Dagur - 06.02.1998, Qupperneq 12
12 - FÖSTUDAGUR 6. FEBHÚAR 1998
ÍÞRÓTTIR
Grmdavík áfram
á toppmun
Rafmagnað loft í
Hafnarfirði og Grinda-
vík. ÍR vinnur Val og
ísfirðingar snéru
leHmum sér í hag í
Borgamesi.
Haukarnir hófu leik sinn við
Keflvíkinga af krafti á heimavelli
sínum í Hafnarfirði. Þeir höfðu
yfirhöndina allan fyrri hálfleik-
inn og virtust mun sterkari aðil-
inn og leiddu í Ieikhléi, 45:41.
Bandaríkjamaðurinn Sherrick
Simpson fór á kostum og skoraði
16 stig í hálfleiknum. I seinni
hálfleik sneru Keflvíkingar dæm-
inu við og náðu að jafna leikinn
í 55:55. Eftir það skiptust liðin á
um forystuna og spennan hélst
til loka þar sem bæði Iiðin gátu
sigrað. Það voru þau Haukarnir
sem unnu taugastríðið og höl-
uðu inn sigurinn, 68:67.
Leikur Grindvíkinga við
Njarðvík var nánast spegilmynd
af leik Hauka og Keflvíkinga.
Grindvíkingar leiddu með 12
stigum í leikhléi, 55:43, og eng-
inn trúði á sigur Njarðta'kinga
nema þeir sjálfir. Friðrik Ingi tal-
aði yfir hausamótunum á sínum
mönnum í hálfleik og það var
nýtt og breytt NjarðWkurlið sem
kom og sneri leiknum sér í hag í
seinni hálfleik. Þegar 5 sekúnd-
ur voru til leiksloka- var staðan
80:80 og Grindvíkingar rændu
Haukar mörðu sigur gegn Keflvíkingum í gærkvöld. - mynd: bg
gesti sína boltanum og Darryl
Wilson skoraði glæsilega 3ja
stiga körfu og tryggði sínum
mönnum sigurinn, 83:80.
Skallagrímsmenn stóðu í Is-
firðingum í fyrri hálfleik og virt-
ust hafa leikinn í höndum sér en
ísfirðingar sneru dæminu við í
seinni hálfleik og unnu öruggan
sigur, 71:94, sem þeir geta þakk-
að Bandaríkjamanninum David
Bevis.
Þau undur og stórmerki áttu
sér stað á Hlíðarenda að hotnlið
deildarinnar lagði Val að velli,
81:86. Sigur IR-inga var örugg-
ari en tölurnar segja til um.
Þórsarar sigruðu ÍA í fjörugum
leik á Akureyri, 90:74, þar sem
heimamenn réðu ferðinni frá
fyrstu mínútu vel studdir af frá-
bærum áhorfendum.
Úrslit lcikja í gærkvöld:
Haukar-Keflavík 68:67
Grindavík-Njarðvík 83:80
Skallagrímur-KFÍ 71:94
Valur-IR 81:86
Þór-ÍA 90:74
Staðan er nú þessi:
Grindavík 17 1584:1412 30
Haukar 17 1437:1224 26
KFÍ 17 1493:1390 22
Keflavík 17 1540:1453 20
Njarðvík 17 1485:1398 18
Tindastóll 16 1260:1212 18
ÍA 17 1324:1339 16
KR 16 1293:1320 16
Skallagrímurl 7 1398:1509 14
Valur 17 1373:1478 10
ÍR 17 1333:1557 6
Þór 17 1325:1553 6
Sautjándu umferð úrvalsdeild-
arinnar lýkur í kvöld með viður-
eign Tindastóls og KR á Sauðár-
króki kl. 20. - c.i>o/jj/ie
Fjölnieraiustu vetrar-
leikamir verða settir í nótt
Fjölmennustu vetrarólympíuleik-
ar sögunnar verða settir í dag í
Nagano í Japan, eða um kl. tvö að
nóttu að íslenskum tíma. Um
2600 keppendur frá 72 þjóðlönd-
um taka þátt í leikunum, eða tæp-
lega átta hundruð fleiri en voru á
leikunum í Albertville fy'rir sex
árum. Islendingar senda að þessu
sinni átta keppendur sem allir
keppa í alpagreinum.
íslenski hópurinn undir farar-
stjórn Kristjáns Vilhelmssonar
kom til Nagano eftir ellefu tíma
flug frá Kaupmannahöfn í gær-
morgun kl. 7:20 að íslenskum
tíma (16:20 að staðartíma) og ís-
lenski hópurinn dró íslenska fán-
ann að húni í ólympíuþorpinu.
Klukkan tvö í nótt að íslenskum
tíma hefst setningarathöfn leik-
anna og þegar hefur verið ákveðið
að Theodóra Mathiesen verði
fánaberi íslenska hópsins.
Tveir ókomnir
Ljóst er að það verða ekki allir ís-
lensku keppendurnir við athöfn-
ina, því tveir þeirra eru ókomnir
til Japan. Það eru þeir Kristinn
Björnsson, sem er við æfingar
með sænskíi landsliðinu í Svíþjóð
og hyggst koma til Japan þann 10.
þessa mánaðar, og Jóhann Hauk-
ur Hafstein, sem er við nám og
æfingar í Veilo í Noregi. Það ætti
Theodóra Mathiesen.
ekki að koma að sök, því þeir
bytja ekld að keppa fyrr en eftir
tæpar tvær vikur, á síðustu dög-
um leikanna.
Bry nja Þorsteinsdóttir frá Akur-
eyri verður fyrst íslendinga til að
keppa á leikunum, en keppni
kvenna í risasvigi fer fram næsta
þriðjudag. Að öðru leyti eru hinar
hefðbundnari alpagreinar, svig og
stórs\ig, hafðar síðastar en leik-
unum Iýkur þann 21. þessa mán-
aðar.
Vel sóttir leikar
Það er ekki nóg með að leikarnir í
Nagano séu fjölmennustu Ieik-
arnir, heldur mun aðsóknin verða
meiri en í Lillehammer fyrir fjór-
um árum. Stuttu fyrir leikana var
Brynja Þorsteinsdótt/r.
84 prósent allra aðgöngumiða
seldir, eða tæplega 1,1 milljón
miða. Þegar var uppselt á skauta-
hlaup og Curling-keppnina, en
ennþá var hægt að fá miða á ís-
hokkíleiki.
Betra lyíjaeftirlit
Japanir taka í notkun fullkomna
rannsóknastofu og beita nýjum
aðferðum við að hafa upp á ster-
um og öðrum lyfjum sem eru á
bannlista. Gert er ráð fyrir því að
um 5-600 keppendur skili
þvagprufum, sem er svipaður fjöl-
di og í Lillehammer fyrir tveimur
árum, en tækninni hefur fleygt
fram síðan þá og notast er við ný
efnasamhönd til að kanna hvort
íþróttamenn hafi neytt stera.
Mættir aftur
Jamaíka hefur aldrei verið þekkt
fyrir vetaríþróttamenn í fremstu
röð, kannski af skiljanlegum
ástæðum. Þeir eiga þó þekltt lið
sem mætir til Ieiks í sleðakeppni á
Ieikunum í Nagano, en íjórmenn-
ingarnir frá Jamaíka vöktu heims-
athygli þegar þeir voru með á Ieik-
unum í Calgary 1988. Segja má
að frægð þeirra hafi risið hæst
þegar bíómyndin „Cool Runn-
ings“ var gerð um uppátæki þeir-
ra. Reagge-mennirnir frá Jamaíka
eru semsagt mættir á nyjan leik
og segjast vonast til þess að í
þetta skipti verði þeir teknir alvar-
lega, ekki sem einhverju
skemmtiatriði!
Yfir 100 klst.
áskjánum
Vetrarólympíuleikarnir ( Nagano
í Japan verða formlega settir í
nótt. Ríkissjónvarpið sýnir beint
frá setningarathöfninni sem
hefst kl. 02:00 að íslenskum
tíma. Sjónvarpið mun sýna, í
beinni útsendingu, 70 klukku-
stundir frá leikunum. Auk þess
verður sérstakur Olympíupakki
á hverju kvöldi miili klukkan
19.00 og 20.00. Einnig verða
endursýningar á efni frá leikun-
um flesta daga \ikunnar. — GÞÖ
ENSKI BOLTINN
Fiimntán á sölulista
Enska 1. deildarliðið Manchest-
er City, sem hefur átt í miklu
basli í deildinni í vetur, setti í
gær fimmtán leikmenn sína á
sölulista. Ráðstafanir Man-
chestermanna og framkvæmda-
stjóra félagsins, Frank Clarke,
eru til þess gerðar að rétta félag-
ið við fjárhagslega og minnka
launakostnað.
McClair meiddist
Brian McCIair, miðjumaður
Manchester United, meiddist í
leik með varaliði félagsins gegn
Sheffield Wednesday í fyrra-
kvöld og ljóst er að hann mun
ekki verða með liðinu gegn
Bolton á Iaugardaginn. Nicky
Butt Ieikur ekld með Man. Utd.
á laugardag vegna leikbanns og
þá er Ronny Johnsen meiddur á
kálfa.
INNLENT
Toppleikur á Selfossi
Einn af úrslitaleikjunum í 2.
deild karla í handknattleik verð-
ur háður í kvöld, þegar Selfyss-
ingar taka á móti Þórsurum, en
leikurinn hefst kl. 20 á Selfossi
og kann að ráða miklu um það
hvort Iiðin tvö vinni sér I. deild-
arsæti. Þá mætast á Isafirði á
sama tíma Hörður og HM, sem
bæði sigla lygnan sjó í deildinni.
Ohætt er að segja að spennan
sé mikil á toppi deildarinnar.
Grótta/KR er nú í efsta sætinu
með 18 stig að afloknum ellefu
leikjum, Fylkir hefur stigi minna
eftir ellefu leiki. Selfoss og Þór
eiga bæði tvo leiki til góða á
toppliðin, því leikurinn í kvöld
er tíundi leikur beggja Iiða í
deildinni. Þór er nú með 16 stig
og getur komist upp að hlið
Gróttu/KR og Selfyssingar eru
með 14 stig og þurfa nauðsyn-
lega á sigri að halda til að halda
í vonina um 1. deildarsæti, því
aðeins sextán umferðir eru
leiknar í deildinni.
Keppnisdagar
íslendingaima
Febrúar
10. - Risasvig kvenna
Brynja Þorsteinsdóttir
18. - Stórsvig kvenna
Brynja Þorsteinsdóttir
Theodóra Mathiesen
19. - Svig karla
Arnór Gunnarsson
Haukur Arnórsson
Kristinn Björnsson
Sveinn Brynjólfsson
20. Stórsvig karla
Haukur Arnórsson
Jóhann Haukur Hafstein
Kristinn Björnsson
21. Svig kvenna
Brynja Þorsteinsdóttir
Sigríður Þorláksdóttir
Theodóra Mathiesen
Þess má geta að fimm ís-
lenskir keppendur voru á
síðustu leikum sem fram
fóru í Lillehammer, þar af
voru þrír úr alpagreinum.
Tveir þeirra keppa í Naga-
no, en það eru þeir Kristinn
Björnsson og Haukur Arn-
órsson.