Dagur - 06.02.1998, Síða 3
FÖSTVDAGVR 6.FEBRÚAR 1998 -3
Thgpr'
FRÉTTIR
Alþýðub andalagsmeim
takast á iim auðlmdagj ald
Míðstjóm Alþýðu-
baudalagsins tekur
væntaulega afstöðu
til ágreinings sem
uppi er í flokknum
um stefnuna í auð-
lindagjaldsmálum á
fundi inii helgina.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
kemur saman til fundar um
helgina, en Iandsfundur flokks-
ins vísaði til hennar ágreiningi
um auðlindir í þjóðareigu og
stefnuna í sjávarútvegsmálum.
Olíklegt er að miðstjórnin taki
af skarið í sjávarútvegsmálun-
um, því væntanlega verður
vinnunefnd falið að fara yfir
framkomnar tillögur í þeim efn-
um og reyna að búa til úr þeim
heildstæða stefnu. Formanni AI-
þýðubandalagsins er hins vegar
mjög í mun að tekin verði af-
drátttarlaus afstaða til þeirra
tveggja tillagna um auðlinda-
gjald sem fyrir liggja.
I báðum er gert ráð fyrir að
skipuð verði nefnd til að skil-
greina auðlindir í sameign þjóð-
arinnar og gera tillögur um
gjaldtöku fyrir afnot þeirra.
Samkvæmt tillögu sem Ragnar
Arnalds og fleiri fluttu á lands-
fundinum verður aðeins leyft að
taka gjald til að standa undir
rannsóknum, vernd og sjálf-
bærri nýtingu auðlinda og er
það í samræmi við frumvarp
sem 7 af 9 þingmönnum AI-
þýðubandalagsins hafa lagt
fram á þingi. I tillögu Margrétar
Frímannsdóttur er hins vegar
gert ráð fyrir að auðlindagjald
megi nýta til að stuðla að rétt-
látri skiptingu afrakstursins,
m.a. til að styrkja byggð um
landið.
Formaður Alþýðubandalags-
ins vill með öðrum orðum ganga
lengra en meirihluti þingflokks-
ins og um þetta verður tekist á
miðstjórnarfundinum um helg-
ina. Ymsum innan flokksins
þykir eðlilegra að afgreiða þetta
mál í samhengi við sjávarútvegs-
stefnuna, sem eins og fyrr sagði
verður sett í nefnd, enda séu
þau mál nátengd. Margréti
finnst hins vegar mikilvægt að
miðstjórnin afgreiði málið.
„Breytt umhverfi kallar á að
stefna stjórnmálaflokka sé skýr
hvað auðlindir þjóðarinnar varð-
ar og hvernig með þær skuli
fara,“ segir hún.
Viðbúið er að kratar fylgist af
áhuga með miðstjórnarfundin-
um enda telja margir að mögu-
leikar á samstarfi flokkanna
kunni að einhverju leyti að velta
á því hvernig Alþýðubandalagið
afgreiði auðlindapólitíkina. Til-
laga Margrétar er meira í anda
Alþýðuflokksins, en hún vill
ekki kannast við að vera stíga
skref til að nálgast sjónarmið
krata. Það sé aukaatriði og ef
eitthvað er hafi Alþýðuflokkur-
inn heldur nálgast Alþýðu-
bandalagið með því að draga úr
ofuráherslu sinni á veiðileyfa-
gjald og beina sjónum að auð-
lindagjaldi almennt.
Miðar vel
Margrét segir að viðræður fé-
lagshyggjuflokkanna um sam-
starf í næstu kosningum hafi
gengið eins og ráð hafi verið fyr-
ir gert, en hins vegar fari mikill
tími núna í undirbúning sveitar-
stjórnarkosninga. Staðan í
þeim málum segi reyndar allt
sem segja þurfi um sameiningar-
málin. „Það eru að verða til
sameiginlegir listar þessara
flokka í nær öllum stærstu sveit-
arfélögunum. Það er auðvatað
sterk vísbending um það sem
koma skal hvenær sem það
veröur."
Stórsigur fyrir ís-
lenska karlmeim
Feður taka æ meiri þátt i umönnun og uppeldi barna sinna og nú hefur fallið dómur i Hæstarétti,
þar sem staðfestur er réttur feðra sem starfa hjá rikinu til að nýta hluta fæðingarorlofs
mæðranna óskl foreldrarnir þess.
Fj ármálaráðuneytið
mátti ekki synja Sig-
urði Torfa Guð-
mimdssyni um laim
að feðraorlof. „Stór-
sigur fyrir íslenska
karlmenn,“ segir Sig-
urður.
Hæstiréttur hefur komist að
þeirri niðurstöðu að ákvörðun
fjármálaráðuneytisins um að
greiða Sigurði Torfa Guð-
mundssyni ekki laun í fæðingar-
orlofi hafi verið ólögmæt.
Hæstiréttur staðfestir þar með
rétt feðra til fæðingarorlofs á
launum.
„Þetta er stórsigur fyrir ís-
lenska karlmenn. Þetta er von-
um framar og það er gaman að
því að þjóðfélagið skuli vera að
breytast með þessum hætti, því
þarna sigrar sú hugsun að um-
önnun beggja foreldra skili betri
einstaldingum út í þjóðfélagið
þegar fram í sækir. Þetta er mik-
ill sigur,“ segir Sigurður Torfi
um niðurstöðu Hæstaréttar.
Sigurður Torfi sótti um laun-
að feðraorlof í einn mánuð í
september 1995 en tjármála-
ráðuneytið synjaði því með þeim
rökum að rétturinn næði aðeins
til kvenna á launaskrá ríkisins.
Þó lá fyTÍr að eiginkona Sigurð-
ar, sem einnig er ríkisstarfsmað-
ur, rnyndi afsala sér mánuði af
sínu orlofi. Eiginkonan hefur
fengið greidd laun í fulla sex
mánuði og því ekki gerð krafa af
Sigurði um að fá greiðslur, held-
ur var málið rekið af kærunefnd
jafnréttismála sem prinsippmál,
enda ótvíræður andi jafnrétt-
islaga að feður jafnt sem mæður
hafi rétt til launaðs orlofs eftir
fæðingu barns og hvers kyns
mismunun eftir kynferði óheim-
il. Hæstiréttur undirstrikar í úr-
skurði sínum að fæðingarorlof
sé annars vegar hugsað til þess
að konur geti jafnað sig eftir
barnsburð, en einnig að foreldr-
ar fái báðir tældfæri til að ann-
ast barn sitt fyrstu mánuði ævi
þess. - FÞG
GuUinbrú hið fyrsta
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði á borgarstjórnarfundi
í gær að svo gæti farið að borgin hæfi sjálf framkvæmdir \ið breikk-
un Gullinbrúar í Grafarvogi, ef ríkið gæfi ekki fyrirheit um það fljót-
lega. Brúin telst til
stofnbrautar og heyr-
ir því undir ríkið.
Borgin hefur boðist
til að lána ríkinu fé til
framkvæmdanna en
svar við því tilboði
hefur ekki borist.
Ingibjörg sagðist gefa
ríkisvaldinu hálfan
mánuð til að svara,
en það væri ekki
hægt að bíða lengur ______________________
með þessar fram-
kvæmdir.
Samgöngumálin voru rædd á opnum borgarfundi sem Sjálfstæðis-
Ilokkurinn hélt í Grafarvogi í gærkvöld.
Samnorræn sýning í París
Sex Islendingar eiga verk á stærstu samnorrænu myndlistarsýningu
sem haldin hefur verið í París og opnar í kvöld. Það eru Þorvaldur
Þorsteinsson, Olafur Elíasson, Anna Guðjónsdóttir, Inga Svala Þórs-
dóttir, Kristinn Harðarson og Hannes Lárusson. Þá kemur Björk
Guðmundsdóttir við sögu með óbeinum hætti, því breski listamaður-
inn Jeremy Deller ætlar að nota myndbönd hennar og setur þau upp
með finnska hljóðlistarmanninum Mika Vainio.
Hundruð dauðra fugla
Mikið af dauðum svartfugli hefur rundist á Ijörum við Suðaustur-
land. A svæðinu frá Ingólfshöfða austur að Stokksnesi skipta dauðu
fuglarnir hundruðum, jafnvel þúsundum, samkvæmt fréttum Ut-
varpsins. Bera fór á fugladauðanum iyrir um hálfum mánuði og er
húið að senda nokkra fugla til skoðunar hjá Náttúrufræðistofnun.
Heimamenn telja líklegt að fuglinn hafi drepist úr hor.
Gullinbrú i Grafarvogi.