrá) á svínaafurðum.
Svínaræktarfélagið vildi fá undanþágu
frá hinni almennu reglu, sem bannar við-
miðunarverðskrár og vísaði til undanþágu
sem kjúklingabændur og eggjaframleið-
endur hafa fengið. Svínaræktendur telja
að þegar sé búið að stuðla að aukinni
samkeppni í greininni og tryggja að neyt-
endur njóti árangurs umbótanna í lægra
vöruverði. Samskonar beiðni var hafnað
fyrir nokkrum árum og nú eins og þá var
Framleiðniráð landbúnaðarins hlynnt undanþágu en Neytendasam-
tökin mótfallin. - FÞG
Sirkus ekki í beinni samkeppni
Samkeppnisráð telur að sirkusstarfsemi hafi ekki verið í beinni sam-
keppni við aðra aðila þar sem sýningar eru á ýmsum tímum. Jörund-
ur Guðmundsson sendi ráðinu erindi vegna sýninga sirkus Ronaldo
á Listahátíð, en Jörundur er umboðsaðili fyrir sirkus Arena og taldi
að aðilunum hefði verið mismunað með því að skemmtana- og virð-
isaukaskattur hefði ekki verið innheimtur af sirkus Ronaldo.
Samkeppnisráð benti á að sirkus Arena hefði sýnt hér aðeins fimm
sinnum á fimmtán árum og sirkus Ronaldo hluti af alhliða listkynn-
ingu. Ronaldo hefði haft sýningar þegar Arena var ekki starfandi hér
á landi. Ráðið sá þ ví ekki ástæðu til að hafast nokkuð að í þessu máli.
- FÞG
Á að borga 5 milljónir
Fyrrum framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs starfsmanna Aburðarverk-
smiðjunnar, Þorsteinn V. Þórðarson, hefur verið dæmdur til að
greiða sjóðnum fímm milljónir króna.
Þorsteinn var 1995 dæmdur fyrir uppboðssvik, en hann hafði
skuldbundið sjóðinn vegna skuldabréfa upp á tæplega 100 milljónir
króna. I málinu var ríkið sýknað af kröfum um bætur til sjóðsins og
sömuleiðis Sveinn Sæmundsson, sem sá um bókhald sjóðsins, en
hann var einnig sakfelldur í refsimálinu 1995. -FÞG
Svínakjöt má ekki verðleggja
samkvæmt leiðbeinandi verðskrá
frá svínaaræktunarfélagi Islands.
Sendiherram brókerað
Talsverðar tilfærslur eru framundan í ut-
anríkisþjónustunni. Ólafur Egilsson,
sendiherra, tekur við embætti sendiherra í
Kína fyrsta mars á næsta ári, en hann hef-
ur undanfarið gegnt sérstökum störfum í
utanríkisráðuneytinu. Hjálmar W Hannes-
son, núverandi sendiherra í Kína, verður
skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins. Jón Egill Egilsson, núver-
andi skrifstofustjóri, verður sendiherra í
Moskvu, en Gunnar Gunnarsson, sendi-
herra þar, kemur til starfa í utanríkisráðu-
neytinu.
Þá hefur Kristinn F. Arnason verið skip-
aður sendiherra en hann mun áfram gegna
starfi skrifstofustjóra viðskiptaskrifsstofu utanríkisráðuneytisins.
Veður og sjólag á Intemetið
Sjófarendur og aðrir geta nú fengið upplýsingar um veður og sjólag á
heimasíðu Siglingastofnunar htttp: //www.sigling.is.
Nýjar upplýsingar berast á heimasíðuna á klukkutíma fresti. Þar
geta menn nálgast upplýsingar um veður og sjólag frá ölduduflum og
vitum, veður og sjávarstöðu í höfnum og ölduhæðir. Fram til þessa
hefur fólk getað fengið þessar upplýsingar í gegnum símsvara Sigl-
ingastofnunar og hefur sú þjónusta notið vaxandi vinsælda. -GRH
Halldór Blöndal: Málið er i athugun.
Halldór þegir um
eldsneytisgj aldið
HaHdór Blöndal kom
sér hjá því að gefa efn-
islegt svar við fyrir-
spum þingmanns um
eldsneytisgj aldið.
Halldór Blöndal kom sér hjá því
að svara þinglegri fyrirspurn
Lúðvíks Bergvinssonar, þing-
manns jafnaðarmanna, um hvort
ráðherra ætlaði að bregðast við
tilmælum samkeppnisráðs vegna
erindis Cargolux um eldsneytis-
gjald.
Samkeppnisráð telur að með
því að innheimta eldsneytisgjald
af Cargolux en ekki af Flugleið-
um séu stjórnvöld að raska sam-
keppni. Beindi ráðið þeim til-
mælum til samgönguráðuneytis-
ins að annað hvort yrði gjaldið
fellt niður eða allir aðilar rukkað-
ir.
„Þessi mál og niðurstaða sam-
keppnisráðs eru í athugun hjá
lögfræðingum samgönguráðu-
neytisins," er það eina sem Hall-
dór Blöndal vildi segja á Alþingi
og brást Lúðvík hart við þessari
afgreiðslu.
Lúðvík sagði að Halldór treysti
sér augljóslega ekki í efnisum-
ræðu um málið og væri í staðinn
með stæla, geðsveiflur og upp-
skafningshátt. Lúðvík beindi til
þingforseta að hann tæki það
upp við ráðherra að hann svaraði
því sem til hans væri beint.
Lúðvík sagði að einungis væri
um tvennt að ræða, að fara eftir
áliti samkeppnisráðs eða skjóta
málinu til dómstóla. „Og það
kæmi mér svo sem ekkert á óvart
að samgönguráðherra færi að
reka mál fyrir Flugleiðir fyrir
dómstólum. Halldór sagði að
hann hefði gefið fullkomlega
eðlilegt og glöggt svar „á þessu
stigi málsins".
I síðustu viku sagði Halldór í
Dagsfrétt að undanþágan á
greiðslu eldsneytisgjalds hafi
nánast komið fótunum undir
Flugleiðir á sínum tíma. „Þetta
hefur verið framkvæmt á þann
veg að ef flugfélag á sjálft sitt
bensfn þarf það ekki að greiða
eldsneytisgjald. Það hafa Flug-
Ieiðir gert og það felur alls ekki í
sér mismunun, því þetta geta all-
ir gert sem vilja. Það er enda í
hæsta máta eðlilegt, þegar mikil
viðskipti eiga sér stað, að reynt er
að hagræða þar sem mikill kostn-
aður Iiggur fyrir," sagði Halldór.
- FÞG
Undrandi á Halldóri
Gunnar Hilmarsson, sem situr í
flugráði, segir í samtali við Dag
að hann sé afar undrandi á af-
stöðu Halldórs Blöndais sam-
gönguráðherra í eldsneytisgjalds-
málinu. Halldór sagði í Degi að
honum þætti furðulegt að flug-
ráðsmenn vissu ekki hvernig inn-
heimtu gjaldsins væri háttað.
„Eg er undrandi á afstöðu ráð-
herrans. Við í flugráði höfum í
eitt og hálft ár spurst fyrir um
eldsneytisgjaldið og fengið fá
svör frá Flugmálastjórn, inn-
heimluaðila gjaldsins. Loks þeg-
ar svör komu reyndust fyrri svör
Gunnar Hilmarsson sem situr í flugráði
segist undrandi á afstöðu Halldórs
Blöndal.
röng. Flugmálastjórn vissi ekki
betur né heldur skrifstofustjóri
samgönguráðuneytisins, sem sit-
ur ílugráðsfundi. Halldór virðist
vita það sem fulitrúar hans vita
ekki,“ segir Gunnar.
Gunnar segir það mjög alvar-
legt fyrir aðila sem fara með fjár-
mál ríkisins að tugi milljóna
króna vanti í innheimtuna.
„Þetta mál þarf augljóslega að
skoða miklu betur og raunar
rannsaka rækilega af þar til bær-
um aðilum,“ segir Gunnar. - FÞG
Þrotabú E.G. fær S0 miUjónir
Samkomulag hefur náðst milli
skiptastjóra þrotabús Einars
Guðfinnssonar hf. (EG) á Bol-
ungarvík um að þrotabúið fái
greiddar út um 50 milljóna króna
inneign fyrirtækisins í Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna (SH).
Gjaldþrot EG var afar stórt
með lýstar kröfur upp á samtals
um 1,6 milljarð króna. Eignir
seldust upp í veðkröfur upp á um
900 milljónir króna, en óvissa er
um almennar kröfur upp á um
600 milljónir króna. Þær 50
milljónir sem nú koma frá SH
duga nokkurn veginn til greiðslu
forgangskrafna. SH hélt þessum
fjármunum eftir á sínum tíma
vegna rannsóknar á uppruna-
vottorðum vegna nýfrystrar
rækju en talið var að skaðabóta-
mál erlendra aðila gæti verið í
farvatninu. Þessi mál hafa dottið
upp fyrir og eftir að þrotabúið
höfðaði mál til innheimtu á inn-
eigninni í SH náðu aðilar sam-
komulagi um útgreiðslu. - FÞG