Dagur - 30.12.1997, Blaðsíða 6

Dagur - 30.12.1997, Blaðsíða 6
6-ÞRIÐJUDAGUR 30.DESEMBER 1997 ÞJÓÐMÁL mmsmmmm Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjaid m. vs'k.: Lausasöluverð: Grænt númer: Sfmbréf auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: HSMMi DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON stefAn JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 1A, REYKJAVÍK ABO 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.680 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 460 617UAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Jól í Bagdað í fyrsta lagi Oft ratast kjöftugum satt á munn. Ævintýramaður og pólitísk- ur jólasveinn, Astþór Magnússon, fór með bensínafgreiðslu- manni, félaga sínum í viðeigandi búningi, til borgar harma- grátsins: Bagdað. Hin siðferðislegu skilaboð komu af fjölum skrípaleikhúss sem alþjóðlegir fjölmiðlar í fréttahallæri sjón- vörpuðu beint: „Jólasveinninn vill ekki að börn séu drepin," sagði bensínafgreiðslumaðurinn og Astþór var bara örlítið rök- fastari með ferðatöskuna á öxlinni. En sjónarspilið kom mál- staðnum á framfæri. Við viljum ekki að börn séu drepin í okk- ar nafni. í öðru lagi Viðskiptabann Sameinuðu Þjóðanna á írak í kjölfar Persaflóa- stríðsins er hóprefsing gegn fólki sem hefur ekkert unnið sér til óhelgis annað en að búa við harðstjórn Saddams Husseins. Er það glæpur gegn okkur? Sem ber að refsa harðlega fyrir? Hundruð þúsunda barna hafa látist af völdum viðskiptabanns- ins. Ur sjúkdómum og vannæringu. Obreyttir borgarar þjást óbærilega. Vegna aðgerða sem Islendingar taka þátt í, jól og alla aðra daga. í þriðja lagi Flugferð jólasveinanna hefur litla líknandi þýðingu, en tákn- rænt gildi sjónleiksins er þrátt fyrir allt nægilegt til að minna okkur á að við erum ábyrg fyrir óverjandi aðgerðum og mis- notkun á nafni Sameinuðu þjóðanna. Þegar glæpamenn setja sprengju í almenningsvagn og myrða saklausa borgara til að koma skömm í hatt þriðja aðila kallast það hryðjuverk. Hver er eðlismunurinn á því og viðskiptabanni Islands á Irak? Stefán Jón Hafstein. i Ástþðr og Dagsbrún arj ólas vetnniim „Stop killing the children," voru skilaboðin sem gamli Dagsbrúnarmaðurinn, Kristján Árnason, flutti í búningi jóla- sveins þar sem hann stóð í dyr- um flugvélar Friðar 2000 eftir að hún lenti í írak nú um há- tíðarnar. Óneitanlega var þetta nokkuð brosleg sena, bæði vegna þess að jólasveinaenskan var með svo dásamlega þykkum íslenskum hreim og þá ekki síð- ur vegna þess að fyrirbær- ið jólasveinn er óþekkt í hinu islamska Irak. Það hefur því verið einkenni- legur fagnaðarboðskapur að sjá rauðklæddan Dags- brúnarmann frá íslandi tala sérkennilegum tungum í dyrum rússneskrar flugvélar á vegum Ástþórs Magnússonar. Fj ölmiðlaathygli Ástþór Magnússon náði íflug- ferð sinni til Irak um jólin að draga athygli heimsins að við- skiptabanninu á írak með kröftugri hætti en hingað til hefur tekist. Athygli helstu fjöl- miðla heims beindist að þessari heimsókn og hún var eitt helsta fréttaefnið á mörgum sjón- varpsstöðvum yfir jólin. Með því að taka fársjúka fimm ára stúlku og fjölskyldu hennar með frá írak hefur hann enn fremur tryggt sér áframhald- andi umfjöllun og nær að halda kastjósinu á viðskiptabanninu miklu lengur en ella hefði orð- ið. Ástþór Magnússon og Dags- brúnaijólasveinninn standa því með pálmann í höndunum hvað athygli varðar. Það eina sem hefði getað vakið meiri at- hygli heimsbyggðarinnar en jólasveinn með íslenskan hreim að bjarga barni í Irak, væri ef stórhveli hefði verið í lífshættu. En alkunna er að heims- byggðin er næmari fyrir útrým- ingu hvala og dauða en fyrir ör- lögum manna í tjarlægum löndum. Og vegna þess að ekki var vitað um um neinn hval í háska um jólin hafa afleiðingar viðskiptabannsins nú komið óvenju vel fram. Notaður af Saddam Allt hefði þetta verið frábært hjá þeim Ástþóri og Dags- brúnarjólasveininum, ef ekki hefðu komið til ýmis viðbótarskilaboð í kring- um þessa ferð þeirra. Við- skiptabönn eru almennt vafasöm þvingunaraðgerð og oft gagnslaus til að ná fram þeim markmiðum sem lagt er upp með. Viðskiptabannið á Irak er gott dæmi um það. Áhrifin koma minnst við stjórn- völd en afleiðingarnar eru skelfilegar fyrir allan almenn- ing. Það voru hins vegar ekki skilaboðin sem komu frá Ást- þóri Magnússyni og jólasvein- inum £ Baghdad. Samkvæmt þeim voru það Sameinuðu þjóðirnar einar sem voru vondi aðilinn í málinu fyrir að hafa beitt fyrir sig viðskiptabanni. Saddam Hussain var gjörsam- lega stikkfrí, enda gerði hann hvað hann gat til að notfæra sjálfum sér til framdráttar þessa ferð íslendinganna. „Stop killing the children" átti ekki við hann eða stjórn hans, sem uppvís hefur orðið að upp- söfnun gjöreyðingarvopna, lít- ilsvirðingu gagnvart hinu al- þjóðlega samfélagi og kúgun og fjöldamorðum á eigin þegnum. Því er ekki rétt að lýsa uppá- komunni á Baghdadflugvelli sem broslegri. Hún var grát- brosleg. GARRI. JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar Minnisleysi og metsðluráðherra Árið er senn, eins og þar stendur, liðið í aldanna skaut. Og aldrei það kemur til baka. Og svo fram- vegis. Og ekkert nema gottum það að segja. A.m.k. þýðir lítt að harma það sérstaklega eða hafa uppi mótmæli harðleg, því ekk- ert fær stöðvað tímans þunga straum, eða kannski flaum eða glaum? Það er háttur okkar margra á þessum dögum að líta ögn til baka og velta fyrir okkur þessu ári frá ýmsum hliðum, þ.e. ef hófleysi jólanna, ofátið og of- drykkjan hefur ekki valdið svo andlegum sljóleika með því að hjúpa vitundina fitulagi for- heimskunar, að við erum alls ófær um að rifja upp eitt eða neitt, skoða og skilgreina af skynsamlegu viti. Gleymska er aHt sem þarf Hvað hefur þetta ár fært okkur og hvað hefur þetta ár tekið frá okkur? Hverjir eru menn ársins og hverjir eru amlóðar þess t.d. í hópi stjórnmálamannanna? Sennilega er flestum efst í huga við áramót það sem hefur snert þá persónulega á einhvern hátt í sorg og gleði. Ástvinamiss- ir eða einstakar hamingjustund- ir, fremur en skakkaföll í opin- berri stjórnsýslu eða áföll á lands- mælikvarða. Á þessum dögum er hver sjálfum sér næstur eins og alla jafnan. Langtíma- og skammtíma- minni okkar á at- burði og persónur sem snerta okkur ekki beint er brigðult. Og það er í ljósi þessa heppi- lega minnisleysis sem stjórn- málamennirnir ganga keikir inn í nýja árið, þess fullvissir að mis- tök þeirra stór og smá, jafnvel misgjörðir, verða gleymd og graf- in þegar þjóðin bröltir á fætur í þokukenndri skelþynnku nýárs- dagsins. Minnisleysi þjóðarinnar er höfuðforsenda þess að mis- heppnaðir stjórnmálamenn geti starfað kjörtímabil- um saman eins og ekkert hafi í skorist. En hefur það einnig í för með sér aðdugandi menn á þessum vettvangi hrölddast á stundum óverð- skuldað af sviðinu. Jeffrey Archer íslands Talandi um stjórn- málamenn þá hafa þau tíðindi gerst sem líkast til eru einsdæmi í vestrænum heimi að forsætis- ráðherra landsins er jafnframt orðinn vinsælasti rithöfundur þess og hefur skákað margreynd- um sagnasmiðum og Norður- landameisturum á því sviði. Illar og andsnúnar tungur munu auð- vitað segja að forsætisráðherra hafi ekki minni reynslu en met- sölurithöfundar þjóðarinnar f að setja saman skáldsögur og hag- ræða veruleikanum og sannleik- anum í eigin þágu. En það breyt- ir því ekki að við státum af met- sölurithöfundi í stóli forsætis- ráðherra og hvað er eölilegra hjá sjálfri bókaþjóðinni, sem byggir tilverugrundvöll sinn og sjálf- stæði á gömlum skræðum og varðveislu tungunnar. Við skulum því óska sjálfum okkur til hamingju með Davíð Oddsson - sem rithöfund. Og megi hann stíga á stokk um ára- mótin og strengja þess heit að halda áfram að skrifa - jafnvel þó verði á kostnað annarra hnappa sem hann þarf að hneppa. Ilvad finnstjer um framtak Ástþórs Magn- ússonar í írah? Amþór Helgason varaformaður Framsóltnarfélags Sdtjamamess. Eg held að við séum sammála um að framtak Ástþórs sé mjög virðingarvert. Hann tók þá af- stöðu að flytja einvörðungu til Iraks varnings sem Sameinuðu þjóðirnar gátu sætt sig við. Það hlýtur samt að segja sig sjálft að aðstoð með þessum hætti getur ekki komið í stað eðlilegra við- skipta við landið. Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra lét þess getið fyrir um mánuði að hann væri hlynntur því að við- skiptabanni Islands á frak yrði aflétt ef aðrir gerðu það. Nú hafa íslendingar alla burði til þess að aflétta einhliða slíku banni og hætta með því þátttöku í þjóðar- morði. Sr. Vigfús Þór Ámason sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Mér finnst já- kvætt að gerðar séu tilraunir til að benda á þá þjáningu sem þarna er til stað- ar, ekki síst hjá börnum sem fá ekki nægan mat og lyf við veik- indum. Allt er þetta til að benda á hvað ástandið í landinu er al- varlegt. Allir aðilar verða að sam- einast um að finna lausn í þessu máli þó það verði efalaust erfitt á meðan Saddam stjórnar - einsog hann hefur stjórnað. Margrét Frímannsdóttir form. Alþýðubandalagsins ogfulltrúi i utanríkismálanefndAlþingis. Mér finnst fram- tak hans vera mjög virðingar- vert og greinilegt er að Ástþór er maður sem lætur verkin tala. Þá deili ég einnig með Astþóri skoðunum hans á viðskiptabanninu, sem bitnar harðast á þeim er síst skyldi. Það mun seint takast að svelta þessa höfðingja til hlýðni, því þeir sjá til þ ess sjálfir að hafa nóg - á meðan börnin svelta. Ami Ragnar Ámason þingmaðurSjálfstæðisfloltltsogfull- trúi í utanríkismálanefnd Alþingis. Eg tel að þarna sé um að ræða aðgerð í átökum á milli ríkja. Þó ég áfellist ekki samtök einsog Frið 2000, sem vilja koma fólki í nauðum til aðstoðar, get ég ekki tekið undir þau sjónarmið að fella eigi niður aðgerðir af hálfu ríkja sem írak hefur átt í deilurn og jafnvel átökum við. Stað- reyndin er sú að írakar hafa hvað eftir annað gerst brotlegir við al- þjóðlegar samþykktir og við- skiptabannið er afleiðing þeirra gjörða stjórnvalda í Bagdad.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.