Dagur - 07.02.1998, Blaðsíða 4
4- LAUGARDAGUR 7. FERRÚAR 1998
ro^tr
FRÉTTIR
L >
Meimingaverðlaim VÍS afhent
Forseti Islands, Olafur Ragnar Grímsson, afhenti menningarverðlaun
VIS við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands. Menningarsjóður VIS
verðlaunar árlega íslenska einstaklinga sem að mati stjórnar sjóðsins
skara fram úr á sviði lista og vísinda.
Hæsta styrkinn, eina milljón króna, hlaut Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari sem er löngu landsþekktur fyrir störf sfn að tónlistarmál-
um. Auk þess að vera meðleikari margra helstu söngvara þjóðarinnar
hefur hann haldið fjölda einleikstónleika víða um land.
Þá hlutu þeir Olafur Halldórsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Eyja-
fjarðar, og Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar
Leifs Eiríkssonar, fimmhundruð þúsund krónur hvor.
Lögmeim mótmæla gjöldum
Stjórn Lögmannafélags Islands hefur sent frá sér ályktun þar sem Al-
þingi er hvatt til að endurskoða nú þegar breytingar á Iögum um
aukatekjur ríkissjóðs, þar sem gjöld fyrir fuilnustuaðgerðir og réttar-
gjöld eru hækkuð verulega.
Stjórn lögmannafélagsins segir gjöld þessi fyrst og fremst greidd af
þeim sem minna mega sín, þ.e. fólki í fjárhagsvandræðum. Lög-
mannafélagið vekur athygli á því að með þessu er verið að samþykkja
að hækka um 100 milljónir gjöld, sem skuldarar landsins greiði fyrst
og fremst.
Innilegar þakkir til allra
sem glöddu mig á áttrœðisafmœli mínu
þann 4. febrúar með heimsóknum,
gjöfum og skeytum.
Lifið heil.
Sigríður Valdimarsdóttir
Böðvarsgarði
Fnjóskadal.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
GUNNARS B. LOFTSSONAR.
Innilegar þakkir til starfsfólksins á Hjúkrunar-
heimilinu Seli fyrir frábæra umönnun.
Sugríður Guðmundsdóttir,
Yngvi R. Loftsson, Hrefna Jakobsdóttir,
Margrét Yngvadóttir, Nanna G. Yngvadóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT ÓLAFSSON
bóndi, Laxárdal
Þistilfirði
verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju
fimmtudaginn 12. febrúar kl. 14.00.
Elín M. Pétursdóttir,
Bragi Eggertsson, Helga Jóhannsdóttir,
Petra S. Sverrisen, Einar Friðbjörnsson,
Ólafur Eggertsson, Anna Antoníusdóttir,
Stefán Eggertsson, Hólmfríður Jóhannesdóttir,
Marinó P. Eggertsson, Ósk Ásgeirsdóttir,
Guðrún G. Eggertsdóttir,
Þórarinn Eggertsson, Særún Haukdal,
Garðar Eggertsson, Iðunn Antonsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sr. Valgeir Ástráðsson hefur unnið mái gegn ríkinu og fengið staðfest að prestar geta dregið frá kostnað eins og
aðrir verktakar. - mvnd: bg
Prestar eru full
gildir verktákar
Prestar mega draga
kostnað vegna auka-
verka frá tekjum af
þeim verkum, þótt
ríkið greiði sérstakan
embættiskostnað.
Hæstiréttur hefur úrskurðað að
prestar megi eins og verktakar
Ieggja fram kostnaðarreikninga á
móti tekjum vegna ýmissa
prestsverka (aukaverk). Hæsti-
réttur staðfesti dóm undirréttar
um þetta í máli íslenska ríkisins
gegn séra Valgeiri Ástráðssyni,
en um prófmál var að ræða um
stöðu allra presta.
Prestar eru á launum hjá rík-
inu en fá þess fyrir utan greiðsl-
ur fyrir verk eins og skírnir, ferm-
ingar, jarðarfarir, giftingar og út-
gáfu embættisvottorða. Fram að
þessu hafa þeir ekki mátt færa
fram kostnaðarreikninga á móti
þessum tekjum, svo sem vegna
aksturs, ritfanga og annað í þeim
dúr. Hins vegar hafa verið settar
reglur um greiðslu embættis-
kostnaðar presta og prófasta,
sem þó hafa ekki verið birtar.
Hjá sumum prestum er til-
fallandi kostnaður vegna emb-
ættisverka vel hærri en þessar
reglur segja til um. Skattyfirvöld
hafa talið að ýmsir kostnaðar-
reikningar presta mættu ekki
koma á móti tekjum þar sem þeir
féllu undir embættiskostnað,
sem ríkið greiddi.
Dómarar Hæstaréttar töldu
skattaframkvæmdina hafa verið
ómarkvissa árum saman og að
allan vafa yrði að túlka prestin-
um í hag. Dómararnir staðfestu
því undirréttardóminn en tóku
ekki afstöðu til einstakra frá-
dráttarliða. — FÞG
Rangæingar
vilja sameinast
Alls 77% Rangæinga
vilja sjá sveitarfélög í
Rangárþingi samein-
ast. Sveitarstjórnir og
héraðsnefnd iiiiuiu
móta tillögur iun þau
efni. Ef til vill verður
kosið um sameiningu
í vor.
Afgerandi meirihluti íbúa í
Rangárþingi er fylgjandi samein-
ingu sveitarfélaga f sýslunni, skv.
skoðanakönnun sem Gallup hef-
úr gert fyrir Héraðsnefnd Rang-
æinga. 77% íbúanna eru hlynnt-
ir sameiningu, en heildarsvörun
í könnuninni var um 90% í tæp-
lega 1.700 manna úrtaki. „Þessi
mikli vilji íbúanna við samein-
ingu fer fram úr mínum björt-
ustu vonum,“ segir Guðmundur
Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri
Rangárvallahrepps, sem situr í
vinnunefnd Héraðsnefndar um
sameingarmál, í samtali við Dag.
Gallup spurði hvort fólk væri
hlynnt eða andvígt sameiningu
sveitarfélaga í héraðinu. Af þeim
„Þessi mikli viiji ibúa við sameiningu
fer fram úr mínum björtustu vonum, “
segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
sveitarstjóri Rangárvallahrepps.
sem afstöðu tóku voru 77%
hlynntir sameiningu, 13% and-
vígir og 10% hlutlausir. Minnst-
ur var stuðningur við samein-
ingu í Fljótshlíð, 62%, en mestur
í V-Landeyjum, 85%. Spurt var
um hvaða sameiningarmynstur
íbúar vildu sjá; þ.e. eitt eða tvö
sveitarfélög eða þá einhvern
annan sameiningarkost. Þar
nefndu 44,4% eitt sveitarfélag,
46,6% tvö sveitarfélög og 9%
höfðu aðra kosti í huga.
Guðmundur Ingi Gunnlaugs-
son segir að á næstu tveimur vik-
um muni sveitarstjórnir ræða
sameiningarmál og koma í fram-
haldinu með sínar hugmyndir
sem lagðar verða fyrir Héraðs-
nefnd Rangæinga, sem aftur
muni móta tillögur um samein-
ingu. Guðmundur \ill ekki segja
til um hvort kosið verði um sam-
einingu samhliða sveitarstjórnar-
kosningum í vor, en útilokar slíkt
þó ekki.
Segja má að Rangárþing skipt-
ist í tvennt um Eystri-Rangá. Svo
hefur verið litið á að Flella sé
höfustaður vestari hlutans og
HvolsvöIIur hins eystri, en báðir
staðirnir eru svipaðir með tilliti
til íbúaljölda og samfélagsgerðar.
Guðmundur Ingi óttast ekki að
torvelt verði að marka öðrum
hvorum staðnum hlutverk höf-
uðstaðar, verði sýslan gerð að
einu sveitarfélagi. Samgöngur og
tæknimöguleikar í dag séu með
þeim hætti að hægt sé að veita
fólki um alla sýsluna góða þjón-
ustu af hálfu sveitarfélagsins - og
því sé karp um höfuðstað í hér-
aði óþarft. — SBS